Morgunblaðið - 26.07.1968, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1968
21
— Húsafellsskógur
Framhald af bls. 3
bandalaga HSK, UMSK, HSH, og
UMSB. Keppir einn keppandi
frá hverjum aðila í hverri grein.
Kl. 18 er hljómsveitasam-
keppni og valin „Táningahljóm-
sveitin 1968“.
Kl. 9 um kvöldið verður dans
að á þremur pöllum „Hátíða-
lundi“ „Paradís og við Lamb-
húslind.
Kl. 1 eftir miðnætti hefst mið
næturvaka í Hátíðarlundi og þar
skemmta Gunnar og Bessi, Ríó
tríó, Ómar Ragnarsson, Alli Rúts
og Hljómar. Kl. 2 um nóttina er
varðeldur og almennur söngur.
Á sunnudaginn er framhald
íþróttakeppninnar fyrir hádegi
og kl. 2 hátíðardagskrá með
helgistund, þjóðlagasöng, hátíð-
arræðu Ásgeirs Péturssonar
sýslumanns, þjóðdansa- og þjóð-
búningasýning, glímusýning og
bændaglíma og fimleikasýning.
Kl. 4 hefst keppni í körfuknatt
leik og kl. 5 hefst skemmtidag-
skrá þar sem Hljómar, Orion og
Táningahljómsveitin nýkjörna
leika. Leikþættir verða fluttir
úr „Pilti og stúlku“ og úr „Hrað
ar hendur". Þá skemmta og
Gunnar og Bessi. Ómar Ragnars-
son, Ríó tríó syngur þjóðlög og
Alli Rúts skemmtir.
Kl. 7 er knattspyrnukeppni
milli HSH og UMSB.
Kl. 9 er dansað á þremur stöð-
um og kl. 2 um nóttina er flug-
eldasýning úr Húsafellsfjalli,
varðeldur og söngur.
Það er nýjung á útiskemmt-
unum hér að á laugardag og
sunnudag verða kvikmyndasýn-
ingar.
ic Hátíð fjölskyldunnar
Forráðamenn Húsafellshátíðar
innar vilja leggja á það ríka á-
herzlu, að með framtaki sínu
hafa þeir lagt inn á nýjar braut-
ir í samkomuhaldi um verzlun-
armannahelgi: stefnt er að því
og skipulag hátíðarinnar miðað
við það, að allir aldursflokkar
mótsgesta fái nokkuð við sitt
hæfi. Sem dæmi má nefna að
á hinum þrem dansstöðum er
séð um mismunandi dansmúsik
af mjög vinsælum aðilum í
hverju hlutverki. Á sunnudags-
eftirmiðdag er bæði hátíðardag-
skrá með fjölbreyttu og þjóð-
legu efnisvali og einnig skemmti
dagskrá með fjölbreyttu og þjóð
dagskrá. Kappleikir og íþrótta-
keppni fara fram, svo segja má
að um samfellda dagskrá sé að
ræða alla helgina.
Það er von forráðamanna há-
tíðarinnar, að með þessu megi
takast að skapaskemmtun, sem
fjölskyldan getur farið á og not-
ið sín. Ef samkomuhald íslend-
inga um verzluarmannahelgar
undanfarið hefði allt verið með
slíku sniði, hefðu þeir leiðu at-
burðir, sem tengdir voru ýms-
um útisamkomum, og kunnir eru
úr blöðum og útvarpi, trúlega
ekki gerzt. Bezta trygging for-
eldranna fyrir góðri hegðun
barna sinna er að leggja á sig
það ómak, að skemmta sér með
þeim.
Fjölskylduafslátturinn.
Á sumarhátíðinni er ókeypis
aðgangur fyrir alla ófermda ungl
inga, sem eru í fylgd með for-
eldrum sínum. Unglingar í hóp-
ferðum og allir unglingar 14-16
ára greiða kr. 200.— en fullorðn
ir kr. 300.—, og gildir miðinn að
öllum skemmtiatriðum mótsins.
Áfengisneyzia bönnuð
Á sumarhátíðinni í fyrra giltu
þær reglur, að öll meðferð
áfengra drykkja á mótssvæðinu
var stranglega bönnuð, meðan
mótið fór fram. Þetta kann ýms
um að þykja hart aðgöngu, en
reynsla undanfarinnar ára hef-
ur sýnt að þetta er nauðsynlegt.
Það virtist lika sannast í Húsa-
fellsskógi um síðustu verzlunar-
mannahelgi, að áfengi er óþarf
ur fylginautur á skemmtun, sem
þessa,þar sem svo mjög er til
dagskrárinnar vandað og ekk-
ert til þess sparað að fólkið geti
sem bezt notið landsins þekkt-
ustu skemmtikrafta.
Það fer því varla til of mikils
mælst af almennum hátíðargest
um, að þeir virði reglur þessar,
svo að vel skipulagt og undir-
búið mót megi fara fram öllum
til mestrar ánægju.
Kjörorðið er: Förum á fjöl-
breyttustu sumarhátíðina og
skemmtum okkur þar án áfeng-
ir „Táningahljómsveitin 1968“
valin
Keppnin fer fram í Hátíðar-
lundi og hefst kl. 19 á laugar-
dag. Stjórnandi keppninnar er
Alli Rúts. Eftirtaldar táninga-
hljómsveitir koma fram:
Falcon úr Kópavogi, Falkon
úr Ólafsvík, Hippies úr Garða-
hreppi, Instrument úr Reykja-
vík, Kims úr Garðahreppi, Smile
úr Garðahreppi, Stjörnur úr Mos
fellssveit, Trix úr Reykjavík.
Hver hljómsveit leikur þrjú
lög eftir eigin vali.
Dómnefhd skipa:
Andrés Indriðason, Bessi
Bjarnason, Gunnar Þórðarson,
Ómar Ragnarsson, Sigrún Harð-
ardóttir, Skafti Þórólfsson.
Sigurvegarar taka þátt í sam-
eiginlegum „bítlahljómleikum"
ásamt „Hljómum“ og „Orion“ kl.
17 á sunnudag.
Sú hljómsveit er sigur ber úr
býtum hlýtur 15000 kr. verð-
laun.
Ferðahappdrætti.
Allir aðgöngumiðar eru tölu-
settir. Á skemmtidagskránni á
sunnudag verður dregið úr seld-
um miðum vinningur er Sunnu-
ferð til Malljorka 6. okt. n.k.
Forsala aðgöngumiða.
Samkomugestum á Sumarhá-
tíðinni í Húsafellsskógi gefst nú
kostur á því að tryggja sér tjald
stæði á góðum stöðum, og vera
>annig óháðir því að koma fyrir
allar aldir á mótsstað. Prentað-
hafa verið sérstakir miðar,
sem ætlazt er til að festir verði
á bílrúðu. Miðar þessir eru merkt
ir „tjaldstæði A“, „tjaldstæði
B“ og „tjaldstæði C“. Á síðustu
sumarhátíð gerðist það, að hin
skipulögðu tjaldstæði yfirfyllt-
ust, og síðbúnir gestir urðu að
tjalda utan þeirra. Hér er því
um nýjung að ræða: forsjálir
samkomugestir geta tryggt sér
góð tjaldstæði, áður en farið er
af stað. Bílamiðarnir verða af-
hentir í forsölunni að Banka-
stræti 10 ísverzlun um leið og
miðasala fer fram.
og óbreytta borgara en á sama félag seldi fyrrverandi eigend-
- VIETNAM
Framíiald af bls. 1
menn Viet Cong myrt, sært eða
numið á brott allt að því helm-
lngi fleiri stjórnarembættismenn
tíma í fyrra, að því er banda-
rískur talsmaður skýrði frá í Sai
gon í dag.
í skýrslu frá bandaríska sendi
ráðinu segir, að 7.424 óbreyttir
borgarar hafi fallið og 15.434
særzt í febrúar, þegar bardag-
ar geisuðu í tugum borga vegna
Tet-sóknar Viet Cong. Þessar
tölur voru ekki teknar með, því
að ekki er vitað hvort þessir
óbreyttu borgarar hafj fallið
vegna bardaganna eða hryðju-
verka Viet Cong. Að sögn sendi
ráðsins hafa hermdarverkamenn
fellt 2.462 óbreytta borgara,
sært 5.020 og rænt 4.321 í jan-
úar, marz, apríl, maí og júní.
í síðustu viku féllu 157 banda
rískir hermenn í Vietnam, og hef
ur mannfall í liði Bandaríkja-
manna aldrei verið eins lítið í
níu mánuði. Þar með hafa 26.000
bandarískir hermenn fallið síð
an 1961. Að sögn Bandaríkja-
manna hafa 372,636 hermenn
Viet Cong og Norður-Vietnam
fallið á sama tíma.
Sókn i miðbálendiniu
Mikils liðssafnaðar kommún-
ista hefur orðið vart í miðhá-
lendi Suður-Vietnam, og er því
um það rætt hvort stórfelldar
hernaðaraðgerðir séu þar í und
irbúningi. Bandarískar sprengju
þotur réðust á skotmörk á þessu
svæði í dag.
23 ára gamall stúdent var í
dag dæmdur í fimm ára fang-
elsi í Saigon fyrir að gefa út
stúdentablað, sem stjórnin segir
að hafi verið hlynnt kommúnist-
um.
- HANS SIF
Framhald af bls. 32
Mbl.) við þá menn, er samning
inn gerðu, að björgunarlaun
yrðu um 50% af matsverði skips
ins eftir að það væri komið í
höfn og væri matshæft að dómi
beggja aðila“.
Svo sem kunnugt er af frétt-
um tókst að bjarga skipinu í júlí
byrjun og var það dregið til
Raufarhafnar. Síðan sagði Ein-
ar:
„Eftir það vann björgunarflokk
urinn af fullum krafti að lag-
færingum á skipinu í góðri trú
um að hann væri að auka verð-
mæti þess og það myndi síðar
auka ágóðahlut þeirra. Raunin
varð þó önnur. Engin ákveðin
lagafyrirmæli fundust um hlut
björgunarmanna í svona tilfelli
og þar sem um efnalitla menn
var að ræða í björgunarfl. urðu
þeir að sætta sig við eftir
margs konar vífilengjur og ósann
indi, a<5 hið danska trygginga-
útgerðarfélagi skipsins,
skipið fyrir kaupverð er nam 4.5
milljónum króna. Kaupverðið er
eins og kaupverð 20 smálesta
vélbáts á íslandi í dag, en þess
ber að geta“, sagði Einar enn-
fremur, „að grunur' leikur á að
sömu eigendur séu að útgerðar-
félaginu og hinni dönsku trygg-
ingastofnun. Byggjum við heim-
ildir okkar á viðtali við hinn
danska mann, er tók við skipinu
fyrir hönd útgei'ðarfélagsins á
Raufarhöfn og fer þá málið að
skýrast mjög. Ennfremur ber
þess að geta að við samningana
um björgunina, þóttist samninga
maður tryggingafélagsins hafa
hug á að selja skipið Englend-
ingi“.
Að lokum sagðist Einar vilja
þakka öllum félögum sínum, er
að björgun skipsins og mjölsins
hefðu staðið, gott samstarf, en
sagði síðan:
„í stuttu máli sagt: Þeir menn,
er lögðu fram fé og vinnu til
þess að bjarga umræddu skipi,
hrósa nú happi yfir því að hafa
ekki þurft að greiða hinu danska
tryggingafélagi stórar fjárhæðir
fyrir það eitt að hafa fengið
ánægjuna af að rétta þeim m.s.
Hans Sif upp í hendurnar til-
tölulega lítið skemmt og tilbúið
innan lítils tíma til siglingar
um heimshöfin".
í viðtali við Berg Lárusson í
gærkvöldi, sagðist hann gruna
að um einhvern skyldleika væri
að ræða með þessum tveimur
dönsku fyrirtækjum. A.m.k.
sagði hann tryggingafélagið hafa
haft öll spjót úti til þess að
geta selt útgerðarfélaginu skip-
ið á sem lægstu verði. Skipið
kvað hann tveggja ára og kosta
nýtt allt að 30 milljónum.
- TEKKOSLOVAKIA
Framhald af tols, 19
isskuldabréfum, sem bera
vexti og unnt er að selja öðr
um. Skaðabótagreiðslunum
verður skipt á 10 ára tímabil,
því að ella yrðu þær efna-
hag landsins ofvaxnar.
Hafi maður verið tekinn af
lífi, þá á ekkja hans og börn
rétt til bóta eftir hann, því
að bótakrafan gengur í arf.
Ennfremur fá ekkja hans og
börn áfram þau laun, sem
hann hafði og eftirlaun hans.
Þá er ennfremur verið að
undirbúa löggjöf um bætur
þeim til handa, sem vikið var
úr stöðum sínum, án þess að
þeir hefðu nokkuð til saka
unnið eða var meinað að
halda áfram námi sínu.
Margt er einnig unnt að
bæta, án þess að til þess
þurfi löggjöf. Prófessorar
Karls-háskólans hafa allir
tekið við stöðum sínum á nýj
an leik. í öllum fyrirtækjum
starfa nefndir, sem vinna að
því að veita þeim uppreisn
æru, sem eiga einhvers að
gjalda, og þá er úr því bætt
á staðnum, ef einhver gefur
sig fram,' sem af pólitískum
ástæðum var sviptur atvinn-
unni.
Allir þeir, sem einhverja
aðild hafa átt að pólitískum
dómum yfir saklausu fólki,
verða látnir víkja úr stöðum
sínum og þeim fenginn ann-
ar starfi i engum tengslum
við réttarframkvæmd í land-
inu. í framtíðinni eiga dóm-
arar að vera óháðir fram-
kvæmdavaldinu og dóms-
málaráðuneytið á ekki fram-
ar að hafa neina möguleika á
því að hafa áhrif á dómsnið-
urstöður í réttarhöldum.
Nú eru í fangelsum í
Tékkóslóvakíu um 80 fangar,
sem hlotið hafa dóm fyrir
pólitísk afbrot, þ.e. brot gegn
ríkinu .Á meðal þeirra eru
einnig njósnarar og stríðs-
glæpamenn. Þetta væri ekki
há tala og á síðustu mánuð-
um hefðu ekki farið fram
nein pólitísk réttarhöld í
Tékkóslóvakíu né neinar
handtökur af því tagi.
— Sameining
Framhald af bls. 1
því er hal'di*ð fraxn, að ef bank-
arnir þrír saniieinuðust yrðu þeir
fjórða stærsta banikafyrirtæki
heims og sameining þeixra mundi
sennilega leiða tiil þess að þeir.
tækju einnig við rekstri ann-
arra banka eins og Midland
Bank og National Westminster
Bank.
Lagalega séð getur stjórnin
ekki, strangt tekið, komið í veg
fyrir sameiningiu bankanna, en
heimildir frönsku fréttastofunn-
ar AP herma, að líklegt megi
telja að stjórnir bankanna
þriggja fari að vilja ríkisstjórn-
afinnar.
RITSTJORN • PRENTSMIÐJA
AFtíREIÐSLA*SKRIFSTOFA
sími io*ioa
JBVNANGSGVLTHDÖKKGRÆNT~GVLTOKKUR
LJÖMAGVLT
Jlííí***
VELJUM ÍSLENZKT <H> ÍSLENZKAN IÐNAÐ