Morgunblaðið - 19.04.1968, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 196«
Eldur í gömlu íbúöar-
húsi að Bergstaðast.
ELDUR kom upp í íbúðarhúsinu
að Bergstaðastræti 63 um hálftvö
leytið í gær, en það er tvílyft
timburhús. Þegar slökkviliðið
kom á staðinn var mikill reykur
í öllu húsinu, og talsverður eld-
ur á neðri hæð hússins.
Slökkvistarfið gekk fljótt og
vel, og náði eldurinn aldrei upp
á efri hæðina. Allur eldur var
slökktur í húsinu á tæpum
klukkutíma.
Miklar skemmdir urðu á neðri
hæðinni, svo og á innanstokks-
munum, sem þar voru, en búið
var á báðum hæðunum. Einnig
munu einhverjar skemmdir hafa
orðið á innanstokksmunum á efri
hæðinni af völdum reyksins, sem
lag’ði um allt húsið. Ókunnugt er
um eldsupptök.
Siglingaleið enn erfið
fyrir Langanes vegna íss
FLUGVÉL fór í gær í ískönn-
unarflug á vegum Landhelgis-
gæzlunnar, skipherra var Gunn-
ar Ólafsson. Segir svo í skýrslu
skipherra eftir flugið:
.Rani af þéttum ís er nú næst
landi á Húnaflóa, um 30 sjóm.
austur af Homi. Mjókkandi ís-
rani, 1—3/10 teygir sig þaðan í
átt að Gjögri og endar í 10 sml.
í NA af því. Stakir jakair og ís-
eyjar eru þó um allan Húnaflóa.
Milli Gjögurs og Steingríms-
fjarðar er ísinn þó um 1—3/10
og nær um 14 smd. austur af
Kaldbakahorni. Siglingarleiðin
Húnaflói að Grímsey er greið-
fær, nema ísrani teygir sig að
landi í vestanverðum Eyjafjarð
arál, og er í um 12 sml. fjar-
iægð N af Sigiunesi.
ís 4—6/10 er skammt N og A
af Grímsey og teygir sig inn
Skjálfandadjúp um 8 sml. SA
af Grímsey. Þaðan liggur svo is
1—3/10 áfram að stað um 10
sml. V af Mánareyjum. Talsvert
ísrek er á Skjálfanda og Tjör-
nesgrunni, en virðist vel sigl-
íindi í björtu.
ísinn 4—6/10 er í um 13 sml.
N af Sléttu og liggur á ská upp
að Langanesi, og ís 1—3/10 á
Þistilfirði 4—8 sjóm. undan landi
en þó siglandi j björtu.
Siglingaleið er mjög erfið fyr
ir Langanes, en þar þéttist ís-
inn mikið. Þó virðast vera stór-
ar vakir meðfram landi, 2—4 sjó
m. af, og liggja í 145° m/v, en
þair er stytzt út úr ísnum h.u.b
6—8 sjóm. Nokkur ishöft ca. 100
til 400 metra að bre dd og 6—9/
10 að þéttleika loka vökunum
þó alveg að SA-verðu.
Vakir liggja inn með Langa-
nesi að sunnanverðu, en lokast
á móts við Eiðisvík og virðist ó-
fært út úr isnum þar. 11 sjóm
austur af Digranesi virðist sam
felldur ís, enda og þaðan að
Gerpi eru aðeins stakix jakar og
jakahópar, einkum út af Bjarnar
ey, Kögri og Sandvík. Jakar þess
ir liggja djúpt í og sjást örugg-
lega illa eða ekki í ratsjá.
Ekki sást niður sunnan Gerp-
Ls, sökum þoku.
Unnið við að steypa akbrautina á þaki Tollstöðvarinnar í gær.
Árlegar áœtlanir um
opinberar framkvœmdir
verði felldar undir ramma fjárlaga
t SKÝRSLU sinni um fram-
kvæmda- og fjáröflunaráætlun
fyrir árið 1968 er Magnús Jóns
son flutti á Alþingi í gær ræddi
hann m.a. um framtíð áætlunar
gerðar og sagði það skoðun sína,
að stefna bæri að því að felia
allar árlegar áætlanir um op-
inberar framkvæmdir undir
ramma f járlaga.
Þetta atriði er að sjálfsögðu
liður í fyrirætlunum um framtíð
áætlunargerðar hér á landi yfir
leitt, sagði ráðherra. í þeirri
slkýrslu, er ég gaf hér á Alþingi
fyrir ári siðan, lýsti ég nokkuð
hugmyndum mínum og rikis-
stjórnarinnar i þeosu efni, jafn
framt því sem ég skýrði frá því
að ríkisstjórnin hefði ákveðið
að leggja ekki að svo stöddu fram
nýja þjóðhags- og framkvæmda-
aætlun til fjögrra ára við lok
áætlunartímabilsins 1963—1966.
Síðan þessi skýrsla var flutt hef
ur stjóm Efnahagsstofnunarinn-
ar framkvæmt sérstaka athugun
á framtíð áætlunargerðar hér á
landi og nú fyrir skömmu skilað
áliti og tillögum um þetta efni
til ríkisetjórnarinnar. f sambandi
við þessa athugun stjórnar Efna
hagsstofnunarinnar kom sérfræð
Bókmenntakynning
Leikfélags Kópav.
MÆSTKOMANDI mánudag 22.
apríl kl. 21.00, mun Leikfélag
ECópavogs gangast fyrir bók-
nenntakynningu í Félagsiheimili
Kópavogs. Að þessu sinni verður
aókmenntakynnningin helguð
Vlagnúsi heitnum Ásgeirssyni,
skáldi. Þarf ekki að efa, að að-
iáendum Magnúsar Ásgeirsson-
ir muni fagna þessari kynningu
i verkum hans. Kynnir verður
Ragnar Jónsson, Jóhann Hjálm-
irsson mun tala um skáldið,
ECristinn Hallsson, óperusöngvari
>yngur, Ijóðalestur annast Bald-
/in Halldórsson. leikari og leik-
írar úr Leikfélagi Kópavogs.
Magnús heitinn Ásgeirsson er
íttunda skáldið, sem Leikfélag
íCópavogs kynnir. Hin sjö eru
VTatthías Jochumsson, Jóhann
Sigurjónsson, Einar Benedikts-
lon, Jónas Hallgrímsson, Halldór
ECiljan Laxness og Davíð Stefáns
Svo sem á öllum fyrri bók-
menntakynningum Leikfélags
Kópavogs, er aðgangur ókeypis
og öllum heimill.
Bcnnsókn á
gialdeyris-
málnm L&L
SEÐLABANKINN hefur sent
saksóknara ríkisins bréf og ósk-
að eftir rannsókn á meintum
gjaldeyrisbrotum ferðaskrifstof-
unnar Lönd & Leiðir.
Hefur saksóknaraembættið aú
málið til athugunar og má bú-
ast við að ákveðið verði á næst-
unni, hvort frekari rannsókn á
gjaldeyrisviðskiptum fyrirtækis-
ins fer fram eða ekki.
ingur Alþjóðabankans í áætlunar
gerð, Albert Waterson, hingað í
heimsókn á sl. sumri. Tók hann
þátt í ráðstefnum og fundum um
áætlunargerð og átti ítarlegar við
ræður um þessi mál við ríkis-
stjórnina og stjórn og starfs-
menn Efnahagsstofnunarinnar. í
nóvembermánuði sl. gekk hann
frá skýrslu um niðurstöður heim
sóknar sinnar, er hann nefnir
„Tillögur um hagnýta áætlana-
gerð á íslandi", og hefur stjórn
Efnahagsstofnunarinnar haft
hana til hliðsjónar við samningu
álits síns og tillagna.
Ég vil nota það tækifæri, sem
mér býðst hér í dag, sagði ráð
herra, til þess að skýra frá því,
að ríkisstjómin er í öllum megin
atriðum sammála þeim sjónar-
miðum, sem fram koma bæði í
skýrslu Watersons og áliti og til
lögum stiórnar Efnahagsstofnun
arinnar. I samræmi við þetta tel
ur ríkisstjórnin, að á næstu ár-
um beri að halda áfram á þeirri
braut, sem íslenzk áætlunargerð
hefur beinzt inn á að undan-
förnu, þ.e.a.s. að leggja megin-
áherzlu á gerð árlegra áætlana
annars vegar og gerð áætlana til
langs tíma um einstakar atvinnu
greinar og einstakar greinar op-
inberra framkvæmda hins veg-
ar. Jafnframt sé haldið áfram að
bæta undirbúning og mat ein-
stakra verka.
Hringnum
berst stórgjöf
KVENFÉLAGINU Hringnum
berst stór.gjöf og áheit. Frú
Nanna Algeirsson afhenti ný-
lega kr. 20.000.oo, tuttugu þús-
und krónur — til minnimgar um
foreldra sína Hönnu og Jón Zo-
ega og skyldi fjárhæðiin ganga
til starfsemi félagsins fyrir
taugaveikluð börn. Sömuleiðis
hefur áheit borizt til Barnaspí-
talasjóðsins frn Hörnu Kristj-
ánsdóttur vegna Guðna Axnar-
sonar sem fékk fullan bata 1
Barnaspítala Hringsins, að fjár-
hæð kr. 1000.00.
Kvenfélagið Hringurirm þakk
ar innilega þessaT gj afir og
þann hlýhug sem þeim fylgir.
(Frá Hringnum).
Flug gekk erfið-
lega vegna þoku
ÞOKA lá enn yfir Reykjavík
mestan hluta dags í gær, þannig
Landburður af
fiski á Hornaf.
Höfn, Hornafirði, 18. apríl. hjá Homafjarðarbátum. Fimm
LANDBURÐUR er nú af fiski bátar lönduðu í gær 223.3 Lest-
Bólusetning
gegn rnuðum
hundum
Atlantic City, New Jersey,
18. apríl — (AP): —
INNAN árs má reikna með
því að verðandi mæður geti
fengið bólusetningu gegn á-
hrifum rauðra hunda á ófædd
börn þeirra, segir í ný útkom
inni skýrslu dr. Maurice R-
Hillemans, sem starfar við
Merck-stofnunina í West Foint
Pennsylvania.
Dr. Hilleman segir að víð-
tækar tilraunir séu hafnar í
Bandaríkjunum með nýtt bólu
efni til varnar rauðum hund-
um, og eru notaðar lifandi veir
ur við bólusetninguna. Verð-
ur þetta efni reynt á 20 þús-
und börnum á fimm afmörk-
uðum svæðum á þessu ári, en
önnur bóluefni verða reynd á
sama fjöida barna annars-
staðar. Samskonar tilraunir er
verið að gera í Englandi og á
Formósu.
um og var afli bátanna frá 29
lestum í allt að 69 lestir.
Mestan afla í einnar náttar-
lögn hafði Akurey, 50 lestir í
aðeins sjö trossum, en hæsta
íestatölu hafði Hvannney 69
lestir.
Svarta þoka skall hér á í gær-
kvöldi er bátarnir voru að koma
að, og gátu þeir ekki komizt tíl
hafnar fyrr en með morgninum,
er þokunni létti.
— Gunnar.
að litið var um flug frá Reykja-
vík, en á Keflavíkurflugvelli var
flugumferð með eðlilegum hætti
eftir hádegi.
Innanlandsflug F.f. gekk þó
sinn vanagang, nema hvað í
gærkveldi tepptist vél á Akur-
eyri vegna þokunnar yfir vell-
inum hér, og auk þess urðu tvær
vélar — önnur frá Sauðárkróki,
hin frá Egilsstöðum — að lenda
á Keflavíkurflugvelli.
Öll flugumferð lá niðri frá
Keflavíkurflugvelli í fyrrinótt og
fram að hádegi, en þá lenti Loft-
leiðavél sem beðið hafði í Luxem
borg. Um sjö leytið í gærmorgun
varð PanAm-flugvél að hætta
við lendingu og fara til Prest-
víkur, en sem fyrr segir, rættist
úr um hádegið og síðari hluta
dags var allt með eðliiegum
hætti.
Veðurstofan gerir ráð fyrir að
þokan hverfi eftir hádegi í dag.
Aðalskrifstofa S.Ú.IM
staðsett á Siglufirði
— frumvarp samþykkt i neðri-deild
FRUMVARP til breytingar á
lögum um Síldarútvegsnefnd kom
til 2. umræðu í neðri deild í
gær, en það hefur áður hlotið
samþykki í efri deild. Nokkrar
deilur urðu í þinginu um það at
riði frumvarpsins, er fjallar um
hvar aðalskrifstofa nefndarinnar
skuli staðsett. Meirihluti sjávar-
útvegsnefndar neðri deildar lagði
til, að frumvarplnu yrði vísað
til rjkisstjórnarinnar, en minni
hiutinn lagði hins vegar til, að
frumvarpið yrði samþykkt ó-
breytt. Við atkvæðagreiðslu um
málið í gær í deildinni var til-
laga meiri hlutans felld að við-
höfðu nafnakalli með 25 atkvæð
um gegn 14, og frumvarpið sam-
þykkt óbreytt til 3. umræðu