Morgunblaðið - 03.09.1968, Side 28
ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1968
Heyskaparhorfur á Suðurlandi slœmar:
Ofsalegt vatnsveöur
eftir skamma hurrka
HEYSKAPARHORFUR bænda á
Suðurlandi hafa breyzt mjög til
bins verra nú síðustu vikurnar.
Emkum gerði vatnsveðrið mikla
um fyrri helgi strik í rei'kning-
inn, þvi þurrkar höfðu verið svo
Skammvinnir áður að rétt tókst
að ná heyjum upp í galta og áttu
flestir mikið af heyi sínu þannig.
Fór það mjög illa í vatnsveðrinu,
Nýtt kaupfélag
opnar á
Raufarhöfn
RAUFARHÖFN, 2. sept. Sl. föstu
dag opnaði Kaupfélag Norður-
Þingeyinga á Kópaskeri matvöru
verzlun hér á Raufarhöfn í verzl
unarhúsi Kaupfélags Raufarhafn
ar, þar sem það hefur hætt
rekstri sínum í það minnsta fyrst
um sinn.
Verzlunarstjóri verður Gunn-
ar Skúlasan, Reykjavík.
Síldarbáturimn Sóley IS 260
kam hingað í dag ag lagði upp
hjá söltunarstöðinni Óðinn hf.
213 fullsaltaðar tunnur af góðri
og vel með farinni síld. — Ólafur
auk þess sem sumir eiga enn flatt
hey. Svo að nú er nauðsynlegt
að fá nokkuð langan þurrkakafla
til að bjarga heyjum í hlöðu. Þau
eru nú þegar illa farin. Austur
við Hornafjörð ag í Mosfellssveit
er ástandið þó ágætt. Mbl. átti
tal við fréttaritara sína ag bænd-
ur á ýmsumn stöðum á Suður-
landi.
Skammvinnir þurrkar.
Gunnar í Seljatungu sagði, að
heyskapur gangi enn mjög illa í
Árnessýslu. Þurrkar hafa verið
ótryggir mieð afbrigðum og stað-
ið stutt. Bændur eiga því mikið
í göltuim. Um fyrri helgi gerði
feikilegt vatnsveður og þarf hey-
ið í gööltunum því mikinn þurrk
nú, til að hægt sé að hirða það.
Nokkurt hey var komið í hlöður
hjá bændum, en mikið er úti.
Eftir miðjan júní spratt mjög ört
og hefði heyfengur því getað orð
ið góður. En þá fék'kst enginn
þurrkur, svo ekikert fór að nást
upp fyrr en í ágúst. — Við erum
ákaflega þreyttir á þessum stuttu
þurrkum, sagði Gunnar, og fyrr-
nefnt óveður kom sér mjög illa.
Fáum við ekki verulegan þurrk
núna, þá horfir reglulega illa um
FVh á bls. 27
Hjólaútbúnaður flug-
Sjálfstæðisflokkurinn
kaupir Galtafell
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
fest kaup á húseigninni nr. 46
við Laufásveg, Galtafelli. Er
hugmyndin, að allar skrif-
stofur fiokksins flytji í þetta
húsnæði, er það hefur verið
lagfært og endurbætl.
Hins vegar verður Valhöll
félagsheimili Sjálfstæðisfélag
anna í Reykjavík, þar sem
fundir, samkomur og aðrar
minniháttar rá'ðstefnur verða
haldnar, en til stærri fundar-
halaa mun flokkurinn taka á
leigu húsnæði eftir því sem
þörf er á hverju sinni.
Stéttarsambandið hótar
sölustö&vun búvara
vélarinnar bilaði
ÆFING varð að raunveruleika
þegar Sigurjón Einarsson, hjá
Flugmálastjóminni, var á æfinga
flugi í gær með mann sem var
að endumýja skírteini sitt. Þeir
vora í Beechraft Bonanza,
tveggja hreyfla vél Flugmáia-
stjómarinnar. Einn iiður í þjálf-
un flugmanna er að kenna þeim
hvemig á að bregðast við ef
hjólaútbúnaðurinn bilar eitthvað
og það var einmitt það sem gerð-
ist í gær.
Rétt eftir flugtak tók Sigurjón
eftir því að hjólin voru ekki
komin upp. Þau fóru ekki nema
hálfa leið, festust þar og varð
ekki hnikað. í flugvélinni er ör-
yggiskerfi, nokkurskonar hand-
pumpa, sem nota skal í slíkum
tilfellum og með henni tókst að
korna þeim niður.
Sigurjón flaug lágflug yfir
Reykjavíkurflugvöll og töldu
fflugviirkjar þar að hjólin hefðu
læstzt niðri og óhætt væri að
lenda. Sem betur fór höfðu þeir
á réttu að standa og vélin lenti
eðlilega.
— og setur sitt eigið verð fyrir 25.
september, verði viðunnandi verð
ekki komið fyrir þann tíma
fá vöruúttekt hjá kaupfélögun-
AÐALFUNDUR Stéttarsambands
bænda var haldinn að Skógum
undir Eyjafjöllum og lauk á
sunnudagskvöldið. Umræðuefni
fundarins var einkum ákvörðun
yfimefndar frá því í desember
síðastliðnum, er nefndin úrskurð
aði að verð til bænda skyldi
verða óbreytt. Þá var einnig
rætt um erfiðleika þá er steðja
að landbúnaðinum, þrátt fyrir
að rætzt hafi úr sprettu. Á fund
inum kom fram að í nokkrum
héruðum eru bændur orðnir svo
skuldugir að þeir eru hættir að
Yfirtýsing kommúnista í útvarpinu:
Mótmæla ekki frelsis-
sviptingu Tékkóslóvakíu
— heldur árás á sósialismann
Kommúnistar hafa nú
lýst því yfir, að þeir hafi
ekki gagnrýnt innrásina í
Tékkóslóvakíu vegna þess,
að þar hafi fullveldi smá-
þjóðar verið fótum troðið
og almenn mannréttindi
tröðkuð í svaðið heldur
vegna hins, að „Sovétríkin
voru að ráðast gegn sósíal-
ismanum" eiils og einn
talsmaður þeirra komst að
orði í útvarpsþætti Árna
Gunnarssonar, Daglegt líf,
sl. laugardagskvöld.
Þessi yfirlýsing sýnir glögg
lega hina raunverulegu af-
stöðu kommúnista til atburð-
anna í Tékkóslóvakíu. Árni
Gunnarsson varpaði fram
þeirri spurningu í fyrrnefnd-
um útvarpsþætti hvers vegna
Alþýðubandalagið og Æsku-
lýðsfylkingin hafi brugðið svo
skjótt vi‘ð að mótmæla inn-
rásinni í Tékkóslóvakíu. Jó-
hann Páll Árnason (lærður í
marxistískum fræðum á Ítalíu
og hefur dvalizt langdvölum
í Tékkóslóvakíu) svaraði og
Frh. á bls. 20.
Aðalfundurinn samþykkti vít-
ur á niðurstöðu er varð á verð-
lagningu landbúnaðarafurða
1967. Taldi fundurinn óhjákvæmi
legt að stjóm Stéttarsambands-
ins setti til bráðabirgða verð á
framleiðsluvörur bænda, verði
grundvöllur verðlagsins ekki
ákveðinn fyrir 25. september.
Verði niðurstaða verðlagningar-
innar hins vegar sú, að enn vant
ar á það verð er stjóm Stéttar-
sambandsins telur viðunandi,
skal hún leita heimildar til að
gera sölustöðvun. I atkvæða-
greiðslu um sölustöðvunina
féllu atkvæði þannig að 31 var
með, 4 á móti, en 9 greiddu
ekki atkvæði eða vom fjarver-
andi.
Á sunnudag ávarpaði Ingólfur
Jónsson, landbúnaðarráðherra
fundinn Ræddi hann um hina
almennu erfiðleika, sem steðja
að þjóðarbúinu og sagði að að-
gerðir ríkisins myndu að sjiálf-
sögðu mótast af þeim. Harðær-
isnefndin hefði fengið það verk-
efni að kanna afkomu bænda og
á grundvelli niðurstaða hennar
yrðu gerðar ráðstafanir til að-
stoðar bændum. Vandamál
bænda yrðu tekin til afgreiðshi
samhliða öðrum vandamálum,
sem að þjóðarbúinu steðjuðu.
Allmargar tillögur voru sam-
þykktar á aðalfundinum. M.a.
samlþykkti fundurinn að kjósa
fjóra menn einn úr hverjum
landsfjórðungi til þess að gera
ásamt Stéttarsambandinu breyt-
ingartillögur um framleiðsluráðs
lögin, þar sem einkum verði lögð
álherzla á, að bændum verði
tryggð sambærileg laun og öðr-
um stéttum, að sexmannanefnd-
in verði lögð niður, en bænda-
stjórnin fái síðan samningsað-
stöðu við ríkisstjórnina um verð
lagið, framleiðsluaðstöðu og kjör
stéttarinnar og að sett verði á-
kvæði í lögin, er tryggi mögu-
leika til að hafa stjóm og skipu-
lag á framleiðslu búvöru þannig,
að of mikið framboð vöru valdi
ekki bændastéttinni beinu fjár-
hagstjóni.
Nánar verður sagt frá fundin-
um í blaðinu á morgiun.
Viðræður stjórnmála-
flokkanna hefjast í dag
VIÐRÆÐUR fulltrúa stjórnmála-
flokkanna um horfuT í efnahags-
málum og nauðsynleg úrræðd
hefjast i dag kl. 2. Af hálfu Sjálf
stæðisflokksins taka þátt í við-
ræðunum Bjarni Benediktsson,
forsætisráðherra og Jóhann Haf-
steiin, dómsmálaráðherra. Af
hál.fu Alþýðuflokksins þeir Gylfi
Þ. Gíslason, menntamálaráðherra
og Eggert G. Þorsteinsson, sjávar
útvegsmálaráðherra. Fyrir hönd
Framsóknarflokiksins taka þátit í
viðræðunum Ólafur Jóhannesson
og Eysteinn Jónsson. Mbl. tókst
ekki að fá upplýsingar uim full-
trúa Alþýðubandalagsine, en í
gærkvöldi stóð fuindiur fram-
kvæmdastjórnar þess, þar sean
ákvörðun skyldi tekin um þá.