Morgunblaðið - 27.01.1968, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 19«»
>
BILft
LEIGA
IVIAGIMÚSAR
SKIPHOLTI 21 SÍMAR 21190
effirlokun stmi 40381 ^i
»<S3» m' H4-44
maiF/M
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurður Jónsson
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir iokun 34936 og 36217.
ff=BHAir/KAM
LPAmyia/i?
RAUÐARARSTÍG 31 SÍMI 22022
mmmm^mmmmm^mm^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmrn
Nýr sími
23-222
SENDIBÍLAR HF.
Einholti 6.
BEZT að auglýsa
í Morgunblaðinu
AUDVITAÐ
ALLTAF
★ Vilja vita hvað
um er að velja
Siglufiirði, 8. janúar 1968.
Fyrir skemstu birti Mbl.
frétt frá fréttaritara sínum á
Siglufirði, Steingrími Kristins-
syni, varðandi undirskriftasöfn
un til áskorunar á íslenzkan
prest í Vesturheimi um að
sækja hér um prestsembætti.
Var gefið í .<fkyn að hér væri
um mjög almennan áhuga og
þátttöku að ræða, og bersýni-
lega í þeim tilgangi, að freista
þess að tryggja fyrirfram, að
aðrir sæktu ekki um embættíð,
og taka þannig kosningaréttinn
og vaifrelsið af bæjarbúum
sjálf um.
, Undi'rskriftasöfnun þessi
mæltist síður en svo vel fyrir,
enda flestir þanr.ig gerðir að
vilja vita um hvað er að velja,
áður en valið er, og aðeins
lítill minnilhluti kjósenda hér
léðu nafn sitt á áskorunar-
skjalið og að sögn ýmsir undir
lögaldri kjósenda. Það væri því
illa farið ,ef þessi furðulegi
fréttafl'utningur yrði til þess, að
koma í veg fyrir umsóknir
•ungra og efnilegra presta, sem
áhuga kunna að hafa á þessu
á margan hátrt eftirsóknar-
verða brauði .
Þessar línur, sem ég vona að
þér ljáið mér rúm fyrir nú þeg
ar í blaði yðar, hafa þann tví-
þætta tilgang, að mótmæla end
urteknum „prestsfréttum“ frá
Siglufirði í Morgunblaðinu,
sem eru því vægaist sagt til
lítils sóma, og hvetja unga
presta og prestsefni, sem áhuga
hafa á embætti þessu, að hika
hvergi í umsóknum. Siglfirð-
ingar kunna því áreiðanlega
betur að verja sínum atkvæð-
um sjálfir, að athuguðu máli,
en láta lítinn hóp sjálfkjörinna
manna ráðstafa sér eins og
ómerkmgum í þessu máli eða
öðrum.
Siglfirðingur.
„Dansinn tróðu
teitir þar“
Næsta bréf fjallar um
dans og hvort breyta eigi til
um hefðbundnar venjur um
hver bjóði upp. Tveir ungir
menn skrifa á þessa leið:
Kæri Velvakandi.
Okkur langar til að leggja
orð í belg varðandi deilur þær
um hver skuli bjóða upp í dans
er undanfarið hafa birzt í dálk-
um þínum. Hafa þar ýmis við-
horf skotið upp kollinum, en
okkur langar til að benda á
nokkuT atriði sem ekki hafa
komið fram, þó mikilvæg séu.
Þesst svokallaða jafnréttis-
kenning er ekki einungis röng
heldur mjög villandi. Kvenmað
ur getur auðveldlega afþakkað
dans, án þess að maður taki
það mjög nærri sér, en hiins
vegar er 'karlmaðurinn tilneydd
ur, sökum hefðubndins riddara-
skapar að þiggja boðið, en það
er skoðun okkar að kvenmaður
taki neitun nær sér en karl-
mað. Sem stendur er mismunur
kynjanna engan veginn svo sem
í veðri er látið vaka, því báðir
aðilar geta enn valið og hafnað,
því við teljum að í flestum til-
fellum geti dömurnar fengið þá
herra til að bjóða sér upp sem
þær hafa löngun til.
En ef þessi tilhögun yrði tek-
in upp stæði karlmaðurian
mjög höllum fæti. Þó kann
þetta að hafa nokkuð gott í för
með sér, til dæmis ef kven-
mennirnir tækju jafnan þátt í
fjárútlátum kvöldsins, því það
er ekki alltaf grín að sjá um
kostnaðarhliðina. Miðað við
kröfur kvenna finnst okkur
ekkj nema sjálfsagt að vera
veitt vel og ekið heim að dans-
leik loknum, ef svo kynni að
fara að þær neyttu réttar síns
til hins ítrasta.
H. L. A. og M. A.
-£■ Kennt að stela úr
vösum náungans
í nokkrum bréfum, sem
Valvakanda hafa borizt í þess-
ari viku hefur verið sett fram
gagnrýni á vasaþjófnaðarmynd-
ina, sem sýnd var í Sjónvarp-
inu sl. laugardag. Hér birtist
eitt þessaraa bréfa frá E. J.:
Kæri Velvakandi.
Viltu vera svo góður að taka
nokkrar linur af mér í blað
þitt.
Það er mitt fynsta verk á
morgnana, þegar ég er búin að
fá mér góðan kaffisopa að lesa
Velvakanda. Ég skii ekki í því
fólfci sem lætur pistla þína fram
•hjá sér fara, þar er svo margt
sagt sem fólki liggur á hjarta.
Ég ihorfi oft á sjónvarpið og
að mínum dómi er það mjög lé-
•legt, sem það hefur upp á að
bjóða oft á tíðum. Á laugar-
dagskvöldið 20. þ. m. horfði ég
á sjónvarpið ásamt nokkrum
unglingum. Myndin sem þá var
sýnd var um vasaþjóf. Myndin
var vægast sagt mjög siðspill-
andi, ekkert annað en vasaþjóf-
ar, og beinlínis kennt hvernig
ætti að stela úr vösum manna,
hrifsa töskur of konum o. s. frv.
Hvernig áhrif haldið þið að sjík
ar myndir hafi á óþroskaða ung
linga. Ég var svo hneyksluð að
ég lokaði fyrir sjónvarpið, og
tók mér bók í hönd.
Það er ekki einleikið hve
mangir unglingar leiðast út á
glapstigu nú til dags, já. jafn-
vel börn. f blöðunum um dag-
inn var sagt frá 9 ára dreng,
sem brauzt inn til að stela, og
algengt er að lesa um 12—15
ára unglinga sem uppvísir verða
að þjófnuðum.
Ef sjónvarpið hefur efcki upp
á betri myndiir að bjóða en um-
rætt laugardagskvöld væri
hreinlega bezt að loka því.
E. J.
Inn um hús á
skítugum skóm
Næsta bréf er um sóða-
skap. aÞð er á þessa leið:
Velvakandi góður.
f von um að þú gefir mér
eitthvað hrífandi ráð, ætla ég
að gkrifa þér nokkrar línur..
Ég leigi út herbergi, ungum,
og inidælis hjónum, en sá brest
ut er á að þau vaða út og inn
á kuldastígvélum sínum, yfir
stífbónuð gólfin og ekki nóg
með það því gestir þeirra gera
það sama. Það er gagnslaust
að segja mér að tala hreint út
um þetta vandamál. Ég er svo
mikil rola (og maðurinn minn
líka) að ég fæ mig ekki til þess
að reka allt þetta fullorðna fólk
úr götuskóm sínum, heldur held
ég áíram að góna alveg dolfall-
in á þessa tegund sóðaskapar.
Einn gestur kom í gær, hann
þurrkaði það mesta af skítugum
skóm sínum og gekk svo inn,
ungu hjónin mín stóðu í dyrun-
um á herbengi sínu til að taka
á móti þessum „velkomna gesti“
svo ég ætlaði nú heldur betur
að gefa þeim bendingu, greip
gólftuskuna, skreið á eftir gest-
inum alveg inn að herebrgis-
dyrunum og þurrkaði upp bleyt
una,. ákafinn var svo mikill að
ég má þakfca fyrir að hafa ekki
orðið með nefið mitt á milli
stafs og hurðar, þegar henni var
skellt aftur. En viti menn. Hinn
„velkomni gestur" var að
hevrfa inn til þeirra (ungu hjón
anna) rétt áðan og nú var hann
í hnéháum kuldastígvélum og
þurrkaði etkfci eimu sinni af fót-
unum á gólfmottuna.
Erum við fslendingar svona
miklir sóðar?
Rolan.
-+C Umgengisreglur
í anddyrið
Þú biður um ráð, kona
góð. Ekki veit ég hvort ég get
ráðið heilt, en þess skal freist-
að. Að sjálfsögðu væri eðlileg-
ast að tala hreint út um málið
við leigjendurna, en úr því að
þú treystir þér ekfci til þess,
verður að hafa einhvern annan
hátt á. Hvernig væri að hengja
upp umgengnisreglur í anddyr-
ið? Það er víða gert í húsum
að hengja upp í anddyri fyrir-
mæli um hvernig umgengni hús
eigendur óska eftir í húsinu.
Eru menn þá m. a. beðnir að
fara úr skóhlífum og útiskóm
við útidyr sem auðvitað er svo
sjálfsagt, að ekki ætti að þurfa
að benda neinum á það. Ég
held að þetta væri góð byrjun.
Ungu hjónin, leigjendur þínir,
mundu sjálfsagt átta sig á því
að fara eftir þessu, þegar þau
sæju svart á hvítu til hvers
væri ætlazt af íbúum hússins.
Og ef þau skyldu ekki láta sér
segjast við þetta, er alténd auð
veldara að hreyfa málinu ef þú
getur vitmað til þess, að í hús-
inu gildi ákveðnar reglur utn
þessi efni. Að endingu vonia ég
að þessi ráð beri jákvæðan
árangur.
A élritun - hraðritun
Stúlka óskast til starfa nú þegar eða sem fyrst.
Ensku og vélritunarkunnátta nauðsynleg. Hraðritun
æskileg. Góð launakjör fyrir hæfa stúlku.
Tilboð merkt: „5089 sendist Mbl. fyrir 31. þ.m.
íltgerðarmenn!
Viljum leigja í vetur góða saltfiskstöð í Þorlákshöfn.
Upplýsingar á kvöldin í síma 37359.
HÚSGÖGN
Nú er rétti tíminn til að láta klæða og gera við
bólstruðu húsgögnin.
BÓLSTRUN ÁSGRÍMS
Bergstaðastræti 2 — Sími 16807.
Tilboð óskast
i Willy’s station bifreið með framhjóladrifi og
nokkrar fólksbifreiðar er verða sýndar að Grensás-
vegi 9 miðvikudaginn 31. janúar kl. 1—3.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5.
Sölunefnd varnarliðseigna.
smttur^
smurt brauö 3 HÖLLIN 3 brauðtertur
)opidfrá kl. 9 -23:30
LAUGALÆK 6
91 SÍMI 30941 ’éSfr>næg bílastæöi^
\