Morgunblaðið - 27.05.1968, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MÁNUDAGUR 27. MAÍ 19«8
t
- ALLIR LÖGÐUST
Framhald af bls. 28
nafni. Kvað hann engan vafa á
því, að nýja ljóskerffð mundi
reynast vel. Ward sagði aðspurð-
ur, að hann gerði ekki ráð fyrir
því, að hægri umferð yrði tekin
upp í Bretlandi á næstunni, enda
yrði sú framkvæmd mjög dýr.
>ó kvað hann það ekki útilokað
í framtíðinni, enda væru Bretar
í umbreytingarhug, hefðu m.a.
ákve'ðið að taka upp nýtt mynt-
kerfi og metrakerfi.
Ásgeir Þór Ásgeírsson, verk-
fræðingur hjá gatnamálastjóra,
sagði að nú væru umferðarljós á
16 gatnamótum í Reykjavík. Þar
af séu nú ljós á 6 gatnamótum og
séu þau samstillt þannig, að unnt
sé að aka á grænu ljósi um gatna
mótin, ef réttum hraða sé fylgt.
Á Miklubrautinni t.d. þarf að aka
á 35 km hraða frá Lönguhlíð að
ljósunum við Kringlumýrarbraut
og þaðan á 50 km hraða að gatna
mótunum við Grensásveg Þá var
tækifærfð notað og gömlu um-
ferðarljósin endurnýjuð, en þau
elztu eru 20 ára gömul.
Skoðunarferð í þyrlu.
Um kl. 5.30 gekk Jóhann Haf-
stein, dómsmálaráðherra, inn í
Snorrabrautarstöðina og tóku á
móti honum Sigurjón Sigurðsson,
lögreglustjóri, og Óskar Ólason,
yfirlögregluþjónn umferðarmála.
Lögreglustjóri sýndi ráðherran-
um stöðina og fyrirkomulag
hennar.
Skömmu síðar lenti þyrla Land
helgisgæzlunnar, TF-Eir, á þaki
nýju lögreglustöðvarinnar. Dóms
málaráðherra og lögreglustjóri
stigu þar irm í þyrluna um kl.
5.45 og flugu í skoðunarferð um
Reykjavík. Flugstjóri var Björn
Jónsson. Kl. 5.50 var öll umferð
stöðvuð.
Hægri umferð tekur gildi.
Af þaki lögreglustöðvarinnar
var prýðilegt útsýni yfir Skúla-
götu og Hverfisgötu. Höfðu fjöl-
margir bílar stanzað þar á vinstri
kanti kl. 5.50 og margt fólk stóð
Þyrian hefur sig til flugs af þaki nýju lögreglustöðvarinnar með dómsmálaráðherra og lög-
reglustjóra. — Ljósm.: Ól. K. M.
á gangstéttum til að fylgjast með
breytingunni og taldi ekki eftir
sér að missa morgunblundinn.
N.ú var hin stóra stund að renna
upp.
Bílarnir færðu sig hægt yfir á
hægri kantinn, mjög gætilega, og
gengu skiptin snurðulaust fyrir
sig.
Klukkan 6 blésu lögreglumenn
í flautur sínar og óku bílamir
af stað í fyrsta skipti í hægri um-
ferð. Vinstri umferð var lokið á
íslandi.
Þyrlan flaug yfir Skúlagötuna
um lefð og hægri umferðin hófst.
Áhorfendurnir fylgdust með um-
ferðinni af athygli og spennan
minnkaði, þegar í ljós kom, að
hægri umferðin gekk ósköp eðli-
lega fyrir sig. Nýstárleg að vísu,
en eðlileg. Eftir að umferðar-
bannið féll úr gildi kl. 7 kom
þetta enn betur í ljós, þegar
Reykvíkingar héldu út í umferð-
ina hundruðum saman.
Valgarð Briem, formaður Fram
kvæmdanefndar hægri nefndar,
flutti útvarpsávarp kl. 6 og til-
kynnti, að hægri umferð hefði
tekið gildi.
Á sjöunda tímanum komu
dómsmálaráðherra og lögreglu-
stjóri úr flugferðinni, en þeir
m
Bifreiðaeigendur
Neðangreind tryggingafélög vilja vekja athygli viðskiptavina
sinna, sem bifreiðar eiga á að gjalddagi iðgjalds hinna lögboðnu
ábyrgðartrygginga bifreiða var hinn
1. IWAÍ
en greiðslufrestur rann út þann
15. MAÍ
Vilja því félögin beina þeim eindregnu tilmselum til þeirra
bifreiðaeigenda, sem ekki hafa greitt iðgjöld þessi, að gera það
nú þegar.
26. MAÍ
var H-dagur og er því sérstök ástæða til að hafa ábyrgðar-
trygginguna í lagi.
Sérstök athygli skal vakin á því. að gjalddagi iðgjalda er með
öllu óháður skoðunardegi bifreiða.
ALMENNAR TRYGGINGAR HF. ÁBYRGÐ HF.
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS TRYGGING HF.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF.
SAMVINNUTRYGGINGAR
SJÓVÁTRYGGINGAFÉLAG ÍSLANDS HF.
VÁTRYGGINGAFÉLAGIÐ HF.
höfðu m.a. flogið yfir úthverfi
Reykjavíkur, Kópavog og Hafn-
arfjörð.
Rétt fyrir klukkan 7 fór Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri, í öku
ferð með ráðherra og lögreglu-
stjóra. Um það leyti var umferð-
arbanninu aflétt og hópuðust
Reykvíkingar gangandi og ak-
andi út á göturnar. Umferðin
gekk fremur hægt, enda er hraða
takmörkun 35 km á klst. í þétt-
býli.
Öllum undirbúningi borgarinn
ar, Vegagerðar ríkisins og bæja
úti á landi var lokfð á réttum
tíma, en götumerkingar töfðust
lítillega á Akranesi. Umferðar-
ljósin ollu sums staðar erfiðleik-
um í Reykjavík, þar sem stilling
ar þeirra voru ekki eins og til
var ætlazt.
Samt sem áður má segja, að
allt hafi verið tilbúið til að taka
á móti bílunum, sem héldu út í
hægri umferðina kl. 7 árdegis.
Hugarfarið réð miklu um.
Óskar Ólason, yfirlögreglu,
þjónn, sagði við Morgunblaðið
nokkru eftir breytinguna, a'ð hún
hefði tekizt með ágætum og
kvaðst hann bjartsýnn á áfram-
haldið. Óskar sagði, að jákvætt
hugarfar borgaranna hefði ráðið
miklu um, hversu vel tókst í
byrjuninni. Þetta mætti m.a. sjá
af því, að aðeins 5 bílar sem
ekki hefðu haft undanþágu hefðu
verið stöðvaðir í Reykjavík á um
ferðabannstímanum. I einu tilfell
inu hefði ástæðan verið sú, að
bíll frúar nokkurrar hefði verið
benzínlaus.
Hæg, tíðindalítil umferð.
Um hádegið var allt rólegt,
stórlega dró úr umferðinni, allir
farnir heim í sunnudagsmatinn,
ánægðir með afrek morgunsins.
Allt hafði gengið vel, þrátt fyrir
hina gífurlegu umferð. Lögreglu
stjóri kvaðst mjög ánæg'ður. Að-
eins nýju götuvitarnir höfðu ekki
verið í nógu góðu lagi. Þeir
slepptu of fáum bílum í gegn á
aðalumferðaræðunum, og reynd-
ust þannig ekki vel stilltir um
nóttina áður. En um hádegi var
verið að gera verkfræðingunum
aðvart um að þessu þyrfti að
kippa í lag svo greiðari umferð
fengist þarna.
Slys höfðu engin orðið, aðeins
tveir smávægilegir árekstrar.
Aftanáakstur á homi Háaleitis-
brautar og Hvassaleitis og sá ekki
á bílunum. Og innkeyrsla á braut
með biðskyldu olli nokkrum
skemmdum á bíl á gatnamótum
Miklubrautar og Flókagötu.
Seinna um daginn urðu nokkrir
smávægilegir árekstrar, mest
aftanákeyrsla, og litlar skemmd-
Of hraður akstur í Suðursveit.
Upplýsinga- og fjarskiptamið-
stöðin hafði fylgst vel með öllu.
Samkvæmt uplýsingum hennar
höfðu ökumenn yfirleitt virt
hraðatakmarkanir. Aðeins einn
var tekinn fyrir of hraðan akstur
á landinu. í Suðursveit ók ung-
lingspiltur á bifhjóli á 70 km
hraða. Hafði mfðstöðin þá haft
samband við eftirlitsbifreiðir
lögreglunnar um allt land.
I Reykjavík voru umferðar-
verðir komnir á sinn stað. 120
þeirra byrjuðu störf þegar kl.
8.30. En alls unnu 1200—1300
víða um land. Nokkrir voru að
gefa sig fram á lögreglustöðinni,
en óljóst var hvar þeim væri
ætlaður staður. Sigurður Þor-
steinsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn, tók þá a'ð sér og sendi
með þá út í bæ til að velja þeim
stað. Gekk starf umferðarvarða
í Reykjavík mjög vel, og öku-
menn og gangandi tóku tillit til
ábendihga þeirra.
Óskar Ólason, yfirlögreglu-
þjónn, sagði fréttamanni Mbl. að
gegnum H-umferð hefði lögregl-
an undanfama daga komizt í
snertingu við miklu stærri hóp
manna en nokkru sinni áður.
Væri það allt velviljað fólk og
fúst til samstarfs við lögreglu.
Upp úr klukkan níu um morg-
uninn tók nokkuð a'ð bera á um
ferð til borgarinnar og fyrir há-
degi var nokkur umferð á Hellis-
heiði á leið til Reykjavíkur, en
aftur á móti umferð á austurleið
um Mosfellsheiði. Þó var umferð
á vegum sáralítil. Arnþór Ingólfs
son hafði haft samband víða út
á land. Sagði hann lítil umferð
hefði verið vfðast nema á Akur-
eyri, Akureyringar hefðu eins og
Reykvíkingar farið að æfa sig í
umferðinni strax kl. 7. Á Þing-
völlum voru þó örfáir litlix bílar,
aðeins skemmtiferðafólk í áætlun
arbíl. Astæðan fyrir lítilli umferð
út úr Reykjavík, væri e.t.v. sú
að aurbleytu væri farin að gæta,
einkum á Borgarfjarðarleiðinni
Um eittleytið fór Pétur Svein-
bjarnarson í sko-'ðunarferð með
þyrlunni. Sagði hann, að útlend-
ingur er sæi umferðina úr lofti,
gæti ekki vitað að nokkuð óvenju
legt væri á seiði. Hvergi sæjust
ankannalegir bílar í umferðinnL
Og búið væri að leggja nær öll-
um bílum rétt. Sýndi það vel hve
margir bílar hefðu verið hreyfðir
um morguninn.
Æfing á Keflavíkurvegi síðdegis.
Umfer'ð í Reykjavík var lítil
fyrst eftir hádegið, jókst síðan
verulega og var mjög mikil síð-
degis. Þ. mynduðust engir telj-
andi umferðahnútar umfram það
sem búizt hafði verið við.
Síðdegis jókst umferðin mjög á
Reykjanesbraut, er fólk hélt út
á bezta veginn utan Reykjavík-
ur til æfinga. Virtu ökumenn að
langmestu leyti settar hraðatak-
markanir, þó þurfti að áminna 3
ökumenn. Einn þeirra ók yfir 100
km hra'ða. Var bifreiðin tekin af
honum og hann færður til yfir-
heyrslu á lögreglustöðina í
Reykjavík.
Allnokkur umferð var á leið-
inni austur um Hellisihefði og
jókst hún enn er leið á daginn og
einnig um Þrengslaveg. Þurfti að
hafa afskipti af nokkrum öku-
mönnum vegna ógætilegs fram-
úraksturs. Umferð um Vestur-
landsveg og Þingvallaveg var
lítil.
Og nú hefur allt gengið vel
fyrsta dag H-umferðar. Og í
lokin á frásögninni viljum við
endurtaka orð Valgarðs Briem,
formanns H-nefndar, er hann
hafði vfð okkur að skilnaði í gær
kvöldi. Hann sagðist nú hræddur
um að úr því svo vel gekk í dag,
vari fólk sig ekki nægilega vel
á morgun, þegar allir eru í önn-
um.