Morgunblaðið - 19.04.1968, Síða 32
KSKUR
Suðurlandsbraut 14 —- Sími 38550
tyjgwttMíaMt*
FÖSTUDAGUR 19. APRIL 1968.
PíirgwíiMaWSi
AUGIVSIHGAR
SÍMI SS*4*SQ
Unnið fyrir 940
li. kr. árið 1968
— við Búrfellsvirkjun
— Gufuaflstöð reist í Námaskarði
í SKÝRSLU fjármálaráðherra
um framkvæmda- og fjáröflun-
aráætlun ársins 1968 kemur
fram að framkvæmdaupphæð
við Búrfellsvirkjun nái 940 millj.
kr. á árinu 1968. Framkvæmda-
upphæð sl. árs nam 380 millj-
kr. á verðlagi þess árs.
Áætlað er að aðrar raforku-
framkvæmdir en Búrfellsvirkj-
un muni nema um 2C9 millj. kr.
á árinu 1968 og er það svipuð
upphæð og var sl. ár.
Þá kom fram í skýrslu ráð-
herra, að athugunum á væntan-
legri Laxárvirkjun og á hagkvæm
ustu leiðum til að sjá fyrir raf-
orkuþörf Austurlands og svæðis
Húna- og Skagafjarðarveitna
væri nú að mestu lokið, og
mundi verða unnt að taka ákvarð
anir á grundvelli þeirra athug-
ana innan skamms. f sambandi
við þessar athuganir væri í ráði
að reisa litla gufuaflstöð i Náma
skarði til reynslu. Jafnframt
mundi haldið áfram undirbún-
ingi að Laxárvirkjun. Þá hefðu
Rafmagnsveitur ríkisins hug á að
hrinda í framkvæmd virkjun
Smyrlabjargaár í A-Skaftafells
sýslu, en þeirri virkjun var frest
að á sínum tíma, eftir að vélar
og leiðslur höfðu verið keyptar,
vegna óvissu um, hvort nægilegt
vatnsmagn væri til staðar. Einn
ig hefðu Rafmagnsveitur ríkis-
ins áhuga á byggingu linu frá
Laxárvirkjun til Raufarhafnar
og frá Þverárvirkjun til Búðar-
dals.
Það er kyrrð yfir höfninni í
Þorlákshöfn, þegar bátarnir
hafa landað. Sjá grein frá Þor
lákshöfn á bls. 10.
(Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.)
Vorðarfundi
frestoð
FRESTA varð Varðarfundi, sem
halda átti í gærkveldi, vegna
þess að rafmagnslaust varð í
hluta borgarinnar á tímabili í
gærkveldi. Verður fundurinn
auglýstur síðar.
Sæsímostreng-
urinn í Ing í dog
SÆSÍMASTRENGURINN milli
íslands og Skotlands hefur ver-
ið slitinn síðustu daga, en við-
gerðarskip er nú komið á stað-
inn, þar sem strengurinn bilaði.
Samkvæmt upplýsingum frá
Færeyjum, er gert ráð fyrir, að
samband verði komið á í dag,
þar sem viðgerð miðaði vel
áfram í gærdag.
Þorskafli báta var um 25
Jbiis. tn. minni en í fyrra
Heildaraflinn er einnig minni
BRAÐABIRGÐATÖLUR liggja
nú fyrir um heildaraflann fyrstu
þrjá mánuði ársins, og er hann
talsvert minni en hann var á
sama tima í fyrra. Meðai annars
er þorskafli bátaflotans um 25
þúsund tonnum minni, en það
stafar þó að miklu leyti af verk-
fallinu í marz og verkbanninu í
janúar, en ekki af minni fisk-
gengd.
Heildaraflinn hjá bátunum var
orðinn 53.544 tonn um síðustu
mánaðamót, en var á sama tíma
í fyrra 79.311 tonn. Til verstöðv-
anna á Suður- og Vesturlandi,
sem takamarkast af Höfn í
Hornafirði að austanverðu og
ZKeykjaborgin fékk
30-40 tn. í einu kasti
BÁTAR voru allir á sjó í gær,
og var reytingsafli í öll veiðar-
færi. Þó er ekki unnt að segja
til um afla einstakra báta, þar
sem þeir komu ekki að fyrr en
seint í gærkvöldi.
í fyrrakvöld fengu ýmsir nóta-
bátar þokkalegan afla, og til-
kynntu eftirtaldir bátar um afla
um Grandaradíó: Þorsteinn 15
tonn, Vigri 15, Brettingur 10,
Ögri 25, Sigurvon 15, Jörundur
II. 20, Gisli Arni 50, Arnar 60,
Örn 46 og Viðey 25 tonn. Þá fór
einnig eitthvað af nótabátum inn
tii Vestmannaeyja og Keflavík-
ur.
í gær voru nótabátarnir að
kasta og útlitið gott, m.a. var
vitað að Reykjaborgin hafði
fengið 30—40 tonn í einu kasti.
Brúargólf steypf í hluta
bílabrúar í Reykjavík
Brúin, sem stendur v/ð höfnina mun
verða tæplega 600 metrar á lengd
BORGASTJÓRI, Geir Hallgríms
son, bvgginganefnd Tollstöðvar-
innar, lulitrúar verktaka og full
trúar borgarinnar hittust í gær
í nýju Tollstöðvarbyggingunni,
en þar hófst í fyrradag vinna
við að steypa gólf fyrsta áfanga
mikillar bílabrúar, sem verður
hluti af hraðbraut umhverfis
Reykjavík. Brúin mun ná full-
gerð frá Hamarshúsinu að Skúla
götu. Lengd hennar mun verða
um 500 til 600 metrar.
Hraðbraut þessi verður 4 ak-
reinar, tvær tál sitt hvorrar átt-
ar. Hún verður gerð fyrir 80
km. hámarkshraða, en sá hluti
brúarinnar, sem vinna er nú haf
:n við og liggui á þaki nyrztu
álmu Tollstöðvarinnar, verður
fyrir 60 km. hraða.
(
Á þaki Tollstöðvarinnar verð-
ur og bifreiðastæði fyrir 100 bif
reiðar og verður gerð sérstök ak
rein inn á þakið af brúnni. Þá
verður unnt að aka á bílabrúna
úr Suðurgötu, en samkvæmt að-
alskipulagi Reyk.iavíkur mun
Suðurgatan ná í gegnum Grjóta-
þorpið.
I Tollstöðvarnefnd eiga sæti
þessir menn: Torfi Hjartarson,
tollstjóri, sem er formaður nefnd
arinnar, Sigtryggur Klemens-
son, bankastjóri, Hörður Bjarna
son, húsame'stari ríkisins, Ragn
ar Jónsson, skrifstofustjóri og
Páll Sæmundrson, stórkaupmað-
ur. Teikningar að Tollstöðvar-
húsinu hefur teiknistofa undir
stjórn Gísla Halldórssonar Ár-
múla 6, gert, en verktaki er Al-
menna byggingafélagið.
Að sögn arkitektanna Gísla
Halldórssonar og Harðar Bjarna
sonar mun Tollstöðiin verða næst
stærsta einstaka húsið í höfuð-
borginni. Aðeins íþróttahöllin í
Laugardal er stærri.
Önundur Jónsson, forstjóri
Framhald á bls. 19
Stykkishólmi a'ð vestan verðu,
bárust alls 35.900 tonn, en 58.649
í fyrra. Tii Vestfjarða bárust
10.583 tonn en í fyrra 15.579
tonn. Til Norðurlands bárust
3.346 tonn en 3.544 í .fyrra og til
Austfjarða bárust 4.525 tonn en
1.539 í fyrra.
Heildarafli togaranna var orð-
inn 11.422 tonn um síðustu mán-
aðamót, en var 12.416 í fyrr*.
Heildarloðnuaflinn var 72.460
tonn en 94.850 í fyrra, og síldar-
aflinn var 4.306 tonn um síðustu
mánaðamót en 43.523 tonn eftir
fyrstu þrjá mánuði ársins í fyrra.
Nýstórieg inn
brotsaðferð
IALLNÝSTÁRLEG innbrosts- |
I aðferð var við höfð í Reykja-
I vík í fyrrinótt. Notaði þjófur-
inn jeppa til að brjóta rúðu í
‘ sýningarglugga viðtækjaverzl
I unar við Laugaveg og hafði ,
I hann á brott með sér ýmis '
l tæki fyrir 45.000 krónur. —
1 Sjónarvottar voru að innbrot-
I inu.
Að sögn sjónarvotta bakk- |
| aði þjófurinn tvisvar á rúð-
I una — hefur sjálfsagt ekki lit
ist vel á að brjóta hana með 1
' eigin afli. Snaraðist hann síð- i
)an út úr jeppanum og hlóð í i
| hann tækjum, sem í gluggan-
. um voru, en ók svo á brott i [
' skyndi.
Bátur strandar
við Garðskaga
— var brátt dreginn á flot aftur
VÉLBÁTURINN Erna KE-36
strandaði um kl. 9.30 í gærmorg-
un rétt innan við Garðskaga.
Veður var gott þegar þetta gerð-
ist, en svarta þoka, sem vafa-
laust hefur valdið þessu óhappi.
Skipverjar á Einu Köiluðu
upp hjáipairskipið Eldingu. sem
var þá statt þarna skammt frá,
og kom fljótt á strandstað.
Hafði hjálparskipinu tekizt að
ná vélbátnum út um 11-leytið,
en þá tiil'kynntu skipverjar á
Ernu, að mik:)J leki vaeri kom-
inn að skipinu. Froskmaður, sem
var um borð í Eldingu, kafaði
þá þegar undir vélbátinn og gat
stöðvað lekann. Að svo búnu
var lagzt upp að hiið varðskips,
sem þarna var komið, og bábur-
inn þéttur frukar og sjó dælt úr
hönum. Dró Eldingin síðan bát-
inn inn til Keflavikur.
Unnið við Hafnarfjarðar-
veg ■ Kópavogi í sumar
í SKÝRSLU um framkvæmda-
og fjáröflunaráætlun fyrir árið
1968, er fjármálaráðherra flutti
á Alþingi í gær, kom m. a. frain,
að á þessu ári munu hafnar fram
kvæmdir við Hafnarfjarðarveg í
Kópavogi, en til þess verks mun
aflað verulegs lánsfjár sam-
kvæmt sérstöku samkomulagi á
milli Kópavogskaupstaðar og
samgöngumálaráðuneytisins.
Á þessu og næsta ári er ætlun
in að ljúka áfanga norðanmegin
á Digraneshálsi á mótum Nýbýla
vegar, Kársnesbrautar og Hafn-
arfjarðarvegar. Að þessum
áfanga loknum mun umferðin
til og frá Kópavogi geta farið
fram um þessi vegamót, jafn-
fram því, sem mjög mun létta á
umferð um Digraneshálsinn
sjálfan.