Morgunblaðið - 27.01.1968, Page 28
KSK.UR
Suðurlandsbraut 14 — Sírni 3S550
mcgrotiSifnfrtfr
LAUGARDAGUR 27. JANUAR 1968
TVÖFALT
. EINANGRUNARGLER
?Oára reynsla hérlendia
Veski stolið með
35.000 krónum
VESKI stolið með 35.000 krón-
nm í, fjögur þúsund í pening-um
og tveimur ávísunum, að upphæð
eitt þúsund krónur og þrjátíu
þúsund krónur, var stolið í húsi
í Reykjavík s.l. miðvikudag. Á-
vísanirnar eru báðar gefnar út á
Búnaðarbankann. Eitt þúsund
króna ávísunin er sparisjóðs-
ávísun nr. 95680, en hin ávisun-
in er hlaupareikningsávísun,
Nr. 2647.
stigann og út, en missti þá af
honum.
Þegar hann kom upp í ílbúðina
aftur og fór að afchuga málið, sá
hann að veskið var horfið úr
jakka hans, sem hékk á stól-
baki í forstofunni.
í>að er vinsamleg tilmæli
rannsóknarlögreglunnar, að þeir,
sem kynnu að hafa orðið varir
við framangreindar ávísanir
eftir þjófnaðinn, gefi sig fram.
Ver KE-45 að loðnuveiðum í Keflavíkurhöfn fyrir fáeinum árum,
Þjófnaðuripn átti sér stað milli
klukkan 18:45 og 18,55 á mið-
vikudag. í húsi einu í Reykja-
vík sat maður inni í stofu og
beið konu sinnar. Hafði hann úti
dyrnar opnar og stofudrynar
fram á ganginn líka. Þegar hann
heyrði gengið upp stigann, hélt
hann, að þar væri frúin á ferð
og kallaði fram, en fékk ekkert
svar.
Snaraðist hann þá fram í gang
inn og sá á eftir manni út úr
fbúðinni, sem hann elti niður
Giftusamleg björgun;
Varðskipið Albert bjarg-
aði 5 skipverjum af vb Ver
Framhalds-
þing ASÍ
FRAMHALDSÞING Alþýðusam-
bands íslands verður haldið í
Lidó, næstkomandi mánudag
klukkan 2. Á dagskrá er: Lög og
skipulag sambandsins, og vænta
má þess, að kjaramál verði tekin
á dagskrá.
sem fékk á sig brotsjó i sunnanvebrum Patreksfjarðarflóa
og sökk. Mennirnir komust naumlega i gúmbát.
VÉLBÁTURINN Ver KE-45, sem
gerður er út frá Bíldudal, fékk á
sig brotsjó litlu fyrir kl. 3 í gær-
dag, þar sem hann var staddur
tvær sjómílur út af Kópanesi í
Patreksfjarðarflóa. Lagðist bát-
urinn á hliðina, fylltist af sjó og
sökk litlu síðar. Fimm manna
-
§
Frá útför
K. M).
Gunnars S. Tryggva sonar
(Ljósm.
Útför Cunnars S. Tryggvasonar í gœr:
Fnrið fram d að leitað verði
aðstoðar erlendis fró við
rannsókn morðsins
ÉTFÖR Gunnars S. Tryggvason-
ar, leigubílstjóra, var gerð frá
Fossvogskirkju í gær að við-
stöddu miklu fjölmenni. Séra
Grímur Grímsson jarðsöng og
fjórir félagar úr bílstjórafélaginu
Frama stóðu heiðursvörð. Organ
isti var Jón ísleifsson.
Ekkert nýtt er að frétta af
rannsókn morðmálsins og er
morðinginn enn ófundinn.
Bílstjórafélagið Frami hefur
farið fram á það við yfirmenn
rannsóiknarinnar, að leitað verði
til erlendra sérfræðinga um að-
stoð við rannsókn málsins og
hið sama hafa aðstandendur
Gunnars heitins farið fram á við
rannsóknarlögregluna. Hafa að-
standendur Gunnars boðizt til að
greiða kostnaðinn við 'kornu sér-
fræðmganna. ,
Yfirmenn rannsóknarinnar
hafa svarað því til, að sögn Berg
steins Guðjónssonar stjórnarfor-
manns Frama, að ekki sé ástæða
til að leita eftir erlendri aðstoð
á meðan ekkert það liggi fyrir,
sem erlendix sérfræðingar geta
unnið úr. Ef hins vegar eitthvað
kemur í Ijós, sem rannsóknar-
iögreglan telur sig ekki ráða
við, verður að sjálfsögðu leitað
til erlendra sérfræðinga um að-
stoð.
áhöfn var á bátnum, og tókst
skipverjum naumlega að bjarga
sér í gúmbát áður en Ver sökk.
Hröktust skipverjarnir í gúm-
bátnum i fimm klukkustundir,
en laust fyrir átta í gærkveldi
sáu skipverjar af varðskipinu
Albert, sem var að svipast um
eftir bátnum, neyðarblys frá
gúmbátnum, og bjargaði mönn-
unum litlu síðar. Var þeim kalt,
en við góða heilsu.
Ver fór í róður að morgni
fimmtudagsins, en farið var að
óttast uim bátinn um miðjan dag
í gær, þegar hann var enn ókom-
inn. Ver KE-45 er 36 lesta bátur,
sm'íðaður í Stykkishólmi 1966.
Skipstjóri er Snæbjörn Árnason
frá Bíldiudal.
Blaðamaður Mbl. náðd tali af
Snæbirni, þar sepn hann var í
sjúkraihúsinu á Patreksfirði í
gærkveldi, ásamfc félögium sínum.
— Klukkan hefur verið svona
15-20 mínútur fyrir þrjú, þegar
við fengum á okkur einn bro>t-
sjó, en svo kröftugan, að bátur-
inn lagðist samstundis á hliðina,
og reisti hann sig ekkert við eftir
það. Við vorum þrír affcur i stýr-
ishúsi, ég, vélstjórinn og stýri-
maðurinn, en hinir tveir voru
fram í lúkar. Áfcti báfcurinn eftir
svo sem tvær míliur í Kópinn,
þegar þetta gerðist.
— Það byrjaði strax að flæða
inn í stýrishúsið og eins niður í
lúkarinn. Við, sem vorum í
stýriahúsinu, ætluðum að reyna
að komast út um neyðardyr, því
að húsið var orðið hálffullt af
sjó, en okkur fcóksit ekki að opna
þær. Urðum við þá að brjóta
glugga og skríða í gegnum hann.
---Ekki þótti okkur í fyrstu
árennilegt að ná gúmbjörgun-
arbátnum upp úr kassanum,
sem hann er geymdur í, því að
mikil ising var allsstaðar á bátn
um, og ekkert lauslegt, sem við
gátum losað loki'ð á kassanum
með. Við reyndum þá að sparka
í kassann, og svo fór að lokum
að lokið losnaði, og við gátum
náð gúmmbátnum upp. Stukk-
um við út í hann meðan hann
var að blása sig upp, og um leið
og við byrjuðum að stjaka okk-
ur frá Veri, sök'k báturinn.
— Þegar Ver var sokkinn byrj
uðm við fimm að reyna að
hreiðra um okkur í gúmbátn-
um, reima fyrir tjaldið, og ausa
hann. Allir nema ég voru í ull-
arsokkum, og fóru þeir úr þeim,
Strandaði við
Ingólfshöfða
— komst út hjálparlaust
V ÉLBÁTURINN Hildur frá
Reykjavík strandaði fyrir vestan
Ingólfshöfða um fimmleytið í
fyrrinótt. Nokkrir bátar heyrðu
tilkynningu um strandið og fóru
á vettvang til hjálpar, og jafn-
framt var kölluð út björgunar-
sveit Slysavarnafélagsins á Fag-
urhólsmýri.
Skipstjórinn á Hildi afþakkaði
þó alla hjálp og klukkan 6.15 um
morguninn losnaði skipið sjálft.
Vélarnar komust ekki strax í
gang, en veður var gott, og rak
s'kipið frá landi. Um hádegisbilið
í gær hafði svo tekist að gera
við vélarnar og tilkynnti skipið
þá, að allt væri í lagi. Skemmdir
munu ekki hafa orðið miklar.
Snæbjörn Arnason, skipstjóri.
og notuðum við ullarsokkana til
þess að þurrausa upp botninn.
Þegar við vorum búnir að þessu
stakk einhver upp á að vi'ð
syngdum og annar upp á því, að
við færum með Faðirvorið, og
við gerðum hvort tveggja.
— Ég taldi þýðingarlaust að
vera að eyða neyðarblysunum
svona fyrst í stað, en eftir lang-
an tíma þóttist ég finna a'ð sjó-
lagið væri að breytast, og taldi
að við værum komnir ískyggi-
lega nálægt landi. Þá skaut ég
upp einu neyðarblysi, og það
var einmitt það blys, sem varð-
skipsmenn sáu, — í þann mund
er það var að deyja út.
Snæbjörn sagði að endingu,
að þeir væru allir við gó'ða
heilsu, væru aðeins með smá
hitavellu. Áttu skipverjarnir að
vera í sjúkrahúsinu í nótt.
— Þetta var giftusamleg
björgun, sagði Helgi Hallvarðs-
son, skipherra á Albert, þegar
blaðamaður Morgunblaðsins átti
símtal við hann í gær. — Við
vorum á Bíldudal til að aðstoða
bát, sem hafði fest skrúfuna, þeg-
ar formaður björgunarsveitarinn
ar á Bíldudal kom til okkar um
Framhald á bls. 27
Aukaiundur SH ú mónudag
í GÆR var haldinn fundur með
fulltrúum ríkisstjónarinnar og
og samtaka hraðfrystihúsanna.
Á þeim fundi voru lagðar fram
ákveðnar tillögur til lausnar á
vandamálum hraðfrystihúsanna
af háifu ríkisstjórnarinnar.
Stjórn SH mun koma saman
til fundar á mánudagsmorgun og
mánudag kl. 2 verður haldinn
aukafundur Sölumiðstöðvarinnar
að Hótel Sögu, þar sem væntan-
lega verður tekin endanleg af-
staða til tillagna ríkLsstj.innar.