Morgunblaðið - 11.10.1968, Qupperneq 23
MORGU'NBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1968
23
Með birgðaflufningaflugvél til Biafra
Vonbrigði lýstu sér í andlitum Biafra-
manna þegar flugvélin var ekki með vopn
Þorsteinn E. Jónsson skrifar:
S. Tomé, fimmtud. 3. okt.
Ég kom tii þessarar fallegu,
litlu eyju, skammt undan Ní-
geríuströnd, í fyrradag me8
það fyrir augum að taka þátt
í flugi með matvæli og lyf til
Biafra. Boeing 707-þotan, sem
ég kom með, flutti hingað 33
lestir af þessum varningi, en
ennfremur koma hingað fleiri
þúsund lestir með skipum.
Hér á eyjunni eru 5 flugvélar
af gerðinni DC-7 og á hver
þeirra að fljúga tvær ferðir á
nóttu til Biafra með 10 lestir
í ferð. Ég hafði haft af því
fregnir, að hingað vantaði
flugmenn, og því sló ég til um
leið og samningur minn hjá
hollenska flugfélaginu, sem ég
vann hjá í sumar, rann út.
bundið að koma honum hing-
að. Önnur vél er me'ð brot-
inn vængbrodd eftir að ekið
var utan í hana, en vonir
standa til að varahlutir komi
á næstunni og hægt verði að
gera við hana. Eftirlitið með
þessum flugvélum er vægast
sagt mjög lélegt, a.m.k. eins
og stendur, og langt fyrir neð-
að það, sem mundi viðgangast
hjá jafnvel lélegustu flugfé-
lögum, enda verður þessi út-
gerð að teljast algjörlega ólög
leg, hvar setn er í heiminum.
Má nefna sem dæmi, áð engin
vélanna er með gildandi loft-
hæfnisskírteini, og ekki er
verið að spyrja áhafnirnar,
hvort mennimir hafi gildandi
skírteini fyrir þessa flugvéla
gerð, heldur bara hvort þeir
Greinarhöfundur í eldhúsi flut ningavélarinnar.
Hér á S. Tomé eru þrír
aðilar, sem standa fyrir þess-
um flutninigum til Biafra.
Eiga Caritas (kaþólska kirkj-
an) og World Church Council
(mótmælendasambandið) sam
eiginlega fjórar DC-7 flugvél-
ar, en Norchurchaid (skandí-
navíska kirkjusambandið) er
með eina vél á leigu frá Trans
air Sweden. Því miður er á-
stand flugvéla Caritas og W.
C.C.-samsteypunnar heldur
bágborið. Ein þeirra er með
brotinn hreyfil og ,þó vara-
hreyfill sé til í Lissabon, virð
ist það miklum erfiðleikum
treysti sér til að fljúga vél-
unum. Auðvitað eru bæði vél-
arnar og áhafnirnar algjör-
lega ótryggðar, en kaupið er
óneitanlega mjög gott.
Eingöngu er flogið að nóttu
til, og leggur fyrsta flugvélin
af stað skömmu fyrir rökkur,
svo að komið verði áð Nígeríu
strönd í myrkri. Flugið til
flugvallarins í Biafra, sem
gengur undir nafninu Anna-
bella, tekur venjulega eina
klukkustund og fjörutíu mín-
útur, og er flogið í 35 mínút-
ur yfir yfirráðasvæði Nígeríu
manna. „Flugvöllurinn“ er
breikkaður þjóðvegarkafli í
gegnum frumskóginn og er
hann 2590 metrar að lengd.
Lítil útskot eru til beggja
enda flugbrautarinnar, þar
sem flugvélarnar standa með-
an verið er að ferma þær.
Annabella er nú um 14 mílur
frá víglínunni, en Nígeríuher-
menn hafa komizt næst í 6
mílna fjarlægð.
Vegna þess hversu bágbor-
inn flugvélakosturinn var á S.
Tomé, leit ekki út fyrir að ég
kæmist að sem flugmáður, a.
m.k. á næstunni. Sótti ég þá
um og fékk leyfi til að fara
eina ferð til Annabella sem
aukaáhafnarmaður. Brottför
héðan var kl. 5 e.h. og þó að
sól væri enn á lofti mundi
vera orðið dimmt, þegar við
kæmum að Nígeríuströnd, því
að hér rétt við miðbaug dimm
ir mjög fljótt eftir að sólin er
sezt. Flugstjórinn í þessari
ferð var Bandarikjamaður,
gó'ðkunningi minn frá Amster
dam í sumar, þar sem hann
fíaug sem aðstoðarflugmaður
hjá sama félagi og ég. Aðstoð
arflugmaðurinn var norskur
en vélamaðurinn frá ísrael.
Farmurinn var að mestu leyti
þurrmjólk í sekkjum á stærð
við sementspoka og framleidd
í írlandi. Var farmurinn lát-
inn liggja algerlega óbundinn
í flugvélinni, sem þætti heldur
losaralegur frágangur undir
venjulegum kringumstæðum,
en hér er áherzla lögð á að
affermingin gangi sem greið-
ast fyrjx sig og minna hugsað
um öryggið.
Flogfð var í 16 þús. fetum
og það byrjaði að rökkva
þegar við vorum hálfnaðir til
lands. Eins og venjulega á
þessum slóðum var sólsetrið
stórkostleg sjón, en aftur á
móti var okkur ekki eins vel
við gríðarmikið þrumuský
yfir ströndinni, sem trónaði
upp úr öllu valdi. Sem betur
fór voru þau næstum sjálf-
lýsandi vegna eldinganna inn
Stórar þotur flytja matvæli til hjálparstofnanna á S Tomé.
an í þeim, auk þess sem að
það var tunglsljós, svo að við
gátum slagað á milli þeirra,
sem var eins gott, því að ó-
neitanlega hefði það verið ó-
þægilegt að lenda í mikilli
ókyrrð með farminn svo
óreirðan. Og auðvitað var rat
sjáin í flugvélinni bilu'ð.“
Rétt út af ströndinni eru
oft fallbyssubátar Nígeríu-
manna, sem skjóta á flugvél-
amar, en ekki er skothæfni
þeirra talin svo góð að menn
hafi almennt áhyggjur af
þeim. 1 þetta skipti urðum
við ekki varir við neina skot
hríð, og skömmu seinna vor-
um við komnir í talsamband
við flugumferðarstjórann í
Annabella. Fengum við veð-
urlýsingu og reyndist veðrið
hið bezta. Einnig náðum vfð
Framhald á bls. 24
Húseignin Klapparstígur 42
er til sölu. í húsinu eru tvær íbúðir,
2ja og 3ja herb.
Húsið stendur á eignarlóð.
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17
símar 24645 og 16870.
FAY salernispappír
extra mjúkur og sterkur
Fœst í mörgum litum