Morgunblaðið - 14.12.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.12.1967, Blaðsíða 1
32 SEOUR Gagnbylting í Grikklnndi konungur skorar á þjóðina að enrfurreisa lýðræðið — Herstjórnin segir byltinguna brotna á bak aftur og Konstantín sviptan konungdómi Aþenu, 13. desember. — NTB — AP — GRIKKLAND rambaði í kvöld á barmi borgarastyrj- aldar, eftir að gagnbylting gegn herstjórn landsins hófst um morguninn undir forustu Konstantíns konungs, þar sem hann skoraði á þjóðina að koma að nýju á iýðræð- islegu stjórnarfari í iandinu. Hefur konungur vikið her- stjórninni frá völdum og skip að Patros Garoufalias, fyrr- um varnarmálaráðherra, sem forsætisráðherra hinnar nýju stjórnar. Konungur flutti áskorun sína í útvarp frá herbæki- stöð í Larissa í Mið-Grikk- landi, en samtímis hófu her- deiidir úr 2. og 3 herfylki í Larissa og Saloniki sem er í norðurhluta landsins, upp- reisn gegn herstjórninni í Aþenu. Tiikynnti útvarps- stöðin í Larissa í kvöld, að 90% landhersins og allur fiugherinn og sjóherinn styddu konung. Ekkert er vitað, hvar Anna María drottning, og tvö börn konungshjónanna dveljast, né heldur Friðrika móðir konungs. í tilkynningu grísku her- stjórnarinnar í Aþenu í kvöld sagði hins vegar, að gagnbyltingin hefði verið brotin á bak aftur. Hefði Kon stantín verið sviptur konung dómi og Zoitakis áður aðstoð- arvarnarmálaráðherra hefði verið skipaður ríkisstjóri í hans stað. ■^ Þá voru gerðar víðtækar breytingar á herstjórninni í kvöld. Konstantín Kollias hef ur látið af embætti forsæt- isráðherra en við því hefur tekið George Papadopoulos, ofursti, og er hann jafnframt varnarmálaráðherra. Stylian- os Patakosher er varaforsæt- is- og innanríkisráðherra, en það voru þessir tveir menn, sem voru forsprakkarnir fyr- ir byltingunni í Grikklandi í vor. ■^ Útvarpið í Aþenu hélt því fram í kvöld, að fréttir frá opinberum aðilum víðs- vegar um landið sýndu, að herinn væri á bandi herstjórn arinnar og færi að skipunum hennar. Fullkomin kyrrð væri komin á í landinu og konungurinn og samsæris- menn hans reyndu nú að komast undan og flýðu þorp úr þorpi. Fréttum frá hinum andstæðu aðilum ber alls ekki saman, eins og sjá má af framansögðu. Víst er að Konstantín konungur hefur haft bækistöð sína i herstöðinni í Larissa. Samkvæmt óstaðfest- um fréttum styðja þrír hershöfð- ingjar í Norðaustur-Grikklandi Konstantín konungur Laxness biður Sinjavski og Daniel griða — í bréfi til Furtsevu I AGÚST síðastliðnum rit- aði Halldór Laxness, rithöf undur, menntamálaráð- herra Sovétríkjanna, frú Ekaterinu Furtsevu, bréf þar sem hann fer þess á leit, að frúin noti álirifa- vald sitt til að rétta hlut ritaðs orðs í Sovétríkjun- um. Nefnir Laxness sér- staklega fangelsun þeirra Sinjavskis og Daniels og réttarhöldin yfir SMOG- hópnum svonefnda, sem Juri Daniel Andrei Sinjavski E. Furtseva samanstcndur af rithöf- undunum Alexander Gins- burg, Juri Galanskov, Alexei Doborvolsky og Veru Lashkovu. Fjór- menningarnir efndu á sín- um tíma til mótmælaað- gerða í Moskvu vegna rétt- arhaldanna yfir Sinjavski og Daniel og stóðu að út- gáfu „hvítrar bókar“ um þessi réttarhöld. Sovézk yfirvöld saka fjórmenning- ana um óhróður og áróður gegn Sovétríkjunum. í viðtali við Mbl. sagði Halldór Laxness um til- drög hréfsins til frú Furt- sevu: „Bréfið er skrifað í miðj- um ágúst, þegar þær frétt- ir höfðu borizt, að SMOG- hópurinn ætti að verða leiddur fyrir rétt. f bréfinu er að minnsta kosti vak- Framihald á bls. 2tl konunginn. Þeir eru Peritis, sietm er yfirmaður hersins á Saloniki- svæðinu, Essermann, yfirmaður skriðdrekasveita í N-Hellas, og Zalohoriois, sem er yfirmaður hersins í Þeharika-dalnum í grennd við tyrknesiku landamær- in. Þá segja óstaðfestar fregnir, lika, að gagnbylting konungs njóti stuðnings ýmissia stjórn- málamanna, eins og Konstantins Karamanlis, fyrrum forsætisráð- herra, (sem nú er í París), Ge- orges Papandreous, leiðtoga Mið flO'kkasambandsinst, og Panayotis Kanellopoulos, leiðtoga íhalds- flokksins. Garoufalias, sem kon- ungurinn á að hafa skipað sem forsætisráðherra hinnar nýju Framihald á bls. 24 Óbreytt viðhorf í dnnshn þinginu Kaupmannahiöfn, 13. des NTB ÖNNIJR umræða í danska þjóð- þinginu um frumvarp Briing Dinesens atvinnumálaráðherra, um frestun á greiðslu verðiags- uppbóta og urn fnumvarp Henry Griinbaums fjármólaráðherra um sénskatf fyrir þá, sem stunda sjóltfstæðan atvinnurekistur, varð ekki til þess að breyta viðhorf- unum í þjóðþinginu í dag. Leiðtogar hinna ýmsu sfjórn- málaflokka lögðu þar áherzilu á sem þeir höfðu komið fram með sömu sjónarmið í aðalatriðum, við fyrstu uimræðu frumwarp- anna í síðustu viku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.