Morgunblaðið - 24.10.1968, Qupperneq 17
MORGUJNTBLA.ÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBBR 1968
17
d) Þar sem menntir eru í jafn
litlum metum og hjá oas,
væri sennilegt að meira-
próf á bifreið væri ungum
kennara þarflegra en há-
skólapróf. (111,2)
Jóhann Hannesson hefur
miklar áhyggjur af þeirri þró-
un, sem beinist að auðsöfnun,
veraldarhyggju og aukinni vél-
ræn/u í þjóðfélagi voru. Slíkt
mat er í fy'llsta máta eðtilegt og
réttlætan/legt, enda mun hann
ekld einn um þessa skoðun. En
þrátt fyrir það ber oss að horf-
ast í augu við veruleikann og
meta málefnin í tengslum við þær
aðstæður sem skapast hafa í
þjóðfélagi voru í dag. Hinn of-
stækisfulli dómur, sem JH fellur
um starfsemi vísindamanna á
meira skylt við miðaldaguðfræði
en sjónarmið nútímaguðfræðings.
Höfundur drepur á skólarann
sóknir, sem athygKsvert fyrir-
bæri, Bn í ljósi þess, sem að
framan getur er greinilegt að höf
á hér við hina hefðbundnu
nefndastarfsemi, sem ekkert á
skylt við skólarannsóknir í nú-
tíma skilnin/gi Höfundur ger-
ir enga tilraim til að aðgreina
hið jákvæða framlag vísinda-
manna til nútíma velmegunar.
Eftir greinum hans að dæma eru
þeir allir „tæknikrata" upp til
hópa, sem vinna gegn lýðræðis-
legum hugsunarhætti en stuðía
að einræðislegum stjórnarhátt-
um. Vísindáleg skipulagning er
honum grein/ilega mjög fjarri
skapi. Af þessum ástæðum telur
hann að alþýða manna eigi að
berjast gegn áhrifum þessarra
manna sem þrátt fyrir allt,
leggja áherzlu á að skýra þau
vandamáþ sem almenningur hef-
ur ekki aðstöðu til að skilja. En
hvers vegna ætti Jóhann Hann
esson að hafa áhuga á að skýra
mátin fyrir alþýðu manna? í
hans augum eru það þingmenn-
irnir, ráðherrarnir og skóla-
nefndarmennina, og ekki nóg
með það, heldur vilja þeir líka
taka upp starfshætti, sem ef til
viiil eru í andstöðu við hefðina.
Svo langt gengur stuðningur JH
við kerfið að hann hikar ekki
við að segja, að „Skólamenn
vorir eigi ekki að ráða því, sem
kennt er í skölunum." Þá er
ekki furða þótt tæknikraitarnir
fái orð í eyra. Hugsunin er öll-
mjög í samræmi við þá skýr-
ingu að valdhafinn starfi eftir
guðlegri útnefningu og þar af
leiðnadi sé Ktil ástæða til að
kvarta. Reyndar segir JH að
gott væri fyrir álþingismervn að
læra námsskrána utanað, og sé
ég enga ástæðu til að ætla að
höfundur sé hér að skopast að
sinni eigin hugmynd. Samkvæmt
kenningum JH ber oss því um-
fram allt að virða og meta það
vald, sem alþingismenn ráðherr-
ar og skólainefndarmenn hafa,
og er margt gott um það að segja.
Á hinn bóginn kemur í ljós að
ef hinir útnefndu ráðamenn
reynast miður færir um stjórn-
semi og vizku þá er ábyrgðin
ekki þeirra, heldur alþýðunnar.
Til þess að tryggja enn fremur
hina óhagstæðu aðstöðu almenn
imgs, hvetur JH menn tií að
berjast gegn sérfræðingum svo
að öruggt sé að forsvarsmenn
kerfisins geti haldið mönnum í
áframháldandi, endalausri for-
myrkvun.
Jóhann Hannesson segir:
„Senndlega fá menn hvorki betri
né verri skóla en þeir eiga skil-
ið,“ og á öðrum stað segir hann:
„Þunn menntun hæfir mörgum
og margir sætta sig vel við þunna
menntun". Báðar þessar stað-
hæfingar eru í samræmi við þær
skoðanir, sem hann hefur opin-
berað. Þær eru í ósamræmi við
þær skoðanir, sem hin nýja
kynslóð berst fyrir. Hin nýja
kynslóð er ekki þeirrar skoðun-
ar að sleifarlag og manndóms-
leysi, sem einkenmt hefur stjórn
fræðslumálanna á síðustu árum
sé á ábyrgð almennings. Jóhann
Hannesson íeggur mikið á sig
við að afsaka stjórnarvöldin, og
það þrátt fyirir þau hörðu orð,
sem hann notar í gagnrýni sinni
á hinu algera stjórrileysi, sem
ríkt hefur í þessum málum und-
ir stjórn núverandi menntamála-
ráðherra. Rök hans eru þau, að
vegna þess að almenningur hef-
ur valið þessa menn til - að
stjórna, þá beri alþýða manna
einnig ábyrgð á afleiðingunum.
JH leggur einnig á það áherzlu
að sérfræðingar séu þjóðfélag-
inu til óheilla og stuðli að hvers
kyns vandræðum. Á hinn bóg-
inn vi'll JH. viðhalda úreltum
vinnubrögðum, þar sem hinar vel
þekktu nefndir kerfisins starfa
eftir misjöfnum starfsreglum.
Þrátt fyrir gagnrýni þá, sem
JH. setur fram er trúmennska
hans við valdið og hefðina slíkt
að hann segir óhikað, „flest er í
lagi“. Það er reyndar eitt at-
riði, sem ég get, að endingu bent
Jóhanni Hannessyni á, að er í
lagi. Hin nýja kynslóð hefur
vaknað til meðvitundar um að
fíest er í ólagi með fræðslukerf-
ið. Hin nýja kynslóð á betra
skilið en úrelt og ómannúðlegt
skólakerfi, kerfi sem hæðist að
þeim, sem ekki hafa skerpu, að-
stöðu eða skap til að fullnægja
þeim kröfum, sem úreltir náms-
hættir fela í sér, kerfi sem lam-
ar Kfsþrótt og sjálfsvirðingu
þess stóra hóps, sem ekki er bú-
inn þeim námsgáfum, sem nauð-
synlegar eru til þess að stand-
ast þær prófkröfur, er hinn „al-
vitri dómstóíl“ setur.
Það kerfi sem þjóð vor þarfn
ast í dag mun stuffla að því að
efla og styrkja þjóðfélag Vort.
Það mun veita hverjum einstak-
lingi aðstöðu til að hljóta þá
menntun, sem hann óskar, og
halda slíku námi áfram svo lengi
sem hann getur sýnt fram á
hæfileika til að leysa af hendi
þau verkefni, sem gefa til kynna
viðunandi hæfni. Kerfið á að
stuðla að því að æska vor öðl-
ist glöggan skitning á hinu já-
kvæða effli fræðslu- og mennta-
stofnana þjóðfélagsins. Það skóla
kerfi, sem vér höfum í dag hefur
ekkert af þessum eiginleikum.
Það einkennist öllu fremur af
þeim eiginleikum, sem eru í ætt
við stöðnun, úrkynjun og mann
dómsleysi. Hið íslenzka skóla-
kerfi stuðlar gegn því að æska
vor vaxi upp frjáls, þróttmikil
og hugmyndaríki. Kerfið hefur
lamandi áhrif á hvern venju-
legan nemanda, það gerir nem-
endur þreytta og leiða, það ger-
ir kennarana þreytta og leiða,
85^3
ISAL
Hliðvörður
Óskum eftir að ráða sem fyrst mann til
starfa á vöktum við hlið Álbræðslunnar í
Straumsvík.
Nánari uppl. hjá starfsmannastjóra.
Skriflegar umsóknir sendisl til íslenzka
Álfélagsins h.f. pósthólf 244, Hafnarfirði.
það gerir fore'ldrana þreytta og
leiða og það gerir þjóðina alla
þreytta og leiða. Kerfið gerir
nemendur skólanna óörugga og
hrædda, þannig að þeir vita
naumast hvað þeir geta og hvað
þeir geta ekki. Kerfið gerir heil
brigða nemendur að sjúklingum,
sem í fálmandi lbindu leitast við
að gera eitthvað til að Ijúka
þeim verkefnum, sem þeim er
falið að íeysa af hendi. Kerfið
gerir skóla landsins óvinsæla,
það gerir lærdóm óvinsælan, það
gerir kennarana að leiðinlegum
stöglurum. Kerfið er óhnitmiðað,
stefnulaust og sundurlaust og
gefur þess vegna duglausum og
hugmyndasnauðum menntamála-
ráðherra lagalegan rétt til að
viðhalda ófremdarástandi og
réttlæta slíka framkomu, enda
þótt þjóðin láti í ljós einbeittan
vilja til að koma á umbótum. Af
þessum sökum er kerfið einnig
óábyggilegt og óljóst og ískjóli
þessháttar fyrirkomulags getur
stöðnunarstefnan auðveldle^a
þróast.
Þetta skólakerfi þarf nú að
endurskoða rækilega, en ekki á
þann hátt sem gert hefur verið
á undanförnum árum, ekki til
þess eins að gera breytimgar,
vegna þess að fólkið viH breyt-
ingar. Hér dugar ekki hin ímynd
aða skarpskyggni afburðamanns
ins, sem 'leitar niðurstöðunnar í
hugmyndaflugi kaffibollaheim-
spekinnar. Þetta mál verður
ekki leitt til lykta með því að
fela það í hendur mönnum, sem
ekki skilja hvað að er. Slíkir
menn geta ekkert gert til úr-
bóta, enda sjá þeir ekkert til úr-
bóta. Þessi mál geta ekki gengið
eins og verið hefur að undan-
förnu. Þjóð vor hefur ekki efni
á því að viðhalda stétt dug-
lausra fúskara, sem ekkert sjá
til úrbóta þegar æska landsins
rís upp til almennra mótmæla
vegna hörmungarástandsins, sem
forráðamenn íslenzkra fræðslu-
mála hafa leitt yfir almenning.
Hér þarf þjóðin sjálf að grípa í
taumana. Hið úrélta embættis-
mamnakerfi þarf einnig að end-
urnýjast frá grunni. Þjóðin vill
fá fleiri dugandi embættismenn,
sem nú eru of fáir, embættis-
menn sem kunna til verka og
geta notfært sér þá tækni og
menntun, sem vísindi nútímans
hafa skapað. Þessum mönnum
Húseigendafélag Reykjavíkur
Skrifstofa á Bergstaðastr. lla.
Sími 15659. Opið kl. 5—7 alla
virka daga nema laugardaga
Richard Tiles IQ
VEGGFLISAR
Fjölbreytt litaval.
H. BBEMKTSSON Hf.
Suðurlandsbraut 4.
Sími 38300.
þarf þjóðin svo sannarlega á að
hálda. Þjóðin vill einnig gefa
embættismönnum sínum tækifæri
til að sýna að þeir eru starfi
sínu vaxnir. Slíkt fyrirkomulag
fæst ekki með því að sitja við
orðin tóm. Framtakssamir, dug-
andi menn og konur í öllum
stjórnmálaflokkum þurfa þvi að
sameinast um að knýja stjórn-
málamenn þjóðarinnar til að
virða kröfu þjóðarinnar. Sá
menntamálaráðherra, sem vér
sitjum nú uppi með hefur ekk-
ert þess háttar á sinni könnu.
Hann hefur ekki í huga að gera
1 neinar breytingar, er leiddu til
þeirra umbóta, sem ég hefi drep-
ið á hér að framan. Hvers vegna?
Vegna þess að hann sér ekker-t
athugavert við fræðslumálin. f
hans augum er þetta allt harta
gott.
Ég hef þær fréttir að flytja
menntamálaráðherra að þjóðin
ætlar sér að knýja þessi mál
fram til sigurs á grundvelli þess
réttar, sem frjálst þjóðfélag heim
ilar. Frá hendi menntamálaráð-
herra getur þjóðin ekki vænzt
neinna slíkra umbóta, enda hef-
ur hann svo sannarlega fengið
ærinn tíma til að sýna hæfi-
’leika sína og getu.
Stórt iðnaðar- og verilunarfyrirtæki
hér í borg óskar eftir að ráða ungan mann til að
annast verðútreikninga, tollskýrslur og sölumennsku.
Enskukunnátta nauðsynleg.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf sendis/t
afgreiðslu Morgunblaðsins merktar: „Starf — 6750“
fyrir 28. þ.m.
Sjúkraíiðar óskast
Sjúkraliða vantar nú þegar í Vífilsstaðahælið.
Latm samkvæmt úrskurði Kjaradóms.
Allar upplýsingar veitir forstöðukonan á staðnum
og í síma 51855.
Reykjavík, 22. október 1968
Skrifstofa ríkisspitalanna.
Baðskápar
Fjölbreytt úrval. — Hagstætt verð.
A /. Þorláksson & Norðmann M.
BOCAGE
MADE IN FRANCE
FRANSKIR
KVENSKÓR
NÝTT ÚRVAL
8PILAKVÖLD
Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði
verður fimmtudaginn 24. október kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu.
Góð kvöldverðlaun. — Kaffiveitingar.
N EFN DIN.