Morgunblaðið - 24.10.1968, Síða 2

Morgunblaðið - 24.10.1968, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBBR 1968 IbúðarhúsiS í Bakkakoti II í Meðallandi brann til ösku nú í vikunni, eims og frá var skýrt í blaðinu og misstu fjölskyldur bræðranna Marteins og Sigurgeirs Jóhannssona þar allt inn- bú sitt og húsnæði. Þessa mynd tók Jón Þorbergsson af brunarústunum fyrir austan. Stórvirk hafnargerð í Úlafsvík Enn hœgt að stœkka hötnina geysimikið ÓLAFSVÍK, 24. október — Eft- irfarandi frétt barst fréttaritara frá hreppsnefnd Ólafsvíkur: í Ólafsvík 'hefur verið unnið að nýrri og stórvirkri hafnar- gerð sl. 5 ár. Hefur þegar skap- azt ágæt aðstaða fyrir stóran bátaflota og minni flutningaskip. í sumar hefur verið unnið að hafnargerðinni. Var gerð dýpk- un, sem dýpkunarskipið Sandey framkvæmdi, 20 þús. rúmmetrar, grjótgarður -endurbættur, og nú stendur yfir breikkun á harð viðarbryggju, sem verður eftir þá framkvæmd 15 m breið og Peter Serkin leikur með Sinfóníuhljómsveitinni í kvöld Næstu tónleikar Sinfóníuhljóm eveitar íslands verða fimmtudag inn 24. október í Háskólabíói. Stjórnandi er Sverre Bruland, aðalstjórnandi fyrra misserisins. Á efnisskránni er fyrst hið sér- kennilega skemmtilega „Diverti- mento fyrir strengjasveit“ eftir Béla Bartók, en það verk hefur ekki verið flutt áður hérlendis. Verkið samdi Bartók að tilstuðl- an Pauls Sacher og hinnar ágætu kammerhljómsveitar hans i Basel sumarið 1939. Þarna gefst strengjasveit Sinfóníuhljómsveit arinnar gott tækifæri til að „taka á honum stóra sinum“. Því næst verður fluttur ann- ar píanókonsert Beethovens, en með því verki korfi hann fyrst fram opinberlega sem tónskáld og píanósnillingur í Vínarborg á sínum tíma, og þar með hófst frægðarferill, sem einstakur er í sögunni. Einleikari er ungi, bandaríski píanóleikarinn Pet- er Serkin, sem vakti hér hrifn- ingu manna fyrir þremur árum, er hann lék á tónleikum Tón- listarfélagsins, og síðan hefur nafn hans orðið þekktara með hverjum deginum, frá tónleika- sölum og hljómplötum. (sjá með- fylgjandi upplýsingar). Peter Serkin er fæddur í New York 24. júlí 1947 og er sonur píanóleikarans Rudolf Ser kin. Hann er fjórða af sex börn um foreldra sinna og hefur ekki aðeins erft tónlistargáfuna frá föður sínum, heldur var móður- afi hans hinn þekkti fiðluleik- ari og tónskáld, Adolf Busch. Peter Serkin hóf tónlistamám I Curtis Institute of Music í Filadelfíu árið 1958 og stundaði þar nám í sex ár. Kennarar hans voru Lee Luvisi, Miecyslaw Hor szowski og faðir hans. Kom hann fram opinberlega í fyrsta sinni 12 ára gamall og lék pianó konsert eftir Haydn undir stjórn Alexander Schneider á tónlistar hátíðinni í Malboro. Árið 1961 hélt hann tónleika í ýmsum borgum Bandaríkjanna og í október sama ár lék hann ásamt föður sínum konsert fyrir tvö píanó eftir Mozart með Fila delfíuhljómsveitinni. Hann hef- Peter Serkin. ur leikið sama verk ásamt föður sínum með Clevelandhljómsveit- inni, með hljómsveitum í París, Brussel, Washington og New York. Peter Serkin hefur haldið tón leika í öllum helztu borgum Bandaríkjanna og árið 1965 kom hann fram í fyrsta sinni í Lund- únum og fór í tónleikaför til Sviss, Þýzkalands og íslands. Á starfsárinu 1964-65 kom hann fram í New York og Filadelfiu, fór í tónleikaför til Þýzkalands, lék á tónleikum með Sinfóníu- hljómsveit Lundúna og með ensku kammermúsikhljómsveit- inni á tónlistarhátíðinni í Edin- borg. Tónleikunum lýkur með ann- arri sinfóníu Brahms. Hún var samin fyrir 110 árum og er e.t.v. aðgengilegasta sinfónían hans. Þar eiga samleið löngunarfull stef með mildum hljómum og skírt form, auðskilið og tært. (Fréttatilkynning) 110 m löng. Jafnhliða þessum framkvæmd um hefur verið unnið að athug- un að tillögum að skipulagi hafn arsvæðisins. f þessari viku voru gerðar boranir á svæðinu með stórvirkum tækjum, sem hafa leitt í ljós nýja stórkostkga möguleika til hafnargerðar inn- an svæðisins. Var borað niður á 10—12 m dýpi, miðað við stór- straumsfjöruborð, án þess að finna klöpp, sem þýðir að hægt er að dýpka allt hafnarsvæðið upp að Strandgötu og gera stór- skipalægi innan svæðisins. Hefur sameiginlegur fundur hreppsnefndar, hafnarnefndar og skipulagsnefndar 15. okt. sl. ákveðið að biðja hafnarmála- stofnunina að láta gera frekari rannsóknir á öllu hafnarsvæð- inu og gera tillögur að skipu- lagi hafnarsvæðisins með tilliti tl þessa. Er nú sýnt, að langþráð ur draumur og baráttumál Ól- afsvíkinga g;tur orðið að veru- leika, að skapa hér 1. flokks báta-‘ og hafskipahöfn. Telja menn þetta með stærstu við- burðum í sögu Ólafsvíkur. — Hinrik. LANDLEIÐIR hafa keypt nýjan almenningsvagn til áætlunar- ferða milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Er sá mjög tækni- lega fullkominn og í honum mik il sjálfvirkni. Hann byrjaði áætl unarférðir í gærdag. Vagninn er af gerðinni Scania, og er hér um að ræða alveg nýja tegund af vögnum, sem bera verksmiðjunafnið CR 110. Er þessi nýi vagn annar vagninn, sem sænsku verksmiðjurnar framleiða í fjöldaframleiðslu, að því að Ágúst Hafberg tjáði Mtol. í gær. Ágúst kvað nýja vagninn vera frá'brugðinn öðrum almennings- vögnum, sem hér væru í notk- un, að því leyti, að hann væri tæknikga mjög fullkominn. Vélin er aftur í þessum vagni, sem minnkar mjög hávaða og auðveldar viðhald. Vagninn væri algjörlega sj álfskiptur, og öryggisútbúnaður allur mjög sjálfvirkur. Til að mynda er ekki hægt að aka vagninum af stað fyrr en kominn er nægi- legur loftþrýstingur í hemlabún aðinn ,og vagninn stöðvast af sjálfsdáðum,- ef gat kemur á loft leiðslur til hemlabúnaðarins. Þá er ýmis búnaður í vagn- inum, sem miðar að því að auka þægindi farþega og ökumanns. Vagninn Wífur loftpúða í stað fjaðra, þannig, að í beygjum hall ast vagninn aldrei, 'því að þá færist loftþrýstingurinn á milli púða eftir því sem átakið kem- ur á þá. Þá eru tvöföld gler í öllum rúðum, þannig að á þau sezt aldrei móða né hrím. Þá er í vagninum einnig mjög full- komið hitunarkerfi, sem heldur alltaf jöfnum hita í vagninum. Vagn þessi er áþek'kur að stærð og aðrir almenningsvagn- ar Landliiða — getur tekið 51 í sæti og 30—40 í stæði. Verð hans er tæplega þrjár millj- ónir. Sigurðui Bjoraoson for- mnður utunríkisnefndur Á FUNDI Sameinaðs-Alþingis í gær var frá því skýrt að utan- ríkisnefnd hefði kosið sér Sig- urð Bjarnason formann nefnd- arinnar og Gylfa Þ. Gíslason menntamálaráðherra fundarskrif Olympíuskákmótið í Sviss: íslendingar unnu á öllum borðum gegn Andorra og eru nú í öðru sœti ásamt Tékkum með 14 vinninga ÍSLENZKA skáksveitin sigraði á öllum fjórum borðunum gegn Andorra á Olympíuskákmótinu í Lugano, Sviss í gaer, en þá fór fimmta umferð fram. Ingi R. Jóhannsson vann Giminez, Bragi Kristjánsson, sem tefldi á öðru borði, vann de la Casa, Bjöm Þonsteinsson vann Soler og Ingvar Asmundsson vann Pant- ebre. fslenzka sveitin er nú í öðru og þriðja sæti ásamt Tékk- um, með 14 vinninga. Önnur úr- slit í 7. riðli urðu þessi: Búlgaría - Tékkóslóvakía ZVi'Wi Tyrkland - Túnis......Z%:1V2 Kúba - Singapore .... 2Í4:1V2 Vinningastaðan eftir 5 uim- ferðir er þessi: Búlgaría .16 — 4 ísland ..... 14 — 6 Tékkóslóv. . . 14 — 6 Kúba ....... 13 — 7 Túnis .......9f — 104 Tyrkland .... 7f — 12J Sirigapore 6 —14 Andorra 0 — 20 Islenzka sveitin tefldi gegn Tún- is í gærkvöldi í næstsíðustu um- ferð íorkeppninnar. Staðan í hinum riðlunum er þessi: 1. riðill: Sovétríkin 1914 vinn., England 17(1), Filippseyjar 13, ísrael 11 (1), Ítalía 8 (1), Portúgal 5, Kýpur 3% (1) og Mexíkó 214 vinningur. 2. riðill: Danmörk 13, Bandaríkin og Ytri- Mongólía 1014 hvor, Austurríki 714, Ástralía 7, Venezuela 6 og Frakkland 514 vinn. Frammi- staða Danana er með þeim á'gæt- um að athygli vekusr á mótinu. Sveit DammerkÚT skipa þessir aðalmenn: Bent Larsen, Björn Brink-Claussen, Svend Haman og Sejer Holm. 3. riðill: Spánn 16, Júgóslavía 14, Pólland 11, Skotland 8, Suður-Afríka 514, Domeníkanska lýðveldið 314 og Luxemburg 2 vinninga. 4. riffill: Ungverjaland 16, Kanada 1514, Holland 1114, Belgía 9 (D, ír- land 9, Paraguay 8 (1), Monaco 614 og Costa Rica 314 vinning. 5. riðill: Vestur-Þýzkaland og Rúmenía 1414, Sviss 1314, Brasilía 1114, Noregur og Puerto Rico 9, Hong Kong 514 og Lebanon 214 vinning. 6. riðill: A-Þýzkaland 1514, Argen'tína 13, Finnland 914, Svíþjóð 714, Grikk land 614, Virgin-eyjar 414 ag Marokkó 314 vinning. NÝJUSTU FRÉTTIR: Úrslit 6. umferðar urðu þessi: ísland — Túnis 1:2 og biðskák. Guðmundur tapaði gegn Belkadi, Bragi gerði jafntefli við Bouaziz, Jón á biðskák móti Kchouk, Björn gerði jafntefli við Alagha. Tékkóslóvakía — Singapore 4:0. Búlgaría — Andora 4:0. Kúba — Tyrkland 1:0. Úrslit úr 5. umferð urðu þessi: Búlgaría — Tékkóislóv. 214:114. Tyrkland — Túnis 214:114. Kúba — Singapore 314:14. Aðolfundur Fjölnis AÐALFUNDUR Fjölnis, félags ungra sjálfstæðismanna í Rang- árvallasýslu, verður haldinn að Hellu sunnudaginn 27. október og hefst kl. 3 e.h. — Stjórnin. Landleiðir f á nýjan almenningsvagn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.