Morgunblaðið - 03.12.1967, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DES. 196?
11
ÍSAFOLDARBÆKUR
Brennur París? eftir Larry
Collins og Dominique Lap-
ierre. Þýð. Hersteinn Pálsson,
ein frægasta saga sem skrif-
uð hefur verið um lok síðustu
heimsstyrjaldar. 330 bls. með
mörgum myndum.
Helreiðin eftir Selmu Lager-
löv. Sr. Kjartan Helgason
þýddi. Selmu Lagerlöv þarf
ekki að kynna íslenzkum les-
endum.
Þetta er ein fegursta saga
hennar í snilldarþýðingu sr.
Kjartans í Hruna.
Landshornamenn. Sönn saga í
Há-Dúr kallar Guðmundur
Daníelsson þessa bráðskemmti-
legu frásögn af ýmsum þekkt-
um „Landshornamönnum“ á
ferð og flugi um landið. -186
bls. Með teikn. eftir Halldór
Pétursson.
Hjá selum og hvítabjörnum
eftir Friðþjóf Nansen í þýð-
ingu Jóns Eyþórssonar, prýdd
fjölmörgum myndum eftir höf-
undinn. Þetta er bók fyrir
hrausta stráka á öllum aldri
frá átta til áttatíu ára. 284 bls.
Mamma skilur allt eftir Stefán
Jónsson. „Sagan han Hjalta
litla“ kom út í fyrra í annarri
útgáfu. „Mamma skilur allt“
er beint framhald af þeirri bók.
Báðar þessar bækur hlutu fá-
dæma vinsældir þegar þær
komú út fyrir um það bil 20
árum síðan. 264 bls. m. mynd-
um eftir Halldór Pétursson.
f SMMItiR SIGMUNBSSPW
Saga í sendibréfum. Þættir úr
ævi séra Sigtryggs á Núpi.
Finnur Sigmundsson fyrrum
landsbókavörður tók saman.
Þetta er sagan af p.iltinum úr
Garðsárdalnum, sem ungur að
árum gerðist menningarfröm-
uður í sveit sinni, hóf lang-
skólanám 26 ára og varð þjóð-
kunnur fyrir giftudrjúgt ævi-
starf. 230 bls. með myndum.
RANDOLPH
& WINSTON
og Winston Churchill. Churc-
hillfeðgarnir lýsa leifturstríð-
inu frá í sumar þegar ísraels-
menn gjörsigruðu sameinaðan
her Araba á sex dögum. 256
bl.s með mörgum myndum.
Dlf
hundumui
Úlfhundurinn eftir Jack Lond-
on í þýðingu Stefáns Jónsson-
ar námsstjóra. Þetta er fimmt-
ánda bókin í ritsafni Jacks
London. Þetta er góð bók eftir
góðan höfund. 264 bls.
Tvímánuður skáldsaga eftir
Katrínu Ólafsdóttur. Eftir
sama höfund hefur komið út
bókin „Liðnir dagar“ sú bók
seldist upp á skömmum tíma
og var gefin út í annarri út-
gáfu. Þetta er fyrsta skáldsaga
Katrínar og mun án efa vekja
verðskuldaða athygli. 200 bls.
Sigurð H. Þorsteinsson. Þetta
er ellefta árið sem íslenzki frí-
merkjaverðlistinn kemur út.
Bráðnauðsynleg bók fyrir þá
sem fylgjast vilja með verð-
gildi íslenzkra frímerkja. 128
bls.
ÍSAFOLD
Sjóari á hestbaki ævisaga
Jacks London eftir Irving
Stone. Þýð. Gylfi Pálsson. Ævi
Jacks London var ein óslitin
ævintýraslóð frá fátækrahverf
um San Francisco til óbyggða
Alaska og sólríkra Suðurhafs-
eyja. 312 bls. með mörgum
myndum.
Undir ljóskerinu sagnaþættir
eftir Guðmund L. Friðfinns-
son. Guðmundur er þekktur
sem skáldsagnahöfundur en
hér kveður hann sér hljóðs á
nýjum vettvangi með sagna-
þáttum úr Austurdal. 97 bls.
með myndum.
Villieldur, skáldsaga eftir
Ragnheiði Jónsdóttur. Villield-
ur var síðasta skáldsagan, sem
Ragnheiður Jónsdóttir lét frá
sér fara áður en starfsorkuna
þraut. Sagan er að ýmsu ó-
lík eldri sögum Ragnheiðar en
fullvíst er að ekki bregzt höf-
undi bogalistin fremur en áð-
ur, að segja vel sögu.
Matur og drykkur eftir Helgu
Sigurðardóttur. Stærsta og
fullkomnasta matreiðslubók
sem komið hefur út á íslenzku.
Kærkomnasta jólagjöf hús-
mæðranna, nytsöm þeim ungu
og óreyndu og einnig þeim
lengra eru komnar í matreiðslu
listinni. Stór bók. 638 bls. með
mörgum myndum og skýring-
um.