Morgunblaðið - 14.12.1967, Side 16

Morgunblaðið - 14.12.1967, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DES. 1967 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar; Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías J.ohannessen, Eyjólfur KonráS Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri: Björn Jóhannsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla: Aðaístræti 6. Sími 10-100. Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80. í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið. Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands. VERÐLA GSÁKVÆÐIN IVforgunblaðið hefur marg- sinnis lýst þeirri skoð- un sinnl, að verðlagshöft séu við venjulegar kringumstæð- ur síður eri svo til þess fallin að bæta hag neytenda og koma á heilbrigðum verzlun- arháttum. Frjáls verzlun og öflug samkeppni er bezta tryggingin fyrir því, að vöru- gæði og vöruverð sé neyt- endum hagkvæmt. Þessar skoðanir eru einnig ríkjandi í nágrannalöndun- um, sem búa við frjáls efna- hagskerfi, og það eru ekki einungis þeir, sem verzlun stunda, heldur engu síður fulltrúar neytenda, sem leggja áherzlu á, að almenn- ingur fái notið þeirrar hag- kvæmni, sem samfara er frjálsri samkeppni. Og hér á landi virðist nú votta fyrir því meðal fulltrúa launþega að þeir geri sér rétta grein fyrir samhengi þessara mála. Þannig segir Björn Jónsson í viðtali við Morgunblaðið í gær vera skoðun sína „að verðlagsákvæði komi ekki til að leysa öll vandamál í við- skiptum verzlunar og neyt- enda, þar þarf margt annað að koma til og jafnvel frekar en prósentuákvæði. Á ég þar við að í nokkru þarf að breyta verzlunarháttum okk- ar í grundvallaratriðum, þannig að það geti betur sam- ræmst því þjóðfélagi, sem við búum við. Ég tel að við höf- um í ýmsu orðið á eftir öðr- um þjóðum í þróun þessara mála t. d. á Norðurlöndum eru verðlagsákvæði ekki mjög víðtæk, en þar er margt annað, sem kemur til og tryggir hagsmuni neytand- ans betur.“ En þótt verðlagshömlur séu undir venjulegum kring- umstæðum sízt til þess falln- ar að bæta hag neytenda, hafa flestar þjóðir gripið til þeirra Um stundarsakir, þegar miklir umbreytingatímar eru, til að hindra, að skyndilegar verðhækkanir settu úr skorð- um allt verðmyndunarkerfi. Og nú hagar þannig til hér hjá okkur íslendingum, að brýna nauðsyn ber til að tryggja, að gengisfellingin beri tilætlaðan árangur, en það gerir hún því aðeins, að unnt verði að koma í veg fyr- ir miklar hækkanir kaup- gjalds og verðlags. Erfiðleik- ar þeir, sem íslenzka þjóðin hefur átt við að etja nú á þessu ári, eru þess eðlis, að óhjákvæmilegt er að þjóðar- heildin, allir landsmenn, verði fyrir nokkurri kjara- skerðingu, og þess vegna hafa verið ákveðin mjög ströng verðlagshöft nú til bráða- birgða og verðlagningareglur, sem vissulega þýða stórfelda kjaraskerðingu fyrir verzlun- ina um nokkurra vikna skeið. En um þessa verðlags- ákvörðun segir oddamaður verðlagsnefndar í bókun sinni: „Mér er fyllilega ljóst, að heilbrigð verzlun getur ekki til lengdar búið við þessi verðlagsákvæði, og hef ég því aðeins getað samþykkt þau, að fyrir liggur yfirlýsing flutningsmanna um, að þetta séu bráðabirgðaákvæði, sem verði endurskoðuð, m.a. með hliðsjón af fyrirhuguðum tollalækkunum eigi síðar en í febrúarbyrjun 1968“. Brýna nauðsyn bar til að setja einhverjar verðlags- reglur til bráðabirgða til þess að eðlileg viðskipti gætu kom izt á fyrir hátíðarnar. Verð- lagsmálin voru komin í hnút í verðlagsnefndinni, og á þann hnút varð að höggva. Er það öllum til hagsbóta, einnig verzluninni, þótt bráða birgðaákvæði séu á þann veg, sem raun ber vitni. En þess er einnig að gæta í þessu sambandi, að fyrirhug- aðar eru allviðamiklar tolla- lagabreytingar, og einnig þær breytingar kalla á endurskoð- un verðlagningarreglna, þann ig að bráðabirgðareglurnar skípta ekki meginmáli, held- ur sú lausn, sem fundin verð- ur eftir áramótin og á að vara þetta árið. AÐ FINNA LAUSN ¥jegar óhjákvæmilegt er að * hafa ströng verðlags- lagsákvæði um stundarsakir, vegna breytinga eins og þeirra, sem leiðir af gengis- fellingunni og hinu erfiða árferði, má um það deila, hvernig heppilegast sé að koma þessum málum fyrir. Sumir telja að þau eigi að vera í höndum óháðra em- bættismanna eða fulltrúa kosinna af stjórnmálaflokk- unum. Þessi háttur hefur verið reyndur hér á landi um langt skeið og vissulega gef- ist misjafnlega. Nú var hins vegar ákveðið að gera tilraun með allt aðra skipun mála, þannig að verzl- unarmenn og vinnuveitendur annars vegar og hins vegar fulltrúar launþega fengju aðild að verðlagningarmál- um, en fram til þessa hefur verzlunin ekki getað komiJ sjónarmiðum sínum á fram- Hveitibrauðsdagar á Jómfrúeyjum Caneel Bay, St. John, Jómfrú- eyjum, 11. de,s. — AP—NTB — LYNDA BIRD, dóttir Lyndons B. Johnsons, forseta Bandaríkj- anna og eigrinmaðar hennar, Charies S. Robb höfuðsmaður, komu í gærkveldi til Caneel Bay á Jómfrúeyjum, þar sem þau hyggrjast dveljast hveitibrauðs- dagana. Verða þau þar á lúxus- setri, sem Laurence Rockefell- er, bróðir Nelsons, ríkisstjóra, á þar. BrúSkaup þeirra Lyndu og Oharles S. Robb fór fram sl. laugardag í Hvíta húsinu — og var það í fyrsta sinn 1 53 ár, sem forsetadótitir giftir sig þar. Athöfnin tók ekki nema tólf mín útur, en að henni lokinni var haldin móttaka fyrir 500 gesti. Ekki var sjónvarpað frá hjóna vígslunni, en að henni lokinni fiutti NBC sjónvarpssitöðin dag skrá, þar sem skýrt var frá helztu atriðum í undirbúningi gígslunnar og sýndar myndir af gestunum er þeir komu til Hvíta hússins. Forsetinn var hinn kátasti meðan á brúðkaupinu stóð, fékk sér myndarlega af brúðkaups- tertunni, að því er NTB eegir og setlaði að gerast svo djarfur að hleypa hundinium „Yuka“ inn til gesitanna. En þá koun fiorseta- frúin tiíl skjalanna og bannaði honum það. St. John-eyja er einn þeirra staða, sem Columbus kom til á annarri Ameríkuferð sinni, ár- ið 1943. Hún er tæpa 5 km aust- ur af St. Thomas og 64 km norð- ur af St. Cnoix. Ekki er vitað, hve lengi þau Lynda og Charles E, Robb hyggjaat dveljast þar og yfirleitt hafa þau ekkert látið uppskátt um fyrirætlanir sínar. Það eitt er vitað, að Robb verður send- ur til Vietnam með voriniu. Oiíuskort- ur í USA? New York *. Laurence Stuntz. ROBERT Kennedy, öldung- ardeildarþingmaður frá New York, hefur lýst þeirri skoð- un sinni, að verði veturinm harður þar í liandi, megi bú- ast við, að ekki verði naeg olíu til húsakyndingar. Fleiri hafa látið uppi þetta sarna | álit, og spá heimiliskuldum í norðausturríkjunum Banda- ríkjanna. Miklir kuldar hafa gengið yfir Bandaríkin síðustu vik- urnar og nóvember varð kald_ asti nóvembermánuður í átba ár. Allt þetta hefur orðið til- efni til barkalegra árása á nú- gildandi kvóta á innfluttri olíu. Ýmsir forsvarsmenn olíu- félaganna segja á hinn bóg- inn, að enginn ástæða sé til að búast við olíuskorti. En eitt bandarískt olíufélag hef- ur þó sagt, að birgðir þess séu 3 milljónum tonnum minni en í fyrra. Nú má ekki flytja meira olíumagn inn en því sem nemur 12.2% af notbuin. Væri kvótinn hækkaður er álit manna, að þá ykizt inn- flutningur frá Venuzuela og Austurlöndum nær verulega. í STUTTll M\ STÓRSMYGL Stokkhólmi, 12. des. (NTB) Sænska tollgæzlan áætlar að um einni milljón lítra af áfengi hafi í ár verið s«nygl- að til Svíþjóðar og Finnlands frá Austur-Þýzkalandi. í hvoru landi fyrir sig hafa toll gæzlumenn lagt hald á um 59 þúsund lítra af áfengi, sem smygla átti frá Austur-Þýzka landi, en yfirvöldin telja það ekki nema smáræði miðað við það magn, siem komst óáreitt á leiðarenda. 7 1 færi í verðlagsnefnd. Odda- maður var síðan skipaður, enda fyrirfram vitað, að erfitt mundi, a.m. k. fyrst í stað að ná samkomulagi milli þessara tveggja hópa. Hér er að vissu leyti um að ræða svipað fyrirkomulag og nú hefur um alllangt skeið verið við ákvörðun verðs sjávarafurða og gefizt hefur allvel. Þar hafa umboðsmenn hinna ýmsu hagsmunahópa haft beina aðild, en síðan verið tilkvaddur oddamaður til að skera úr ágreiningi, og hefur hann ýmist greitt at- kvæði með fiskkaupendum eða fiskseljendum og jafnvel kveðið einn upp úrskurð. Kaupmenn una því illa, að oddamaður í verðlagsnefnd skyldi að þessu sinni greiða atkvæði með fulltrúum laun- þega, en þótt svo færi ættu kaupmenn að hugleiða, að þeir hafa fengið beina aðild að verðlagning- unni og geta haft áhrif í verðlagsnefndinni sjálfri. Og ákvæði þau er ríkja eiga nær allt næsta ár, eru meira virði en þau bráðabirgða ákvæði, sem nú varð að setja til að eðlileg viðskipti gætu hafizt. Meginatriðið er þó hitt, að ekki er hugmyndin að sú skipun verðlagsnefndar, sem nú hefur verið ákveðin, gildi nema til eins árs, og vissulega ber að vinna að því, að á þeim tíma komist á slíkt jafnvægi í viðskiptum, að. ekki þurfi lengur á verðlags- höftum að halda. Það á að vera meginbaráttumál, ekki einungis verzlunarmanna, heldur allra þeirra, sem skilja nauðsyn frjálsrar verzlunar og hvert hagræði hún er fyrir neytendur. Tímabundið ástand getur vissulega verið erfitt, en landslýður allur býr nú við erfiðleika af utanað- komandi ástæðum og þær byrðar verða allir að axla. Hitt er meginatriðið, að fram búðarskipun mála verði með heilbrigðum hætti. Og vissu- lega ber að vona og treysta, að menn séu nú að gera sér grein fyrir því, að frjáls sam- keppni er hagkvæmari en opinber afskipti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.