Morgunblaðið - 21.05.1968, Síða 1
32 SIÐUR
103. tbl. 55. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Vandrœðaástand í Frakklandi:
Helmingur launþega landsins í verkfalli
Svoboda og Kosygin heilsast í Prag.
Pravda rœðst
gegn Tékkum
— en í Prag segja leiðtogar, að
Sovétmenn sýni fyllsta skilning
Prag, Moskvu, 20. maí. AP-NTB
MÁLGAGN sovézka kommún-
istaflokksins, Pravda, gagnrýndi
á sunnudag þær breytingar, sem
orðið hafa á stjórnarháttum í
Tékkóslóvakíu og segir, að kom-
ið sé til sögunnar vandamál, sem
hin alþjóðlega kommúnistahreyf-
ing verði að sinna.
Grein þessi birtist samtímis
þvi, að forsætisráðherra og
landvarnaráðherra Sovétríkj-
anna, þeir Alexei Kosygin og
Andrei Gretsjko dveljast í Prag
,,sér til heilsubótar“ að sagt er
opinberlega. Báðir virðast þó
hafa notað vel tímann til við-
ræðna við tékkneska ráðamenn,
m.a. þá Zvoboda forseta, Dub-
cek, aðalritari kommúnista-
flokksins og Cernik, forsætisráð-
herra.
Að loknum fundi sem Kosygin
átti með fyrrnefndum mönnum
og ýmsum öðrum háttsettum
embættismönnum, á laugardag,
var send út tilkynning, þar sem
segir að sovézkir leiðtogar sýni
fyllsta skilning á þróun mála í
Tékkóslóvakíu.
1 Pravda er farið hörðum orð-
um um breytingamar í Tékkó-
slóvakíu og þær sagðar and-
sósialiskar og bent á, að hið
sovézka sósialiska lýðræði sé það
eina rétta. Þurfi a'ð gera ein-
hverjar breytingar sé nauðsyn-
Framhald á bls. 21.
Starfsemi fjölda fyrirtækja lömuð — Samgöngur litlar
innanlands og til útlanda og takmarkað samband við
umheiminn — Hriktir nú i veldisstoðum stjórnar de Gaulles
París, 20. maí. NTB-AP
Verkföllin halda áfram
að breiðast út í Frakklandi
og valda sívaxandi erfiðleik-
um. í kvöld náðu þau til nær
sex milljóna manna eða um
helmings launþega í landinu,
og var fyrirsjáanlegt að allt
athafnalíf mundi að mestu
lamað á morgun, ef svo held-
ur áfram sem horfir. Landið
er næstum sambandslaust orð
ið við umheiminn, flugsam-
göngur engar, tal- og ritsíma
þjónusta takmörkuð og toll-
verðir hvarvetna á landamær
unum hafa hótað að leggja
niður vinnu.
ýtj- Hriktir nú mjög í stoð-
um tíu ára veldis de Gaulles,
forseta og á morgun hefjast
í franska þinginu umræður
um vantrauststillögu vinstri
flokkanna á stjórnina. Verð-
ur sú tillaga borin undir at-
kvæði á miðvikudagskvöld
og tvísýnt um úrslit, því að
ýmsir fyrrverandi fylgismenn
forsetans hafa sagzt mundu
greiða atkvæði gegn stjórn-
inni. Forsetinn hefur í dag
átt stöðugar viðræður við
ráðherra sína og helztu ráð-
de Gaulle
gjafa.
-^- Forsætisráðherrann, Ge-
orges Pompidou, hefir verið
í sambandi við lögregluyfir-
völd, bæði í París og öðrum
borgum landsins. Varalið frá
hernum er reiðubúið til starfa
með lögreglunni ef til átaka
kemur, en í dag var fáa ein-
kennisklædda lögreglumenn
að sjá á götum Parísarborg-
ar.
-jlr Stjórnmálasérfræðingar
eru á einu máli um, að reyni
Port Harcourt fallin
Biafraher sambandslaus
við umheiminn
Lagos og Lusaka, 20. maí (AP-
NTB)
Stjórnarher Nígeríu hefur
hertekið Port Harcourt, einu
hafnarborg Biafra. Einnig hefur
stjórnarherinn náð flugvelli borg
arinnar, en um hann hafa farið
allir vopna- og vistaflutningar
til Biafrahers. Er þetta mikið á-
Ótti við eftirgjöf
— veldur deilum í Israel
Jerúsalem og New York, 20. maí
— (AP-NTB) —
ÍSRAELSSTJÓRN kom saman
til fundar í dag til að ræða ut-
anríkismál og deilur Araba og
Gyðinga, en um mál þessi ríkti
mikill ágreiningur innan stjórn-
arinnar, og var jafnvel óttazt að
stjórnarkreppa væri yfirvofandi.
Fundi stjórnarinnar í dag lauk
með þvl, að ráðherrarnir gáfu
út sameiginlega yfirlýsingu um
„stuðning í grunvallaratriðum“
við stefnu Abba Ebans, utanrík-
isráðherra.
Eban, utanríkisráðherra, kom
heim til ísraels á laugardag úr
ferð um Bretland og þrjú Norð-
urlandanna. Var ætlunin að
halda ráðuneytisfund strax við
heimkomu ráðherrans, en þeim
fundi var frestað þar til í dag
til að gefa Eban tækifæri til að
Framhald á bls. 21.
fall fyrir Biarfamenn, en leið-
togi þeirra, Ojukwu ofursti, lýsti
því yfir í dag að haldið yrði
áfram að verjast innrás Nigeríu
hers, og hvatti hann menn sína
til að hefja skæruliðahernað að
baki víglínanna.
• Fjórða Afríkuríkið bættist í
dag í hóp þeirra, sem viður-
kennt hafa Biafrastjórnina, og
lýsti Reuben Kamanga utan-
ríkisráðherra því yfir í því til-
efni að stjórn Zambíu væri sann
færð um að ekki væri nokkur
leið til að finna grundvöll fyrir
endursameiningu Biafra og Níg-
eríu.
• Fulltrúar Nígeríu og Biafra
koma saman til friðarviðræðna í
Kampala, höfðborg Uganda, eft
ir þrjá daga. Fundarstjóri verð-
ur Arnold Smith frá Kandana,
en hann er framkvæmdastjóri
brezka Samveldisráðsins, og hef
ur staðið fyrir undirbúningsvið-
ræðum í London að undanförnu.
Áður en Nígeríuher tókst að
ná Port Harcourt á sitt vald,
hafði um fjórðungur borgarbúa
verið fluttur á brott þaðam. Að-
allega vom það konur og böm.
AMs bjuggu um 100 þúsund
manns í borginni, og hófust brott
flutningar á laugardag. Hersveit
ir Nígeríu undir stjórn Benja-
míns Adekunle ofursta, semhlot
ið hefur viðurnefnið „sporðdrek
inn“, náðu flugvelli Port Har-
count fyrir helgi, en hann er
átrta kílómetmm fyrir utan borg
ina. Þaðan sóttu svo gveitirmar
Framhald á bls. 21.
de Gaulle að leysa vandann
með valdi, muni einungis
leiða af því blóðbað, sem
lyktað gæti með þrennu móti,
valdatöku hersins eða komm-
únista, eða algeru stjórn-
leysi.
í París og víðar hefur
fólk safnazt saman í dag og
hamstrað í stórum stíl. Öng-
þveiti var og í bönkum lands
ins í dag, þar sem menn
reyndu, hver um annan þver-
an, að ná sparifé sínu út og
festa það í gulli. Hækkaði
verð á gulli mjög verulega,
eða allt upp í $42.17 unzan og
ástandið var orðið svo alvar-
legt síðari hluta dagsins, að
bankarnir tóku að takmarka
þær upphæðir, er leyft var
að taka út. Gengi frankans
var ekki skráð í dag og eng-
inn gjaldeyrir seldur.
í morgun höfðu verkamenn tek «
Framhald á bls. 21.
1000
fórust
Rangoon, Burma, 20. maí. — AP
Opinberlega er skýrt frá
því í Rangoon, höfuðborg
Burma, að um eitt þúsund
manns muni hafa beðið bana
af völdum fellibyls, sem
gekk yfir Akyab héraðið þar
í landi 10. maí sl. Um 10.000
manns misstu heimili sín.
U Thant, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sem er
ættaður frá Burma, hefur boðað
aðstoð samtakanna og ýmissa
aðildarþjóða og á sunnudag kom
til Rangoon teppasending frá
Bandaríkjunum, fyrir 45.000
dollara.
15 tróðust undir
er mannfjöldi reyndi að sjá Maríu mey
Kairo^ 20. maí — NTB-AP
FIMMTÁN manns, þar af sex
börn, biðu bana er æstur
manngrúi ruðdist inn í St.
Michels kirkjuna í Kairo í
von um að sjá Maríu mey.
Hafði sú fregn borizt milli
manna, að hún hefði birzt í
einum kirkjugluganna.
Það var fyrst um 2. apríl
sl. að sá orðrómur komst á
kreik, að María guðsmóðir
hefði sést hjá kirkjunni, sem
er í útborg Kairo. Hefur síð-
an verið viðstöðulaus straum
ur fólks þangað og greip um
sig alger múgæsing 1 gær, er
sú sögn spurðist að María
hefði sést í einum kirkju-
glugganna. Fólkið ruddist inn
í kirkjuna og tróðust þeir
sem lífið létu undir fótum
meðbræðra sinna.