Morgunblaðið - 26.07.1968, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1968
15
SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM:
KVIKMYNDIR
Stjörnubíó:
DÆMDUR SAKLAUS
(The Chase)
Bandarísk kvlkmynd.
Framleiðandi: Sam Spiegel
Leikstjóri: Arthur Penn
Meðal leikenda:
Marlon Brando
Jane Fonde
KVIKMYND þessi sýnir okkur
bæjarlífið í smáborg einni í
Texas og dramatíska atburði,
sem þar eru látnir gerast. Hún
sýnir okkur bæði veikgeðja fólk
og huglítið, sem er hrætt við af-
leiðingar sinna eigin verka, fólk
tryllt af múgsefjun og ölæði,
sem þyrstir í að misþyrma öðru
fólki, og svo sýnir hún okkur
hetjur, sem berjast fyrir sann-
færingu sinni og leggja líf sitt
að veði.
Margt hefur maður heyrt og
lesið um múgæði það, sem stund
um grípur um sig í bandarísk-
um borgum, ekki sízt er hvítum
og svörtum mönnum lýstur
saman. Þessi kvikmynd fjallar
hins vegar nær ekkert um kyn-
þáttaóeirðir, blóðþorsti múgsins
beinist einkum að hvítum ung-
lingi, sem nýsloppinn er úr
fangelsi — en þangað var hann
dæmdur fyrir minniháttar af-
brot — svo og lögreglustjóra
staðarins, sem vinnur að því,
að þessi piltur nái réttum lög-
um. Sé lýsing þessarar kvik-
myndar nærri lagi, þá getur
maður hins vegar vel hugsað
sér, hvernig kynþáttaóeirðir í
bandarískum borgum kvikna,
við kynnumst þarna þjóðfélags-
ábyrgð eða ábyrgðarleysi borg-
aranna, hamsleysi fólksins og
misbeitingu þess valds, sem
hlaðin skammbyssa veitir hand-
hafa sínum.
Sem bakgrunnur hinna æsi-
legustu atburða er ástalíf nokk-
urra hjóna á staðnum dregið
fram í dagsljósið. Ekkert hjóna-
band sýnist þarna regulega gott
og snurðulaust, nema lögreglú-
stjórans og konu hans. Hins veg
ar kemur þarna fram kona nokk-
ur (Jane Fonda), sem virðist
bera nokkuð jafna ást til
tveggja manna. Er. það eigin-
kona hins unga afbrotamans,
sem leggur jafnhliða ást á son
auðugs olíukóngs þarna á staðn-
um. Hafði hún beðið kóngsson
margoft að giftast sér, á meðan
maður hennar sat í fangelsinu,
en þegar er hún fréttir, að hann
hafi strokið, hleypur hún úr ból
inu frá friðli sínum. Ást hennar
til eiginmannsins verður þá
skyndlega yfirsterkari, enda
finnst henni hann nú hjálpar-
þurfi. Er þó vandséð, hvort ást
slíkrar konu gagnar nokkrum.
kennd. Ekkert kemur honum á
óvart og fátt kemur honum úr
jafnvægi. Hvorki brosir hann né
hlær, starfserfiðleikarnir hvíla
þungt á honum. — Kannski er
leikur hans fulleinhæfur, hefði
kannski mátt koma við meiri
sveigjanleka. — Eða var hann of
heiðarlegur, til að geta brosað í
slíku umhverfi?
Lögreglustjórafrúin (Angie
Dickinson) og eiginkona hins
unga afbrotamanns (Jane
Fonda) leika báðar kunnáttu-
samlega. Önnur er fulltrúi hinn-
ar óbrigðulu hjúskapartryggðar,
hin getur að minnsta kosti tví-
skipt sér, eins og fyrr segir. —
Þrátt fyrir allt vekur hún þó
fremur samúð en andúð: þótt
slík kona kunni að gagna öðrum
lítið, þá er hún þó trúlega sjálfri
sér verst.
með byssum, án nokkurra saka.
Það er ekki sjaldgæfur efnivið-
ur í kvikmyndum. — Hitt tekst
oft miður vel að skapa það ógn-
þrungna andrúmsloft og spennu,
sem jafnan hlýtur að leika um
slíka atburði. — En' það hefur
tekizt með ágætum í þessari
kvikmynd. Þar sem hún er og
að öðru leyti gerð af mikilli
tæknilegri kunnáttu, þá fer ekki
hjá því, að hún verður minnis-
stæð.
Að minnsta kosti fólki, sem
býr við jafn kyrrlátan bæjar-
brag og við hér á Reykjavíkur-
svæðinu.
S.K.
Þessi mynd er í flokki áhrifa-
meiri kvikmynda. Hún sýnir
mannlegt ofbeldi og ofbeldis-
hneigðir í óvenju nakinni mynd.
Raunar er umhverfi og andrúms
loft ofbeldisins leitt jafnvel enn
betur í ljós en sjálf framkvæmd
þess. En það er styrkur myndar-
innar fremur en veikleiki. Við
höfum séð mikið magn kvik-
mynda, þar sem menn eru barð-
ir til óbóta eða skotnir niður
Óskum eftir
LAGERHÚSNÆÐI
100 til 150 ferm. til leigu eða kaups á góðum stað í
borginni Þarf að hafa innkeyrsludyr.
Upplýsingar í síma 19943 kl. 9—5.
Framkvæmdir í Ölafsvík BLA0BURÐARF01K
OSKAST
Ólafsvík, 24. júlí.
Framkvæmdir á vegum Ólafs-
víkurhrepps eru allmiklar í sum
ar og aðrar á döfinni samkvæmt
upplýsingum Alexanders Stefáns
sanar, oddvita og verða þær tald
ar hér á eftir.
Ólafsvíkurhreppur opnaði tann
lækningastofu í bamaskólahús-
inu í byrjun júní sl. I stofunni
eru vestur-þýzk tannlækninga-
tæki af fullkomnustu gerð, rönt-
gentæki og fleira. Tannlæknir
er Eyþór Þórhallsson frá Reykja
vík. Hefur hann haft mikið verk
efni.
Skólabörn úr Ólafsvík og
Hellissandi og víðar úr héraðinu
hafa til þessa ekki fengið að-
stöðu hjá tannlækni. Ólafsvíkur
hreppur greiðir helming af við-
gerðarkostnaði tanna bama á
skólaskyldualdri. Er mikil á-
nægja hér um slóðir, að þetta
átak skyldi hafa verið gert.
Næstu daga verður byrjað á
byggingu læknisbústaðar í Ólafs
vík fyrir Ólafsvíkurlæknishérað.
Hefur undirbúningur a’ð þeirri
byggingu staðið í eitt og hálft
ár. Verktaki við bygginguna er
Trésmiðjan hf., Ólafsvík. í hús-
inu, sem er á þremur hæðum,
verður íbúð fyrir héraðslækni,
lækningastofur með aðstöðu
fyrir sjúklinga og húsnæði fyrir
lyfsölu. Á neðstu hæð verða
tannlækningastofur. Lífsnauðsyn
er a‘ð hraða byggingu þessa húss,
þar sem héraðslæknirinn fer
senn að hætta störfum vegna
aldurs og heilsufars, en enginn
læknisbústaður er hér til. Verð-
ur lögð áherzla á að ljúka bygg
ingunni árið 1969.
Unnið er nú við vatns- og hita
lagnir í íþróttahúsinu svo og múr
verk að innan. Verður reynt að
ljúka við bygginguna á þessu og
næsta ári. Engin aðstaða hefur
verið í Ólafsvík til sunds- og
íþróttafðkana til þessa. Er þetta
því langþráð takmark.
íþróttavöllurinn hefur nú verið
stækkaður í 60x100 metra. Lagði
Ungmennafélagið Víkingur mik-
ið framtak í það verk. Er nú
góð aðstaða til iðkunar knatt-
spyrnu og annarra útiíþrótta.
Hefur hreppurinn lagt fram
styrk ti'l íþróttakennara í sumar.
í framhaldi af framkvæmdum
við íþróttahús og sundlaugar
hefur verið unnið að nýrri hol-
ræsalögn frá íþróttahúsinu og
liggur hún út fyrir hafnarsvæð-
fð. Ennfremur verður lögð ný
holræsalögn í göturnar Hjarðar-
tún og Kirkjubraut.
Hafnarframkvæmdir verða
talsverðar í sumar. Er áætlað að
unnið verði fyrir 5—6 milljónir
króna. Dýpkunarskipið Sandey
er nú að dýpka kringum harð-
viðarbryggjuna. Er gert ráð fyr
ir að dýpka 20—25 þús. rúm-
metra. Síðan verður bryggjan
breikkuð í 15 metra upp í upp-
fyllingu. Eru staurar og dekk-
efni þegar komfð á staðinn. Enn-
fremur verða skemmdir á hafnar
mannvirkjum frá því í vetur
fullviðgerðar.
Gefin hafa verið út fimm bygg
ingaleyfi það sem af er árinu
og er byrjað á þremur húsum.
Ennfremur er unnið í bygging-
um, sem byrjað var á á síðast-
liðnu ári.
Gengið hefur verið frá lóð
krmgum nýju kirkjuna. Mikill
ferðamannastraumur hefur ver-
ið hér í sumar og hafa allir
fengið a'ð skoða nýju kirkjuna,
sem þess hafa óskað, og hefur
hún vakið verðskuldaða athygli
fyrir fegurð og form.
— Hinrik.
Það er lögreglustjórinn, sem
er merkisberi réttlætisins í þess
ari borg. Olíukóngurinn áður-
nefndi hafði látið skipa hann í
starfið og vill í staðinn ráða
flestum embættisathöfnum hans.
En lögreglustjórinn (Marlon
Brando) vill hafa réttlæiskennd
sína og lögin ein að leiðarljósi.
Það fer því ekki hjá því, að í
odda skerist milli hans og kon-
ungs, og þar kemur, að nokkrir
úr hirð hins síðarnefnda ráðast
á lögreglustjóra og berja svo
rækilega á honum, að eftir flest-
um öðrum lögmálum en þeim,
sem gilda í „villta vesturs kvik-
myndum“, hefði það átt að vera
honum nægilegt tilefni til að
skyggnast inn á önnur og betri
tilverusvið. En lögreglustjóri
stendur á fætur að mínútu lið-
inni, hann á enn ólokið einu
starfi í þágu réttlætisins, þótt
miður takizt með framkvæmd
þess en skyldi..........
Eítirtalin notuð
járnsmíðaverkfæri óskast:
Rennibekkur af meðalstærð. Borðborvél eða stærri.
Hefill 6” eða 12”. Rafsuðutransformer.
Tilboð, merkt: „Verkfæri — 5146“ sendist til afgr. Mbl.
fyrir nk. mánaðamót.
Bílskúr
Bílskúr til leigu að Grettisgötu 10. Er með gryfju og
notaður sem bílaverkstæði. Upplýsingar í síma 12841
og 10115.
Brando fer þarna með stærsta
hlutverkið, þar sem hann leik-
ur lögreglustjórann ódrepandi,
með hina ódrepandi réttlætis-
Viljum ráðn skipstjóra
á ms. Höfrung II, AK 150.
í eftirtalin hverfi:
Árbæjarbletti.
Talib v/ð afgreiðsluna í sima 70700
Látið mæla og athuga rafgeyminn áður en
lagt er í langferð.
RAFGEYMAÞJÓNUSTA PÓLA
Þverholti 15.
Haraldur Böðvarsson & Co., Akranesi.
LÖGTAK
Eftir kröfu skattheimtu ríkissjóðs í Kópavogi úrskurð-
ast hér með lögtak. Verða lögtökin látin fram fara án
frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð rík-
issjóðs að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar aug-
lýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum:
Hækkunum á þungaskatti af dísilbifreiðum skv. lögum
nr. 7 frá 1968 (vegalögum), sem féllu í gjalddaga 1. júlí
sl., söluskatti 1. og 2. ársfjórðungs og nýálögðum við-
bótum við söluskatt eldri tímabila, áfölinum og ógreidd
um skemmtanaskatti og miðagjaldi, gjöldum af inn-
lendum tollvörutegundum, matvælaeftirlitsgjaldi og
gjaldi til styrktarsjóðs fatlaðra, skipulagsgjaldi af ný-
byggingum, almennum og sérstökum útflutningsgjöld-
um, aflatryggingasjóðsgjöldum, svo og tryggingaiðgjöld
um af skipshöfnum 1. og' 2. ársfjórðungs 1968 ásamt
skráningar g j öldum
Bæjarfógetinn í Kópavogi, 19. júlí 1968.