Morgunblaðið - 21.05.1968, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1968.
5
Stúdentaráð mun auka
afskipti af menntamálum
— segir nýkjörinn fnrmaður ráðsins
NÝLEGA urðu stjórnarskipti
í Stúdentaráði Háskóla ís-
lands. Formaður ráðsins var
kjörinn Höskuldur Þráinsson,
stud. philol, og fer hér á eftir
viðtal við hann.
Kösninigar til Stúdentaráðs
Háskóla íslands fóru fram 30.
marz sl., og var sjálfkjörið til
ráðsins í þriðja skiptið í röð,
en eins og kunnugt er var
skipulagi ráðsins gjörbreytt
árið 1066 og fulltrúum í því
fjölgað. Að þessu sinni voru
kjörnir 11 fulltrúar til setu í
ráðinu til tveggja ára, en 11
sátu í því fyrir, sem kjörnir
voru sl. vor.
Nýkjörið stúdentaráð hélt
fyrsta fund sinn 25. apríl og
var kosinn formaður þess og
stjórn og sikipað í fastanefnd-
ir. Morgunblaðið hefur af
þessu tilefni snúið sér til ný-
kjörins formanns stúdenta-
ráðs, Höskuldar Þráinssonax,
stud. philol., og spurzt frétta
um málefni ráðsins.
— Miikilvætgur áfangi náðist
á síðasta vetri, þegar sam-
þykkt voru á alþingi lög um
Félagsstofnun stúdenta við
Háskóla íslands, en við af-
greiðsl-u þess máls kom í Ijós
rí'kur skilningur á hags-
munabaráttu stúdenta hjá
stjórnvöldum. Félagsstofnun-
in breytir starfsemi stúdenta-
ráðs að nofckru leyti og tekur
við rekstri og uppbyggingu
fyrirtækja, sem rekin eru í
þágu stúdenta s. s. stúdenta-
görðunum.
— Unnið hefur verið skipu-
lega að framgangi félagsheim-
ilismálsins, en það hefur ver-
ið áratugi til umræðu meðal
stúdenta og fremur lítið mið-
að. Á liðnum vetri var hafið
nýtt átak til framkvæmda í
málinu. Teikningar félags-
heimilisins, sem Jón Haralds-
son, arkitekt, hefur gert, voru
endurskoðaðar og tillögur til
breytinga gerðar, sem eru í
athugun. Rannsókn hefur far-
ið fram á fyrirhugaðri lóð
hússins við vesturenda Gamla
Garðs og verkfræðilegar at-
buganir gerðar. Mun þessu
verða haldið áfram, þannig
að málið verði á ákveðnu
stigi, þegar félagsstofnunin
tekur við þvi. Enn hefur ekki
verið tryggt nægilegt fjár-
magn til byggingarinnar, en
ríkissjóður hefur undanfarin
ár lagt fram fé til hennar, en
betur má ef duga skal. Munu
fjáröflunarleiðir rækilega
kannaðar á næstunni.
— Eitt er það mál, sem við
höfum rætt ítarlega síðustu
vikur, en það er skorbur á
barnaiheimilisrými fyrir börn
stúdenta. Afstaða Sumargjaf-
ar til stúdenta hefur breytzt
að nokkru og eiga þeir ekki
jafn auðvelt með að fá inni á
barnaheimi'lum hennar og áð-
Höskuldur Þráinsson
ur, en þess má geta, að um
220 börn voru á framfæri 600
stúdenta við Háskóla íslands,
er sóttu um lán úr lánasjóði
íslenzkra námsmanna um ára
mótin. Hefur stúdentaráð und
anfarið gengizt fyrir athugun
á möguleikum fyrir stúdenta
til þess að fá húsnæði fyrir
eigið barnaheimili, en mjög
brýnt er að leysa þetta mál
hið allra fyrsta.
— Vegna þeirra breytinga,
sem verða á starfsemi stúd-
entaráðs við til'komu félags-
stofnunarinnar. er ekki ólík-
legt að ráðið leggi á næst-
unni aukna áherzlu á afskipti
af menntaimálum, en skammt
er síðan slík starfsemi hófst
að eintoverju marki á vegum
þess. Höfum við í hyggju að
efna til skoðanaikönnunar með
al stúdenta á áliti þeirra á
prófessorum og kennslutoátt-
um almennt í skólanum, en
um. leið verður könnuð fé-
laigsleg aðstaða stúdenta. Mun
verða höfð samvinna við há-
skólaráð vegna þessarar könn
unar og verður henni vænt-
anlega hleypt af stokkunum
næsta toaust.
— Stúdentaráð hefur efnt til
könnunar meðal stúdenta á
atvinnuhorfum þeirra í sum-
ar. Var h -gd upp auglýsing
í anddyri skólans og atvinnu-
lausir stúdentar beðnir að
gefa sig fram við skrifstofu
stúdentaráðs, en enginn hefur
gefið sig fram enn sem komið
er. Ætlun stúdentaráðs er að
aðstoða stúdenta við útvegun
sumarvinnu sé þess óskað.
— Að lokum vil ég geta
þess, að samstarf stúdenta-
ráðs og Sambands íslenzkra
stúdenta erlendis hefur auk-
izt mjög undanfarið og unnið
er að því, að samvinnan verði
enn nánari og hefur stúdenta-
ráð lagt fram ákveðnar til-
lögur, sem stefna í þá átt.
Einbýlishús til sölu
við Lágafell. Fullgert og laust til íbúðar nú þegar.
Nánari upplýsingar gefur:
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar,
Guðmundar Péturssonar,
Aðalstræti 6, símar 1-2002, 1-3202 og 1-3602.
2),
'omur a
tLucjici
Höfum ákveðið að loka stofunni júlímánuð vegna
sumarleyfa. Viljum þess vegna benda viðskiptavin-
um vorum, sem hafa hugsað sér að taka nuddkúr
(megrunar- og afslöppunarnudd) fyrir frí, að panta
nú þegar.
NUDD og SNYRTISTOFAN
Laugavegi 13. — Sími 14656.
(Hárgreiðslustofa Austurbæjar).
Hiíseigendafélag Reykjavíknr
Skrifstofa á Bergstaðastr lla.
Sími 15659 Opið kl. 5—7 alla
virka daga nema laugardaga
Byggingakrani
KROLL — K - 3 0 .
Æ\
til sölu eða leigu.
= HÉÐINN =
iBÚÐA
BYGGJENDUR
Smíði á
INNIHURÐUM
hefur verið
sérgrein okkar
um árabil
Kynnið yður
"VERÐ
GÆÐI
AFGREIÐSLU
FREST
tU
SIGURÐUR
ELÍASSONh/f
Auðbrekku 52 - 54,
Kópavogi,
sími 41380 og 41381
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í standsetningu lóðarinnar að Lauga-
veg 176, Rvk. útboðsgögn verða afhent frá og með
miðvikudeginum 22. maí, á annarri hæð hússins
Laugavegur 176, gegn 1000.00 kr. skilatryggingu.
Fótaaðgerða- og sirvrtistofa
í fullum og öruggum rekstri er til sölu eða leigu,
nú þegar af sérstökum ástæðum. Stofan er í stein-
húsi við Miðborgina, og búin fullkomnustu nýtízku
tækjum. Lysthafendur leggi nöfn inn á afgr. Mbl.
merkt: „Öruggur rekstur 8654“.
Til sölu
er falleg 4ra herb. 107 ferm. íbúð á 2. hæð við
Safaniýri. Allar innréttingar úr harðvið og plasti.
Sérhiti, ný teppi. Uppsteypt bílskúrsplata, bíla-
plan nialbikað og steypt gagnstétt meðfram húsinu.
Lóð að mestu frágengin. Vélar í þvottahúsi og teppi
á stigum.
Upplýsingar í símum 35392 og 38414.
EINANGRLNARGLER
BOUSSOIS
INSULATING GLASS
Mikil verðlœkkun
ef samið er strax
Stuttur afgreiðslutími.
10 ÁRA ÁBYRGÐ.
Leitið tilboða.
Fyrirliggjandi
RÚÐUGLER
4-5-6 mm.
Einkaumboð:
HANNES
ÞORSTEINSSON,
heildverzlun,
Sími 2-44-55.