Morgunblaðið - 03.09.1968, Page 26

Morgunblaðið - 03.09.1968, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPT. 1968 Keflvíkingar Hauka 7:1 Leikurinn gott dæmi um muninn á 7. og 2. deild IBK og Haukar kepptu í gær- kveldi um það hvort félagið skyldi leika í 1. deild næsta ár. Leikurinn fór fram á flughál- um og blautum vellinum í Laug- ardal og varð góð sönnun þess að gott er að vera vanur slíkum aðstæðum. Keflvíkingarnir van- ir að leika á grasi en Haukar óvanir og sumir hverjir ekki einu sinni á grasskóm. Árangur varð heldur ekki lengi að sýna sig, því eftir níu mín. leik byrjuðu mörkin að rigna yfir Haukana. Falleg mörk gerð af leikmönnum, sem ekki hafa get að skorað í allt sumar. Alls urðu mörkin 5 í fyrri hálfleik, án þess að Haukar fengju tækifæri til að skora hjá ÍBK, enda leik- menn Hauka þó sérstaklega aft- asta vörnin (að undanteknum markmanninum) eins og „belj- ur á svelli“ og því Keflvíking- arnir lítt hindraðir í að gera það sem þeim sýndist. Leikur- inn jafnaðist nokkuð í síðari hálfleik og lauk með sigri ÍBK 7:1. Einstefna. Það voru aðeins tvær mín. liðnar af leik, þegar sjá mátti að Keflvíkingar myndu verða ákveðnir og marksæknir, þótt Einari Gunnarssyni tækist ekki að skora í það sinn og skaut beint á markmann Hauka af stuttu færi. Á 6. mín. kom ann- að tækifæri ÍBK, en Jón Ólaf- ux skoraði 1:0 á 9. mín., mjög laglega úr góðri sendingu frá Einari Gunnarssyni. Á 16. mín. varð staðan 2:0 fyrir ÍBK, er Vilhjálmur Ketilsson sendi fasta spyrnu í mark Hauka eftir send ingu frá Jóni Ólafi. Nokkru seinna er Jón Ólafur enn að verki. Fékk knöttinn um 30 metra frá marki Haukanna. Lék óhindraður nokkra metra og sendi síðan þrumuskot að markinu, sem Stetfán Jónsson átti litla sem enga möguleika á að verja Staðan 3:0 fyrir ÍBK og 21 mín. af leik. Einar Magnússon skoraði 4. mark ÍBK með fastri og snöggri jarðarspyrnu, er 35 mín. voru af leik. Og rétt eftir að leikur- inn er hafinn að nýju er allt galopið fyrir Jón Ólaf að hlaupa upp og skora 5:0, og tók Jón tækifærið með þökkum. Sdðuistu mínúturnar í síðari hálfleik hristu Haukar aðeins slenið af sér, en tókst ekki að skora. Síðari hálfleikur 2:1. Haukar náðu sér á strik í síð- ari hálfleik og jafnaðist leikur- inn mjög, þótt þeim tækist ekki að skora nema einu sinni er þeir breyttu 6:0 í 6:1. Mark Hauka skoraði Magnús Jónsson með fastri og nákvæmri spyrnu, setn lenti í hægra horni ÍBK marks- ins. Sjötta mark ÍBK skoraði Vil hjálmur Ketilsson, er hann hugð ist gefa fyrir markið, en mark- manni Hauka varð á að slá knöttinn inn í sitt eigið mark, en hann hugðist slá frá markinu. — Sjöunda mark ÍBK skoraði Grét ar Magnússon með óverjandi skallabolta, eftir að Vilhjálmur hafði tekið horn, er 85 mín. voru af leik Og þannig endaði leik- urinn að ÍBK skoraði 7 mörk gegn 1 marki Hauka. Gott dæmi. Leikurinn í gærkveldi var fyrst og fremst gott dæmi um muninn á 2. og 1. deild. Flest félögin í 2. deild eru algerlega óvön að leika á grasi og hefur það ekki svo lítið að segja, að ekki sé talað um er leikið er á blautum velli. — Þó má segja Haukunum það til hróss að þeir misstu aldrei kjarkinn, en vörn þeirra var eins og opnar dyr, og því auðveld leið fyrir framlínu ÍBK að marki þeirra. Beztu gersigra menn Hauka í þessum leik voru Steingrímur Hálfdánarson v. út- herji og Magnús Jónsson, inn- herji. En í Keflavíkurliðinu voru beztir Jón Ólafur og Grétar Magnússon sem sá um marka- kóng Haukanna Jóhann Larsen og gerði hann algerlega óvirk- an. Vilhjálmur Ketilsson, h. úth. sýndi í fyrri hálfleik að hann getur verið mjög efnilegur leik- maður, en í síðari hálfleik kom glöggt í Ijós hvað hann þarf að laga til þess að verða góður knattspyrnumaður. Er vonandi að hann fari að átta sig á hlut- unum. Keflvíkingar halda því sæti sínu í 1. deild og sýndu ótvírætt í gær að þeir eiga það skilið. Á. Á. Einar Guðnason t.v. og Þorbj örn Kjærbo með sigurlaunin. Þorbjörn Kjœrbo vann F.í. bikar C.R. í golti — eftir spennandi keppni við Einar G uðnason Á SUNNUDAGINN fór fram hin árlega Flugfélagskeppni golf meistara hjá Golfklúbbi Reykja vikur. Til leiks mættu 8 meist- arar frá þremur klúbbum, en Ak ureyringar og Vestmannaeying- ar komust ekki til leiks. Keppnin varð hörkuspennandi og tvísýn en lyktaði með sigri Þorbjörns Kjærbo af Suðurnesj- um, sem tryggði sigurinn sinn með glæsilegum endaspretti á síðustu 5 holunum. Er 18 holur höfðu verið leikn ar fyrri dag keppninnar var Haf steinn Þorgeirsson frá Keili með 81 högg en næstir og jafnir Þor björn Kjærbo og Einar Guðna- son með 83 högg og síðan Ótt- ar Yngvason GR með 85 högg. Síðari daginn mistókst margt 'hjá Hafsteini og aðalkeppnin var milli Þorbjörns Kjærbo og Ein- ars Guðnasonar. Er 5 holur voru eiftir hafði Einar 2ja högga fbr- skot. En þá tók Kjærbo sinn glæsilega lokasprett, vann upp forskotið og 2 höggum betur. Lék 'hann síðari hringinn á 78 högg- um sem er mjög gott og náði því samanlagt 161 höggi. Næstur kom Einar Guðanson sem lék síðari 18 holurnar á 80 höggum og hafði samtals 163 högg og aíð an Óttar með 167 högg saman- lagt. Keppnin varð því mjög skemmtileg og spennandi til síð ustu holu. Verðlaun voru veitt í lok keppninnar. Arsenal efst á blaði Lundúnaliðunum hefur geng- ið mjög vel í byrjun ÞAÐ er sérstaklega áberandi hvað Lundúnaliðin ensku spjara Skagamenn sigruðu í 2. deild Ingvar Pálsson, v.form. KSÍ afhenti bikarinn EFTIR leifc Hauka og ÍBK í gær kveldi var úr því skorið hver væri sigurvegari í 2. deild og BEIMFICA VALUR Forsala aðgöngumiða úti á landi er hafin. Miðapant- anir hjá eftirtöldum aðilum: Akranesi: Helgi Daníelsson. — Grafamesi: Jónas Gestsson. — ísafirði: Ólafur Þórðarson. — Sauðárkróki: Álfur Ketilsson. — Siglufirði: Július Júlíusson. — Akureyri: Hreinn Óskarsson. — Húsavík: Vlhjálmur Pálsson. — Eskifirði: Grétar Sveinsson. — Vest- mannaeyjum: Kristmann Karlsson. — Selfossi: Björn Gíslason. — Keflavík: Hafsteinn Guðmundsson. Miðapantanir og greiðslur þurfa að hafa borizt fram- angreindum aðilum fyrir 10. sept. n.k. VALUK. Flugfélag fslands gefur afslátt á flugferðum vegna leiks þessa. — Ak. — Rvík — Ak., kr. 1370. — ísafj. — Rvík. — ísafj., kr. 1270. Vestm. — Rvík — Vestm. 825.— Miðinn gildir aðeins í 24 tíma og lágmarks- tala farþega 10. féll sá heiður í hlut Skagamanna sem eftir leiki hinna þriggja að- ila höfðu náð 3 stigum, en Hauk ar hlotið 1 stig. Skagamenn voru mættir á vellinum í gærkveldi og afhenti formaður KSÍ Ingvar Fálsson þeim 2. deildar bikarinn við látlausa en smekklega at- höfn. Leikmenn Hauka og ÍBK tóku sér stöðu hvorir gegn öðr- Víkingar nnnn ÍBÍ — ogsitjn óírnm í 2. deiíd URSLITALEIKURTNN um það hvaða lið fellur úr 2. deild í 3. deild í ár, fór fram á ísafirði á laugardaginn. Rok var og rign- ing og hiti tvö stig, svo aðstæð- ur voru ekki upp á marga fiska, enda leikurinn nokkuð eftir því. Víkingur vann nú lið íþrótta- bandalags ísafjarðar, en áður höfðu liðin skilið jöfn í fram- lengdum leik í Reykjavík. Loka- tölur urðu 3-0 og hafa Víkingar því áfram rétt til setu í 2. deild — þó mjóu munaði um og er Skagamenn gengu á milli þeirra klöppuðu leikmenn irnir þeim lof í lófa. Ingvar Pála son bauð síðan Skagamenn vel- komna í 1. deild með stuttri en snjallri ræðu en við bikarnum tók fyrirliði Akurnesinga Björn Lárusson. í ræðu sinni minntist Ingvar á fyrri frægð Skaga- manna og sagðist vona fyrir hönd KSÍ, að þeim tækist að ná gengi sínu aftur og dragá áhorf- endur að knattspyrnukappleikj- unum í svipaðri mynd og áður var. Úrslitin nólgost í bikorkeppni KSÍ ÞRÓTTUR og Breiðablik í Kópa vogi mættust í bikarkeppni KSÍ á sunnudaginn á Melavell- inum. Þróttur vann 2-0 og þar með er Breiðablik úr keppninni. Næstu leikir bikarkeppninnar verða um næstu helgi en þá leika Víkingar gegn Þrótti og lið Akranes leikur við B-lið KR. Þau lið er þá vinna komast í lokakeppnina ásamt með 1. deild arliðunum. sig í ár. Enn er Arsenal efst í 1. deild og West Ham skammt und an. í annarri deild er það Charl- ton, Millwall og Crystal Palace. Arsenal sigruðu nágranna Queens Park Rangers með tveim ur mörkum gegn einu, og ýttu þeim niður í neðsta sætið. QPR missti enn einn leikmann út af slasaðan. Það var Mick Leach. Sjúkralistinn hjá félaginu er nú orðinn ískyggilegur. Martin Peters átti glæsilegan leik fyrir West Ham. Jafnframt því sem hann bjargaði mörkum, og skapaði mörk, þá skoraði hann sjálfur 3 mörk í þessum leik. Redknapp skoraði það fjórða. í Teiknum í Sheffield milli Wednes day og Manchester Unitecí voru skoruð 9 mörk, þar af 7 í fyrri hálfleik og í leikhiléi var staðan 4-3 fyrir Manchester og Denis Law hafði skorað 2, en Best og Charlton hin. Fyorir Wednesday skoruðu Whitham 2, Ritchie, Mobley og Nobby Stiles skoraði sigurmarkið fyrir Sheff. Wednes day og innsiglaði þar með tapið fyrir lið sitt! Mick Jones skoraði eina mark Leeds í leiknum gegn Liverpool, sem tapaði nú öðru sinni í keppninni. Úrslit sl. laugardag: 1. deild: Arsenal — Q.P.R. 2-1 Burnley — Coventry 1-1 Chelsea — Tottenham 2-2 Everton — Nottm. Forest 2-1 Leeds Utd. — Liveirpooi 1-0 Leicester — Southampton 3-1 Manehester C. — Ipswich 1-1 Sheff. Wedn. — Manchester 5-4 Sundarland — Newcastle 1-1 West Ham — West Brom. 4-0 Wolverhampton — Stoke C. 1-1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.