Morgunblaðið - 31.10.1968, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1968
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstj ómarfulltr úi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgrei'ðsla
Auglýsingar
Áskriftargjald kr, 130.00
I lausasölu
Hf. Árvakur, Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Sigurður Bjiamascwi frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
á mánuði innanlands.
Kr. 8.00 eintakið.
VIÐRÆÐUR
UM VANDAMÁL
A ð frumkvæði ríkisstjórnar-
innar hófust fyrir nokkru
viðræður milli allra stjórn-
málaflokkanna um lausn
þeirra miklu vandamála, sem
skapazt hafa vegna stórfelds
verðfalls á íslenzkum út-
flutningsafurðum og afla-
brests á síðustu vertíðum.
Yfirgnæfáhdi meirihluti þjóð
arinnar mun hafa talið þess-
ar viðræður stjórnmálalflokk
anna eðlilegar og sjálfsagðar.
Sá vandi, sem við er að etja
af völdum stórminnkaðra
gjaldeyristekna og versnandi
aflabragða er svo hrikalegur
að til algerðra einsdæma
verður að telja hér á landi.
Til undirbúnings ráðstöfun-
um til þess að koma útflutn-
ingsframleiðslunni á nýjan
og traustari grundvöll hefur
undanfarið verið safnað marg
víslegum upplýsingum og
gögnum um efnahagsástand-
ið. Allir flokkar hafa verið
sammála um, að án fyllstu
yfirsýnar og vitneskju um að-
stæður bjargræðisveganna
væri ekki hægt að gera það
sem gera þarf. Um það ríkir
heldur ekki ágreiningur að
skjótra ráðstafana er þörf.
•k
Það sýnir hins vegar ekki
nægilega ábyrgðartilfinningu
hjá málgögnum stjórnarand-
stöðunnar, þegar þau reyna
hvað eftir annað að skapa
tortryggni gagnvart því und-
irbúningsstarfi, sem verið er
að vinna. Málgagn kommún-
ista hefur jafnvel gengið svo
langt í þessu að það hefur
fyrirfram lýst yfir harðri
andstöðu gegn hverskonar
ráðstöfunum í efnahagsmál-
um, sem gerðar kynnu að
verða til þess að bæta að-
stöðu útflutningsframleiðsl-
unnar. Slíkt framferði gefur
ekki góðar vonir um að mögu
legt muni reynast að skapa
þann einhug, sem æskilegt
er og raunar nauðsynlegt að
skapa með þjóðinni, til þess
að ráða niðurlögum erfiðleik-
anna. í forustugrein Tímans í
gær eru því einnig gerðir
skórnir, að viðræður stjórn-
málaflokkanna kunni aðeins
að stuðla að aukinni sundr-
ungu og tortryggni. Mál-
gögn Framsóknarflokksins
hafa öðru hverju skrifað um
vandamálin af hófsemi og
ábyrgðartilfinningu. Stað-
hæfingar forustugreinar Tím-
ans í gær eru þess vegna
óhyggilegar og ótímabærar.
Ástæða er hins vegar til að
taka undir þau ummæli for-
ustugreinarinnar, að nauð-
synle gt er, að sem fyrst verði
skorið úr um það, hvort sam-
staða getur tekizt um nauð-
synlegar aðgerðir. Það er
líka nauðsynlegt að þær ráð-
stafanir,- sem gerðar verða
verði gerðar sem fyrst. Þess
ber þó að gæta að þegar um
jafn víðtækan vanda er að
ræða, sem raun ber vitni, er
ekki hyggilegt að hrapa að
neinu. Fyllsta yfirsýn verður
að hafa skapazt um efnahags-
ástandið. Á grundvelli henn-
ar verður síðan að fram-
kvæma það hiklaust, sem
þjóðarhagsmunir krefjast.
Um það meginsjónarmið ættu
öll ábyrg öfl í landinu að geta
sameinast.
MÓTMÆLI
TÉKKNESKRA
LISTAMANNA
rpónskáldasamtök Tékkósló-
vakíu hafa lýst yfir
óánægju með það, að leiðtog-
ar landsins hafi látið undan
hótunum Rússa. Jafnframt
krefjast þeir þess að ábyrgst
verði að frelsi til listsköpun-
ar verði ekki skert. Mótmæli
þessi hafa verið birt í tékkn-
esku blaði og er auðsætt að
mikil ólga ríkir meðal lista-
manna í Tékkóslóvakíu vegna
kúgunaraðgerða Sovétríkj-
anna.
Það kemur vitanlega eng-
um á óvart að leiðtogar Sovét
ríkjanna reyna nú að þvinga
leiðtoga Tékka til þess að
skerða frelsi listamanna. í
Rússlandi er frjáls listsköpun
ekki leyfð. Listamenn eru
ekki frjálsir að því að vinna
listastörf að eigin geðþótta.
Ef list þeirra felllur ekki
valdahöfunum í geð er sagt
að hún sé „úrkynjuð" og sam-
ræmist ekki „hugsjónum
sósíalismans.“
Þetta er gömul saga og ný.
Pasternak fékk ekki að taka
á móti nóbelsverðlaunum sín
um. Margir aðrir listamenn í
Sovétríkjunum hafa verið
hundeltir vegna þess að þeir
hafa ekki þótt fylgja hinni
opinberu flokkslínu.
Tékkneskir listamenn vita,
að leiðtogar þeirra hugðust
koma á auknu frelsi á öllum
sviðum þjóðlífs þeirra. En
það leiddi til þesss að Tékkó-
slóvakía var hernumin af
Sovétríkjunum og öðrum ríkj
um Varsjárbandalagsins. Það
er sú sorglega staðreynd, sem
Tékkóslóvakar og allur hinn
frjálsi heimur stendur
frammi fyrir.
Hér ligrgrja hvalveiðibátarnir og rySga í höfninni í Sandefjord. Þeirra biður ekkert annað
en niðurrif til brotajárns.
Hvalveiðiævintýrinu í Suð
urhöfum lokið
Norski hvalveiðiflotinn bíður niðurrifs
Sandefjord — AP.
Norðmenn hafa ákveðið að
hætta hinni árlegu þátttöku
sinni í hvalveiðunum í Suð-
urhöfum. Eitt norskt fyrir-
tæki, Anders Jahre, hafði í
hyggju að gera út leiðangur
til veiðanna í vetur, en sök-
um hækkandi tilkostnaðar og
minnkandi eftirspurnar eftir
hvallýsi, hefur fyrirtækið
hætt við áform sín. Hvalveiði-
slóðirnar við Suðurskautsland
ið eru því eftirlátnar Sovét-
mönnum og Japönum, en þær
þjóðir einar munu senda leið-
angra þangað í vetur.
Á árunum eftir 1930 sendu
Norðmenn meira en 10.000
harðsnúna hvalveiðimenn í
41 leiðangur til Suðurskauts-
landsins. Margir hinna norsku
brautryðjenda í veiðunum á
þessum slóðum urðu vellríkir.
Hvalbeinsbogar fyrir utan
glæsileg einbýlishús þessa
uppgangsbæja, bera þess vitni
hvaðan auðlegðin stafar.
Eitt sinn lifðu Sandefjord
og nágrannabærinn Tönsberg,
einvörðungu af hvalveiðum.
En sl. ár fór aðeins einn hval-
veiðileiðangur þaðan og þátt-
takendur voru aðeins 385.
Þeir mönnuðu eitt verksmiðju
skip og fimm hvalveiðibáta.
Nú eru þessir menn í landi,
og verða að leita að atvinnu
í öðrum greinum.
Það vill til, að þeir verða
ekki í neinum vandræðum.
íbúar Sandefjord njóta nú
framsýni sinnar. Þeir vissu,
að einhvern tímann hlaut að
koma að því, að hvalveiðarn-
ar legðust niður, og hafa því
smátt og smátt umbreytt
efnahagslífi bæjarins þannig
að það gæti tekið við fyrr-
verandi hvalveiðimönnum. —
Stór efnaverksmiðja hefur
verið sett á fót tii þess að
framleiða olíu efnafræðilega
í stað hvallýsis.
Við höfnina í Sandefjord er
stytta, sem minnir á liðna
„Moby Dick“ tíma. Hún sýn-
ir hvalveiðimenn í fullri lík-
amsstærð, einn þeirra veif-
Framhald á bls. 20
Þessi óvenjulega og fagra stytta stendur við höfnina í
Sandefjord og minnir á fyrri tíma, er harðsnúið lið bæjar-
búa sótti guli í greipar Suðurhafa.
VARAÐ VIÐ SPÁ
KAUPMENNSKU
/\llum landsmönnum hefur
^ um nokkurt skeið verið
ljós nauðsyn þess að gripið
yrði til all víðtækra ráðstaf-
ana til þess að treysta rekstr-
argrundvöll atvinnuveganna,
tryggja næga atvinnu í land-
inu og bæta stöðu landsins út
á við. Hin hrikalegu áföll sem
þjóðarbúskapur íslendinga
hefur orðið fyrir á tveimur
árum eru slík, að engum
blandazt hugur um það, að
þeim áföllum verður að mæta
með ölllum tiltækum ráðum.
í ljósi þess að einhugur rík
ir með þjóðinni um það að
gera verður nauðsynlegar ráð
stafanir í þessum efnum er
engin ástæða til að menn láti
sögusagnir og orðróm um hin
ar fyrirhuguðu efnahagsað-
gerðir leiða sig til spákaup-
mennsku eða annarra fljót-
ræðisverka.