Morgunblaðið - 31.10.1968, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 196S
13
umferð um Bústaðaveg, Hólm-
garð, Hæðargarð og Réttarholts
veg. Gjörið svo veí og skýrið
frá hvernig og hvenær ætlunin
er að ganga frá opnu svæðiRétt
arholtsvegar og svæðinu austan
Réttarholtsvegar og sunnan Rétt
arholtsskóla, meðfram hitaveitu
stokknum.
Borgarstjóri: Bústaðavegur
verður hraðbraut, Hólmgarður
verður íbúðargata, Hæðargarður
verður safnbraut og Réttarholts
vegur verður svokölluð tengi-
braut. Nú er ég ekki viss um,
að menn séu öllu nær þótt ég
svari þessari spurningu svo, en
ég hef að vísu hér skipulags-
kort. Það er gert ráð fyrir, að
Hólmgarður sé íbúðargata og að
ekið sé frá Réttarholtsveg yfir
á Hæðargarð og þaðan eftir nýrri
götu í gegnum Bústaðahverfi, er
fæðir bæði Hólmgarð og „lókal“
götu við Bústaðavegshúsin við
Bústaðaveg. Mér er það ljóst,
eins og kom fram í fyrirspurn
inni, að þessi fyriræthm hefur
sætt gagnrýni, m.a. er bent á,
að erfitt sé að leggja hinar nýju
safngötur inn í miðju hverfinu
eins og það er byggt núna, og
talið, að umferðin um Hæðar-
garð verði hættulegri miðað við
umferðarrýmið þar. Þessar at-
hugasemdir er gott að fá, áður
1 framkvæmdir eru lengra komn
ar. En það er hugsun aðalskipu
lagsins að reyna að hlífa ein-
stökum íbúum í hverfinu við
gegnum akstri. Að vísu njóta
þá góðs af því húsin sem nú
standa við Bústaðaveg og Hólm-
garð en aftur á móti versnar
e.t.v. aðstaða þeirra húsa, sem
ftanda við Hæðargarð. Þá er
spurt að því hvernig og hvenær
eigi að ganga frá opnu svæði
austan Réttarholtsvegar og svæð
inu austan Réttarholtsvegar og
sunnan Réttarholtsskóla með
fram hitaveitustokknum. Ég skal
geta um það, að það er ætlunin
að þarna verði opin renna og
göngustígur. Ég get ekki sagt
hvenær verður gengið frá slík-
um stíg, en einn 'liðurinn í aðal-
skipulaginu og umferðakerfi þess
er að reyna að koma á göngu-
'stígum um allt borgarlandið og
helzt þannig að gangandi fólk
þurfi ekki að ganga yfir hrað-
brautir heldur geti komizt und-
ir þær eftir göngum eða yfir
eftir brúm.
Hannes Þ. Sigurðsson: Það
glaiddi mig mjög að heyra það
sem borgarstjóri sagði hér áðan
um framtíðarskipulag umferðar
hér í hverfinu, en ég gét samt
sem áður ekki stillt mig um að
nefna eina götu hér í hverfinu,
sem heitir Rauðagerði, og hefur
reyndar orðið miklu meiri um-
ferðargata heldur en nokkurn
tíma var ætlast til af borgar-
yfirvöldum, — en þó beinlínis
kannski til þess stofnað af þeim,
með þeirri tengingu, sem gerð
var fyrir nokkrum árum við
Miklubrautina. Þessi tenging við
Miklubrautina hefur skapað svo
gífurlega þunga umferð um Rauða
gerði, að ég get varla lýst því
með orðum, hversu mikil áþján
hefur verið af þessari umferð.
Nú eftir að hægri umferð var
tekin upp í vor, hefur það leitt
af sér, að þessi mikla umferð,
og hraða umferð, hefur færzt
nær húsunum en áður. Þar sem
bílarnir fara niður brekkuna,
keyra þeir nú nær húsunum í
stað fjær áður og hefur þetta
að 'dómi íbúanna, sem búa við
þessa götu skapað miklu meiri
slysahættu heldur en áður og
höfum við því farið fram á það,
að borgaryfirvöldin verði við
þeim óskum okkar, að tenging-
unni niður á Miklubraut verði
þegar í stað lokað og reynit að
fá lögregluyfirvöld til þess að
sömúleiðis vegna þess að þarna
sé slysahættan svo mikil, að eitt
hvað verði að koma tií. Mig
mundi langa til að spyrja borgar
stjóra, hvort við mættum eiga
von á því, að þessari götu yrði
lokað í náinni framtíð. Þá lang-
ar mig ennfremur til þess að
spyrja um annað atriði. Við, íbú-
arnir í Rauðagerðinu, höfum orð
ið varir við, að skolplagnir gam-
alla húsa í nágrenninu hafa ekki
verið tengdar við skolpræsi borg
arinnar. Við höfum ítrekað kvart
anir yfir þessu við heilbrigðis-
yfirvöldin og vitum að í sumum
tilfellum hefur þarna verið bætt
úr. En nú langar mig til að
spyrja hvað gera borgaryfirvöld
in tit að fylgjast með þeim frá-
rennslislögnum, sem ekki eru
tengdar beint við borgarkerfið.
Eins og þegar hefur komið fram
á fundinum, eru íbúar við Hæð-
argarð og Hólmgarð ekki alls
kostar ánægðir með það umferð-
arfyrirkomulag, sem þar er nú
fyrirhugað af borgaryfirvöldum
og mér hefur verið falið að lesa
hér upp skjal sem er undirrit-
að af 115 íbúum í þessu hverfi
og leggja það fyrir borgarstjóra.
Skjalið hljóðar svo: „Við undir-
ritaðir íbúar við Hæðargarð og
Hólmgarð viljum koma á fram-
færi óskum okkar í umferðar-
má'lum hverfisins, sem er, að
nefndar götur verði áfram not-
aðar til óhindraðar umferðar. f
fyrsta lagi vegna þess, að mal-
bikun hefur farið fram og þar
af leiðandi eru göturnar betur
undir akstur búnar en fyrr. f
öðru lagi teljum við, að akbraut-
irnar, sem virðast fyrirhugaðar
milli Hólmgarðs og Bústaðavegar
séu mjög varhugaverðar. f þriðja
lagi er ekki minni hætta af sí-
mjög fækkandi vegna þess, að
holræsakerfi borgarinnar hefur
verið endurbætt. Hins vegar er
ekki loku fyrir það skotið, að
gömlu húsin, sem reist hafa ver-
ið í útjaðri bæjarins eða fyrir
utan hann fyrir mörgum áratug-
um en eru nú komin inn í byggð-
ina hafa ekki fengið rétta teng-
ingu við holræsakerfið. Þessi hús
eru ekki á fullkominni skrá, en
jafnóðum og vart verður við slík
an ófögnuð, er auðvitað reynt að
gera ráðstafanir til þess að þau
tengist holræsakerfi borgarinnar
og sérstakt eftirlit annars haft
með, að um sé að ræða rotþrær
eða annað sem fullnægjandi má
teljast. Þó veit ég að hér eru
dæmi, eins og t.d. í Bíesugróf-
inni, þar sem þetta hefur ekki
verið í góðu lagi og það verð-
ur að vinna jafnt og þétt að
endurbótum. Sumpart er verið að
útrýma þessum húsum. Þau eru
götustæði og eru ekki í sam-
ræmi við frambúðarskipulag, en
ef þau eru það, þá eru þau
Ijafnóðum tengd holræsakerfinu.
Og ég hygg, að heilbrigðiseftir-
litið og hreinsunardeild borgar-
verkfræðings hafi mjög mikinn
áhuga á því að fylgjast með slík
um tilvikum og fullan vilja á
úrbótum hverju sinni. Varðandi
áskorunarskjal sem hér hefur
og ég svaraði því til, að lag-
færing á þ'essu auða svæði væri
ekki tímasett ennþá og ég verð
því miður að valda Jóni von-
brigðum og svara á sama veg
nú. Við höfum ekki tímasett úr-
bætur á þessum stað enn sem
komið er. Ég gat um það í frum-
ræðu minni að þar væri nú mikil
vægt verkefni að snúa sér að
því að ganga frá ýmsum opnum
svæðum í borgarlandinu og ég
skil Rauðagerðisbúa mjög vel.
Þarna háttar svo til að opna
svæðinu hallar til Rauðagerðis,
og þess -vegna er hætt við, að
af því svæði komi ýmiss ófögn-
uður meðan það er í órækt, nið-
ur á góðar lóðir Rauðagerðisbúa.
Og Rauðagerði verður, þótt á
hakanum hafi orðið í malbikun,
í ár, eins og aðrar götur í hverf-
inu malbikaðar næsta sumar.
Árni Gíslason: Hvenær megum
við vænta þess að síðasta út-
h'lutun í Fossvogi verði í bygg-
ingarhæfu ástandi?
Borgarstjóri: Síðasta úthlutun
í Fossvogi er líklega áfangi, sem
krefst nýs aðalholræsis. F«<ss-
vogsræsið stóra getur ekki þjón
að þessum síðasta byggingará-
fanga austast í Fossvoginum. Hol
ræsi, sem þjónar því svæði þarf
að fara út í Elliðavog og er
töluvert.dýr framkvæmd. Það er
Geir Hallgrimsson flytur ræðu áfundinum. Fundarstjóri Hilmar Gauðlaugsson og fundarritari
Arnfinnur Jónsson sitja við hlið hans.
felldum snúningum og afturábak
akstri heldur en beinni keyrslu.
Og að síðustu, Hæðargarður ligg
ur meðfram barnaskólalóðinni,
svo augljóst er, að hann er ekki
vel faltimn til að taka við um-
ferð beggja gatnanna." Undir
þetta skjal rita 115 íbúar í þessu
hverfi.
Borgarstjóri: Fyrsta fyrirspurn
Hannesar Þ. Sigurðssonar er um
Rauðagerði. Þau tengsl voru sett
á vegna þess, að það var erfitt
að fara Sogaveginn og fram-
kvæmdir hafa átt sér stað við
Sogaveginn núna tvö síðustu ár-
in. Þessi tengsl voru eingöngu
hugsuð til bráðabirgða. Samkv.
gatnakerfi aðalskipulagsins er
Rauðagerði allt frá Sogavegi til
enda íbúðargata, græn gata, þar
sem ekki verður gegnum akstur.
Hins vegar kerhur gata frá Rétt-
arholtsvegi í Skeiðarvog yfir
Pogamýrina. Sú framkvæmd verð
ur nú ekki alveg á næstunni
en þá fá efstu húsin við Rauða-
gerði næst Sogaveginum aðkomu
eftir „lókal“-götu eða Rauðagerð
inu eins og það er núna. Rauða-
gerðið verður þá lokað í þann
endann og vonandi vekur það
ekki þá gagnrýni. að um hring-
akstur eða afturábakakstur verði
að ræða, eins og sú gagnrýni
ber vitni um sem er í áskor-
unarskjatinu, sem ég held á.
Varðandi aðra spurninguna, eft-
iriit með holræsum, sem ekki
eru tengd holræsakerfi borgar-
innar, þá fer slíkum holræsum
'verið afhent mér, er það út af
fvrir sig einmitt í sama anda og
ýmsar þær fyrirspurnir, sem hér
j hafa komið fram á fundinum um
gatnakerfið á þessum slóðum og
ég hef gert grein fyrir hvernig
jhugsað er í framtíðinni. Ég sé
ekki ástæðu til annars en að
segja það og lofa því, að at-
ihugasemdir og röksemdir undir-
ekrifenda verða kannaðar af um
ilerðaryfirvöldum, borgarráði og
borgarstjórn og við munum hafa
samráð við þá áður en endanleg-
ar ráðstafanir verða gerðar í
sambandi við frekari breytingar
á þessu svæði.
Jón Hannesson: Ég bar fram fyr
irspurn á síðasta hverfisfundi,
sem haldinn var um opið svæði,
sem afmarkast af Rauðagerði,
Sogavegi og Borgargerði, en fékk
þau svör þá, að borgarstjóri vissi
ekki hvenær því yrði komið í
lag. Þarna eru við sem fengum
lóðum úthlutað á sínum tíma bún
ir að koma lóðum í lag, en þetta
auða svæði er heldur leiður
njólaakur, sem sáir fræjum sín-
um yfir garða okkar og við þurf
um að reita slíkt illgresi úr sum
ar eftir sumar. Ég hef búið
þarna í 9 ár, og sömuleiðis þeir
aðrir, er fengu þarna lóðum út-
hlutað, en s'líkum opnum svæð-
um hefur verið komið í lag víða
annars staðar í borginni, þótt
síðar hafi verið úthlutað.
Borgarstjóri: Það er rétt, að
Jón Hannesson spurði um það
sama fyrir rúmum tveimur árum
verið að kanna það nú, hvort
borgar sig betur að fara í þetta
svæði og gera það byggingar-
hæft á næsta ári, eða halda á-
fram með stærra svæði í Breið-
holti en ella. Ég held, að það
mæli með því að klára þetta
austasta svæði í Fossvogi, að
þarna verði hreinlega samfeHd
byggð, sem er frágengin og í-
búðarhæf sem fyrst. Og miðað
við það, að verði ekki gengið
fram hjá þessum síðasta áfanga
Fossvogs en haldið áfram í beinu
áframhaldi að gera hann bygg-
ingarhæfan, tel ég að það verði
það á næsta ári.
Sólveig Búadóttur: Kemur fljót
lega að því að endurnýja þurfi
hitaveiturör, sem lögð voru fyr-
ir 2—3 árum. í Snekkjuvogi hér
í borg, er nýlokið við að skipta
algerlega um þriggja ára gömul
rör. Spyrjandi býr í Bakkagerði
í Smáíbúðahverfi en þar var
hitaveita lögð sumarið 1966.
Borgarstjóri: Ég mundi svara
bessari spurningu neitandi. Það
á ekki að þurfa að koma til
slíkrar endurnýjunar á fárra
ára fresti, en mér er hins vegar
kunnugt um, að sú hefur raunin
orðið á í nokkrum tilvikum og
auk bess tilviks. sem fvrirspyrj-
andi nefnir, get ég um Skip-
hn'ltjð en bá er bví um að kenna.
að einhver galli hefur verið í
frágangi eða einangrunarefni.
Við höfum orðið þess var. að
einangrunarefni hefur ekki allt-
af verið það heppilegasta og
Þorlákur Þórðarson ber fram
fyrirspurn til borgarstjóra.
valdið" einhverskonar tæringu og
raki komist í leiðslurnar. Með
tilraunastarfsemi hafa önnur ein
angrunarefni verið valin sem von
andi koma í veg fyrir að slíkt
endurtaki sig. Endingin á að
vera mjög mikil á slíkum rörum
og algerlega óeðli'legt að endur-
nýja þurfi það á 2—3 ára fresti.
Gunnar Páll Ingólfsson: 69.gr.
stjórnarskrárinnar hljóðar svo:
„Enginn bönn má leggja á at-
vinnufrelsi manna, nema almenn
ingsheill krefji, enda þarf laga-
boð til“. Hefur þessi grein stjórn
arskrárinnar ekki verið brotin
með lokun Hólmgarðs. Og hefur
almenningsheil'l ekki verið rang
skoðuð með því að færa þunga-
umferð yfir á Hæðargerði, sem
liggur rétt hjá stærsta skóla
landsins. í Hólmgarði eru nú rek
in 8 verzhmarfyrirtæki. Hafa
þau nú þegar orðið fyrir stór-
tjóni vegna lokunar götunnar
og sjá þau ekki fram á rekstrar
grundvöll þar sem þau sitja nú
ekki við sama borð og aðrar
verzlanir í hverfinu, þar sem að
þeim liggja greiðar götur.
Borgarstjóri: Mér er kunnugt
um athugasemdir kaupmanna í
verzlunarhúsinu við Hólmgarð,
vegna lokunar götunnar. Borgar
ráði hefur borizt bréf og greinar
gerð frá þeim, sem er til með-
ferðar nú. Mér er kunnugt um,
að fundur hefur verið með þeim
og borgarverkfræðingi hins
vegar veit ég ekki hvað þar
gerðist, eða hvað athugun á máli
þeirra 'liður umfram það sem ég
hef þegar sagt um þetta mál hér,
á fundinum. En þetta mál er
bersýnilega aðalmálið, brennandi
spursmál og verður farið með
það í því íjósi hjá borgaryfir-
völdunum eftir þennan fund. Það
er auðvitað svo, að lokun Hólm-
garðs er gerð til hagsbóta fyrir
íbúa hverfisins og talið til al-
menningsheilla. Ennfremur má
segja, að verzlunarhúsið við Hólm
garð hafi fyrst og fremst átt að
þjóna hverfinu sjá'lfu og það eru
því áhöld um hvað verzlunar-
svæði þess eigi að vera stórt,
þótt auðvitað geti verið og sé
sennilega svo góð þ.iónusta þar
af hálfu kaupmanna. að menn
vilji gjarnan eiga viðskipti við
þá, þó að þeir búi lengra frá,
en ef hins vegar íbúarnir þarna
á svæðinu telja um rangt mat á
þeirra eigin heill að ræða, af
borgaryfirvöldum, þá sé ég í
fljótu bragði ekki ástæðu til að
þröngva gatnakerfi upp ' á þá,
em þeir eru allir meira og minna
andvígir. En ég ítreka, að þetta
mál er í athugun og könnun
hjá umferðaryfirvö'ldum og borg
aryfirvöldum svo að niðurstað-
an kemur inna skamms og verð-
ur samráð haft við íbúa og kaup
menn í hverfinu.
Séra Emil Björnsson: Það er
viðurkennt af borgarstjóra að
okkar hverfi þ.e. Smáíbúða-
hverfið hefur orðið langt á eft-
ir öðrum um malbikun gatna og
það er líka loforð um, að það
eigi að malbika allar götur í
hverfinu næsta ár. Nú vildi ég
bera fram fyrirspurn um það,
Framhald á bls. 17