Morgunblaðið - 07.07.1968, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1968
5
100ARAN0RRÆN
POSTSAMVINHA
Ákveðið hefur verið að útg'áfu
dagur frímerkis þess, sem Norð-
urlöndin fimm gefa út með sam-
eiginlegri mynd, m.a. í tilefni
100 ára afmælis norrænnar sam-
vinnu í póstmálum, skuli vera
28. febrúar 1969.
Þetta er ein ákvörðunin, sem
tekin var á ársfundi Norræna
póstsambandsins í Reykjavík 3-
5. júlí 1968. Voru mættir þar
fulltrúar frá hinum fimm nor-
rænu póststjórnum.
Fundurinn ákvað ennfremur
að lagfæra burðargjöld fyrir
fylgiblöð blaða og tímarita milli
Norðurlandanna, á þann hátt að
framvegis skuli innanlands burð
argjald gilda gyrir slíkt.
Einnig var ákveðið að gsra til
raunir með notkun innanlands-
eyðublaða með öðrum póstsend-
ingum til þess að gera almenn-
ingi auðveldara að nota þjón-
ustu póstsins.
Hagræðingarmál og þjónustan
við almenning voru mjög til um-
ræðu á fundinum. Norræna póst
sambandið hefur þessi mál til
meðferðar í mismunandi vinnu-
nefndum. í sambandi við hagræð
ingar og þjónustumál voru rædd
ar tillögur til breytinga á al-
þjóðapóstsamningunum, en al-
þjóða póstþing verður haldið
1969.
(Frá Póst og símamálastjórn-
inni.)
Fulltrúar þeir er fundinn sóttu.
Því er slegið föstu: Hvergi meira tyrir ferðapeningana.
Majorka og London — 17 dagar trá krónum 8.900,oo
Nú komast íslendingar eins og aðrar þjóðir ódýrt til sólskinspáradísarinnar á
Majorka, vinsælasta ferðamannastað álfunnar. Majorka er vinsælust allra staða
vegna þess að sólskinsparadísin þar bregzt ekki og þar er fjölbreyttasta skemmt-
analíf og mestir möguleikar til skoðunar og skemmtiferða um eyjuna sjálfa, sem
er stærri en Borgarfjarðar- og Mýrasýslur tii samans, og einnig er hægt að
komast í ódýrar skemmtiferðir til Afríku, Barcelona og Madrid (dagferðir), Monte
Carlo og Nizza. Flogið beint til Spánar með íslenzkri flugvél. Tveir heilir sólar-
hringar í London á heimleið. Þægilegar ferðir til eftirsóttra staða.
Aukaferðir 21. ágúst og 4. september
Næstu ferðir: 17. júlí (fá sæti) 31. júlí (fá sæti).
14. ágúst (fullbókað), 28. ágúst (fullbókað), 11. sept.
Brottfarardagar annan hvern miðvikudag (fuiibókað), 25. sePt., 9 október og 23 október.
LONDON - AMSTERDAM - KAUPMANNAHÖFN
12 daga ierðir — Verð krónur 14.400,oo
Stuttar og ódýrar ferðir sem gefa fólki tækifæri til að kynnast þremur vinsælum
stórborgum Evrópu, sem þó eru mjög ólíkar. Miljónaborgin London er tilkomu-
mikil og sögufræg höfuðborg stórveldis með fjölbreytt menningar- og skemmt-
analíf. Amsterdam er heillandi fögur með fljót sín og síki, blómum skrýdd og létt
í skapi. Og svo borgin við sundið, Kaupm annahöfn, þar sem íslendingar una sér
betur en víðast annars staðar á erlendri grund.
Fararstjórar: Klemenz Jónsson, Gunnar Eyjólfsson, Jón Sigurbjörnsson.
Brottfarardagar: 21. júii — 4. ágúst — 18. ágúst — 1. sept. — 8. sept — 15. sept.
Athugið að SUNNA hefur fjölbreytt úrval annarra hópferða
með íslenzkum fararstjórum. Ferðaþjónusta SUNNU fyrir hópa og
einstaklinga er viðurkennd af þeim mörgu er reynt hafa. Bankastræti 7
_____________ símar 1 64 00 og 1 20 70.
SUIMINIA
Ferðaskrifstofan