Morgunblaðið - 31.10.1968, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1968
Mál drykkjusjúklinga
FYRRI hluti fyrirlesturs Stein-
ars Guðmundssonar á geðheil-
brigðisviku Tengla.
Erindi þessu hefir verið valið
nafnið MÁL DRYKKJUSJÚKL-
INGA Á ÍSLANDL
Til að geta gert þessu máli
nokkur skil, varð ég að skil-
greina hvað ég álít að almennt
sé átt við með orðinu „drykkju-
sjúklingur" og einnig hvaða
merkingu ég legg sjálfur í það
orð. Flestir mundu segja að
drykkjusjúklingur sé maður sem
ræður ekki við drykkjufýsn sína.
Að vissu leyti get ég fallizt á
þetta, en þó ekki án athuga-
semda. Mér virðist mjög hæpið
að binata hugtak er á við það
ástand sem á erlendu máli er
kallað alkoholismi, við orðið
„drykkja", hvað þá heldur
„drykkjusýki“. Það kemur fram
sem ljótt og fráhrindandi orð, sem
auk þess er villandi, því alko-
holistinn leitar í fæstum tilfell-
um fyrst og fremst eftir því að
„skola einhverju niður kverk-
arnar — hann er miklu frekar
að leita þeirra töfra sem í næsta
sopa kunna að felast. En leynd-
ardómur ástríðunnar fellst ætíð
í flöskunni sem næst verður opn
uð. í þessu er áfengisástríðan
ekkert frábrugðin öðrum þeim
ástríðum sem reynt er að breiða
yfir af því að við þær verður
ekki ráðið með skynseminni einni
saman.
Drykkjuskapur er svo marg-
víslegur, og eðli hans slíkt, að
alkoholisminn fær aldrei heiðar-
lega málsmeðferð verði honum
gefið þetta handahófs nafn —
drykkjusýki.
Allir vita að meirihluti þjóð-
arinnar viðurkennir að til er sú
drykkja sem talin er eðlileg, og
sem talið er að engan varði um
annan en þann sem hana iðkar,
— á ég hér við svokallaða sam-
kvæmisdrykkju, — eða áfengis-
notkun í ígripum, sem í fram-
kvæmd er aðeins ívaf annars tím
stundagamans, og verður ekki
upprætt þótt segja megi að slík
drykkja gefi sjúkum fordæmi, —
og öðrum átyllu. En ég verð líka
hér að slá vamagla, því með orð
inu samkvæmisdrykkja á ég alls
ekki við hina svokölluðu „hóf-
drykkju“ nema að litlu leyti —
en að því kem ég síðar.
Mér finnst sem ég verði að af-
greiða svolítið betur frá mér orð
ið „drykkjusýki“, og „drykkju-
sjúklingur" — þótt mér verði
það á að grípa sjálfur til þeirra
stundum. Mér finnst sem þessi
orð teymi hugann frá áhrifa-
svæði áfengisins til athafnarinn-
ar sem felst í því að neyta þess,
og bjóða þau því strax heim
hinu gamla óleysanlega þjarki
um áfengi eða áfengi ekki —
drykkju eða ekki drykkju.
Drykkjuathöfnin verður aldrei
slegin út — það vitum við öll —
hún verður aldrei slegin út með
beinni sókn, því ætíð er hægt
að benda á mýmörg dæmi skað
lausrar drykkju, sem engan ut-
anaðkomandi varðar hið minnsta
um. Það er því óhugsandi að mað
ur nái samstöðu þjóðarinnar til
aðgerða gegn ofdrykkju og alko
holisma ef byrjað er á því að
beina huganum að sjálfri neyzlu
áfengisins — drykkjusjúkling-
um og drykkjusýki.
Við skulum því ýta þessum
orðum úr forsæti, og setja í
þeirra stað útlenzku orðin alko-
holismi og alkoholisti. Við höf-
Steinar Guðmundsson.
um notað þessi „isma“orð áður
— í öðrum tilfellum — og tek-
ist vel. Er það ekki einmitt þessi
„ismi“ áfengisáhrifanna — þessi
óskiljanlega náttúra, sem lækn-
ar og sálfræðingar eru sífellt að
kafa eftir — þessi náttúra sem
slær einn flatan meðan annar
leikur sér — er það ekki ein-
mitt þessi náttúra áefngisins —
þessi „ismi“ eða „kennd“ sem
felur í sér þann bölvald sem af
áfengisnotkun getur leitt.
Við skulum þá aftur snúa okk
ur að verkefninu, og kalla það
„mál ofdrykkjumanna á íslandi“
í stað drykkjusjúklinga.
Frá þjóðfélagslegu sjónarmiði
tel ég að ekki verði ráðist gegn
alkoholisma nema annarri of-
drykkju verði tekin tök jafn-
framt, því í framkvæmd er alko
holismi og ofdrykkja svo sam-
ofin að ekki verður þar í milli
skilið í fljótheitum, enda ástæðu
laust að reyna það.
ALKOHOLISMI
meðfæddur alkoholismi
áunnin alkoholismi
flótti til alkoholisma
OFDRYKKJA
þjór
auðnuleysi
hófdrykkja — plús —
KAU PM AN N ASAMTÖK
ÍSLANDS
Félng söluturnoeigendn
Aðalfundur félagsins er í kvöld, fimmtudag
31. okt. kl. 20.30 á skrifstofu K. L, Marar-
götu 2.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Rætt um lokunartíma sölubúða.
3. Skýrt frá samningaviðræðum við
sælgætisverksmiðjur innan
Félags ísl. iðnrekenda.
STJÓRNIN.
á Islandi
UERK
RÐ
umnn
Byggjum
geðdcildir.
Menntum
siarísfólk.
um við þær, væri málið mun
auðveldara viðfangs en raun er
á. En ýmiskonar ofdrykkja önn
ur, sér fyrir því að það er ekki
hægt.
Til ofdrykkja tel ég „þjór“.
Þjórararnir eiga það sameiginlegt
að þeir þola áfengisáhrifin bet-
ur og lengur en venjulegum aft-
urbatabyttum eins og mér er
skiljanlegt. Þeir geta e.t.v. drukk
ið 7 daga vikunnar árum eða
jafnvel áratugum saman, og hætt
svo einn góðan veðurdag, bara
af því, að læknirinn þeirra sagði
þeim að nú væri nóg komið, —•
eða þá að heimilið hafi verið
komið á vonarvöl, — því það er
dýrt að drekka.
Ég get vel fallist á að kalla
þessa menn áfengissjúklinga, en
alkoholistar eru þeir ekki, I
venjulegum skilningi, þvl stig-
Framhald á bls. 19
ÚTBOÐ
Af reynslunni þykist ég geta
greint alkoholisma í þrjár læn-
ur:
1. Meðfæddur. Meðfæddan tel
ég þann alkoholisma vera þegar
viðkomandi sýnir einkenni alko-
holista strax á 1. eða öðru ári
eftir að hann fer að smakka
það. En einkennin eru þau að
svo framarlega sem hann finnur
til áfengisáhrifa getur hann sjálf
ur ekki ákveðið hve mikið hann
drekkur eða hvenær hann hætt-
ir — og eftirá er hann ekki dóm
bær á þennan kvilla.
2. Áunnin tel ég þann alkohol-
isma vera, sem menn afla sér
með ofdrykkju. Þetta fólk hefir
árum saman sótt í áfengið sem
nautnameðal, og smám saman
brotið niður þær varnir gegn
eituráhrifunum, sem náttúran
gaf þeim í vöggugjöf. Venjulega
tekur þetta skemmdarstarf 10—
20 ár. Á þessu tíu ára tímabili
átta flestir sig, en alkoholisminn
hefir þá tekið völdin — og af
sjálfsdáðun ráða þeir ekki við
framhaldið.
3. Flótti til alkóholisma. Ég á
þar við þá sem vitandi eða óaf-
vitandi leita á náðir áfengisáhrif
anna á flótta sínum undan fargi
sem á þá leggst vegna ýmiskonar
skapgerðarkvilla. Þeir eru á
flótta undan raunveruleikanum,
— sínum eigin raunveruleika.
Þeir sjá fjall á veginum þar sem
ekkert fjall er — þeir halda að
þeir séu öðruvísi en aðrir menn
þótt aðrir geti ekki greint það
— þeir gefast upp fyrir ofur-
þunga imyndaðra óyfirstígan-
legra vandræðna, og leita á náð-
ir áfengisins — fyrst til að hressa
sig — síðar til að njóta algleymis
—og loks af þörf alkoholistans.
Er það ekki einmitt sjúkdómur
þessara manna sem Alfreð Gísla
son átti við í framsöguerindi sínu
hér í fyrradag — og hann kall-
aði „geðveilu". Þessi hópur
manna er langfjölmennastur með
al alkoholista, þótt áberandi sé,
að alkoholistar í afturbata kjósi
helzt að teljast til miðflokksins.
Efast svo einhver um að um-
ræður um ofdrykkju og alkohol
isma eigi erindi í Geðheilbrigðis
arvikuna?
Ef hægt væri að einangra alko
holismann við þessar uppsprett-
ur, og miða aðgerðir gegn hon-
Tilboð óskast í að byggja í fokhelt ástaind eiinbýlishúsiO
Austungerði 5, Reykjavík.
Útboðsgagna má vitja á Teiknistofuna Óðinstongi s/f,
Óðinsgötu 7, 2000 kr. skilatrygiginig.
Tilboðin verða opnuð á teiknistofunind Óðinstongi s/f
fimmtudagiinin 7. nóvember kl. 11.00 f.h.________________________
Gólfklæðning frá DLW
er heimskunn gæðavara.
GÓLFDÚKAR
GÓLFFLÍSAR
GÓLFTEPPI
við allra hæfi.
Munið
merkið
er trygging yðar fyrir beztu
fáanlegri gólfklæðningu.
Deutsche Linoleum Werke AG
Vegnn mikillor oðsóknor
framlengist sýningin í húsakynnum Bygg-
ingaþjónustunnar, Laugavegi 26, um eina
viku til 9. nóv. n.k.
Sýningin er opin mánud. til föstud. frá
kl. 1—6 e.h. og laugardaga frá kl. 10—12 f.h.
Séra Friðrik Friðriksson
Snlmor — Kvæði
Söngvnr
Fyrsta raunverulega
ljóðasafn sem gefið hef-
ir verið út eftir séra
Friðrik. — Formdli eftir
séra Sigurjón Guðjóns-
son.
Fæst hjó bóksölum.
Verð krónur 350,oo
BÖKAGERÐIN LILJA