Morgunblaðið - 12.10.1968, Síða 4
4
MORGÚNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12, OKTÓBER 1968
BÍLALEIGAIM
- VAKUR -
Sundlaucavcei 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 oe 36217.
Sími 22-0-22
Rauðarárstíg 31
!iM'1-44-44
mUHBIR
Hverfiscötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
{VIAGIMIJISAR
mcipkou»21 s»mar21190
eftir(okuo - 40381
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaffastræti 11—13.
Hagstætt leifucjald.
Sími 14970
Eftir lokun 14970 effa 81748.
Sigurffur Jónsson.
K1 lf ll.’li'l
Bílar of öllum gerðum til sýnis
og sölu í glæsilegum sýningor-
skála okkar að Suður*landsbraut
2 (við Húllarmúla).
Gerið góð bílakaúp — Hogstæð
gretðslukjör — Bílaskipti —
Fard fairlane 65.
Gloria 67.
Bronco 66.
Scout 67.
Cortina 68.
Volvo P 544, 64.
Opel Cadett 63.
Volkswagen 64.
Taunus 12 M 63.
Benz 190, 62.
Benz 220 S, 60.
Reno R 8 63.
Austin Gipsy 63.
Falcon 60.
Opiff til kl. 4 í dag
Tokum yel með farna btla í
umboðssólu — Innanhúss eða
* utan —r MEST URVAL
1 MEjjiR MÖGULEIKAR
B M 8 0 fi 18
U KRÍSTJÁNSSON H f
SUÐURLANDSBRAUT 2, VIÐ
.HALLARMÚLA
SÍMAR 35300 (35301 - 35302)
FÉLAGSIÍF
Framarar!
Nú vantar alla sem vetlinga
geta valdið í sjálfboðavinnu á
nýja svæðinu við Safamýri í
dag (laugardag) kl. 13,30 —
Fjölmennið. — Stjórnin.
0 „Hann hefur etið
úldið folald.“
Gamall, íþróttamaður ritar bréf
og segir:
„Kæri Velvakandi.
„„Hann hefur etið úldið folald"
sagði maður nokkur norður í
Húnaþingi einu sinni um náunga
einn sem var mjög oft neikvæð-
ur í afstöðu sinni.
Þetta kom mér í hug er ég
las íþróttadálka Tímans um dag-
inn. En þar er gerð tilraun til
þess að vekja ótrú lesendanna á
ungum iþróttamanni, sem hefur
tekið að sér að þjálfa handknatt-
leiks-landsliðið. Skrif íþrótta-
blaðamannsins eru órökstudd, þar
rekst hvað á annars horn, í æs-
ingaskrifunum. Þeir sem hann
hefði átt að skamma, sem virð-
ist eini tilgangurinn, sleppa svo
til alveg, en hinum unga þjálf-
ara sýndur dæmafár þjösnaskap-
ur.
f þessari grein ræðst íþrótta-
blaðamaðurinn á manninn
og skammar hann áður en
hann er byrjaður að vinna
það verk, sem honum hefur
verið falið, af mönnum sem
fullyrða má að hafi betri þekk-
ingu á hæfileikum unga manns-
ins en íþróttablaðamaðurinn við
Tímann, sem þó hefur jafnan
sýnt handbolta íþróttinni mikinn
áhuga. Skrifum sem þessum ber
íþróttamönnum að mótmæla sem
ástæðulausum og háskalegum í-
þróttastarfseminni almennt, þvi
verði menn fyrir svona per-
sónulegum árásum í blöðunum,
getur svo farið að ungutn dug-
...............................................................................................................- - - ■
andi Iþróttamönnum finnist ekki
taka því að leggja í þá hættu
að verða að ósekju fyrir persónu
legum og mannskemmandi árásum,
en slíkt gæti orðið æði dýrt fyiir
íþróttastarfsemina, sem þvi mið-
ur hefur nú alltof fáa leiðbein-
endur og kennara innan sinna
vébanda. Skrif íþróttablaðamanns
Tímans dæma sig sjálf: Æsinga-
skrif gerð i þeim eina tilgangi
að skapa ófrið og tortryggni,
sem ég vona að enginn íþrótta-
maður eða íþróttaunnandi taki
alvarlega.
Gamall íþróttamaður."
0 „. . eru bær báðar
heitar . .“
Aðalsteinn Baldvinsson, Braut-
arholti í Dölum ritar bréf, þar
sem hann varar við afbökunum á
rituðu máli bundnu og óbundnu.
Svo sannarlega eru orð hans í
tíma töluð, en hér fer bréf hans
á eftir:
„Kæri Velvakandi.
Ég þakka þér mjög vel fyrir
margar greinar sem þú hefur flutt
fróðlegar og skemmtilegar. Það
er þýðingarmikið að halda á þenn
an hátt opnum leiðum fyrir frjáls
um hugsunum fólksins þar sem
það getur komið fram með hugs-
anir sinar og skoðanir á hvaða
málefni og hvaða sviði sem er,
aðeins að háttvisi og almenn kurt
eisi sé við höfð. Eg lít svo á
að þetta opni víðsýni fólksins og
veki oft til umhugsunar um vanda
mál og viðfangsefni daglegs lifs.
Hafðu kæri Velvakandi mínar inni
legustu þakkir.
Gróðurhús
Dönsku plastgróðurhúsin sem sýnd voru á Landbún-
aðarsýningunni fyrirliggjandi. Seljast enn á gamla
verðinu. Stærð 2,46 x 4 mtr.
Upplýsingar í síma 15051.
INNFLYTJANDI.
Flugvirki óskast
Flugfélag íslands h.f. óskar að ráða flugvirkja til starfa
í Vogey í Færeyjum. Æskilegt að viðkomandi hafi
A- og C-réttindi.
Frekari upplýsingar veitir starfsmannastjóri félagsins
í Reykjavík.
’/igfé/ap A/ayn/s.
ff.F
MCEKJUVJOAIR
Föstudaginn 20. sept. s.l. var
í sjónvarpinu endurfiuttur þáttur
inn „Ástin hefur hýrar brár“,
mjög vel og skemmtilega fluttur.
Eitt var þó sem ég tel ástæðu
til að vekja athygli á, það er
afbökun á vísu Sigurðar Breið-
fjörð.
„Ástin hefur hýrar brár
en hendur sundurleitar.
Ein er mjúk og önnur sár
en þó báðar heitar."
í þættinum var sagt, — eru þær
báðar heitar — þetta er afleit
afbökun á vísu skáldsins og þarf
að leiðréttast þegar þátturinn verð
ur fluttur seinna. í þessu sam-
bandi langar mig að spyrja hvort
hljóðvarp og sjónvarp þessi fjöl-
miðlunartæki láta hlutlaust þó að
flytjendur afbaki verk framlið-
inna þjóðskálda okkar? Ef svo er
þá er augljóst að hverju stefnir.
Yngri kynslóðin og eftirkomandi
kynslóðir myndu læra það eins
og það er fyrir þeim haft.
Enda ég svo þessar hugleið-
ingar með kæru þakklæti til hljóð
og sjónvarps fyrir margar ánægju
legar kvöldstundir.
Virðingarfyllst.
Aðalsteinn BaIdvinsson.“
§ Sá hlær bezt
Útvarpið virðist vera mjög vin
sælt umræðuefni fólks. Hér birt-
ist bréf frá „Akureyringi" og
hefur hann þetta að segja:
„Kæri Velvakandl.
„Ég var að enda við að hlusta
á þáttinn „Um drykklanga stund"
I útvarpinu og langar til að láta
i ljós ánægju mína yfir því að
hinum ungu stjórnendum hans
virðist þó ekki vera alls vamað.
Á ég þar við hina snjöllu hug-
mynd þeirra að enda þáttinn með
hláturskór. Það bendir til þess
að einhverjar grunsemdir hafi
læðst að þeim um að hlustend-
um myndi kannske veitast nokk
uð örðugt að hlæja að þvl sem
þar var fram borið. Nautpenings
sálfræði virðist vera þessum ungu
mönnum mjög hugstæð, því fyrir
skömmu kom mjög svip-
uð frásögn, og sú er flutt var
í þættinum í kvöld, einmitt i
þætti er sömu menn sáu um, eða
var það kannske sama frásögn-
in? Þeir kunna þá sennilega og
hafa tiieinkað sér málsháttinn
„sjaldan er góð vísa of oft kveð-
in“. Ég vona svo sannarlega að
forráðamenn dagskrár hafi ekki
misst af þessum þætti, en ef svo
slysalega hefir viljað til, eru þeir
vonandi menn til að láta endur-
taka þáttinn nokkrum sinnum
eins og þátt er þessir sömu menn
sem þeir virðast hafa sérstakt dá
læti á höfðu um »1. verzlunar-
mannahelgi.
Að lokum eru það vinsamleg
tilmæli mín til stjórnanda þessara
þátta að þeir semji raunverulega
þá hljómlist sem þeir flytja i
þáttum sínum svo hún hæfi efn-
inu og flutningi þess.
Akureyringur."
% „Hrein torg — fögur
borg“
Torfi H. Halldórsson ritar brét
í upphafi þess segir hann:
„Fyrir nokkrum ánim urðu til
svonefndir Lionsklúbbar hér á
landi. Ég og sjálfsagt fleiri átt-
um okkur ekki á tilgangi þess-
ara klúbba, en seinna komst ég
að raun um að þetta er ágætis
félagsskapur, sem vinnur að þvi
að iaga ýmislegt, er aðrir er hlut
eiga að máli, loka augunum fyrir
að þurfa að gera. Fyrir nokkrum
árum voru settir upp víða í borg
inni snotrir kassar með áletrun-
inni: Hrein torg — Fögur borg.
Á þessu ári blasti við í blöð-
um borgarinnar, Hreint land. —
Fagurt land, en áskoruninni virð-
ist ekki hafa verið gaumur gef-
inn sem skyldi, því að í dag
1. okt. les maður i blöðunum að
félagar úr Lionsklúbbi Kjalar-
ness, hafi farið í hreinsunarferð
meðfram þjóðveginum í sveit
sinni. Frá því um morguninn og
fram að hádegi tíndu mennirnir
saman drasl á tvo geysistóra flutn
ingabila, sem síðan fluttu þaff á
viðeigandi stað.
En það er víðar sem draslið
og óþrifnaðurinn blasir við en
við þjóðvegina. f miðri Reykja-
vík á fegursta stað eru miklar
og fagrar byggingar. Hrafnista
dvalarheimili aldraðra sjómanna.
Hýbýlaprýði innanhúss, og þrifn
aður er i ágætu lagi, en allt öðni
máli er að gegna hvað hreinlæti
utanhúss snertir. Sóðaskapurinn
og trassaháttur blasir við allra
augum. Um veginn Austurbrún,
er liggur milli Hrafnistu og há
hýsanna þriggja, fara þúsundir
manna daglega, útlendingar og
innlendir, og við þeim blasir frá
veginum og niður að Hrafnistu,
röst af óhroða, járnarusli, spýtna
drasli, bátgarmur, ryðguð box o.
fl. o.fl. Kiwanisklúbbur Reykja-
vikur, eða meðlimir hans hafa
undanfarin ár boðið okkur vist-
fólkinu á Hrafnistu í skemmti-
ferðir, með ágætum veitingum og
viðmóti.
Viljið þið nú ekki gera gust-
ukaverkið, eins og Lionsklúbbur
Kjalamess gerði og hreinsa
þetta?"
Velvakandi þakkar Torfa bréf
ið. Ljóst er að í borgarlandinu
er víða pottur brotinn, hvað hrein
læti varðar. Borgaryfirvöld hafa
vart undan, en hér þyrfti að koma
til bætt umgengni borgarbúa sjálfa
Með samstilltu átaki borgaranna
verður ástandið bætt — annars
ekki.
Kaupmenn — heildsnlnr
Vil kaupa eða leysa út vörupartý (jólavörur). Líka
kemur til mála að leysa út vörur fyrír smásala gegn
heildsöluálagningu.
Þeir sem óska nánari uppl. svari til Mbl. merkt: „2209“.
Richard Tiles 8*4» VEGGFLlSAR Fjölbreytt litaval. H. BiIDIKTSSOH HF. Suðurlandsbraut 4. Sími 38300. Húseigendur — húshy ggjendur Getum afgreitt fataskápa og eldhúsinnréttingar með stuttum fyrirvara. Uppsettar innréttingar í búðinni. Opið til kl. 4 í dag. Frarpleiðendur til viðtals í dag frá kl. 1—4. INNRÉTTINGAR H.F. Suðurlandsbraut 12, sími 81670.
LOFT U R H.F. LJ6SMYNDASTOFA Ingólfsstræti 6. Pantið tíma í síma 14772.