Morgunblaðið - 19.04.1968, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1968
!
I
j
i
I
)
I
1
)
I
}
I
M. R. grasfræ
blandað og óblandað
iy. R- grasfræblanda „V“
Alhliða blanda, sáðmagn 20—25 kg. á
hektara. Þessi grasfræblanda og einnig
,Ji“-blanda M.R. hefur við tilraunir gefið
mest uppskerumagn af íslenzkum gras-
fræblöndum, og staðfestir það reynsla
bænda.
M. R. grasfræblanda „H“
hentar vel þar sem þörf er á þolmiklu grasi
og gefur einnig mikla uppskeru. — Sáð-
magn 25—30 kg. á hektara.
M. R. grasfræblanda „S“
í þessari blöndu eru fljótvaxnar en að
nokkru skammærar tegundir. Sáðmagn
um 30 kg. á hektara.
Oblandað fræ
Engmo vallafoxgras
Túnvingull, danskur
Skammært rýgresi, DASAS
Vallarsveifgras, DASAS, fylking
Háliðagras, Oregon
Fóðurkál: SiJona, mergkál, raps
Sáðhafrar, fóðurrófur.
Gírðíngarefni:
Túngirðinganet 5 og 6 strengja, með hin-
um þekktu traustu hnútabinding-
um. Einnig ódýrari girðinganet.
Lóðagirðinganet 2” og 3” möskvar.
Plasthúðuð net
Gaddavír
Girðingarstólpar, tré og járn
Girðingarlykkjur
? PANTIÐ í TÍMA
f
MJÓLKbRFÉLAG
REVKJAVÍKLR
Laugavegi 164 — Sími 11125 — Símn.: Mjólk.
- UTAN ÚR HEIMI
Framhald af bls. 16
merki þess, að gríska þjóðin
hafi tilhneigingu eða sé fús
til að rísa upp gegn stjórn-
inni. Og ég held, að fólkið
geri það ekki, nema það eigi
von á að eitthvað betra taki
við en áður var“.
Herforingjastjómin hefur
vissulega náð nokkrum ár-
angri á þessu ári. Hún hefur
t.d. náð að festa sig í sessi.
Uppreisn konungs var kæfð
á nokkrum klukkustundum
og honum leyft að fara til
Rómar. í»að er almenn skoð-
un grískra stjórnmálamanna,
að hann eigi ekki afturkvæmt
á næstunni, uppgjafarlaust.
Margir andstæðingar herfor-
ingjastjórnarinnar viður-
kenna opinskátt, að ráðherr-
ar hennar séu þrátt fyrir allt
lausir við spillingu. Mútu-
þægni hefur verið gerð út-
læg úr stjórnarbúðunum og
fólk er almennt orðið hrætt
við að beita þessum gamal-
gróna sið. Fjölda ónytjunga
hefur verið sagt upp störfum
og vinnusemi er hvarvetan
meiri og skipulag betra. Sam-
skiptin við Tyrkland hafa
batnað eftir samkomulagið um
Kýpurmálið. Búizt hafði ver-
ið við, að stjómin mundi
missa mikið fylgi innan hers-
ins, með því að láta svo mjög
undan Tyrkjum, sem raun
var, en ekki ber á þvi enn-
þá. Þvert á móti vfrðast tök
hennar á hemum sterk og
þeim herforingjum, sem gmn
ur leikur á, að séu stjóm-
inni andstæðir, er umsvifa-
laust vikið frá. Er haft fyrir
satt, að meira en sex hundr-
uð reyndir herforingjar hafi
verið reknir á árinu.
En fólkið er óánægt og
uggandi um sinn hag, þrátt
fyrir meiri reglu á hlutunum.
Listir eru enn háðar eftirliti
og blöð strangri ritskoðun.
Fólk er hrætt við að tala op-
inskátt. “Það er óvissan, sem
nagar“ segir einn Aþenubúi
„Þú spyrð sjálfan þig, hvað
gerist, ef þú gerir þetta —
og hvað gerist, ef þú gerir
það ekki?“ Allt er rólegt.
En margir Grikkir em orðn-
ir leiðir á friðsældinni. „Já,
víst er friðsamlegt í Grikk-
landi“ segir einn gamalreynd
ur blaðamaður „en það er líka
friðsamlegt í kirkj ugarðinum“
Óvissan hefur sín áhrif.
Grikkir eyða minna en áður
og safna peningum. Fast-
eignasala er lítil og marg-
ir smákaupmenn hafa orðið
gjaldþrota. Atvinnuleysi fer
vaxandi og svo er að sjá, sem
ferðamenn ætli einnig að
bregðast í ár.
Allir ráðherramir eru nú
í borgaralegum klæðum. En
þessum nýju fötum hafa ókki
fylgt hæfileikar til að stjóma
Stjómin gerir hverja skyss-
una af annarri — og veit oft
ekki í hvorn fótinn hún á
að stíga. Skipanir og tilkynn
ingar em birtar og oft tekn-
ar aftur skömmu síðar, stund
um eftir nokkrar klukku-
stundir. Þetta eykur á óviss-
una- Orðrómur kemst alltaf á
kreik öðm hverju um and-
stöðu gegn Papadopoulosi
Margir segja, að eigi að losma
við hann, verði hinir ráðherr-
amir að sjá um það.
Að sjálfsögðu hefur þessi
óvissa áhrif á fjárfestingu er
lendra aðila og flestir fær-
ustu efnahagssérfræðingar
landsins em sannfærðir um,
að peningaöfl muni ekki hætta
á fjárfestingu í Grikklandi
meðan ástandið er ekki betra.
Augljóst er á öllum sviðum,
að stjómina skortir aðstoð
sérfræðinga. Fjölmargir fær-
ustu menn Grikkja ganga at-
vinnulausir, sumir vegna þess
að stjórnin er tortryggin
vegna stjórnmálaskoðana
þeirra, aðrir vegna, að þeir
vilja ekki ganga á mála hjá
stjóminni.
En stjórnin virðist gera sér
þetta ljóst og nú hefur hún
leitað aðstoðar brezkra og
bandaríska aðila til að reyna
að auka vinsældir sínar með
al ráðamanna og fjárafla-
manna í Bretlandi og Banda
ríkjunum.
Og eins og nú er háttað
bíða Grikkir og velta fyrir
sér, hvað gerist næst. Stjóm
in hefur lofað allslherjarat-
kvæðagreiðslu 1. september
um nýja stjórnaskrá. Upp-
kastið að henni á að liggja
frammi í júlí og þá gera
menn sér vonir um að komast
að því, hvað fyrir stjóminni
vakir. (Frá AP — eftir
Gerald Miller. Lauslega þýtt
og nokkuð stytt)
Ungur
síýrimaður
vanur togveiðum, hefur áhuga
á að taka sér síkipstjórn á
góðum togbát fyrir komandi
humarvertíð. Upplýsingar um
stserð og aldur bátsins leggist
inn á ekrifst. Mbl., merktar:
„Mánaðamót 1968 — 8524“.
ALLT
FRÁ
LONDON
(dömudeild)
BORGARSPITALINN
Staða sérfræðings við lyflækningadeild Borgar-
spítalans er laus til umsóknar. Upplýsingar varð-
andi stöðuna veitir yfirlæknir deildarinnar. Um-
sækjendur skulu vera sérfræðingar í lyflækningum.
Laun samkvæmt samningi Læknafélags Reykja-
víkurvíkur við Reykjavíkurborg. Staðan veitist frá
1. sept. n.k. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám
og fyrri störf, sendist Sjúkrahúsnefnd Reykja-
víkur fyrir 1. júní n.k.
Stöður 3 aðstoðarlækna við lyflækningadeild
Borgarspítalans eru lausar til umsóknar. Upplýs-
ingar varðandi stöðumar veitir yfirlæknir deildar-
innar. Laun samkvæmt samningi Læknafélags
Reykjavíkur við Reykjavíkurborg.
Stöðurnar veitast frá 1. sept. n.k.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf, sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur fyrir
1. júní n.k.
Reykjavík, 17. 4. 1968.
Sjúkrahúsnefnd Keykjavíkur.
ADGLÝSING
um hækkun á sérstökum innflutningsgjöldum af
benzíni og af hjólbörðum og gúmmíslóngum á bif-
reiðar og bifhjól.
1.
Samkvæmt lögum um breytingu á 85. gr. vega-
laga hækkar sérstakt innflutningsgjald af benzíni
úr kr. 3.67 í kr. 4.67 af hverjum lítra frá og með
19. þ.m.
Hækkunina skal greiða af benzínbirgðum sem til
em í landinu nefndan dag. Þó skulu gjaldfrjálsir
300 lítrar hjá hverjum eiganda.
Allir, sem eiga benzínbirgðir 19. þ.m., skulu til-
kynna lögreglustjóra, í Reykjavík tollstjóra, um
birgðir sínar þennan dag, og skal tiikynningin hafa
borizt fyrir 28. þ.m.
2.
Samkvæmt lögum um breytingu á 86. gr. vega-
laga hækkar sérstakt innflutningsgjald af hjólbörð-
um, notuðum og nýjum, og af gúmmíslöngum á bif-
reiðar og bifhjól úr kr. 9.00 í kr. 36.00 af hverju kg.
Hækkunina skal greiða af birgðum, sem heild-
salar og aðrir innflytjendur eiga af hjóibörðum og
gúmmslöngum á bifreiðar og bifhjól nefndan dag.
Skal tilkynna lögreglustjóra, i Reykjavík tollstjóra,
um birgðir þessar innan 3 daga.
Fjármálaráðuneytið, 17. apríl 1968.