Morgunblaðið - 24.10.1968, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBBR 1968
3
DAGUR Sameinuðu þjóðanna er
í dag og eru 23 ár liðin frá stofn-
un þeirra.
Félag Sameinuðu þjóðanna á
íslandi minnist dagsins eins og
undanfarin ár með fyrirlestrum
í skólum, og auk þess 'hefur
tfræðsluefni, 20 stórar myndir
með skýringum, verið sent í
flesta skóla landsins.
í framhaldsskólunum í Reykja
vík tala m.a. eftirtaldir menn:
Baldvin Jónsson, hrl., Guðrún
'Eriendsdóttir, Sigmundur
Böðvarsson, S'k'úli Möller og
I>ór Vil’hjálmsson, prófessor.
í fréttaauka útvarpsins þ'enn-
an dag mun forseti íslands,
herra Kristján Eldjárn, flytja
ávarp i tilefni dagsins. Þess er
vænt ,að kennarar um land allt
minnist dagsins í skólunum.
Þennan dag kamur einnig út
toæklingur sem heitir: „Svona
.starfa Sameinuðu þjóðirnar“,
sem Upplýsingaskrifstofa Sam-
einuðu þjóðanna fyrir Norður-
lönd gefur út, og er hann prent-
aður í Leiftri 'h.f. Er ætlunin að
nota þennan bækling að ein-
hverju leyti í skólunum.
Frá Félagi Sameinuðu
þjóðanna á ísland.
Aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York.
Nefndarmenn frá Evrópuráðslöndunum skoðuðu Alþingi í gær.
ÚT er komin bók Axels Thor-
steinssonar, rithöfundar og blaða
manms, „Ævintýri íslendings og
aðrar sögur.“ Sölu á bókinni ann-
ast bókaútgáfan Rökkur, Reykja-
vílk.
Sögurnar í bókinni heita
Ævintýri íslendimgs (birt fyrst
1923), Heim, er haustar (1933),
Nýir tímar (1917), Póker (1917),'
Komdu hingað til min (1916) og
Maddama Þorgerður (1917).
í inngamgi bókarinnar segir
Axel Thorsteinsson, að sögurnar
séu allar að meina eða minna
leyti sannar.
Bókin er 175 blaðsíður að
stærð prentuð hjá Leitftri hf.
Kápumynd gerði Ragnar Lár.
DAGUR SAMEINUÐU
ÞJÚÐANNAí DAG
Fulltrúar á Evrópuráðsfundi
skoðuðu Alþingi
Erfiðar flugsamgöngur seinkuðu mörgum
FTJLLTRÚAR á fundi Evrópu-
netfndarinnar, er hefur samband
við þjóðþin.g og almenning í að-
ildarríkj unum, munu nú flestir
vera komnir til Reykjavíkur, en
hinir eiginlegu nefndartfundir
átitu að hetfjast í morgun. Full-
trúunum seinkaði mjög, vegna
þess hve flúgsamgöngur til ís-
lands voru úr skorðum.. Þeir,
sem áttu að koma í fyrrinótt
komu ekki fyrr en kl. 6 síðdegis
í gær þar á meðal formaður
nefndarinnar, og flestir voru í
gær að koma á eftir á ætlun,
og eftir langa og erfiða ferð.
í gær heimsóttu fulltrúar Al-
þingi og fylgdust með þingstörf-
um. Tóku þar á móti þeim for-
seti Sameinaðs þings, Birgir
Finnsson, formaður íslenzku full
trúanefndarinnar á ráðgjafar-
þingi Evrópuráðsins Þorvaldur
Garðar Kristjánssom, aðrir netfnd
armenn Eysteinn Jónsson og
Bragi Sigurjóngson og varamenn
í nefndinni Pétur Sigurðsson og
Jón Ármann Héðinsson, Flutti
Birgir Finnsson erindi um Al-
þingi íslendinga. í 'gærkvöldi
sátu fulltrúar kvöldverðarboð í
boði Aliþingis, en voru áður í
síðdegisdrykkju hjá formanmi ís-
lenzku fulltrúanefndarinnar.
Fundir nefndarinnar hefjast kl.
10 í dag á Hótel Sögu. Síðdegis
verður Reykjavík skoðuð og tek-
ur Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri á móti gestunum að Höfða.
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS — TÝSGÖTU 1 — SÍMI 12330.
NÝJAR VÖRUR TEKNAR UPP í DAG í RÁÐAR DEILDIR
DÖMUDEILD
★ PEYSUR FRÁ JOHN GRAIG
(Vestispeysur — Heilerma
vesti — Heilar peysur o. fl.)
★ BLÚSSUJAKKARNIR EFTIR-
SÓTTU KOMNIR AFTUR.
★ ALPAHÚFUR — BÆÐI
VENJULEGAR OG ANGÚRU.
★ SÍÐBUXUR ÚR ALLSKONAR
TWEEDEFNUM FÓÐRAÐAR.
★ DRAGTIR OG KÁPUR ÚR
ALLSKONAR TWEED.
HERRADEILD
★ STAKIR JAKKAR FRÁ
BRUMMEL OG FOX.
★ STAKAR BUXUR ÚR
TERYLENE OG ULL.
★ SKYRTUR — RUFFLE —
BLÚNDU, NÝ SNIÐ.
★ PEYSUR FRÁ „CITY
KN1TWEAR“ LONDON.
★ STUTTJAKKAR ÚR
FRÁBÆRU LEÐURLÍKI
Á BÆDI KYNIN.
SIAKSTEI^AR
Sjaldgæí hrósyrði
Það er sjaldgæft, að borgar-
stjórnarmeirihluti Sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík hljóti sér-
stakt hrós af hálfu andstæðing-
anna, er það hefur þó gerzt nú
með lagafrv. sem tveir Framsókn
arþingmenn hafa flutt á Alþingi
þar sem lagt er til, að aðstöðu-
gjöld megi hvergi vera hærra
en i Reykjavík. Þeir Skúli Guð-
mundsson og Stefán Valgeirsson
segja í greinargerð fyrir frv.
sinu að „aðstöðugjöldin koma
mjög misjafnlega þungt á gjald-
endur eftir því, hvar þeir eru
búsettir á landinu. Veldur þetta
óþolandi ranglæti og er hér brýn
þörf lagfæringar". Sem dæmi
um þetta ranglæti segja þeir,
að íbúar Reykjavíkur „greiði nú
aðstöðugjald, sem nemur %%
af matvörum í smásöluverzlun-
inni en á mörgum öðrum stöð-
um er gjaldið af þessum vörum
1-1%% og dæmi fá finna
um, að það sé 2 prs. eða 300 prs.
hærra en í Reykjavík“ segir í
greinargerð þeirra félaga. Þann-
ig er niðurstaða þessara Frarn-
sóknarþingmánna, að önnur sveit
arfélög þ.á.m. þau, sem Fram-
sóknarmenn stjórna eða eiga þátt
í að stjórna, eigi að taka sér
skattaálagningu Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík sér til fyrir-
myndar.
Trúnaðarbrot
þingmanns
í fyrradag var þingmönnum
afhent skýrsla EFTA-nefndarinn-
ar. Aðrir aðilar t.d. dagblöðin
gátu ekki fengið þessa skýrslu.
Hins vegar birti kommúnistablað
ið í gær, eitt blað, upplýsing-
ar úr þessari skýrslu. Einn af
ritstjórum kommúnistablaðsins er
jafnframt alþingismaður og ligg
ur því beinast við að ætla upp
lýsingar Þjóðviljans um efni
skýrslunnar séu frá honum komn
ar. Verður því ekki annað séð
en þessi alþingismaður hafi fram
ið vítavert trúnaðarbrot og gef-
ur það harla einkennilega hug-
mynd um afstöðu hans til þing-
mennskunnar og þeirrar skyldu
sem henni fylgir.
Hafa þeix gleymt
Tékkóslóvakíu ?
Síðustu vikur hafa menn fylgzt
með þeim átakanlegu atburðum
er Sovétríkin hafa smátt og smátt
hert tökin á hinum hearteknu
Tékkóslóvökum. Leiðtogar þeirra
hafa verið kallaðir til Moskvu
við og við og látnir sæta afar-
kostum. Nú síðast hafa þeir ver-
ið látnir skrifa undir nauðungar-
samninga um varanlega dvöl sov
ézks herliðs í landi. Um allan
heim hafa menn fylgzt með þess-
um atburðum, sem vakið hafa
fyrirlitningu allra lýðræðissinn-
aðra manna jafnframt því sem
samúð manna með Tékkóslóvök-
um er óskipt. Þegar innrásin var
gerð i Tékkóslóvakíu í ágúst-
mánuði gerði kommúnistablaðið á
tslandi ákafar tilraunir til þess
að þvo hendur sínar af þeim
verknaði en tókst óhönduglega.
„Mikið mega Tékkóslóvakar
fagna því að eiga engan Sjálf-
stæðisflokk. — Og ekkert Morg-
unblað", sagði einn af ritstjórum
kommúnistablaðsins sama morg-
unn og glæpaverkið var framið.
Þar með var því lýst yfir af
kommúnistum á íslandi að Tékk
óslóvakar hefðu ekkert að gera
við frjálsa flokka og frjáls blöð.
Að undanförnu hefur verið hljótt
um Tékkóslóvakíu á siðum komm
únistablaðsins. Það blað hefur
ekki séð ástæðu til að taka af-
stöðu til síðustu nauðungarsamn-
inganna, sem pínt var upp á
Tékka og Slóvaka. Með þögn-
inni hafa kommúnistar staðfest
það, sem alltaf var vitað, að þeir
gráta þurrum tárum örlög tékk-
nesku þjóðarinnar.
*
<