Morgunblaðið - 16.10.1968, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MEÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 196«
11
Jón Ólafsson
alþingismaður og bankastjóri
- ALDARMINNING -
t DAG eru liðin 100 ár síðan
heiðursmaðurinn Jón Ólafsson
alþingsmaður og bankastjóri
fæddist og 31 síðan hann lézt.
Eg minnist þess að við útförina
var fjöldi manns, og að talað
var um að þetta væri ein fjöl-
mennasta útför sem menn
mundu. Það var eftirtektarvert
hversu verkamenn og sjómenn
voru fjölmennir við þessa út-
föir. Þeir sem þekktu Jón heit-
in Ólafsson og starfssögu hans
vissu hver ástæða var fyrir
þessu. Jón Ólafsson var vinsæll
og mikils metinn. Hann skipaði
ábyrgðarmiklar stöður í þjóðfé-
laginu, en hann gleymdi aldrei
uppruna sínum og þóttist aldrei
vera upp úr því vaxinn að um-
gangast það fólk, sem undir
hann var gefið svo sem verka-
menn og sjómenn, sem unnu hjá
því fyrirtæki sem hann stjórn-
aði lengi af miklum dugriaði og
skörungsskap.
Jón Ólafsson var fæddur í
Sumarliðabæ í Holtum, Rangár-
vallasýslu, 16. októbsr 1868. Voru
foreldrar hans Ólafur Þóirðarson
og Guðlaug Þórðardóttir. Bjuggu
þau allan sinn búskap í Sumar-
liðabæ. Þau hjónin voru bæði
góðu atgerfi búin og nutu mik-
ils álits í byggðarlaginu. Þau
eignuðust 14 börn og komust
flest þeirra til fullorðins ára.
Voru þau öll mennilegir og vel
metnir borgarar. Landskunnir
voru þeir bræður fyrir dugnað.
Auk Jóns má nefna þá Gunnar
Ólafsson, alþingismann, konsúl
og útgerðarmann í Vestmanna-
eyjum og Boga Ólafsson mennta-
skólayfirkennara. Einnig minn-
ast margir systranna, Kristinar í
Sólheimatungu, Helgu í Vík, Guð
laugar á Árbæ, Guðrúnar í Hól
og Kristínar í Borgamesi. All-
ar voru þær systur mestu mynd-
ar og dugnaðar 'konur.
Sumarliðabæjarsystkini vönd-
ust snemma á að vinna fyrir sér.
Jón Ólafsson fór til útróðra frá
Stokkseyri 16 ára gamall. Mun
hann hafa byrjað sem hálfdrætt-
ingur. Formanni og skipsfélög-
um hans likari vel við piltinn
þótt hann léti ekki mikið yfir
sér. En Jón hugsaði sitt ráð og
ákvað með sjálfum sér að vinna
ekki til lengdar fyrir hálfum
hlut. Hann gerði sér einnig grein
fyrir því að æskulegt væri að
komast á stærri farkost en ára-
bát frá Stokkseyri. Hann mun á
fyrstu vertíðinni hafa sett sér
það takmark sem hann náði svo
glæsilega síðar. Jón Ólafsson not
aði frístundirnar þann tíma sem
hann var á Stokkseyri, til þess
að kynna sér siglingafræði, því
um þessar mundir voru haldin
námskeið fyrir sjómenn á
Stokkseyri og Eyrarbakka.
Áðuir en Jón yfirgaf Stokks-
eyri varð hann formaður þar,
þótt ungur væri, og var mjög
heppinn og aflamaður mikill.
Sfðar fór hann til Reykjavíkur
og gerðist sjómaður á fiskiskútu.
Árið 1897 gekk hann í Stýri-
mannaskólann og lauk þaðan
fullnaðarprófi 1899. Byrjaði
hann þá sem stýrimaður á út-
vegi Geirs kaupmanns Zoega, en
skipstjóri varð hann skömmu
síðar. Hann hafði stjóm á sama
skipi þar til hann og nokkrir
aðrir menn keyptu þilskip. Var
hann skipstjóri á því skipi til
1911. Það kom fljótt í ljós að
Jón Ólafsson var sérstaklega
vel fallinn til þess að stjóima.
Hann naut mikils trausts út-
gerðarmannanna og jafnframt
vinsælda meðal skipshafnarinn-
ar. Um þessar mundir urðu
breytingar í útgerðarmálum hér
á landi. íslendingar höfðu lun
nokkur ár séð fyrir sér erlenda
togara hér við land, sem mok-
uðu upp fiskinum og öfluðu
margfalt meira en mögulegt var
að gera á skútunum. Jón var
meðal hinna fyrstu forgöngu-
manna sem beittu sér fyrir tog-
araútgerð. Hann var einn af
stofnendum útgerðarfélagsins
Alliance, sem byrjaði starfsemi
sína 1907. Jón gerðist fram-
kvæmdéistjóri þess félags 1911
og stjórnaði því af mikilli rögg-
semi. Fiskveiðahlutafélagið Alli-
ance vaið annað stærsta útgerð-
arfélag landsins. Vorið 1930 tók
Jón að sér bankastjórastöðu Út-
vegsbanka Islands og gegndi því
starfi til dauðadags, en lét um
leið af framkvæmdastjóm Alli-
ance. Eftir að Jón hætti sjó-
mennsku komst hann ekki hjá
því að taka að sér ýmiskonar
trúnaðarstörf. Það var vitað mál
AUGLÝSING
um skoðun léttra bifhjóla í lögsagnarum-
dæmi Reykjavíkur:
Aðalskoðun léttra bifhjóla (hjóla með hjálparvél)
fer fram sem hér segir:
21. október
22. —
23. —
24. —
25. —
Skoðun hjólanna er framkvæmd fyrmefnda daga við
Bifreiðaeftirlitið, Borgartúni 7, kl. 9.00 — 16.30.
Mánudaginn
Þriðjudaginn
Miðvikudaginn
Fimmtudaginn
Föstudaginn
R-1
R-401
R-601
R-801
— 400
— 600
— 800
— 1050
R-1051 — 1250
Sýna ber við skoðun að lögboðin vátrygging sé í lagi.
Athygli skal vakin á því, að tryggingariðgjald öku-
manns ber að greiða við skoðun, hafi það ekki verið
greitt áður fyrir árið 1968.
Skoðun hjóla sem eru í notkun hér í borginni
en skrásett eru I öðrum umdæmum fer fram fyrr-
nefnda daga.
Vanræki einhver að koma hjóli sínu til skoðunar
umrædda daga verður hann látinn sæta sektum sam-
kvæmt umferðarlögum og hjólið tekið úr umferð hvar
sem til þess næst.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 14. október 1968.
Sigurjón Sigurðsson.
að Jón var sérstaklega vinsæll
og aUir báru til hans mikið
traust. Það var því fast eftir því
leitað áð fá hann til að gefa kost
á sér í bæjarstjóm Reykjavíkur.
Jón var bæjarfulltrúi frá 1918—
1934 og eftir það varafulltrúi
tii dauðadags. Það þótti betra að
hafa nafn hans á framboðslistan
um, einnig eftir það að hann
neitaði að vera starfandi bæjar-
fulltrúi vegna annríkis.
Hann varð alþingismaður
Reykvíkinga við aukakosningar
1926 og síðan 1927—1931. Reyk-
víkingar vildu hafa Jón fyrir
þingmann áfram en Sjálfstæð-
isflokknum fannst naúðsyniegt
að senda hann í framboð í Rang-
árvallasýslu, þar sem baráttan
var tvísýn og líklegt mátti telja
að Framsóknarmenn næðu kosn-
irtgu, nema sérstaklega vinsæll
maður eins og Jón Ólafsson
gæfi kost á sér til þingmennsku
fyrir Rangæinga.
Jón vann glæsilegan sigúr í
sinni æskubyggð og varð þing-
maður Rangæinga til 1937. Eftir
kosningarnar 1937 varð hann
iandskjörinn þingmaður.
1904 giftist Jón Ólafsson Þóru
Halldórsdóttur frá Mið-Hrauni í
Miklaholtshreppi, mestu fríð-
leiks og myndarkonu. Þau eign-
uðust 5 mannvænleg böm, einn
son og fjórar dætur og eru þau
öll á lífi.
Jón aridaðist 3. ágúst 1937.
Hafði hann búið vi'ð nokkra van-
heilsu síðustu ár ævinnar þótt
hann léti ekki á því bera.
í því sem hér hefur verið sagt
er aðeins minnzt á nokkur
atriði í ævi þessa merka manns.
Mannsins sem fór 16 ára að heim
an, eignalaus og braut sér veg
til mannsdóms og virðingar af
eigin rammleik. Ólafur Thors
segir í æviminningu um Jón
Ólafsson: „Þéttur á veli og þétt-
ur í lund. Þannig vilja íslending-
ar vera. En skildi þessi alkunna
mannlýsing hafa átt betur við
nokkurn en Jón Ólafsson. Sam-
anrekinn kraftajötunn, en þó
miklu meiri og frábærari fyrir
festuna, þrautseigjuna, kjárkinn
— þessu óbilugu karlmanns-
lund, sem aldrei lét bugast og
aldrei undan síga en þrammaði
alltaf í áttina þótt hraðinn færi
eftir atvikum. En auk þess var
Jón Ólafsson bæði vel viti bor-
inn maður og fróður um marga
hluti og drengur góður. Hafa
margir menn þegið af honum
beina og grefða, og eru þó hinir
miklu fleiri sem Jón Ólafsson
hefur skapað gæfu og gengi með
brautryðjandastarfsemi sinni 1
atvinnumálum tslendinga. Var
Jón meðal þeirra lánsmanna, er
alltaf leiddi gott af en aldrei illt,
enda átti hann vini fleiri en
flestir, en óvildarmann engan."
Ólafur Thors og Jón Ólafsson
voru miklir vinir og samherjar.
Sýna ofanrituð ummæli Ólafs í
æviminningunni hversu mikils
hann mat vin sinn. En Jón Ólafs
son var ekki aðeins vinsæll með
al flokksmanna sinni heldur
naut hann almennra vinsælda og
trausts.
Jón Baldvinsson formaður
Alþýðuflokksins segir um Jón
Ólafsson látinn m.a.: „Og þótt
hann hefði það tii að segja öðr-
um til syndanna ef svo bar und-
ir var hann þó svo vel látinn
af þeim er hann þekktu, og þeir
voru margir, að fáir hafa notið
meiri og almennari hylli en
hann um dagana. Bar þar til vin
festa hans og hjálpsemi og ætla
ég að í þeim efnum hafi hann
aldrei flétt upp í kjörskránni.
Sérstaklega li'ðsinnti hann göml-
um samstarfsmönnum frá sjó-
mennskuárunum ef þá rak í
raun, og skyldi mig ekki undra
að hjá sumum þeirra væri nú
skarð fyrir skildi".
Jón Ólafsson var drenglyndur
og hjálpfús eins og hér hefur
verið drepið á. Hann var sér-
staklega trygglyndur, höfðingi I
lund og stórhuga.
Við Rangárþing hélt hann
ávallt sérstakri tryggð og gerði
sér oft ferð austur þangað til
þess að heimsækja gamla vini
og kunningja.
Framhald á bls, 19
fra
SLIMUA
buxnadragtir, síð-
buxur, pils.
FRÁ DANMÖRKU
síðdegis- og kvöld
kjólar.
Tízkuverzlunin
frún
f tuverz
Gu&t
Rauðarárstíg 1
sími 15077.
NÝ ÍSLENZK
STAFSETNINGARORÐABÓK MEÐ SKÝRINGUM
eftir dr. Halldór Halldórsson er komin út.
BÓKAVERZLUN
SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR