Morgunblaðið - 03.09.1968, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.09.1968, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPT. 1968 0 Þegar Robert Kennedy var myrtur „Húsvíkingur" skrifar: „Kæri Velvakandi: Þrárt fyrir marglofað menntunarstig okkar íslendinga, erum við einatt fljótir á okkur að taka afstöðu í alþjóðamálum og látum þá ekki alltaf rökvísi ráða. Tökum eitt dæmi: Þegar Robert Kennedy var myrtur, blöskraði öllum hér sem vonlegt var. Margir voru látnir segja álit sitt í blöð- um, og þótti mér margt skrítið í fræðum þeim. Flestir sögðu eitthvað á þá leið, að þetta mætti ekki koma fyrir aftur, og spurðu síðan: Á hvaða leið er bandaríska þjóðin? Hvert stefna Bandarlkin, þetta forysturíki lýðræðisins í heiminum? Þetta má ekki koma fyrir aítur, o.s.frv. Svo virtist sem bandarískt lýðræði og tvö hundruð milljónir Bandarfkjamanna væru gerð samábyrg fyrir glæp, sem geðtruflaðtir Araba-innflytjandi fremur. Vitenlega er aldrei hægt að koma í veg fyrir rólitísk morð, fremur en önnur morð, nema þá 1 hreinræktuðu, þrautþjálfuðu og algeru lögregluríki. Meira að segja öllum venjul egum glæpum, smáum sem stórum, fækkar alltaí í lögregluríkjum og í réttu hlutfaJU við vald og hæfni rfkisaftirlits og lögreglu. Þvi meira frelsi, þeim mun auð- veldara fyrir truflað fólk að fremja ódæðis- verk. En ekki var annað að heyra á fólki, en að glæpaverk eins einasta manns ætti að vera dómur um bandarískt þjóðfélag, og sumir sögðu, að Bandaríkjamenn yrðu dæmdir eftir þvi, hvort þeir leyfðu, að slíkt og þvílíkt endurtæki sig“, eins og einn speikingurinn orðaði það. Fyrr má nú vera fávísin og fljótræðið! £ Alltaf má skamma Ameríkanana Svo sakar ekki að minna á, að pólitísk morð eru frá Evrópu komin, þar sem þau hafa a.ltaf verið að koma fyrir um allar aldir og voru beinlínis orðin „háþróuð" íyrii og eftir síðustu aldamót. Jæia, nú þegar ákveðið er i Chicago að vernda nýafstaðið flokksþing demókrata fyrir hugasnlegum tilræðismönnum (eink- um þar sem vitað var um marga flokka of- stækisrnanna, sem ætluðu að hrella þing- íulltrúa), þá er gargað upp, að hér sé um lögreglurfki að ræða og flokksþingið hafi verið haldið i lögregluríki. Hefði nú ein- hver vcrið myrtur, þá hefði lögreglan í Ohicago sjálfsagt verið húðskömmuð af Fvrópumönnum fyrir lélega aðgæzlu, og brátt hefðu komizt sögur á kreik um, að hún væri í vitorði með glæpamönnunum. Þessar gróusögur hefðu síðan verið marg- prentrðar í öllum bölðum og tímaritum, metsölubækur „fjallað um málið“, þangað til allir hefðu verið farnir að trúa því, að eitthveð væri gruggugt við lögregluna í Chicago. Sems&gt: Of lítii löggæzla er slæm, ef það ei í Bandaríkjunum. Of mikil löggæzla er Ifka Siæm, ef það er í Bandarikjunum. Það er um að gera að skamma Ameríkan ana al'taf! Húsvíkingur". § Norskur „jurtafrostlögur“ ráð við kali? M.agnús Hall Jónsson skrifar: „Ágæti Velvakandi. Eitt hefur orðið mér undrunarefni I um- ræðuir. manna um kalsvæðin hérlendis. Það er það að gengið hefur verið fram hjá nið- urstöðum rannsóknarstofnunar í Norður- Noregi A. S. Nordisk Landbrugsviden- skobsfersamling, sem komið hefur fram með mjög jákvæð úrlausnarefni á þessu sviði M.a. hefur hún haíið framleiðslu á á- burði tr netfndur er NLVF 4, og er mynd- aður rr.eð hliðsjón af lífrænum efnaeigin- leikum telluriums (formúla Te). Hann er borinn á tún 1 fljótandi ástandi og á haustf- in. Styrkir hann mjög rótarþol jurtarinnar gegn itulda og er því í gamni nefndur iurtafrcstlögur. Hefur þetta gefið af sér góða raun við líkar aðstæður og hér á landi. Ábu-ður þeesi verður að teljast ódýr og vel við. áðanlegur íslenzkri kaupgetu. Verl fræðingur einn hjá rannsóknarstofn- uninni, sem nú er staddur hérlendis, tjáði mér að NLVF 4 hetfði ótrúlega alhæfð áhrif á misriunandi jarðveg, og kvað hann loka- tilraunir, sem nú er lokið, sýna, að hanm er nálega óbrigðnll. Er nú hafin stóríram- leiðsla á áburðinum í verksmiðju nálægt Narvi’k. Fincst, mér rfk ástæða til, að búnaðar- ráðunaútar hérlendis hefji athuganir á því, hvernia NLVF 4 bregzt við íslenzkum að- stteðum, nú þegar í haust. Yrðu það eflaust árangursrfkari viðbrögð, heldur en hin af- raksturslitla og dýra tilraunastarfssemi kal ncfndar. Með þökk fyrir birtingu, Magnús Hall Jónsson". 0 Gamaldags kona í gervi nýtízku stúlku G. G Skrifar: „Kæri Velvakandi! Þú færð víst nóg af bréfum um útvarpið. Ekki vil ég ákamma það, því að marga kvöldstundina hefur það skemmt mér og frætt mig. Sumt kann ég þó ekki að meta, eins og þegar einhver fréttamaður þess íull yrðir að allur heimurinn sitji hjá og að- hafist ekkert, meðan verið sé að murka líf- ið úr íbúunum í Bjöfru. Þetta er ekki rétt, og ætti fróttamaður Rikisútvarpsins að vita betur Horneyglar eru oft frumlegir og skemmtilegir, en einkennilega völdu þeir 'ulltrú? ungra kvenna í þætti sínum um dag- inn, þvi að stúlkan var bæði barnaleg og gama’dags. Eiginlega var hún gamaldags kona í gervi módeme stúlku. Hún talaði um púritana, eins og hún hefði fyrst orðið til þess að skamma þá, og að það væri eitt- hvað , djarft" við það. Púritanar eru hér aldauða (sem betur fer) og bara flótti frá staðreyndum nútíma líls að eyða púðri á þá. En sumir halda, að þeir fái einhvern geirlat'aug frjálslyndis og viðsýni með því að ráðast á úreltar skoðanir þeirra. Púrit- anar hafa ekki verið nefndir á nafn síðan í fyrra stríði í öðrum löndum. Svo hélt stúlkan, að það væri eitthvað nýtt og fínt við það að vilja fá frjálsar ást- ir í kommúnum. Kommúnur með svo- kölluðu „frjálsu“ ástarlífi hafa verið settar á stofr. víða um heim allt frá dögum Forn- Grikkja (mest þó lfklega 1 Bandaríkjunum um m ðja síðustu öld), en alltaf hafa þær mislukkazt vegna mannlegs eðlis, sem konan heldur vist að hægt sé að breyta með sovézhum sósíalisma (annans eru Moskvu- kommar reyndar orðnir mestu púritanar 1 aðra röndina). Hún virtist halda, að af- brýðisemi og einhvens konar „eignarréttur1 í ásta’ífi væru gamlir draugar, sem hægt væri að kveða niður með valdboði. — Jæja, hún um það, blessunin. Ryenslulltil hlýtur hún að vera í þessum efnum, LSG. Þet.a Útópíu-evangelíum er og verður jafn-gamaldags og misíheppnað í fram- kvæir.d, þótt reynt sé að láta fólk halda, að ér sé um eittbivað NÝTT og spennandi að ræða Það þýðir ekki að villa á sér heimild- ir að þessu leyti. Hitt er svo annað mál, að konar. var svo pempíuleg í málrómi og orðavali, að enginn getur hafa villzt á henni og virkilegum nýtízkustúlkum. Með kveðju, B■ B“. 0 Leiðréttingar og afsökunar- beiðni Velv.ikandi verður að biðja leeendur sína afsökunar á þvi, hvemig frágangurinn var á dálkum hans sl. sunnudag. Þetta lúsaletur sem nú er notað i dálkunum, er svo smátt, að fó'k þarí að hafa góð augu eða sterk gleracgu til þess að nenna að brjótast fram úr þvl. Þess vegna er steemt, þegar það prentast þar að auki svo dauft og illa, að hpjla og hálfa stafi vantar, en þannig er prentunin á þeim eintökum, sem Velvak- andi hefur séð. Þá hefur niðurröðun dálk- anna snarsnúizt í umbroti, svo að allt verður að óskiljanlegri þvælu, nema hjá þeim, sem hafa gaman af að leysa þrautir og haf” tíma til þess. Fyrsti dálkurinn átti að hafa fyrirsögnina „Þáttur íslendinga 1 Atlant:hafsfluginu“, annar „Lág fargjöld", sá þrtðji „Leirburðurinn samboðinn yrkis- efninu" hinn fjórði „Fróðlegur útvarpsþátt- ur um Hitlesræskuna', og sá fimmti „Hinn ferskt andi“. Þá hetfur dottið aftan af a.m.k. einni setningu, en heil á hún að hljóða þannig (þar sem rætt er um Þjóðviljayrk- ingar einhverrar Unnar Eiirksdóttur) : , Þkð vill til, að samsetningur konunnar er svo lélegur og leirborinn, frá hvaða sjónaihóli sem hann er skoðaður, að hann er gleymdur um leið og hann er lesinn". Kommur og punkta vantar mjög víða, og mikið cr um prentvillur (svo sem „áfanga- stað“ íyrir „áfangastaðar". „Ulbright" fyrir Ulbripht, „ímyndaðir" fyrir „ímyndaðri", „georntokrasí" fyrir „geronitokrasl, „aldurs hnigr.am fyrir „aldurhnignum" o.s.frv. Leser.dur eru beðnir afsökunar á þessum mistÖKum. Simi 22-0-22 Rauðarárstig 31 ««* 1-44-44 mum Hverfisgötu 103, Simi eftir lokun 31160. BÍLALEIGAN AKBRAIiT SENDUM SÍIVfl 82347 BÍLALEIGAIM - VAKUK - Sundiaugavegi 12. Simi 35135. Eftir lokun 34936 o[ 36217. Atvinna Stúlka óskast til skrifstofu starfa. Tilb. er greini aldiur, menntun og f. störf til Mbl. fyrir næsta fimmtud.kv. m.: „Atvinna 2317“. Svefnbekkir Divanar, verð fcr. 2200. Svefnbeggir, verð kr. 4200. Svefnstólar, verð kr. 5400. Greiðsluskilmálar. - Nýja Bólsturg. Lv. 137, s. 16541. Keflavík - Suðurnes Vorum að ta*ka upp ódýr terylenekjólefni. Það gæti borgað sig að kaupa í kjól- inn strax í dag. Verzl. Sigríðar Skúladóttur símj 2061. H afnarfjörður Til sölu góð hæð, laus til íbúðar nú þegar. Hæðinni fylgir óinnréttað ris og bílskúr. Hagkvæmir greiðslu- skilmálar. ÁRNI GRÉTAR FINNSSON, HRL., Sími 51500. Kjötaigreiðslumaður óskast Vanur kjötafgreiðslumaður óskast nú þegar. Verzlun ÓLA ÞÓR Háteigsvegi 20. Sími 16817. Slúlkur óskast til afgreiðslustarfa í verzl. Þverholt í Mosfellssveit. Upplýsingar í verzluninni og síma 66144. Sníðanúmskeið Kennsla hefs 5. september. 5 daga námskeið. Kenndar nýjustu aðferðir frá Stockholms Tilskárar- Akademi. Hentugt fyrir þær sem áður hafa lært sama kerfi, að rifja upp og fá nýjustu breytingar. Nánari upplýsingar í sima 19178. Sigrtin Á. Sigurðardóttir, Drápuhlíð 48, 2. hæð. LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 11—13. Hagstaett leigugjald. Sími 14970 Eftir lokun 14970 effa 8174«. Sigurður Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.