Morgunblaðið - 03.12.1967, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 03.12.1967, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DES. 1967 7 Jólasveinar í Vesturveri (XÍJIJ&, Jar\&.ta.ns<\óitir & ara. jfj SÍkrlkn*. 1 dag gl. 4,30 verður vafalaust kátt framan við Vesturver eins og venjulega á jólaföstu, því að þá eins og áður koma jólasvein- ar síkátir í heimsókn. Venjulega hefur mikill mannfjöldi safnazt saman framan við Vesturver, þegar jólasveinarnir troða þar upp, og án efa teyma krakkarnir forelda sína með að þessu sinni. Svona skemmtun mun verða í Vesturveri hvern sunnudag til jóla. Myndin hér að ofan er af Kjötkróki, eftir teikningu Gígju Jónatansdóttur, 10 ára. Síðan við birtum jólasveinamyndina, hafa okkur borizt margar teikningar, en í guðs bænum látið okkur nú ekki drukkna í teikningum, krakkar mínir. FRETTIR Kvenfélag Neskirkju heldur spilakvöld fimmtudaginn 7. des. kl. 8 í félagsheimilinu. — Spiluð- félagsvist. Spilaverðlaun. Kaffi. Kvenfélagskonur, Keflavík. Fundur þriðjudag, 5. des. kl. 8.30 I Tjarnarlundi. Eftir fundinn verð ur spilað Bingó til ágóða fyrir nýja dagheimilið. Neskirkja. Sunnudaginn 3. des. verður kirkjukvöld í Neskirkju og hefst kl. 5. Dagskrá: Kórsöngur, ein- söngur, erindi: Séra Gísli Bryn- jólfsson. Bræðrafélag Nessóknar. Hjálpræðisherinn. Sunnud. kl. 11 Helgunarsam- koma. Kl. 8,30 e.h. Hjálpræðis- samkoma. Flokksforingjarnir og hermennirnir taka þátt í samkom- um dagsins. — Allir velkomnir. Kvenfélagskonur Garðahreppi. Munið félagsfundinn þriðjudag- iinn 5. des. að Garðaholti kl. 8,30 e.h. Lesin verður jólasaga, jóla- skreytingar frá Blómahúsinu í Reykjavík. — Kvenfélag Laugarnessóknar. Jólafundurinn verður mánudag- inn 4. des. kl. 8.30 stundvíslega. Kvikmynd og fleira. Bræðrafélag Óháða safnaðarins. Aðalfundur kl. 3 e.h. sunnudag- inn 3. des. í Kirkjubæ. KFUM og K Hafnarfirði. Almenn samkoma sunnudags- kvöld kl. 8.30 e.h. Kristilegt stúd- entafélag annast samkomuna. — Unglingadeildarfundur mánudags- kvöld kl. 8. Piltar 13—16 ára vel- komnir. Kristileg samkoma verður í samkomusalnum Mjóu- hlíð 13 sunnudagskvöldið 3. des. kl. 8. Sunnudagaskóli kl. 10.30 f.h. Verið hjartanlega velkomin. Kvenfélag Ásprestakalls. Kvenfélag Ásprestakalls heldur jólafund sinn mánudaginn 4. des. kl. 8,30 e.h. í Safnaðarheimilinu Sólheimum 13. Sýndar myndir frá skemmtiferðum o.fl. Dregið í baz- arhappdrættinu. Ringelberg í Rós- inni sýnir jólaskreytingar. Sjálfstæðiskvenafélaglð Eygló Vestmannaeyjum, heldur jóla- fund fimmtudagiinn 7. des. kl. 9 i Samkomuhúsinu. Frú Unnur Tóm- asdóttir, húsmæðrakennari, talar um jólaundirbúning og skreytir jólaborð og gefur nokkrar matar- uppskriftir. Konur hafi með sér skrifföng. Kaffiveitingar. Kvenfélagið Hrönn heldur jólafund að Bárugötu 11 miðvikudaginn 6. des. kl. 8.30. — Spilað verður Bingó. Kvenfélag Grensássóknar hefur jólafund sinn í Breiða- gerðisskóla mánud. 4. des. kl. 8.30. Efni: Áslaug Árnadóttir les ljóð eftir Davíð Stefánsson, myndasýn- ing frá postulínsverksmiðju Bing & Gröndahl, Magnús Guðmunds- son garðyrkjufræðingur talar um jóla- og blómaskreytingar. KAUS — Samtök skiptinema Kökukvöld verður á miðviku- dagskvöld 6. des. fyrir alla skipti- nema, unga sem gamla og þeirra maka. Aðventukvöld. Á vegum Kirkjunefndar kvenna Dómkirkjunnar verður Aðventu- kvöld í kirkjunni sunnudaginn 3. des. kl. 8.30. Dagskrá verður fjöl- breytt, einsöngvarar, kórsöngvar fullorðinna og barna. Erindi flutt. Lúðrasveit drengja leikur jólalög. Aðgangur ókeypis. Allir velkomn- ir. — Hrannarkonur. Bazarinn er hinn 3. des. kl. 3. Vinsamlegast skilið munum sem fyrst. — Nefndin. Kvenfélag Óháða safnaðarins. Félagskonur og aðrir, sem ætla að gefa á bazariinn í Kirkjubæ sunnudagiinn 3. des. vinsamlegast komið munum þangað laugardag kl. 4—6 og sunnudag 10—11. Sunnukonur, Hafnarfirði. Jólafundur kvenfélagsins Sunnu verður haldinn í Góðtemplarahús- inu þriðjudaginn 5. desember kl. 8,30. Margt verður til fróðleiks og skemmtunar. Jólakaffi og glæsilegt happdrætti. Frá Styrktarfélagi vangefinna. Konur í Styrktarfélagi vangef- inna eru minntar á jólakaffisöl- una og skyndihappdrættið í Sig- túni sunnudaginn 3. des. nk. Happdrættismunir afhendist i skrifstofu félagsins Laugavegi 11, fyrir 3. des., en kaffibrauð fyr- ir hádegi í Sigtúni 3. des. Hvítabandskonur: Bazar félagsins verður í Góð- templarahúsinu mánudag 4. des. kl. 3. Félagskonur vinsamlegast af- hendi muni til Oddfríðar, sími: 11609, Helgu, sími 15138 og Jónu, sími 16360. Bazar Sjálfsbjargar verður haldinn í Listamanaskál- anum sunnudaginn 3. des. Munum er veitt móttaka á skrifstofu Sjálfsbjargar, Bræðraborgarstíg 9. Jólagjafir blindra. Eins og að undanförnu tökum við á móti jólagjöfum til blindra, sem við munum koma til hinna blindu fyrir jólin. Blindravinafélag fslands, Ingólfsstræti 16. Kvenfélag Hallgrímskirkju heldur bazar í félagsheimilinu i norðurálmu kirkjunnar fimmtud. 7. des. n.k. Félagskonur og aðrir velunnarar kirkjunnar eru vinsam lega beðnir að senda muni til Sig- ríðar, Mímisvegi 6, s. 12501, Þóru, Engihlíð 9 Í5969 og Sigríðar Bar- ónsstíg 24, s. 14659. Munum verð- ur einnig veitt viðtaka miðviku- daginn 6. des. kl. 3—6 í félags- heimilinu. Kvenfélag óháða safnaðarins. Félagskonur og aðrir velunnarar óháða safnaðarins, bazarinn okkar verður 3. des í Kirkjubæ. Kvenfélag Grehsássóknar heldur bazar sunnud. 3. des. í Hvassaleitisskóla kl. 3 e.h. Félags- konur og aðrir, sem vilja gefa ir c.ni eða kökur á bazarinn geri svo vel að hafa samband við Bryn- hildi í síma 32186, Laufeyju 34614 og Kristveigu 1 s. 35955. Munir verða ^sóttir, ef óskað er. Kvenfélag Kópavogs heidur bas- ar sunnudaginn 3. des. í Félagsheim ilinu kl. 3 e.h. Félagskonur og aðr- ir. sem vilja gefa muni eða kökur á basarinn geri svo vel að hafa sam band við Ingveldi Guðmundsdóttur síma 41919, Önnu- Bjarnadóttur, s. 40729, Sigurbirnu Hafliðadóttur, s. 40389, Sigríði Einarsdóttur, s. 40704, Stefaníu Pétursdóttur, s. 41706 og Elínu Aðalsteinsdóttur, síma 40442. Bezt væri að koma' gjöfum sem fyrst til þessara kvenna. Húsmæðrafélag Reykjavíkur. Jólafundur á Hótel Sögu mið- vikudaginn 6. des. kl. 8. Jólaspjall. Tvísöngur. Sýnt verður jólamat- borð og gefnar leiðbeiningar og uppskriftir. Tízkusýning, happ- drætti. Aðgöngumiðar afhentir að Hallveigarstöðum mánud. 4. des. kl. 3—5. Vinsamlegast sýnið skír- teinin og greiðir félagsgjöldin. Sjálfstæðiskvennafél. Sókn, Keflavík, heldur bazar sunnud. 3. des. kl. 4 í Sjálfstæðishúsinu í Keflavík. Margt ágætra muna. Allur ágóði rennur til góðgerðar- starfsemi fyrir jólin. Happdrætti Hjálparsjóðs æskufólks. Dregið hefur verið í happdrætti Hjálparsjóðs æskufólks. Eftirfar- andi númer hlutu vinninga: 14, 17, 197, 491, 645, 686, 706, 714, 755, 949, 991, 1093, 1250, 1276, 1293, 1561, 1677, 1856, 1863, 1891, 1893, 1896, 1935, 1936, 1997, 2000, 2159, 2262, 2321, 2325, 2357, 2410, 2412, 2416, 2554, 2708, 3052, 3423, 3443, 3687, 3689, 3713, 3829, 3945, 3958, 4058, 4060, 4063, 4389, 4483, 4538, 4637, 4799, 4921, 4946, 5114 5116, 5165, 5355. Ofangreind númer hlutu vinn- inga. Hjálparsjóður æskufólks. Laugardaginn 28. okt. voru gefin saman í Landakirkju í Vest- mananeyjum af séra Jóhanni Hlíð- ar, ungfrú Eydís Ólafsdóttir og Helgi Leifsson. Heimili þeirra er að Heiðarvegi 11, Vestmannaeyj- um. (Ljósm.: Óskar Björgvinsson, Ve.) VI8I1KORIM DÓMUR UM „DRÁPU". Ekki hækkar höggorms magt af hrakyrðum, er vesæll mjálmar, eiturtönn, sem í er lagt Elivoga-Svein og Hjálmar. St. D. Spakmœli dagsins Á tímum Holbergs töluðu menn frönsku við frúrnar, þýzku við hundinn sinn og dönsku við þjón- ana. — Chr. Wilster. Verzlunarhúsnæði Til leigu er verzlunarhúsnæði á jarðhæð að Suður- landsbraut 10, frá og með 1. janúar 1968. HAGTRYGGING H.F. Eiríksgötu 5 — Sími 38580. Skrisí ín uhúsíiæði Til leigu er skrifstofuhúsnæði á 2. hæð að Suður- landsbraut 10, frá og með 1. janúar 1968. HAGTRYGGING H.F. Eiríksgötu 5 — Sími 38580. Hið mikla ættfræðirit (3 bindi, 1600 bls.) eftir Ouðna Jónsson, prófessor, fæst enn heima hjá höfundi í Drápuhlíð 5, sími 12912. Ritið verður sent í póstkröfu þeim sem þess óska. Útgefandi. Verzlunarfólk Nú gefst yður kærkomið tækifæri að auka þekkingu yðar og færni í starfinu: Nýjar námsgreinar við Bréfaskóla SÍS & ASÍ: Almenn búðarstörf. Náms- gjald kr. 400.00. Kjörbúðin. Námsgjald kr. 300.00. Dragið ekki að innritast. Brégaskóli SÍS & ASÍ. Fiskibátar til sölu Nokkrir fiskibátar af stærðunum 30—100 rúm- lesta með öllum fullkomnustu siglinga- og fiskileit- artækjum. Nokkrum bátanna geta fylgt í kaupum veiðarfæri til flestra veiða. Góð lánakjör og hófleg útborgun. SKIPA- 06 VERÐBREFA- SALAN SKIPA. LEIGA Vesturgötu 3. Talið við okkur um kaup, sölu og leigu fiskiskipa. Húsnæði til Af sérstökum ástæðum er til sölu 400 ferm. at- vinnuhúsnæði sem er í góðri leigu. Tækifæri fyrir sparifjáreigendur að ávaxta fé sitt vel. Lysthaf- endur leggi inn nafn og heimilisfang á algr. blaðsins merkt: „Vísitölutryggt — 286“. blaðburöárfoik í eftirtalin hverfi Lambastaðahverfi — Laugarásvegur — Hverfis- gata I — Akurgerði — Langahlíð — Skipholt II — Freyjugata — Laufásvegur I. Talið v/ð afgreiðsluna i sima 10100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.