Morgunblaðið - 16.06.1968, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÖAGUR 16. JÚNÍ Í968
Þjóðhátíðin í Reykjavík 1968
I. Dagskráin hefst:
V. Við Laugardalslaugina:
KL 10.00 Samhljómur kirkjuklukkna í Reykjavík.
KJ. 10.15 Frú Auður Auðuns, forseti borgarstjórnar, leggur blóm-
sveig frá Reykvikingum á leiði Jóns Sigurðssonar. Karla
kórinn Fóstbræður syngur „Sjá roðann á hnjúkunum
háu“ undir stjóm Ragnars Bjömssonar.
Kl. 10.45 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Séra Eiríkur J. Eiríksson
predikar og Ólafur Jónsson syngur einsöng. Organleikarl
Ragnar Björnsson. Þessir sálmar verða sungnir: Nr. 664
„Upp þúsund ára þjóð“. Nr. 671 „Beyg kné þín, fólks
vors föðurlands". Nr. 678 „Himneski faðir“. Nr. 29
„Mikli drottinn, dýrð sé þér“.
Kl. 11.25 Forseti Islands, herra Ásgeir Ásgeirsson, leggur blóm-
sveig frá íslenzku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðs
sonar. Fóstbræður syngja þjóðsönginn undir stjóm
Ragnars Björnssonar.
II. Skrúðgöngur:
Kl. 13.15 Safnast saman við Sunnutorg, Álftamýrarskóla, Hlemm-
torg og Hrafnistu. Frá Sunnutorgi verður gengið um
Langholtsveg, Holtaveg og Engjaveg. Lúðrasveit Reykja
víkur leikur undir stjórn Páls P. Pálssonar. Frá Álfta-
mýrarskóla verður gengið um Álftamýri, Hallarmúla,
Suðurlandsbraut og Reykjaveg. Lúðrasveitin Svanux
leikur undir stjóm Jóns Sigurðssonar. Frá Hrafnistu
verður gengið um Brúnaveg, Sundlaugaveg og Reykja-
veg. Lúðrasveit barna og unglinga leikur undir stjórn
Karls O. Runólfssonar. Frá Hlemmtorgi verður gengið
um Rauðarárstíg, Skúlagötu, Hátún, Laugamesveg og
Sigtún. Lúðrasveit verðalýðsins leikur undir stjóm
Ólafs L. Kristjánssonar. Skátar ganga undir fánum fyrir
skrúðgöngunum.
III. Á Laugardalsvelli:
Kynnir Ami Gunnarsson, fréttamaður.
Kl. 13.50 Skátar undir fánum og lúðrasveitir ganga inn á Laugar
dalsvöll.
Kl. 14.00 Avarp formanns þjóðhátíðarnefndar, Ellerts B. Schram
hdl.
Kl. 14.05 Fánamyndun. Börn úr Melaskóla undir stjóm Hannesar
Ingibergssonar. Fóstbræður syngja „Rís þú unga íslands
merki" og Lúðrasveit Reykjavíkur leikur undir. Stjórn-
andi Páll P. Pálsson.
Kl. 14.11 Forsætisráðherra, dr. Bjami Benediktsson, flytur ræ'ðu
og síðan leika lúðrasveitirnar „Island ögrum skorið“
undir stjórn Jóns Sigurðssonar.
Kl. 14.26 Ávarp fjallkonu. í fylgd með henni verða fjórar ungar
stúlkur í íslenzkum búningum.. Lúðrasveitirnar leika
„Yfir vom ættarlandi" undir stjórn Olafs L. Kristjáns-
sonar.
Kl. 14.36 Leikfimisýning 100 drengja úr Melaskóla undir stjóm
Hannesar Ingibergssonar.
KL 14.45 Samsöngur stúdenta.
Kl. 14.50 Skátar ganga af leikvelli að íþróttahöllinni við undix-
leik Lúðrasveitar verkalýðsins, sem Ólafur L. Kristjáns-
son stjórnar. Skrúðgangan fer einn hring á vellinum.
gengur út um norðurhlið hans og heldur að íþróttahöll-
inni.
IV. Barnaskemmtun við
Iþróftta- og Sýningarhöllina:
Kl. 16.00 Lúðrasveitin Svanur leikur undir stjóm Jóns Sigurðs-
sonar. „Vonarstund“. Þáttur úr sögu Fjölnismanna eftir
Gunnar M. Magnúss. Kynnir og leikstjóri Klemenz
Jónsson. Persónur og leikendur:
Tómas Sæmundsson: Gunnar Eyjólfsson.
Brynjólfur Pétursson: Rúrik Haraldsson.
Jónas Hallgrímsson: Róbert Arnfinnsson.
Konráð Gíslason: Gísli Alfreðsson.
Sýningartími er ca. 30 mínútur. Að sýningunni lokinni
syngur Ólafur Jónsson við undirleik Ólafs Vignis
Albertssonar.
Kl. 16.35 Sundkeppni hefst: Keppt verður í 200 metra bringu-
sundi karla. 100 metra skriðsundi karla. 100 metra
bringusundi kvenna. 100 metra skriðsundi kvenna. 50
metra skriðsundi sveina. 50 metra bringusundi telpna
og sundknattleik, þar sem hvor hálfleikur verður sjö
minútur. Ármann og K.R. eigast við.
Eftir að sundkeppni lýkur og áður en sundknattleikur
hefst, fer fram sýning á klæðnaði frá nokkrum tímabil-
um 20. aldar. Allir búningar eru fengnir að láni hjá
Þjóðleikhúsinu. Mótsstjóri á sundmóti er Ehoar Hjartar-
son.
VI. íþróftftaháftið:
KL 16.30 Lúðrasveit verkalýðsins leikur á Laugardalsvelli undir
stjóm Ólafs L. Kristjánssonar.
íþróttakeppni hefst. Glímusýning undir stjórn Kjartans
Bergmanns. Fimleikasýning flokks úr Ármanni,
LyftingaT: Flokkur úr Ármanni og K.R.
Frjálsar íþróttir: Kúluvarp, hástökk, stangarstökk, lang-
stökk, 100 metra hlaup, 400 metra hlaup, 110 metra
grindahlaup, 100 metra hlaup sveina, 100 metra hlaup
drengja, 100 metra hlaup kvenna. Mótsstjóri er Sveinn
Björnsson og þulur Þórður B. Sigurðsson.
VII. Fallhlífasftökk:
Kl. 17.30 Félagar úr Flugbjörgunarsveitinni sýna fallhlífastökk.
Fyrst flýgur flugvél lágt yfir Laugardal, og síðan upp í
2500 feta hæð. Þaðan stekkur einn maður og sfðan tveir
saman. Þá hækkar vélin flugið upp í 10 til 12 þúsund
feta hæð og þaðan stökkva einn eða tveir menn með
reykblys. Sýningunni verður lýst og koma fallhlífa-
stökksmennirnir niður á íþróttaleikvanginn.
VIII. Dans barna og unglinga
við Laugardalshöllina:
Kl. 16.15 Stjórnandi er Ólafur Gaukur og leikur hljómsveit hans
fyrir dansinum.
IX. Sýningar:
Kl. 16—17 Hópreið hestamanna á svæði austan iþróttavallarins.
Húsdýrasýning á svæði vestan við Iþrótta- og sýn-
ingarhölL
X. Leikur lúðrasveifta:
Kynnir og stjórnandi Klemenz Jónsson.
KL 14.55 Lú'ðrasveit Reykjavíkur leikur undir stjórn Páls P. Páls-
sonar.
KL 15.05 „Mikki refur og Lilli klifurmús". Leikendur: Bessi
Bjamason og Árni Tryggvason. „Takið nú lagið" Sigríð-
ur Þorvaldsdóttir og böm syngja. „Snjókarlinn kemur í
heimsókn“. Leikþáttur eftir Odd Björnsson og Leif
Þórarinsson. Leikendur: Guðjón Ingi Sigurðsson, Kjart-
an Ragnarsson, Daníel Williamsson og fleiri. „Mömmu-
leikur“: Flosi Ólafsson og Sigríður Þorvaldsdóttir.
Bamagaman": Ómar Ragnarsson skemmtir. Sextett
Ólafs Gauks og Svanhildur skemmta. Undirleikarar eru
Carl Billich og Haukur Heiðar Ingólfsson.
Kl. 16.00 Lúðrasveit barna og unglinga leikur við Hrafnistu undir
stjórn Karls Ó. Runólfssonar.
Kl. 16.00 Lú'ðrasveit barna og unglinga leikur við Elliheimilið
Grund undir stjórn Páls P. Pálssonar.
XI. Dans:
KQ. 22.00 Dansað verður á þremur stöðum í gamla miðbænum:
við Vesturver, á Lækjartorgi og í Lækjargötu. Hljómar,
hljómsveit Ólafs Gauks og Ásgeirs Sverrissonar leika.
KL 01.00 Hátíðinni slitið.