Morgunblaðið - 26.07.1968, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JUU 1968
— Skýrslufræði
Framhald af bls. 5.
unnin í vinnslumiðstöðvum.
Ég vil leyfa mér að tilfæra
hér lítinn hluta, í lauslegri þýð-
ingu, úr erindi, sem professor
Reino Kurki-Suonio við háskól-
ann í Tammerfors flutti á ráð-
atefnu, sem haldin var um þessi
mál, árið 1966.
„Ef næsta kynslóð á að vaxa
upp til þess að líta á skýrslu-
vélarnar sem eðlileg hjálpartæki
verður hið vanþróaða ástand,
sem nú er, að því er snertir
kennslu í skýrslufræðum að
breytast mjög til batnaðar. Stund
um er litið á þessi kennsluvanda
mál aðeins sem skort á færum
vélkerfissetjurum og skýrslu-
leggjurum, eins og þessi störf
eru skilgreind við gagnavinnslu
í stjórnunar- og viðskiptamálum.
Vandamálið er þá langtum djúp
stæðara. Fyrir þá, sem þurfa að
notfæra sér skýrslufræði, er sú
hugsun eða hugarfar, sem gagna
vinnslan útheimtir, oft algerlega
framandi. Þar sem notkun
skýrsluvéla takmarkast ekki við
neitt einstakt svið hins daglega
lífs, er nauðsynlegt að taka raun
hæfa kennslu í skýrslufræði með
á öllum sviðum akademiskr-
ar menntunar. Hin mikla þýðing
skýrsluvélanna og skýrslufræð-
innar þvingar oss til að bjóða
jafnvel þeim, sem aldrei á ævinni
koma nálægt skýrsluvélum,
kennslu í skýrslufræði. Hinir
♦aunverulegu skýrslufræðingar
þurfa að fá menntun, sem ekki
bindur hæfni þeirra við þær tak
mörkuðu aðferðir, sem við not-
um nú, heldur veitir þeim dýpri
skilning á skýrslufræðinni og
skýrsluvélum, ásamt hvatningu
til nýsköpunar og örvun ímynd
unaraflsins.
Mönnun hættir oft við að líta
á skýrslufræðina sem safn að-
ferða til notkunar við ákveðin
verkefni. En menntun til þess
eins að nota hana á tilteknu
verkefnasviði skapar ekki nægj
anlegan grundvöll fyrir skýrslu
fræði, sem óvéfengjanlega er
sjálfstæð fræðigrein og verð-
skuldar alvarlegt nám og sérstak
lega mótaða menntunarramma.
Þá ménntun, sem miðast við notk
unarsvið, fá nemendur með þvi
að nota núverandi aðferðir og
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 1., 3. og 5. tbl. Lögbirtingablaðsins
1968, á Álfhólsvegi 145, neðri hæð, þinglýstri eign Ól-
afs Lárussonar, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn
30. júli 1968 kl. 17.
Bæjarfógetinn i Kópavogi
Mýkomnir
Karlmannaskór
Mikið úrval.
Verð frá kr. 395,00.
Karlmannasandalar
Nýtt úrval.
Verð frá kr. 249,00.
Barnasandalar
Stærðir: 28—38.
Verð frá kr. 212,00.
SKÖVERZLUN
/lncUU!X-so*uui
ódYrar vórur
Fyrir kvenfólk: Fyrir börn:
Nælonsokkar kr. 20,00 Úlpur frá kr. 392,00
Undirbuxur (bómull) — 30,00 Peysur 150,00
Undirbuxur (nælon) — 49,00 Gallabuxur 45,00
Undirkjólar frá — 150,00 Stretchbuxur 85,00
Skjört — — 80,00 Kjólar 50,00
Buxnaskjört — 90,00 Telpnapils 175,00
Crepepeysur — — 150,00 Bómullarpeysur 62,00
Bómullarpeysur — — 65,00 Sundbolir 219,00
Frottepeysur — — 98,00 Sportsokkar og sokkabuxur
Ullarpeysur — — 195,00 í úrvali.
Blússur Sundbolir % — — 100,00 250,00 Fyrir karlmenn:
Sundhettur — — 55,00 Úlpur frá kr. 800,00
Ilanzkar — — 60,00 Frakkar 800,00
Náttföt — — 80,00 Vestispeysur — 350,00
Borðdúkar — — 130,00 Treflar — 70,00
Skór — — 180,00 Ilanzkar — 45,00
Inniskór — — 75,00 Flónelsskyrtur — 155,00
Ennfremur snyrtivörur (Marinello og Alicia), sólarolía og sól-
glcraugu í úrvali.
VERZLUMIN DYMGJA
Laugavegi 25. — Sími 11846.
hjálpartæki, en þá menntun, sem
miðast við skýrslufræði, fá þeir
með því að læra að skilja og
þróa þessar aðferðir. Slík
kennsla, sem miðast við skýrslu
fræði, er í hæsta máta nauðsyn-
leg í öllum æðri skólum. Er við
skipuleggjum skýrslufræðimennt
un verðum við einnig að hverfa
frá hinni yfirborðskenndu skipt
ingu skýrslufræðinnar í vísinda
lega útreikninga og gagna-
vinnslu. Þessi gamla skipting eft
ir notkunarsviðum stuðlar að því
sjónarmiði gagnvart skýrslu-
fræði, að hún sé safn aðferða til
notkunar við ákveðin verkefni.
Skiptingin er væntanlega skað-
legust gagnavinnslunni, sem
vegna hennar, losnar úr tengsl-
um við hin öflugu hjálpartæki,
sem fólgin eru í stærðfræði og
statistik“.
Það er til marks um breyting-
una, sem orðið hefir á tækjun-
um á undanförnum árum, að sú
skipting í verksvið, sem prófess
orinn nefndir stjórnunar- og við
skiptamál annars vegar, en vís-
inda- og tæknimál hins vegar,
er nú orðin að miklu leyti úrelt
og óþörf. Hinar nýju vélar geta,
í flestum tilfellum, annast hvort
tveggja.
Nýlega var haldin skýrslu-
fræðiráðstefna í Helsingfors, með
um 750 þátttakendum frá öllum
Norðurlöndunum, þó aðeins væru
tveir frá fslandi. Aðal markmið
þessarar ráðstefnu var að sam-
eina þessi verkefnasvið, sem nú
þykja hafa verið of mikið að-
greind.
Ég hygg að hér á landi sé
nauðsynlegt að stefna að því að
fá stærri vélar, en við nú höf-
um ráð á, til þess að unnt verði
að leysa öll verkefni á báðum
sviðum. Til þess að þetta verði
hægt, þarf:
RITSTJÓRIM • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA'SKRIFSTOFA
SÍMI 10«100
— talsverða hagræðingu verk
efna, og samfærslu þeirra á einn
stað, eftir því sem unnt er, til
þess að skapa fjárhagslegan
grundvöll fyrir stærri og dýr-
ari tæki.
— Mjög aukin menntunar- og
fræðsluskilyrði á öllum náms-
sviðum og mjög aukna hagnýt-
ingu þeirra skilyrða, sem nú eru
fyrir hendi til fræðslu í stærð-
fræði og hagfræði.
Fyrra atriðið er vafalaust hægt
að leysa með samtökum og góðri
samvinnu þeirra aðila, sem þurfa
að nota tæknina.
Síðara atriðið verður ekki
leyst til fulls, nema með sam-
eiginlegum skipulögðum aðgeTð-
um hins opinbera og einkaað-
ila.
Vanamálið varðandi menntun-
arskilyrði verður ekki leyst 1
skyndi. Reynslan í nágranna"
löndunum sýnir, að mikill skort-
ur er á hæfum kennurum, en
sú fræðsla, sem til skamms tíma
hefir ein verið fáanleg, er sú
sem seljendur tækjanna hafa lát
ið í té. Sú fræðsla miðast við
ákveðnar vélategundir og er
aðallega fyrir starfsmenn, sem
við þær vinna. Fræðsla á breið-
ari grundvelli hefir verið tek-
in upp við ýmsa æðri skóla, en
þó enn talin alls ófullnægjandi
Á Norðurlöndunum er því nú
fyrst og fremst stefnt að því að
koma upp kennaraliði, en með-
an því fer fram, er stuðzt við
aukin námsskeið, sem tækjaselj-
endur halda, eða sem aðrir aðil-
ar, einstakar atvinnugreinar eða
hið opinbera gangast fyrir.
Mér þykir líklegt að hér verði
að vinna að þessu á svipaðan
hátt.
f verkfræðideild Háskólans
eru nú árlega haldin námskeið
fyrir verkfræðinga og verkfræði
nema, en ráðgert mun að auka
þetta, og einnig taka upp
kennslu í skýrslufræðum í fleiri
háskóladeildum.
Hér þarf þó kennslan að fara
fram í fleiri Skólum, og verður
ef til vill vikið nánar að þess-
um málum hér innan skamms.
Hjörleifur Hjörleifsson
Lokað
Skrifstofur vorar og vöruafgreiðsla vérða lokaðar
vegna sumarleyfa frá 29. júlí til 6. ágúst
SUNNUFELL h.f. — STERLING h.f., Skúlagötu 61.
ÁLFASKCIÐ
Hin árlega Álfaskeiðsskemmtun verður haldin sunnu-
daginn 28. júlí nk. og hefst með guðsþjónustu kl. 14,
séra Sveinbjörn Sveinbjörnsson í Hruna predikar.
DAGSKRÁ:
1. Ræða: Páll Kolka, Ireknir.
2. Söngur: Keflavíkurkvartettinn.
3. Leikararnir Helga Bachmann og Helgi Skúlason
skenunta.
4. Þjóðlagasöngur: „RÍÓ-tríó".
5. Skemmtiþáttur: Vílhjálmur H. Gíslason.
6. Baldur og Konni skemmta.
I.úðrasveit Selfoss leikur milli atriða.
Stjórnandi Ásgeir Sigurðsson.
„Mánar“ skemmta á dansleik að Flúðum laugardags
kvöld 27 júlí.
Hljóinsveit Óskars Guðmundssonar leikur að Flúðum
sunnudagskvöld.
Sætaferð til Reykjavíkur að loknum dansleik á sunnu-
dagskvöld.
U. M. F. Ilrunamanna.