Morgunblaðið - 31.10.1968, Side 15
MORGUN'BLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1968
15
ERLENT YFIRLIT
☆ Óvissn um olgeru
☆ Demókrutur íyikjn
☆ Vuxundi spennn í
ÁGREININGUR í SAIGON
stöðvun loftúrúsu
sér um Humphrey
Miðuusturlöndum
RÚMUR hálfur mánuður er
liðinn síðan samningaumleitanir
1 Vietnam-málinu komust á það
stig að eygja mátti möguleika á
samkomulagi um, að Bandaríkja
menn hætti loftárásum á Norð-
ur-Vietnam gegn því að Norður-
Vietnamar dragi einnig úr stríðs
aðgerðum. Síðan hefur lítið
gerzt, en samningaumleitunum er
haldið áfram, og margt bendir
til þess að fljótlega verði tekin
ákvörðun um, hvort loftárásir
skuli stöðvaðar eða ekki. For-
setaefni repúblikana Richard
Nixon, er greinilega við því bú-
inn, að eitthvað óvænt geri3t í
Vietnam-málinu fyrir kosningar
nar.
Opinberlega liefur Hanoi-
stjórnin tekið jafn illa í síð-
ustu tillögu Bandaríkjamanna
um, að Norður-Vietnamar dragi
úr stríðsrekstrinum og fyrri til-
lögur þeirra. Um leið hefur
greinilega komið í ljós, að suð-
ur-vietnamska stjórnin er banda
rísku stjórninni óþægur ljár í
þúfu. '
Agreiningur virðist uppi í Sai
gon-stjórninni um aðild Viet-
Cong að hugsanlegum friðarvið-
ræðum, og hefur Ellsworth
Bunker sendiherra Bandaríkj-
anna, setið á mörgum fundum
með suður-vietnömsku ráða-
mönnum vegna uggs þeirra um,
að Bandaríkjamenn gangi of
langt í þeirri viðleitni sinni að
semja við Hanoi-stjórnina. Að
vísu hefur Thieu forseti lýst yf-
ir því, að Saigon-stórnin geti
sætt sig við aðild Viet Cong að
friðarviðræðum, ef hún eigi þar
sjálf fulltrúa, en Ky varafor-
seti hefur tekið ósveigjanlegri
afstöðu.
TVEGGJA ÁRA VIÐRÆÐUR
Ljóst er, að samningaumleitan
irnar eru á mjög erfiðu stigi, og
þarf lítið út af að bera til þess
að þær fari út um þúfur eins og
fyrri tilraunir, sem gerðar hafa
verið til að koma á friði. Sam-
kvæmt athugun, sem brezka blað
ið Sunday Times hefur gert í
Bandaríkjunum, Vietnam, Ev-
rópu og Hong Kong, verður sam-
komulag, ef það næst, fólgið í
því að gefin verður út yfirlýs-
ing í Washington og París þess
efnis, að Bandaríkjamenn hafi
ákveðið að hætta öllum loftár-
ásum á Norður-Vietnam. Þá
muni Hanoi-stjórnin lýsa yfir
því, að hún muni fyrirskipa
vopnahlé með því skilyrði að
hafnar verði friðarviðræður, sem
Viet Cong eigi aðild að og Sai-
gon-stjórnin einnig.
Slíkt samkomulag yrði árang-
ur tveggja ára samningaumleit-
ana í höfuðborg Laos, Vientiane,
höfuðborg Kambódíu, Phnom
Penh, í aðalstöðvum SÞ, Sgiaon,
París, London, Ottawa, Varsjá,
Moskvu og Páfagarði. Góðar
heimildir í Vientiane herma, að
það sem seinkað hafi endanlegu
samkomulagi sé andúð Saigon-
stjórnarinnar á því að viður-
kenna Viet Cong og sú von Ho
Chi Minhs forseta, að eftirmað-
ur Johnsons verði fáanlegur til
að veita betri skilmála.
Beinar viðræður milli Banda-
ríkjanna og Norður-Vietnam hóf
ust í desember 1966 eftir fimm
mánaða leyniviðræður, en vegna
misskilnings og skorts á sam-
ræmingu í starfi utanríkisþjón
ustunnar og rekstri stríðsins
gerðu Bandaríkjamenn loft-
árásir á skotmörk nær
Hanoi en áður hafði verið
gert þann 6. desember og þar
með fóru þessar samningaum-
leitanir út um þúfur. Önnur til-
raun var gerð í fyrra, en fór
út um þúfur vegna þess, að
suður-vietnamska lögreglan
handtók af misgáningi háttsett-
an samningamann Viet Cong, þeg
ar hann var á leið á hjóli til
fundar við bandarískan fulltrúa
í Saigon.
Friðaráætlun sú, sem nú er í
athugun í Hanoi felur meðal
annars í sér, að bandarískar og
norður-vietnamskar hersveitir
verði fluttar frá Suður-Vietnam
en áður verði hlutlausa beltið
friðað og loftárásir stöðvaðar.
Það sem nú er meðal annars rætt
um, er tímasetning hinna ein-
stöku liða áætlunarinnar. Bunk
er sendiherra ræðir einnig við
Thieu forseta um möguleika á
samningaviðræðum milli Saigon-
stjórnarinnar og Þjóðfrelsisfylk
ingarinnar.
REPÚBLIKANAR ÁHYGGJUFULLIR
SÍÐASTA vika kosningabar-
áttunnar í Bandaríkjunum stend
ur yfir. Skoðanakannanir gefa
enn til kynna, að Hubert' Hum-
phrey dragi á Richard Nixon.
Repúblikanar eru greinilega
áhyggjufullir, en demókratar
hafa fyllzt bjartsýni. Fylgi
þriðja frambjóðandans, George
Wallace, heldur áfram að
minnka, en hann gerir lítið úr
niðurstöðum skoðanakannana.
Demókrataflokkurinn virðist
ætla að fylkja sér einhuga um
Humphrey á síðustu stundu.
Johnson forseti hefur ákveðið
að hjálpa Humphrey síðustu
daga kosningabaráttunnar, með
al annars með ræðum í sjón-
varpi. Til þessa hefur forsetinn
aðeins haldið eina ræðu til
stuðnings Humphrey.
Edward Kennedy hefur í
nafni hins látna bróður síns Ro-
berts Kennedy, skorað á demó
krata að kjósa ekki Wallace,
þar sem atkvæði greidd honum
muni auka á sundrungu þjóðar-
innar. Sagnfræðingurinn Arthur
Schlesingar hefur lýst yfir stuðn
ingi við Humphrey. Hann hefur
mikil áhrif í Kennedy-armi
flokksins og ADA, samtökum
frjálslyndra demókrata.
TVÍSÝNAR KOSNINGAR?
Síðast en ekki sízt hefur Eug-
ene McCarthy ákveðið að koma
til liðs við Humphrey. Margir
telja, að ákvörðun hans geri að
verkum að Humphrey jafni bil-
ið, sem verið hefur milli fylgis
hans og Nixons, og verða þá
kosningarnar tvísýnar. Hum-
phrey hefur frá upphafi kosn-
ingabaráttunnar lagt mikið kapp
á að tryggja sér stuðning Mc-
Carthysinna, og hafa sumir talið
það mistök og hann hefði í þess
stað átt að einbeita sér meir að
þeirri hættu, sem honum stafar
frá George Wallace.
En klofningur frjálskyndu afl
anna í Demókrataflokknum er
alvarlegur sem fyrr, og kemur
það væntanlega betur í ljós eft-
ir kosningarnar. Flokkurinn er
ekki aðeins klofinn í McCarthy-
sinna og andstæðinga þeirra
heldur einnig Kennedysinna,
sem margir eru heiftúðugir and-
stæðingar McCarthys. Beðið er
með eftirvæntingu eftir fundi,
sem McCarthy og stuðningsmenn
halda eftir kosningarnar til að
ræða framtíðaráform sín. Sumir
búast við, að þá muni McCarthy
lýsa yfir því, að hann muni hætta
afskiptum af stjórnmálum, en
fast verður að honum lagt að
vinna að því að verða kjörinn
forseti 1972
NIXON HERÐIR SIG
Frambjóðandi repúblikana,
Richard Nixon, hefur hert á har
áttu sinni um allan helming síð-
ustu daga. Hann ferðast meira
én áður, heldur fleiri ræður og
kemur oftar fram í sjónvarpi.
Hingað til hefur hann forðazt
sjónvarpsviðtöl, en nú kemur
hann fram á fundum með blaða-
styðja þá ráðstöfun, en aðeins ef
lífum bandarískra hermanna
verði ekki stefnt í hættu.
HUMPHREY ÞREYTTUR
Humphrey er þreytulegur og
hás. Vinnudagur hans er átján
til nítján klukkustundir. En
hann hefur skyndilega fyllzt
bjartsýni, þótt hann sé ekki al-
veg viss um sigur. Nýlega sagði
hann á kosningafundi, að hann
fyndi að straumurinn væri með
honum, en hann væri ekki viss
um hvernig kosningarnar færu.
Hann hefur lagt áherzlu á hrein
skilni í kosningabaráttunni.
Síðan skoðanakannanir fóru
að sýna að bilið milli hans og
Nixons færi minnkandi, hafa
peningar streymt í kosningasjóði
hans, og hann hefur fengið til
liðs við sig trausta baráttumenn
eins og Kenneth O’Donnell, sam-
starfsmann Kennedys heitins for
seta, og Joseph Rauh, fyrrver-
andi aðstoðarmann Eugene Mc-
Carthys öldungadeildarmanns.
En þrátt fyrir bjartsýnina er
mjög tvísýnt um úrslitin í kosn-
ingunum, einkum í fjölmennustu
ríkjunum eins og Kaliforniu, Tex
as og New York. Hins vegar er
Nixon spáð sigri í Illinois.
í Kaliforníu hafa stuðnings-
menn Robert heitins Kennedys
og McCarthys neitað að styðja
Humphrey. Síðustu daga kosn-
ingabaráttunnar leggur Hump-
hrey aðaláherzluna á Ohio, Penn
sylvaníu, New York, New Jers-
ey, Illinois og Kaliforníu. Stuðn
ingsmenn Humphreys eru sann-
færðir um sigur í kosningunum,
ef hann sigrar í tveimur þessara
þriggja ríkja: New York, Kali-
forníu og Texas. Humphrey tel-
ur sig hafa möguleika til jafns
við Nixon til að sigra í Texas
og New York — auk eftirtal-
inna ríkja: Maine, Connecticut,
Massachusetts, Pennsylvaníu
New Jersey, Rhode Island, Del-
aware, Ohio, Michigan, Missouri,
Humphrey: aldrei eins bjart-
sýnn.
hafa hingað til ekki verið liður
í kosningabaráttunni.
EINS OG SIGURVEGARI
George Wallace talar eins og
sigurvegari þrátt fyrir dvínandi
fylgi. Hann segir, að þeir sem
stjórni skoðanakönnunum segi
vísvitandi ósatt um fylgi fram-
bjóðendanna. og reyni að hafa
áhrif á kosningarnar auk þess
sem þeim hafi oft skjátlazt. Fjö‘1
mennir kosningafundir semhann
hefur haldið í New York og Cin
cinnati í Ohio hafa stappað stál-
inu í stuðningsmenn hans, en
hann hefur verið á kosninga-
ferðalagi um iðnaðarhéruðin í
austur- og miðvesturríkjunum.
Síðustu daga kosningabarátt-
unnar ferðast hann um Missouri,
Texas, Oklahoma, Michigan,
West Virginia, Pennsylvaníu,
Maryland og Virginia.
Waltace segir, að þeir sem
reyni að hleypa upp fundum
hans, vinstrisinnaðir stúdentar
Nunnur fagna Nixon í Hazelton í Pennsylvaníu. Hann berst af alefli síðustu daga kosninga-
baráttunnar.
mönnum í stærstu sjónvarps-
stöðvunum. Síðustu daga kosn-
ingabaráttunnar ferðast hann
um sjö fjölmennustu ríkin: New
York, Pennsylvaníu, Michigan,
Ohio, Illinois, Texas og Kali-
forníu.
Um leið hefur Nixon aukið ár-
ásir sínar á Humphrey, sem
hann kallar hugmyndasnauðan
og hlýðinn lærisvein Johnsons
forseta. Hann hefur gert allt
sem í hans valdi stendur til að
verja sig gegn afleiðingum þeim,
sem samkomulag í Vietnammál-
inu mundi hafa á kosningarnar.
Ljóst er, að vígstaða Humphr-
eys mundi batna að mun, ef loft
árásunum á Norður-Vietnam
yrði hætt og samið yrði um
vopnahlé. Þess vegna hefur Nix
on lýst yfir því, að verði loft-
árásir stöðvaðar, muni hann
Tennessee, Minnesota, Nevada,
New Mexico, Maryland, Kent-
ucky, Washington, Virginia,
North Carolina og West Virg-
inia. Sumir stuðningsmenn vara
forsetans hafa úti'lokað Illinois
og telja að erfitt muni reynast
að sigra í Kaliforníu. En hvað
gerist í New York og Texas?
sem grípa fram í fyrir honum og
kasta stundum að honum eggj-
um og grjóti, hjálpi honum mest.
Þeir eru ómissandi liður í kosn-
ingabaráttu hans. Wallace kallar
þá „stjórnleysingja" og „þess
konar fólk sem þjóðin hafifeng
ið sig fullsadda á“ og segir að
„þeir færi mér milljón atkvæði í
hvert sitt sem þeir láti sjá sig“.
Wallace heldur því ákveðið
fram, að hreyfing hans sé ekki
bundin við Suðurríkin heMur
nái hún til landsins alls. Hann
fer háðulegum orðum um Hump-
hrey, sem hann segir að „hver
sem er geti sigrað“, og Nixon,
sem hann segir að „segi eit.t í
þessum landshluta og annað í
einhverju öðru landshorni“.
raunverulegum kappræðum, sem Hann hefur reynt að gera að
Ein helzta von Humphreys og
stuðningsmanna hans er fólg-
in í því, að þeir geti svipt
hulunni af hinum „nýja Nixon“,
sem svo mikið hefur verið látið
af og sýnt að hann hafi ekkert
breytzt síðan hann gekk undir
nafninu „Tricky Dicky“. Þeir
vona, að þeim takist að fá Nix-
on til að missa stjórn á sér í