Morgunblaðið - 19.04.1968, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ/FÖSTUDAGUR 19. APRÍU 1968
5
Hvers vegna eru ekki veitt Norður-
landaverðlaun fyrir myndlist?
— segir norska stórblaðið „Aftenposten"
eftir Ólöfu Pálsdóttur, myndhöggvara
FYRIR nokkru birti norska
blaðið Aftenposten viðtal
við Ólöfu Pálsdóttur mynd-
höggvara, þar sem hún legg-
ur til, að Norðurlandaráð
veiti norrænum myndlistar-
mönnum verðlaun á sama
hátt og rithöfundum og tón-
listarmönnum. Viðtalið fer
hér á eftir þýtt og lítillega
stytt.
Hún er íslendingur og
komin frá Reykjavík, hún
bjó nokkur ár í Færeyjum,
fékk listmenntun í Kaup-
mannahöfn. Hún hefur unn-
ið í Gautaborg og verið í
Finnlandi á finnskum ríkis-
styrk. Er hægt að hugsa sér
tímabærari gest í Ósló, þar
sem svo mörg fögur orð eru
uppi höfð um Norðurlöndin
þessa daga.
Hún er einnig í beinum tengai
um við Norðurlandaráð, þar sem
maður hennar, Sigurður Bjarna
son forseti neðrideildar alþing-
is, hefur starfað innan ráðsins
frá upphafi. Hann er kominn
til Osló til að taka þátt í funda-
höldum, en hún er hér í öðrum
erindagjörðum: Hún er mynd-
höggvari og fyrri hluta dags
er hana að hitta í List- og
málmsteypu Kristjaníu. Þar
stendur hún í hvítum ikyrtli
og fínpússar bronsstyttur. Þær
eru hennar verk og hvað hæfir
betur norrænu starfi en senda
þær til afsteypu í Osló.
— Við höfum enga listaverka
steypu á íslandi og það er mjög
bagalegt fyrir okkur myndhögg
arana, segir frúin. — Við verð-
um því að senda allt utan og
getur hver maður gert sér i
hugarlund, að það er bæði kostn
aðarsamt og ýmsum erfiðleik-
um bundið.
Frúin hefur áður látið gera
afsteypur af verkum sínum í
Kaupmannahöfn.
Ólöf Pálsdóttir kærir sig ekki
um að nostra við smáatriði, það
er formið sem heild, sem á hug
hennar. Lengst af hefur hún
unnið að stórum verkum, sem
eru nú bæði í Genúa, Reykja-
vík, Gautaborg og Árósum og
það var einnig fyrir slíkt stór-
verk, að hún vann gullverð-
laun á Akademiunni í Kaup-
mannahöfn fyrir nokkrum ár-
um.
— Kannski má segja, að það
nálgist ofdirfsku hjá konu að
leggja fyrir sig höggmyndalist,
þar sem efniviðurinn er svo
þungur. Og það er ekki alls
staðar auðvelt að láta taka
mark á sér sem listamanni, þeg-
ar um konu er að ræða, ekki
sízt ef húsmóðir með börn á í
hlut. Á því sviði geta Finnar
kennt okkur margt og þeir sýna
að flestu leyti djúpan listaskiln
ing.
Island hefur ekki af mörgum
myndhöggvurum að státa. Þeg-
ar opinber bygging er reist eða
milljónahús byggt hvarflar það
að fáum að skreyta hana lista-
verkum myndhöggvara. Aftur á
móti er miklu meiri áhugi á
málaralist.
Við eigum marga unga mál-
ara og þeir eru djarfir, hvað
það snertir að sýna verk sín.
Kannski eru þeir eilítið of fljót
ir til þess, það er svo algengt
að hugsa um auglýsingagildið.
íslendingar hafa áhuga á
inútímalist — í svo ríkum mæli,
að við gleypum kannski ein-
staka hluti hráa, við hugsum
sem svo, að sá sem ekki tekur
á móti þessu fýlgist ekki með
tímanum!
— Eruð þér þeirrar skoðun-
ar, að íslenzkir málarar séu
orðnir of alþjóðlegir?
— Við eigum listamenn, sem
ég tel að séu í stórkostlegum
tengslum við náttúru lands okk
ar og við fortíð þjóðarinnar.
En margir listamenn sækja á-
hrif til útlanda — áður var
það einkum til Kaupmannahafn
ar, nú halda margir til Parísar,
Englands og Bandaríkjanna.
Við eigum ekki sterkar hefðir
í íslenzkri myndlist og kannStki
er það m.a. ástæðan fyrir því,
að margir listamenn okkar virð
ast svo alþjóðlegir. Auk þess
er auðveldara að tileinka sér
einhverja isma og hugmyndir,
sem aðrir hafa skapað. En það
' er heiðarlegra að maður starfi
út frá uppruna sínum og hjá
sumum listamönnum okkar og
arkitektum sakna ég nokkurr-
ar innlifunar í náttúru íslands.
Ólöf Pálsdóttir seldi eina
höggmynd sína meðan hún var
í Osló og keypti hana kana-
díski ambassadorinn, sem er
einnig fulltrúi lands síns á ís-
landi. Hún hefur á undanförn-
um árum selt mörg verk, og
þegar hún kemur heim frá Oslo
mun hún halda áfram við stóra
Kristsstyttu í Skálholtskirkju.
Hún er einnig lítillega byrjuð
að vinna að myndastyttu af
Halldóri Laxness.
— Hvaða augum lítið þér á
norræna listasamvinnu.
— Auðvitað ætti að gera
miklu meira bæði af styrkveit-
ingum og sýningum. Það er
gleðilegt að Norðurlandaráð
skuli hafa komið á bæði bók-
mennta- og tónlistarverðlaun-
um, en væri ekki eðlilegt að
hugsa einnig til m.vndlistar-
manna?
Þeir hverfa oft í skuggann,
þrátt fyrir að kannski eiga þeir
erfiðast með að ná til áhorf-
enda — það er nú einu sinni
svo að það er hægara að ná
sambandi með tali og tónum en
með málverkum og höggmynd-
Rrúðarkjólar
stuttir og síðir,
einnig stór númer.
KJÓLASTOFAN, Vesturgötu 52.
um.
Ungur lögíræðingur
óskar eftir atvinnu hálfan daginn. Tilboð sendist
Mbl. fyrir mánudagskvöld merkt: „Lögmaður —
8527“.
Mynd þessi birtist með sam talinu við Ólöfu Pálsdóttur, þar
sem hún vinnur við frágang verka sinna á steypuverkstæð-
inu í Osló.
Keflavík - Suðurnes
Höfum til sölu á tækifærisverði Toyota 6 manna
fólksbifreið, árg. 1968. Úrval minni og stærri bíla.
Verð og greiðsluskilmála við allra hæfi.
BÍLASALA SUÐURNESJA,
Vatnsnesvegi 16, Keflavík, sími 2674.
Traktorskerrur
Traktorskerrur óskast. Upplýsingar i síma 81550.
BREIÐHOLT H.F.
íbúðaskipti
Óskum eftir að skipta á 4ra herbergja íbúð í Vest-
urbænum. íbúðin er í nýrri blokkbyggingu í skipt-
um fyrir 3ja herbergja íbúð rúmgóða á góðum stað
í Austurbænum. fbúðin er laus 1. júlí.
Upplýsingar í síma 20271.
■ gnccvnci
Til sölu er grunnur að raðhúsi í Fossvogi. Teikning
gerir ráð fyrir innbyggðum bílskúr í neðri hæð.
Eignarhlutdeild í vinnuskúr fylgir.
FASTEIGNAÞJÓNUSTAN,
Austurstræti 17, 3. hæð
Símar: 1 68 70 og 2 46 45
Heimasími: 30587.
ALLT MEÐ
EIMSKIP
Á næstunni ferma skip vor
til íslands, sem hér segir:
ANTWERPEN:
Reykjafoss 23. apríl
Fjallfoss 6. maí
Reykjafoss 17. mai
ROTTERDAM:
Reykjafoss 26. apríl
Skógafoss 8. maí
Goðafoss 17. maí*
Reykjafoss 21. maí
HAMBORG:
Goðafoss 22. apríl *
Lagarfoss 27. apríl.
Reykjafoss 29. april
Skógafoss 10. maí
Reykjafoss 15. maí
Goðafoss 21. maí *
LONDON:
Askja 26. apríl
Mánafoss 2. maí *
Askja 10. maí.
HULL:
Reykjafoss 22. apríl
Mánafoss 6. maí
Askja 14. maí.
LEITH:
Askja 29. apríl
Gullfoss 13. maí
NORFOLK:
Brúarfoss 11. maí
Selfoss 31. maí
Fjallfoss 14. júní *
NEW YORK:
Selfoss 24. april
Brúarfoss 15. maí
Selfoss 5. júni
Fjallfoss 19. júní *
GAUTABORG:
Havlyn 23. apríl
Skógafoss 6. maí *
Bakkafoss 8. maí*
Skip um 23. maí.
KAUPMANNAHÖFN:
Kronprins Frederik 20. apr
lavlyn 25. apríl.
Kronprins Frederik 4. maí.
Skógafoss 8. maí *
Gullfoss 11. maí
KRISTIANSAND:
Lagarfoss 25. apríl.
Bakkafoss um 6. maí*
GDYNIA:
Tungufoss 2. maí
VENTSPILS:
Dettifoss 22. apríl.
KOTKA:
Dettifoss 30. apríl
Tungufoss 7. maí
*) Skipið losar í Reykja-
vík og á ísafirði, Ak-
eyri og Húsavik.
**) Skipið losar á Reyðar-
firði, Reykjavík, fsa-
firði, Siglufirði, Akur-
eyri og Húsavik.
Skip sem ekki eru
merkt með stjörnu
losa í Reykjavík.
Þægilegar sumarleyfisferð
ir til útlanda.
Goðafoss — Detttifoss
Lagarfoss.
Farrými fyrir 12 farþega.
Upplýsingar í farþegadeild
ALLT MEÐ
EIMSKIF