Morgunblaðið - 14.12.1967, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DES. 1987
KR-ingar Reykjavíkur
meistarar í körfuknattleik
— eftir hörkuspennandi úrslitaleik
við !R, jbar sem aðeins 5 stig skildu
liðin undir lokin
Reykjavíkurmótinu í köríu-
knattltik lauk að Hálogalandi á
þriðjudagskvöldið með tveim
meistaraflokksleikjum, sem buðu
upp á óvenjulega spennu.
Ármenningar háðu erfiða
glímu við II. deildarlið íþrótta-
fé’ags stúdeiita og sigruð.u með
1 stigi, eftir jafntefli að leiktima
loknum ,en framiengt var í 5
mínútur. Það má segja að skort-
ur á leikreynslu hafi svipt stú-
denta sigrinum, því þeir höfðu
1 stig yfir þegar minna en 30
sek. voru til leik.s*loka og var
þeim því heimilt að halda knett-
inum. Einn leikmaður stúdenta
reyndi körfuskot, sem mistókst
og ennþá voru 5 sek. eftir, sem
Haligrímur Gunnarsson Ármenn
ingur notfærði til hins ítrasta
og skoraði á síðustu sekúndu
.eiktímans. Leiknum lauk því
með nokkuð sanngjörnum sigri
Ármanns 5*9:ð8, þvi óneitanlega
er lið Ármanns skipað jafnari
og betri leikmönnum, heldur en
lið f.S. Bæði þessi lið hafa sýnt
miklar framfarir í mótinu og
verður gaman að sjá til þeirra
er íslandsmótið hefst um miðjf.r.
janúar. Verða þá stúdenar að
sýna hvort þeim tekst að næla
sér aftur í sætið, sem þeir töp-
uðu í fyrstu deild ± fyrra.
K.R. — Í.R. 77—72.
Leiks hinna gömJu keppinauta
K.R. og f.R. var beðið með mik-
illi eftirvæntingu. Á íslandsmót-
inu í fyrra þurfti að fara fram
aukaleikur milli þessara liða um
íslandsmeistaratitiilin og síðan
hafa talsverðar breytingar orðið
á K.R.-liðinu. Landsliðsmaður-
inn Einar Bollason hefir flutzt
til Akureyrar og leikur með Þór
í vetur og Hjörtur Hansson, einn
af stigahæstu leikmönnum ís-
landsmótsins hefir ekki getað
æft undanfarið vegna meiðsla.
f.R.-ingar hafa hinsvegar endur
heimt landsliðsmanninn Anton
Bjarnason, sem var fjarverandi
við nám á íþróttakennaraskólan
um í fyrra.
í upphafi leiksins bar tais-
vert á taugaóstyrk hjá báðum lið
um og körfuskot úr góðu færi
mistókust.
Kolbeinn Pálsson varð fyrstur
til að koma KR á stigatöfluna
er hann skoraði úr vítakosti og
skömmu síðar varð staðan 7
fyrir K.R. En Í.R.-ingar voru
ekki á því að gefast upp og
skömmu síðar sást á töflunni 11:
11 og 13:13. Nú tóku K.R.-ingar
skemmtilegan sprett og náðu 10
stiga forskoti. Voru það einkum
Kalbeinn, Gunnar og Guttorm-
ur, sem sýndu skemmtilegan
leik og tókst þeim oft með snögg
um og góðum skiptingum að ga*l-
opna vörn Í.R.-inga, þannig að
þeir áttu greiða leið upp að körf-
unni
Staðan í hálfleik var 41:25 og
flestir áhorfenda voru farnir að
búast við stórsigri íslandsmeistar
anna. En er líða tók á hálfleik-
inn fóru Í.R.-ingar að síga á og
minka forskot hinr.a sigurvissu
Aðalfundur
handbolta-
deildar FH
AÐALFUNDUR handknattleiks-
deildar FH verður haldinn
fimmtudaginn 21. desember kl.
9.30 í Sjálfstæðishúsinu í Hafn-
arfirði.
Þórir Magnússon.
Heiðraður fyrir
sérstœtt afrek
ÞÓRIR Magnússon, hinn 19 ára
körfuknattleiksmaður úr KFR,
náði þeim frábæra árangri á ís-
landsmótinu 1967 að skora 311
stig í 10 leikjum, eða 31.1 stig
að meðaltali í leik. Ennnfrem-
ur skoraði Þórir 57 stig í einum
leik og er það hæsta stigatala,
sem leikmaður hefir skorað í
leik á íslandsmóti.
Þar sem þessi árangur Þóris
er svo frábær, að hann mundi
talinn ágætur hjá hvaða stjórn-
þjóð, sem er, þá ákvað stjórn
KKÍ að veita Þóri sérstaka við-
urkenningu fyrir afrek sitt
f leiklhléi að Hálogalandi í leik
KR og iR á þriðjudagskvöldið,
afhenti Bogi Þorsteinsson for-
formaður KKt, Þóri Magnússyni
glæsilega styttu af körfuknatt-
leiksmanni, með áletruðu nafni
hans og árangri á íslandsmótinu.
Mun stjórn KKÍ hafa í hyggju
að heiðra þannig framvegis þá
körfuknattleiksmenn, sem sér-
stökum árangri ná í íþrótt sinni.
K.R.-inga. Þeir Anton Bjarna-
son og Birgir Jakobsson sýndu
stórkost'legan leik á köflum og
er hin leikreynda kempa, Hólm-
steinn Sigurðsson, kom inn á
gólfið hjá Í.R. komst meira jafn
vægi á leik liðsins, sem aftur
færði þeim stig á töfluna.
K.R.-liðið er tvímælalaust
ennþá sterkasta körfuknattleiks-
liðið, en bi'lið milli þeirra og
Í.R.-inga mjókkar óðum og Ár-
mann fylgir skemmt á eftir.
í K.R.-liðinu eru þeir Kol-
beinn, Guttormur, Gunnar og
Kristinn aðalmáttarstólparnir,
en nýliðarnir sem undanfarið
hafa vermt varamannabekkina
komu skemmtilega á óvart og
sönnuðu að K.R. á mikinn vara-
mannaforða. Þeir Ágúst, Bryn-
jóifur og Þorvaldur eru aillir í
mikilli framför og sýndu
skemmtileg tilþrif.
Anton og Birgir voru sterk-
astir hjá Í.R.-ingum, en Agnar
átti skemmtilegan kafla og Sig-
mar stóð ved fyrir sánu. Með
rólegra spili og á löglegum leik-
velli ætti f.R. að ná betri ár-
angri og á íslandsmótinu í
íþróttahöillinni í vetur verður
erfitt að spá um sigurvegarann í
keppni þessara liða.
NN.
Þetta er dómaratrióið íslenzka sem dæmdi leik Aberdeen og
Standard Liege í síðustu viku. Aberdeen vann leikinn 2—0
en það nægði ekki til framhalds í keppninni um Evrópu-
bikar bikarmeistara, því Standard heldur áfram með saman-
lagt 3—2. A myndinni sem tekin var við þotu Flugfélags ts-
lands eru þeir Valur Benediktsson, Magnús V. Pétursson
(sem dæmdi) og Baldur Þórðarson.
Sundkeppni og
sundknattleikur
— í Sundhöllinni í kvöld
t KVÖLD efnir Sundráðið til
móts í Sundhöll Reykjavíkur og
verða þar á dagskrá bæði keppn-
isgreinar einstaklinga og einnig
í sundknattleik.
Keppnisgreinarnar verða fimm
talsins. Konur keppa í 200 m
skriðsundi, 100 m baksundi og
200 m skriðsundi og karlar í
100 m skri'ðsundi og 100 m
bringusundi.
Telja má að allt bezta sund-
fólk í dag meðal þátttakenda.
Meðal þeirra er Hrafnhildur
Guðmundsdóttir, sem kemur
aftur fram á keppnisvöllinn
eftir nokkra hvild frá keppni.
Þá verður úrslitaleikurinn í
sundknattleik milli KR og Ár-
manns. Þau lið hafa á undan-
förnum mótum barizt af hinni
mestu hörku og tvísýnu um
verðlaunagripina — og KR veitt
betur að undanförnu. Bæði lið-
in hafa sigrað ungt lið Ægis á
þessu móti, KR vann með 11:0
og Ármann vann með 9:1. Er
því um hrein úrslit að ræ’ða
í kvöld.
Húsbyggingamál höfuð
vandamálin hjá TBR
Frá aðalfundi félagsins
AÐALFUNDUR Tennis- og bad-
mintonfélags Reykjavíkur var
haldinn nýlega í Atthagasal
Hótel Sögu.
Formaður, Kristján Benedikts-
son, setti fundinn og tilnefndi
Kristján Benjamínsson fundar-
stjóra og Halldóru Thoroddsen
fundarritara.
Formaður flutti skýrslu félags-
stjórnar.
Félagi'ð hefur nú fengið sama
stað í skrifstofuhúsi .B.R. í
Laugardal, þar sem fundir eru
haldnir og gögn félagsins eru
geymd. 14 bókaðir stjórnar-
fundir voru haldnir. Hin vana-
legu mót: haustmót, firmakeppni,
innanfélagsmót, Reykjavíkurmót
og íslandsmeistaramót voru
haldin á árinu, auk þess var
tekin upp sú nýbreytni, að öpið
einliðaleiksmót fyrir unglinga í
þrem flokkum var haldið í des.
og opið einliðaleiksmót fyrir
fullorðna í janúar, og var þátt-
taka í báðum þessum mótum
mjög góð. Lögð var mikil
áherzla á kennslu unglinga í bad-
minton, og eru margir efnilegar
unglingar að koma fram á sjón-
arsviðið.
Í.B.R. veitti TBR 13 þús. kr.
kennslustyrk. Fjórir félagar úr
TBR heimsóttu Tennis- og bad-
mintonfél. tsafjarðar og var fork-
unnar vel tekið. TBR gaf félag-
inu á ísafir’ði verðlaunabikar,
sem keppt verði um þar.
Æfingartímum hefur fækkað
frá því í fyrra, þar sem félagið
hefur misst fyrri aðstöðu sína
bæði í KR og Valshúsinu, en
þessi félög bæði eru búin að
stofna badmintondeildir. 1 þessu
sambandi kom formaður inn á
þá erfiðleika, sem félagið er í
vegna húsnæðisskorts. Húsnæð-
ismálin hafa löngum verið ofar-
lega á baugi innan TBR, sem
hefur hingað til verið upp á
önnur félög komin með alla
æfingatíma. Mikill áhugi var
meðal félagsmanna að koma
skrið á húsbyggingarmálin og
voru allir sammála um það, að
ef félagið ætti að eiga framtíð
fyrir sér, væri það eina leiðin
að byggja hús, annaðhvort með
öðrum eða eitt sér.
Félagið hefur fest kaup á
nýrri, danskri kennslukvikmynd
í badminton, sem var sýnd í lok
fundarins og gerður var góður
rómur a'ð.
Hinn 5. nóv. ’67 var stofnað
Badmintonsamband allra bad-
mintondeilda á landinu. Af fimm
manna stjórn voru 3 úr TBR
kjörnir: Kristján Benjamínsson,
sem kjörinn var formaður sam-
bandsins, Ragnar Thorsteinsson
og Ragnar Georgsson. Lesnir
voru upp og samþykktir reikn-
ingar félagsins og reikningar
Húsbyggingarsjóðs.
t stjóm voru kjömir: Kristján
Benediktsson einróma endurkjör
inn formaður. Meðstjórnendur:
Garðar Alfonsson, Ragnar Har-
aldsson, Jóhannes Ágústsson og
Lárus Guðmundsson.
Stjórn Húsbyggingarsjóðs:
Gunnar Petersen, Davíð Sch.
Thorsteinsson, Ragnar Georgs-
son og Karl Maack.