Morgunblaðið - 21.09.1968, Síða 21

Morgunblaðið - 21.09.1968, Síða 21
MORGUNBLAÐEÐ, LAUGARDAGUR 21. SEPT. 1968. 21 Á vegum kvenfélag-sins Hrings. ins var haldið námskeið í list- munagerð og dvaldi Sigrún Jónsdóttir úr Reykjavík hér í 20 daga og kenndi listmuna- gerð og fleira. Þá var sýning á munum þeim, sem unnir voru á þessu námskeiði, og voru þeir bæði margir og margvíslegir. Þar voru bæði dúkar málaðir, leir og tré og ýmislegt annað. A þessari sýningu var einnig tízkusýning og sýndur klæðnað- ur Cbatik). Námskeið þetta sóttu um 40 konur og voru þær mjög ánægðar með árangurinn. Konurnar á námskeiðinu og f jöl- skyldur þeirra fóru svo í skemmtiferð með m.b. Gullþóri. Var farið fyrst út í Bíldsey og lagzt þar við klettana, klifrað þar upp og gengið til bæjar þar sem konurnar útbjuggu ágætis veitingar. Var þessi ferð öll hin ánægjulegasta, farið í leiki og eyjan skoðuð og ýmislegt gert sér til skemmtunar. Síðan siglt inn um eyjar að Klakkeyjum og Hrappsey og síðan heim. Veð ur var hið ákjósanlegasta. Fréttaritari. Með elztu húsum í Stykkishólmi er svonefnt „Kúldshús". Það var upphaflega byggt í Flatey en síðan flutt og reist á ÞingvöII- um í Helgafellssveit, en seinast reist í Stykkishólmi úti á Höfða þar sem það stendur enn í dag. Húsið er kennt við séra Eirík Kúld, sem var lengi prestur í Helgafellsprestakalli og bjó í Stykkishólmi. Hann var og prófastur Snæfellinga um skeið. Þetta hús er nú 100 ára á þessu ári. Það á sér langa og að mörgu leyti merka sögu og margir hafa þar á liðnum árum átt ánægju- ríkar stundir. Séra Ami Þórarinsson minnist margs þar í sinni ágætu ævisögu. Þessi mynd er af sjúkrahúsinu í Stykkishólmi. Þar hefir farið fram gagngert endurbót og viðbygging og fást nú um 20 sjúkra- rúm í viðbót. Auk þess eru þar nú tvær lækningastofur og vist- legt biðherbergi. Þá hefir farið fram gagnger breyting á eld- húsi og því sem tilheyrir, og eru það mikil viðbrigði. Tjarnarbúð — Festival TrÍX DANSADTIL FLOWERS KLIiKKAN 2 Soul — Opus 4 — Fjör á öfllum hæðum F O FLOWERS E R S Körfuknattleiksfélag Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.