Morgunblaðið - 31.10.1968, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1968
(búðarhúsið að Stöð
í Stöðvarfirði brann
UM miðnæturleytið í fyrrinótt
varð elds vart í íbúðarhúsinu á
bænum Stöð, sem er annar
tvegrgja fyrir botni Stöðvarfjarð
ar. Fólk úr þorpinu á Stöðvar-
firði brá hart við og tókst að
slökkva eldinn á tveimur kiukku
stundum. íbúðarhúsið er óíbúð-
arhæft, en ekki talið ónýtt. Elds
upptök munu vera frá miðstöðv
artækjum.
Á Stöð búa hjónin Jóhannes
Ásbjörnsson og Guðný Þorbjörns
dóttir. Tókst þeim að koma skila
boðum um eldinn um síma og
var brugðið hart við. Slökkvi-
starf gekk eftir vonum vel og
var vatn borið að í fötum. Gólf-
ið í stofu hússins, sem er tvílyft
gamalt steinhús, timburklætt að
innan, brann mjög, en það er
yfir miðstöðinni. í kjallara voru
geymdir hjólbarðar og komst eld
ur í þá. Sótaðist íbúðarhúsið allt
mjög að innan og mikinn reyk
og fýlu lagði frá eldinum.
Er eldsins varð vart var frú
Guðný gengin til náða, en Jó-
hannes las í bók. Hefði hann
verið sofnaður er trúlegt að
meira tjón hefði orðið.
Við slökkvistarf forðuðust
menn að brjóta gler í gluggum,
svo að ekki myndaðist dragsúg-
ur í húsinu. Ekki mun innbú
hafa orðið fyrir miklum skemmd
um, því að því var bjargað að
mestu út úr húsinu.
Sprengíng varð
í frystihúsinu
BÚIZT er við að dómsrannsókn
á hrunanum í frystihúsi Þórðar
Óskarssonar á Akranesi hefjist
í dag, en eins og kunnugt er
brann hluti frystihússins til
kaldra kola á þriðjudagsmorgun.
I gær vann lögreglan að þvi að
safna gögnum fyrir rannsóknina.
Hermann Jónsson, fulltrúi bæj
arfógetans á Akranesi, tjáði Mbl.
í gær, að ekkert hefði enn kom-
ið fram, er benti til eldsupptaka.
Um kL 05 umrædda nótt, varð
að því er virðist, sprenging í hús
inu og heyrðist hún víða. Rúm-
lega hálf sex, varð svo vart elds
og var slökkviliðið þá kallað út
með lúðrum. Það var komið á
vettvang upp úr 06 og var þá
húsið alelda.
Nöfnum kynforeldra
skal haldlð leyndum
-t- Hœstirétfur staðfestir undirréttardóm
í Lœknatalsmálinu
HÆST1KÍ5TTUR staðfesti í gær
undirréttardóm í svonefndu
Læknatalsmáli, sem fjallaði um,
hvort útgefendum leyfðist að
birta nöfn kynioreldra án leyfis
kjörforeldra. Læknir nokkur, er
átti kjörbarn hafði látið leggja
lögbann við útkomu ritsins
„Læknar á íslandi“ og var lög-
Sækir Hunnibol
landsíund
flokks síns
— sem hefst á morgun
FRAMKVÆMDASTJÓRN Al-
þýðubandalagsins boðaði til
blaðamannafundar í gær og
gerði Ilaraldur Steinþórsson þar
grein fyrir Landsfundi Alþýðu-
bandalagsins, sem hefst í Sig-
túni á morgun kl. 2.
Haraldur sagði að áætlaður
fjöldi fulltrúa væri 140 en þegar
hefðu 120 tilkynnt þátttöku sína
Aðalmál landsfundarins verða
laga -og skipulagsmál og drög að
stefnuskrá. Aðspurður um fjölda
fulltrúa úr Norðurlandskjördæmi
eystra sagði Haraldur að 3 hefðu
tilkynnt þátttöku, félagið á Ak-
ureyri hefði fellt með 36 atkv.
geg.n 30 að senda fulltrúa en fund
ir yrðu í kvöld á Húsavík og í
Eyjafirði. Frá Vestfjörðum kæmu
fulltrúar frá öllum félögum nema
félaginu í Bolungarvík.
Talsmaður fx-amkvæmdastjórn
ar Alþbl. sagði, að skrifstofu
samtakanna hefði engin tilkynn-
ing borizt um það, hvort Hanni-
bal ‘ Valdimarsson, formaður
Alþbl. mundi sækja landsfund-
inn.
bannsúrskurðurinn staðfestur.
Má því ekki birta nöfn kynfor.
eldra mótmæli kjörforeldrar.
Hæstiréttur taldi að samkvæmt
grundvallarreglum laga um þagn
arrétt um einkalíf, eigi umrædd-
ur læknir heimtingu á því að
nöfn kynforeldra séu ekki birt í
bókinni „Læknar á íslandi“.
Samkvæmt upplýsingum Mbl.
mun vera svipað ástatt um 30 til
40 lækna, sem getið er I ritinu.
6 dagar tíl stefnu — Kaupið miðu — Gerið skil
NÚ eru aðeins sex dagar þar til
dregið verður í hinu glæsilega
bílahappdrætti Sjálfstæðisflokks
ins. Vinningar eru tveir Merced-
es Benz fólksbílar og verðmæti
þeirra er rétt undir milljón. Verð
happdrættismiðanna er á hinn
bóginn aðeins 100 krónur.
Sjálfstæðismenn hafa fengið
senda miða í þessu landshapp-
drætti, og eru margir búnir að
gera skil nú þegar. En betur má
ef duga skal. Eru því þeir, sem
enn eiga eftir að gera skil, hvatt-
ir til að gera það hið fyrsta.
Skrifstofa happdrættisins er í
Sjálfstæðishúsinu við Austur-
völl. Þar eru miðar einnig til
sölu, og eins í happdrættisbíl-
unum sjálfum, þar sem þeir
standa í Austurstræti.
Aukin þjónusta
bíladeildar SÍS
UM þessar mundir standa fyrir
dyrum allverulegar breytingar á
starfsemi bíladeildar Sambands
fslenzkra samvinnufélaga, að því
er segir í fréttatilkynningu frá
Véladeild SfS.
Tilgangurinn mun "vera þrí-
þættur, að stuðla að bættri vara
hlutaþjónustu fyrir eigendur
Chevrolet, Opel, Vauxhall og
Bedford-bifreiða, bættri aðstöðu
á sölu bifreiða og sölu á notuð-
um bifreiðum, en slíka aðstöðu
hefur bíladeildin ekki haft til
þessa.
Brátt mun tekinn í notkun 300
fermetra sýningarsalur fyrir bíla
sölu deildarinnar að Ármúla 3.
Munu þá kaupendur nýrra bíla
geta selt gömlu bílana sina hjá
bíladeildinni.
Sýning Jóhann-
esar í HR-salnum
SBLZT hafa 10 myndir af 31 á
sýningu Jóhannesar Jóhannes-
sonar í HR-salnum á 2 .hæð húss
ins Brautarholt 2. Myndirnar
eru allar málaðar í olíu. Sýning-
unni lýkur á sunnudagskvöld og
hún er opin dag hvern frá kl.
09 t.il 22.
/ BORGARNESI
ÁRSHÁTÍÐ Sj álfstæðisf élag-
anna í Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu verður haldin laugardag-
inn 2. nóvember að Hótel Borg
arness og hefst kl. 20. Pálmi Jóns
son, aliþingismaður flytur ræðu,
og að venju verður sameigin-
legt borðhald og ýmsir skemmti-
þættir fluttir meðan á snæðingi
stendur.
Á eftir verður dansað og leik-
ur hljómsveitin Fjarkar fyrir
dansinum.
Vínskammtur
minnkaður
— I 3 sentilítra úr 4
— Álagning vínveitingahúsanna á vjn
er nú 110 prósent
VÍNSKAMMTUR í vinveitinga-
húsum mun hækka í næstu viku
um það bil 33%. Vínskammtur-
inn mun þó kosta hið sama og
áður, en magn hans minnkað úr
4 sentilítrum í 3. Verðhækkun
þessi hefur þegar hlotið sam-
Vélarbilun líkleg
orsök f lugslyssins
— í flugvélinni, sem íslenzki flugmaður-
inn fórst með i Suður-Ameríku
SVO sem fyrr hefur verið greint
frá í Morgunblaðinu, fórst íslenzk
ur flugmaður, Hans Ágústsson,
í flugslysi í hollenzku Guiana í
Suður-Ámeríku sl. föstudag.
Vélin var af gerðinnii DC-3
og var eign hollenzka flugfélags-
ins KLM og sú síðasta af þessari
tegund í eigu félagsins.
Áhöfn vélarinnar, 5 manns,
vann við að setja staðarnöfn á
kort í sambandi við landmæling
ar, en þetta verk var unnið með
styrk frá Alþjóðastofnuninni. 2
af 5 manna áhöfn komust lífs af
Flugvélin hélt af stað í könn-
unarflug sl. fÖ3tudagsmorgun og
heyrðist síðast til hennar kl. 9.10
um morguninn og virtist þá allt
vera í bezta lagi
Strax og vélarinnar var aakn
að, þegar hún kom ekki til lend-
ingar á áætluðum tíma og sam-
band náðist ekki, var hafin leit
að vélinni með 4 flugvélum og
þar af einni þyrlu.
Á laugardaginn fannst vélin í
þéttum frumskógi við fjallið Taf
elberg. Var þyrlan send til þess
að lenda hjá flakinu, þar eð mjög
örðugt var að komast að því á
annan hátt og bjargaði þyrlan
þeim tveim sem lifðu af flugslys-
ið. Þeir tveir, sem eftir lifðu
meiddust mjög lítið, en þeir voru
staddir aftast í vélinni, þegar
slysið varð.
Sérstök rannsóknarnefnd frá
Hollandi hefur verið send á slys-
staðinn til þess að kanna orsak-
ir slyssins, en við fyrstu athug-
un telja rannsóknarmenn að ann
ar mótorinn hafi stöðvast og hafi
það orsakað slysið.
þykki, en eftir er að ganga frá
reglugerðarbreytingu og hefur
staðið á þvi að skammtamælar
hafi komizt til landsins og verða
þeir síðan löggiltir..
Ólafur Walter Stefánsson, full-
trúi í dómsmálaráðuneytinu,
sagði í viðtali við Mbl. í gær, að
veitingahúsaeigendur hefðu
lengi barizt fyrir hækkun
álagningar á vín, en til þessa
hefur ekki verið gengið að kröf-
um þeirra. Frá því í fyrra hefur
álagningin minnkað í prósent-
tölu tvisvar við hækkun áfengis,
þótt hún hafi haldizt að krónu-
tölu. Nú hefur verið fallizt á að
vínskammturinn verði minnkað-
ur, en verðið haldist óbreytt.
Samhliða þessu hafa veitinga
húsaeigendur fallizt á að hækka
ekki matarverð, enda hafa þeir
þegar auglýst það óbreytt í aug-
lýsingapésum ferðaskrifstofanna
fyrir næsta sumar. Hækkun
vínverðsins hefur enn ekki kom-
ið til framkvæmda, vegna þess
að magnmælar eru enn ekki
komnir til landsins. Þá verður
gerð krafa um löggildingu
þeirra.
Fyrir þessum breytingum hef
ur álagningin á vinskammt ver-
ið ærið mismunandi eftir vin-
tegundum og var hún í sumum
tilfellum komin niður í 56%. Nú
verður hún jöfnuð, þannig að
hún verður 110% á allar vínteg-
undir. Um leið er fellt inn í
álagninguna 2.5% gjald, er
greiða átti ýmis konar útgjöld.
Þá skal taka fram að þegar
talað er um 110% álagningu á
vínskammt er þjónustugjald
ekki innifalið. Þjónninn leggur
15% ofan á vínverðið frá hús-
Kranosljóri
féhk raflost
SLYS varð við Krossamýri —
austan Elliðaáa í gær, er bóma á
krana rakst í háspennulínu, er
liggur að Áburðarverksmiðjunni.
Slasaðist ökumaður kranans og
var færður í Slysavarðstofuna.
Slysið var með þeim hætti, að
maðurinn ætlaði að færa kran-
ann. Er hann ætlaði að hemla,
s'átu hemlarnir frosnir og rann
kraninn á háspennulínuna, sem
er 33000 volt. Lítið álag var þó
á línunni, aðeins 1500 kílówött
í stað 16000 venjulega.
Raflostfð var þó svo mikið að
maðurinn missti meðvitund, en
gúmhjólbarðar kranans munu
hafa bjargað honum. Öryggi í
Elliðaárstöðinni rauf straummn
þegar í stað, en jörð umhverfis
kranann sviðnaði.
Vonzkuveður
og erfitt um
snjómokstur
ÁSTAND vega var óbreytt í gær
kvöldi frá því er sagt var í Mbl.
í gær, nema hvað verið var að
ryðja snjó af Ólafsfjarðarvegi
fyrir Ólafsfjarðarmúla. Vonzku-
veður var bæði á Vestfjörðum
og Austfjörðum í gær og því ekk
ert hægt að aðhafazt við snjó-
mokstur.
Á Norðurlandi voru allir veg-
ir færir, nema Siglufjarðarvegur,
sem var tepptur í skriðunum
við Strákaveg. Hættir veginum
þar mest til þess að teppast.
Slys á Reykjalundi
SLYS varð í eldhúsinu á Reykja-
lundi í Mosfellssveit í gær er
aðstoðarstúlka, sem var að saga
kjöt, fór í sögina og skarst illa
á hendi. Stúlkan var flutt í Slysa
varðstofuna, en síðan í Lands-
spítaiann.
inn að mæta
ekki
Blaðinu barst í gær eftir- |
farandi yfirlýsing frá Birni j
Þorsteinssyni, formanni ís- .
lenzk-Tékkneska félagsins: '
Leiðarahöfundur Morgun-1
I blaðsins dróttar dálítið óþyrmi (
lega að dr. Gylfa Þ. Gísla-
1 syni, menntamálaráðherra, í ’
| dag, 30. okt., að hann hafi1
, látið stjórnast af óskiljanlegu |
diplómati, er hann sótti ekki ,
I fund Íslenzk-Tékkneska félags '
I ins á mánudagskvöld sl. Það \
skal upplýst, að dr. Gylf i |
bauðst til þess að sækja fund |
inn, en var beðinn að gera'
I það ekki af aðilum, sem hann '
hlaut að virða eins og sakir j
stóðu.
Björn Þorsteinsson.