Morgunblaðið - 12.10.1968, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1968
Jörundur
loftskeytamaður
FREGNIN um sviplegt fráfall
Jörundar Sveinssonar barst til
heimabyggðar hans hinn 30. sept.
og var reiðarslag fyrir venslafólk
hans og vini. Hann, sem kvaddi
svo hress og hlýr að vanda, var
nú horfinn.
Vegir almættisins eru órann-
sakanlegir. Hvers vegna er mað-
ur í blóma lífsins, burtu kallaður
frá forsjá ungbarna og fram-
færi heimilis?
Hin íslenzka þjóð færir „Ægi“
stöðugt sínar fórnir fyrir það
framfæri, sem hafið hefir veitt
okkur í þúsund ár.
Skörin koma í fremstu víglínu
t
Faðir okkar,
Jakob Guðjohnsen
raf magnsstj óri,
lézt aðfaranótt föstudagsins
11. október í Landsspítalanum.
Kristín Guðjohnsen,
Stefán Guðjohnsen, /
Þórður Guðjohnsen,
Dóra Guðjohnsen.
t
Eiginmaður minn og faðir,
Guðmundur Bjarnason
Langholtsveg 87,
lézt í Borgarspítalanum Foss-
vogi, 10. þ.m.
Ragnhildur Halldórsdóttir,
Aðalheiður Guðmundsdéttir.
t
Faðir okkar,
Hálfdán Halldórsson
fyrrum verzlunarmaður
í Viðey,
lézt að Sólvangi hinn 10. þ.m.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sveinn B. Hálfdánarson,
Örlygur Háifdánarson.
t
Möðir og tengdamóðir okkar,
Auðbjörg Jónsdóttir
frá Bólstað Vestmannaeyjum,
andaðist í Sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja 9. okt. sl.
Bára og Páll Gíslason,
Lilja og Ragnar Runóifsson,
Óskar
og Soffía Sophaniasdóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
Hjörleifur M. Jónsson
bifreiðastjóri, Efstasundi 56,
sem lézt 6. þ.m. verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju,
mánudaginn 14. þ.m. og hefst
athöfnin kl. 13.30. Blóm eru
vinsamljegast afþökkuð, en
þeim, sem vildu minnast hans,
er bent á Styrktarfélag lam-
aðra og fatlaðra. _
Vegna vandamanna.
Jón Ó. Hjörleifsson.
Sveinsson
— Minning
en Jörundur stundaði sjó-
mennsku á togurum nær 20 ár.
Tryggð og drengskapur, seigla og
æðruleysi voru þættir í fari hans,
sem minntu á hinn skaftfellska
uppruna.
Árið 1945 fluttust hjónin
Hildur Jónsdóttir og Sveinn
Jónasson frá Þykkvabæjar-
klaustri í Álftaveri á landsnáms
jörðina Skeggjastaði í Mosfells-
sveit með sjö börn stálpuð.
Þessi fjölskylda vakti athygli
fyrir atgjörvi og dugnað og varð
þegar gott til vina.
Jörundur heitinn var þriðji
elztur þessara systkina og af-
bragð annarra ungra manna.
Hann eignaðist eina glæsilegustu
heimasætu byggðarlagsins, Mar-
gréti Einarsdóttur frá Laxnesi.
Jörundur Sveinsson var fædd-
ur 2. september 1919 að Borgar-
felli í Skaftártungu, en Sveinn
faðir hans var frá Hlíð en Hild-
ur móðir hans frá Þykkvabæjar-
klaustri.
Æskan leið við sveitastörf í
Álftaverinu en 1941 settist Jör-
undur í annan bekk Flensborg-
arskóla og lauk þaðan ágætu
gagnfræðaprófi. vorið 1943. Hann
vistaðist þá til Gunnars skálds
t
Faðir okkar,
* Guðmundur Jónsson
skósmiður, Skipasundl 33,
lézt að Hrafnistu 11. október.
Börnin.
t
Eignkona mín og móðir okkar,
Ásthildur Magnúsdóttir,
andaðist í Sjúkrahúsi ísafjarð
ar fimmtudaginn 10. október
sl. Jarðarförin ákveðin síðar.
Hjalti Jónsson og börn.
t
Innilegar þakkir fyrir vin-
semd og samúð við andlát og
jarðarför,
Ólafíu Kristínar
Ólafsdóttur
frá Ósi í Bolungarvík.
Guðbjörg og Jón Fannberg.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við andlát og útför
manns míns, föður, tengda-
föður og afa,
Ólafs Jónssonar.
Jarþrúður Jónsdóttir,
Jón H. Ólafsson,
Rósa Haraldsdóttir,
Örn Ólafsson,
Þórunn Ólafsdóttir,
Baldur Ásgeirsson,
barnabörn.
Gunnarssonar að Skriðuklaustn
og seinna til Bjarna á Laugar-
vatni.
í Loftskeytaskólann fór hann
1945 og lauk þaðan prófi 1946,
og varð það hans ævistarf.
Starfsvettvangur hófst á Rjúpna
hæð og Gufunesi en síðan á tog-
urum og lengst af á FylkL
Jörundur heitinn var ötull og
verklaginn og greip hvaða verk
sem var til sjós og ágætur sjó-
maður. Árvekni og sérstakt snar
ræði sýndi hann er Fylkir fórst
af tundurdufli hér við land
1956. Honum tókst að komast í
klefann á hinu sökkvandi skipi
og senda út neyðarkall, ásamt
staðarákvörðun. Þetta gerði gæfu
muninn í það sinn. Hlaut hann
lof félaga sinna en lét jafnan
sjálfur lítið yfir.
Prúður og yfirlætislaus var
Jörundur heitinn ávallt en at-
orkumaður að hverju sem hann
gekk. Heimilið og börnin var það
sem hann lifði fyrir og unni af
öllu hjarta.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við andlát og útför,
Laufeyjar Pálsdóttur.
Sólveig
og Poul Dyhre-Hansen,
Valgerður Þorsteinsdóttir,
Steingrimur J. Þorsteinsson,
og aðrir aðstandendur.
t
Hjartanlega þökkum við öll-
um þeim sem sýndu samúð
og vináttu við andlát og jarð-
arför,
Guðríðar Þorsteinsdóttur
Lindargötu 30.
Sérstaklega þökkum vfð lækn
um og hjúkrunarliði Lands-
spítalans.
Sonja Valdimarsdóttir,
Erlingur Herbertsson
og barnaböm.
t
Innilegustu þakkir sendum
við öllum, sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát
og jarðarför systur okkar,
Jakobínu Björnsdóttur
kennslukonu.
Sérstakar þakkir færum við
læknum og starfsfólki Borgar
sjúkrahússins og Hvitabands-
ins fyrir ómetanlega aðstoð
og ljúfa framkomu í veikind-
um hennar.
Ólöf Bjömsdóttir,
Unnur Bjömsdóttir,
Indriði Bjömsson.
Friðrik Karlsson
Fimmtugsafmæli 28. sept. 1968.
Sem leiftur á himni er líf hvers manns,
eða lauf sem í skóginum grær.
Við horfum á straum er með bakkanum ber
okkur, börnin sem fæddumst í gær.
í upphafi dags er ei kveðið um kvöld
heldur keppni sem markinu nær.
En misjöfn er sagan og mörgum er tamt
að miða við lyngholt og stekk,
en fáir sem horfa á bláfjallsins brún
og braut þess er fremstur gekk.
En þetta er viðhorf sem vísar án hiks
sínum vinum á efsta bekk.
Friðrik er maður með fjallsins hug,
hann er foringt í lýðsins sveit.
Hann treður sinn veg fram á tæpustu brún.
Hans tilfinning rík og heit
er leiðarstjarnan sem líf hans er gsett,
hans lögmál og fyrirheit.
Hann varðar ei alltaf um vörður og brýr
á vegum sem fjöldinn kýs.
Hann víkur þv: frá, ef á veginum er,
hverjum vanda sem hæstur rís.
Með sannleikans járni er sver’ð hans brýnt
og sigurinn ætíð vís.
Nú stendur hann Friðrik á fimmtugu í dag.
Ég flyt honum vinarljóð.
Ég veit að hans för upp á fjallið er tryggð,
það fennir ei í hans slóð.
Ég óska honum friðar á fjalLsins leið
og að framtíðin verði góð.
Sigurður Pétursson.
L.
Þau Margrét giftust 1949 og
bjuggu alla sína tíð að Litjfa-
landi í Mosfellssveit, í sambýli
við foreldra Margrétar, sæmdar-
hjónin Helgu Magnúsdóttur og
Einar Björnsson frá Laxnesi.
Ég kynntíst Jörundi bezt á
seinni árum og átti marga
ánægjustund á heimili hans og
tengdáföður hans. Fann ég
glöggt hversu hlýtt var með þess
um tveim mönnum og hve heill
og heiður heimilisins var þeim
sameiginlegt áhugamál.
Heimilið á Litlalandi var á
alla lund, úti sem inni, fagurt og
vel umgengið, viðmót fólksins
hlýtt, til manna og málleysingja
og mannbætandi var að blanda
geði við heimilisfólk þar.
Helga Magnúsdóttir lézt fyrir
nokkrum árum og varð þar
skarð fyrir skildi.
Nú verða þau mæðginin að
sjá á bak ástkærum tengdasyni
og maka frá blessuðum litlu
drengjunum tveim, sem aðeins
eru 5 ára gamlir og sár er sorg
dætranna þriggja, sem eldri eru.
Mjög á nú þetta heimili um sárt
að binda er ástkær heimilisfaðir
fellur frá í blóma lífsins.
Við jafnaldrar og vinir Jör-
undar söknum hins ljúfa vinar,
prúða og vel gerða drengs, sem
almættinu hefir nú þóknazt að
kalla á sinn fund.
Fjölskyldan- leit með tilhlökk-
un til næsta árs, þá verður elzta
dóttirin stúdent, en Jörundur
hefði orðið fimmtugur.
Enginn má við sköpum renna.
Ekkjan ber sorg sína með hug-
prýði og trú. Megi guð blessa
hana og styrkja í ábyrgðarmiklu
Framhalð i bU. 11
Jarðarför mannsine míns
JÓHANNESAR JÓSEFSSONAR
fyrrverandi hótelstjóra,
fer fram frá Dómkirkjunni laugardaginn 12. október
kl. 10.30.
Brynhildur Sigurðardóttír.
Hugheilar þakkir færi ég öll-
um vinum mínum og vanda-
mönnum, er með ýmsu móti
glöddu mig á sextugsafmæli
mínu þann 16. september s.l.
Einnig þakka ég þeim félags-
samtökum, sem á einn eða
annan hátt sýndu mér vin-
semd og virðingu við þetta
tækifæri. — Þesisi sviphreini
sólskinsdagur mun vaka í vit-
und minni og verða ógleym-
anlegur.
Hallgrímur Th. Björnsson.
Hugheilar þakkir til allra er
glöddu mig á 80 ára afmæli
mínu.
Krístján Jóhannesson
Háteig, Patreksfirði.
Þökkum innilega auðsýnda
samúð og vinarhug við and-
lát og útför konu minnar,
móður og systur.
Arni Pálsson,
Kristín Ámadóttir,
Eva Jóhannesson.
Ég þakka af alhug öUum þeim
er glöddu mig á 70 ára af-
mæli mínu þann 8. október
með skeytum, gjöfum og blóm
um.
Hamingja fylgi ykkur öllum.
Kristín Sigurgeirsdóttir
frá Ólafsvík.
\