Morgunblaðið - 26.07.1968, Síða 3

Morgunblaðið - 26.07.1968, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1968 3 Signrður Halla Einar Oddur Gunnar Birgir Ingólfur Héraðsmót Sjálfstæöisflokksins — um nœstu helgi á Siglufirði, Blönduósi og Sœvangi, Strandasýslu EM NÆSTU helgi verða haldin Jjrjú héraðsmót Sjálfstæðisflokks ins á eftirtöldum stöðum: Siglufirði, föstudaginn 26. júlí kl. 21. Ræðumenn verða Ingólfur Jónsson, ráðherra, Birgir Kjar- an, alþingismaður og Herbert Guðmundsson, ritstjóri. Blönduósi, laugardaginn 27. júlí kl. 21. Ræðumenn verða Ing- ólfur Jónsson, ráðherra, Gunnar Gíslason, alþingismaður og Halla Jónsdóttir frú. Sævangi, Strandasýslu, sunnu- daginn 28. júlí kl. 21. I«eðumenn verða Ingólfur Jónsson, ráðherra, Sigurður Bjarnason, alþingismað ur og Einar Oddur Kristjánsson, fulltrúi. Skemmtiatriði annast leikar- arnir Róbert Arnfinnsson og Rúrik Haraldsson og hljómsveit Ragnars Bjarnasonar. Hljóm- sveitina skipa Ragnar Bjarnason, Grettir Björnsson, Árni Schev- ing, Jón Páll Bjarnason og Árni Elfar. Söngvarar með. hljómsveit inni eru Erla Traustadóttir og Ragnar Bjarnason. Að loknu hverju héraðsmóti verður haldinn dansleikur, þar sem hljómsveit Ragnars Bjarna- sonar leikur fyrir dansi og söngv arar hljómsveitarinnar koma fram. Mannfjöldinn á Suiharhátíðinni í Húsafellsskógi í fyrra, Wmm Iþróttakeppni, þjóðdansar, glíma, fimleikasýning, hljóm- sveitakeppni, ótal skemmtikraftar, kvik myndasýningar og flugeldasýning i Húsavíkurfjalli UM Verzlunarmannahelgina verður efnt til „Sumarhátíðar í Húsafellsskógi“. Að henni standa Ungmennasamband Borgarfjarð- ar og Æskulýðsnefnd Borgar- fjarðar. I fyrra sóttu sömu há- tíð um 8—10 þúsund manns og ágóðinn af samkomunni þá — og meira en það — var varið til endurbóta á mótssvæðinu. Eru nú alllr aðilar undir það búnir, að taka við jafnvel enn meiri fjölda. Forráðamenn hátíðarinn- ar, Vilhjálmur Einarsson skóla- stjóri og Höskuldur Goði Karls- son ræddu við fréttamenn um mótið og fórust orð m.a. á þessa leið: islegt hafi farið úrskeiðis við mótsstjórn og tilhögun, var það þó almannarómur að vel hefði tekizt í öllum aðalatriðum. Nú er reynt að byggja á feng- inni reynslu og enn hefur fjöldi manns verið að verki í skógin- um. Helztu umbætur frá því í fyrra eru: 1. Rafmagnslína hefur verið leidd um svæðið. 2. Vegabætur gerðar í Vestur- skóg og að nýjum dansstað. 3. Stækkaðir báðir danspallarn- ir, Paradís og Hátíðarlundur. 4. Aukin hreinslætisaðstaða. 5. Steyptur 250 fermetra dans- pallur við Lambhúslind. Að þessum endurbótum hafa unnið um 40 manna hópur úr ungmennafélögum Borgarfjarðar. Með því að leggja fram ákveð- inn stundafjölda í sjálfboðavinnu öðlast félögin rétt til að hafa söluskála á mótssvæðinu og þannig standa mörg félagasam- tök að því að undirbúa og fram- kvæma mótið sem bezt. Á siðustu samkomu var það sérstaklega vinsælt að leyfa gest um að hafa bifreiðar sínar hjá tjaldið. Þess vegna hefur nú ver- ið stækkað um meira en helm- ing fjölskyldutjldbúðasvæði, og prentaðir hafa verið sérstakir bílámiðar, merktir tjaldstæði A og tjaldstæði B. Handhafar slíkra miða hafa heimild til að aka bifreiðum sínum inn á afmörk- uð svæði og láta þær standa hjá tjöldum sínum um mótstímann. Þá hafa sérstakar unglingatjald- búðir verið skipulagðar þar sem einnig má hafa bifreiðar hjá tjöld um. Tjaldbúðir þessar eru merkt ar „tjaldstæði C“. Heildarsvæði ætlað fyrir unglingatjaldbúðir hefur því einnig verið tvöfald- að. Dagskrá mótsins. Mótssvæðið er opnað kl. 2 e. h. á föstudag og þá um kvöldið leika Hljómar í Hátíðarlundi. Á laugardag hefst íþrótta- keppni kl. 2 e.h. milli fjögurra Framhald á bls. il Óþarft mun að kynna Húsa- fellsskóg fyrir íslendingum, svo frægur sem staðurinn er að fornu og nýju. Sá maður, sem á síð- ar árum mun öðrum fremur hafa komið auga á hina einstöku náttúrufegurð og útsýni á Húsa- felli mun vera Ásgrímur Jóns- eon listmálari, sem dvaldi þar á hverju sumri árum saman. Þá hafa hinar vinsælu samkomur, sem þar hafaverið haldnar um undanfarnar verzlunarmanna- helgar opnað augu tugþúsunda manna fyrir hinni margvíslegu náttúrufegurð. Síðastliðna verzlunarmanna- helgi hófust æksulýðssamtökin í Borgarfirði handa um samkomu- hald í Húsafellsskógi í fyrsta skipti. Fyrir samkomuna var unnið mikið starf í þegnskyldu- vinnu að því að bæta aðstöðu til móttöku fólks á fjöldasam- komu. Vegur var lagður um skóg inn og malborinn, byggðir tveir danspallar, reist leiksvið og sölu skálar, byggð brú yfir Kaldá, bætt hreinlætisaðstaða. Mann- fjöldinn lét ekki á sér standa og þama var haldin fjölmennasta eumarskemmtun sl. ár. Þótt ým- Unnið að því að steypa 250 m2 danspall við Lambhúsalind. Da nspallar í Húsafellsskógi eru nú um 800 m2 samtals. STAKSTEIHAR Sízt minni ævintýramennska! Það hefur verið hljótt um Al- þýðubandalagið að undanförnu enda höfuðpersónur leiksins viðs fjarri. Lúðvík hefur verið fyrir austan, Björn fyrir norðan, Hannibal fyrir vestan og garm- urinn hann Ketill í heimsókn hjá Ho Chi Minh. Nokkrar hreyfing- ar hafa þó átt sér stað undir ró- legu yfirborðinu og einna at- hyglisverðastar þær, að klofn- ingur virðist kominn upp í liði I-lista-manna. Hann hefur m.a. komið fram í því, að nokkrir þeirra, sem sæti áttu á I-listan- um sl. vor hafa gengið til sam- starfs við aðstandendur blaðsins „Frjálsrar Þjóðar“. Þetta eru menn á borð við Guðjón Jóns- son, Sigurð Guðgeirsson, Véstein Ólason og Jóhann J. E. Kúld. Athygli vekur hins vegar, að t.d. synir Hannibals koma þar hvergi nærri og er ástæða til að ætla, að þeir hafi af ráðnum hug verði útilokaðir. Eftir kosning- arnar sl. vor gengu aðstandend- ur ofannefnds blaðs frá sam- starfi við I-lista-fólkið og gripu Hannibal og stuðningsmenn hans þá til þess ráðs að gera „Verka- manninn“ á Akureyri að mál- gagni sínu í Reykjavík. í nokkr- ar vikur mátti sjá þess merki á blaðinu, að því væri ætlað slíkt hlutverk, en svo er ekki lengur. Það framtak hefur koðnað nið- ur eins og annað, sem þessir menn taka sér fyrir hendur. En nú eru deilur risnar upp á viku- blaðinu „Frjáls Þjóð“. Ein af stuðningskonum I-listans lýsti yfir því í grein fyrir nokkru, að Hannibal væri gamall, hefði ástundað ævintýramennsku á þingi og ætti að taka sér hvíld. I nýútkomnu tölublaði tekur Vé- steinn Ólason upp hanzkann fyr ir Hannibal og segir: „Ég get ekki fallizt á, að þessi klofning- ur þingflokksins hafi verið að kenna ævintýramennsku þeirra Hannibals Valdimarssonar og Björns Jónssonar .... en ég full mesta „ævintýramennsku" og sizt verið minni í breytni ann- arra þingmanna Alþýðubanda- lagsins og mesta ábyrgð ber sá maður, sem fastast sótti að verða formaður hans hvað hann og varð, Lúðvík Jósefsson". Fjölbreytileg skipting Annars verður skipting hins svonefnda Alþýðubandalags í klikur og smáhópa sifellt fjöl- breytilegri og kostulegri. Megin- klofningurinn hefur um langt árabil verið á milli hinna svo- kölluðu Hannibalista annars vegar og kommúnista hins veg- ar. Hinir síðarnefndu hafa svo skiptzt í marga smáhópa, en þó fyrst og fremst tvo, klíkuna í Sósíalistafélagi Reykjavíkur og hina kommúnistana. Fram til þessa hafa Hannibalistar verið svo fáir og smáir að menn héldu, að þeir gætu vart getið af sér minni afkvæmi. Sú er þó orðin raunin. Þeir eru augljós- lega klofnir í tvennt, þá, sem nú hafa safnazt saman utan um „Frjálsa Þjóð“ og hina, sem kenna sig við „Verkamanninn". En fyrrnefndi hópurinn er þó greinilega ekki á eitt sáttur. Ljóst er, að I-lista-mennirnir innan hans eru klofnir í afstöð- unni til þess, hvort Hannibal og Björn hafi sýnt „ævintýra- mennsku“ eða ekki og hvort veita eigi þeim hvíld frá störf- um eða ekki og svo er auðvitað litla klíkan hans Bergs, sem hvergi rekst í flokki. Og til þess að kóróna þessa marglitu hjörð upplýsir Vésteinn Ólason að .„ ... nokkrir miðjumenn .... vilja kljúfa út úr þvi (þ.e. Alþbl.) til „hægri“ og „vinstri" .... (og) fá . .. heldur lítinn en samstæðan flokk“ Er mönnunum nokkur vorkunn?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.