Morgunblaðið - 31.10.1968, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1963
Guðmundur Guðmundsson
læknir — Minning
SLÁTTUMAÐURINN á bleika
'hestinum fer stundum geyst yf-
ir og ber þá oft óvænt að garði.
Hér var því þó ekki þannig far-
ið, því vitað var um langt skeið,
að hans gat verið von á hverri
stundu. Guðmundur Guðmunds-
son læknir lézt í Reykjavík 23.
okt. sl. nær sjötugur að aldri.
Guðmundur var fæddur í
Reykjavík 12. des. 1898.' Foreldr-
ar hans voru hjónin Þuríður
Þórarinsdóttir Áxnasonar garð-
yrkjumanns, systir hins kunna
klerks séra Árna Þórarinssonar
á Stóra-Hrauni, og Guðmundur
Jakobsson, trésmíðameistari í
Móðir okkar og systir
Guðrún Sigtryggsdóttir
Ingunnarstöðum, Kjós,
andaðist a'ð heimili sínu 29.
október.
Fyrir mína hönd og ann-
arra vandamanna.
Björn Lúthersson.
Ingibjörg
Snæbjarnardóttir
frá Hergilsey,
andaðist að heimili sínu Stað
í Reykhólasveit 30. þ. m.
Vandamenn.
Elskulegur eiginmaður minn
og faðir okkar
Jens Kaj Ólafsson
matreiðslumaður,
andaðist í Landakotsspítala
29. okt.
Dóra Kristinsdóttir
Kristinn Kaj Ólafsson
Anna Hulda Norðfjörð.
Guðbjörg Soffía
Einarsdóttir
Karlagötu 5,
sem andaðist í Landsspítal-
anum 27. okt. verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju
laugardaginn 2. nóv. kl. 10.30
f. h.
Vandamenn.
Útför,
Ragnheiðar Elínar
Jónsdóttur,
fer fram frá Fossvokskirkju
föstudaginn 1. nóv. kl. 10.30
f.h. Þeim sem vildu minnast
hennar er bent á líknarstofn-
anir.
Kjartan Stefánsson,
Jóna Kjartansdóttir,
Stefán Kjartansson,
Reynir Kjartansson,
Kjartan Kjartansson
og tengdabörn.
Reykjavík Jakobssonar prests á
Sauðafelli í Dölum vestur. Börn
þeirra Þuríðar og Guðmundar
voru sex sem upp komust, tvær
dætur og fjórir synir, og var
Guðmundur læknir þeirra yngst
ur. Af systkinum Guðmundar
eru tvö á lífi, Þórarinn, fiðlu-
leikari, og Magnea, sem búsett
er í Kaupmannahöfn.
Guðmundur ólst upp í for-
eldrahúsum í Reykjavík ásamt
systkinum sínum. Þegar Guð-
mundur var barn að aldri, senm
lega 9—12 ára, bjó fjölskyldan í
Kaupmannahöfn um þriggja ára
skeið og mun það hafa verið gert
til þess að auðvelda eldri bræðr-
unum tónlistarnám er þeir voru
þá að hetfja. Þegar heim kom
settist Guðmundur í Mennta-
skólann og lauk stúdentsprófi
1917. Um haustið það sama ár
hóf hann nám í læknisfræði við
Háskóla íslands og lauk embætt
isprófi í þeirri grein vorið 1923.
Því næst hélt Guðmundur til
Danmerkur og vann á ýmsum
spítölum þar í landi um eins árs
skeið. Með þennan undirbúning
hóf Guðmundur svo lífsstarf sitt,
fyrst sem aðstoðarlæknir hjá al-
nafna sínum, héraðslækninum í
StykkiShólmi, og var þar um
tveggja ára skeið 1924—1926,
eða þar íxl hann fékk veitingu
fyrir Reykhólalækniáhéraði í
Austur-Barðastrandarsýslu.
Þessu erfiða læknishéraði
gegndi Guðmundur í 16 ár eða
til ársloka 1942 ,og auk þess
stundum Flateyjarlæknishéraði,
að undanskyldu árinu 1929—30,
er hann dvaldi við nám og störf
í Danmörku og Þýzkalandi, en
einnig mun ferðin hafa verið
farin í lækningaskyni honum
sj'álfum til handa. Guðmundur
var ennfremur um tíma læknir
í Búðardal og Ólafsvík eftir að
hann fór frá Reykhólum.
Eftir að hafa gegnt erfiðum
héraðslæknisstörfum í full tutt-
ugu ár. hugðust læknishjónin,
frú Jóhanna og Guðmundur, að
setjast að í Reykjavík, en áð-
ur en þar skyldi starf hafið héldu
þau hjónin til Kaupmannaihafn-
ar 1946 og dvöldu þar þrjú næstu
árin. Sem sérgrein valdi Guð-
mundur húðsjúkdóma og lagði
það fyrir sig er heim kom 1948
ásamt almennum heimilislæknis-
störíum. Lækningastofa var opn
uð í ársbyrjun 1949 og brátt
hafði Guðmundur nóg að starfa,
því fól'k sóttist eftir að fá hann
t Móðir okkar t Bróðir okkar,
Þórey Björnsdóttir Bólstöðum, Reyðarfirði, Halldór Ásgrímur
verður jaxðsungin frá Foss- Guðmundsson
vogskirkju fimmtudaginn 31. frá Æðey,
október kl. 1,30 síðd. andaðist í Landakotsspítala
Fyrir hönd annarra vanda- 30. okt. ’68.
manna. Sigríður Guðmundsdóttir,
Börnin. Ásgeir Guðmundsson.
Konan mín, móðir, tengda-
móðir og amma
Aldís Alexandersdóttir
verður jarðsett föstudaginn
1. nóv. kl. 3 e.h. frá Foss-
vogskapellu. Blóm vinsamleg-
ast afbeðin. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélag Islands.
Þorsteinn Hannesson
Hrefna Þorsteinsdóttir
Ásdis Þorsteinsdóttir Stross
Wolfgang Stross
og bamaböm.
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda
samúð við andlát og útför eig-
inmanns míns
Halls L. Hallssonar
tannlæknis.
Fyrir hönd vandamanna.
Amalía H. Skúladóttir.
Innilegar þakkir sendum vfð
öllum sem sýndu okkur sam-
úð og hlýhug við andlát og
jarðarför
Ingvars Stefáns Pálssonar
Balaskarðl.
Sérstakar þakkir sendum
við læknum og öðru starfs-
fólki Héraðshælisins á Blöndu
ósi fyrir góða aðhlynningu í
veikindum hins látna. Guð
blessi ykkur öll.
Fyrir hönd aðstandenda.
Signý Benediktsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda
hluttekningu við fráfall og
jarðarför
Petrínu Margrétar
Lárusdóttur.
Bogi Ingjaldsson
og vandamenn.
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við andlát og jarðarför
móður okkar
Þóru ólafsdóttur.
Lára Valdimarsdóttir
Haraldur Valdimarsson
Óskar Valdimarsson.
sem lækni sinn og þá alveg sér-
staklega þeir er höfðu einhver
kynni af honum áður og þá ekki
sízt þeir ,er aðfluttir voru úr
þeim lækníshéruðum er Guð-
mundur hafði þjónað áður. En
því miður naut hans ekki lengi
við sem læknis í Reykjavík.
Heilsu hans tók að hraka og að
því kom, að Guðmundur varð að
hætta læknisstörfum langt fyrir
aldur fram.
Árið 1943 kvæntist Guðmund-
ur Jóhönnu Guðjónsdóttur ætt-
aðri úr Rangárvallasýslu, mikilli
mannkostakonu, sem reynzt hef-
ur manni sínum afbragðs vel í
margra ára heilsuleysi. Þeim
varð ekki barna auðið.
Hér að framan hafa verið upp-
talin helztu æviatriði Guðmund-
ar læknis, en manninum sjálf-
um hefur eigi verið lýst og ef
til vill mætti gera það með þess-
kinum ásamt öðrum vanda-
um orðum: „hann var ágætis
maður í öllum greinum, réttlát-
ur, gjöfull og góðgjarn" eins og
sagt var um ísleif biskup.
Guðmundur sat á Reykhólum
í 16 ár svo sem áður er sagt við
ágætan orðstír. Hann var hvort
tveggja í senn, góður læknir og
ekki síður maður. Það fór
snemma orð af því hve glöggur
hann var við sjúkdómsgreining-
ar og það langt útfyrir hans
læknishérað. Ég man eftir því,
að ég heyrði um það talað í öðr-
um læknishéruðum, er erfiða
sjúkdóma bar að höndum, hvers
vegna ekki væri leitað til Guð-
mundar læknis á Reykhólum.
Sýnir þetta nokkuð hvers trausts
hann naut.
Oft mun það hafa komið fyrir,
að hann tók lítið sem ekkert fyr
ir sjúkravitjanir, er fátækir áttu
í hlut og ósjaldan mun hann
einnig hafa gefið meðul.
Flest þau 'ár sem Guðmundur
var á Reykhólum tók hann ungl-
Lnga til náms á vetrum og var
ég einn þeirra. Ekki gerði lækn-
irinn sér það til fjár því ég held
að kennslulaunin hafi oft verið
smá að minnsta kosti varð það
svo bvað mig snerti. Guðmund-
ur var ágætur kennari og var
það nokkuð sama hvert fagið
var, þó fannst mér að hann hefði
mestar mætur á að kenna stærð-
fræði. Sjálfur mun Guðmundur
hafa verið í betra lagi sem náms
maður, að minnsta kosti hafði
hann nógar gáfur til þess að vera
það. Hins vegar skildist mér að
hann hafi ekki legið mikið yfir
námsbókum á skólaárunum,
enda mun hugur hans hafa
girnzt' fleira á þeim árum svo
sem tónlist, því hann var list-
rænn í sér eins og fleiri syst-
kini hans.
Guðmundur var tæplega með-
almaður á hæð og samsvaraði
sér vel: ennið hátt, andlitsdrætt-
ir nokkuð skarpir, augun blá og
greindarleg sem og yfirsvipur
hans allur. Smáfríður var hann
ekki, en mjög geðugur og aðlað-
andi í útliti og framkomu allri.
Síðan ég kynntist fyrst Guð-
mundi lækni fyrir röskum 30 ár-
um hefur hann verið mér hug-
leiknari en nokkur annar vanda
laus maður sem ég hefi kynnst
og ber margt til, en einkum þó
kannski það, að ég hefi litið á
hann ,sem minn velgjÖrðarmann
og það ekki af tilefnislausu, og
þannig mun ég minnast hans
þótt hann sé horfinn af sjónar-
sviði hins jarðneska lífs. „Þá
kemur mér hann í hug, er ég
heyri góðs manns getið, hann
reyndi ég svo að öllum hlutum".
Eiginkonu Guðmundar og syst
mönnum votta ég samúð.
Friðjón Júlíusson.
Þórey Björnsdóttir
Bólstöðum — Minning
F. 30.12. 1911. D. 22.10. 1968
Gott er sjúkum að sofa
svefninn er náðargjöf
líkama þreyttum að lofa
langþráðri að hvílast í gröf.
Sálin er létt og líður
langt út í bláan geim
þar sumar og sól hennar líður
í síbjörtum friðarheim.
Við kveðjum þig vina mín kæra
hve mikil hetja þú varst
og margt hefðum mátt af þér
læra
þú margfaldar raunirnar barst
án þess að æðrast né kvíða
örlaga bergðir þú skál
þung-bæra þraut máttir líða
þó var svo heilbrigð þín sáL
Börnin þín blessa þær stundir
er bjuggu við móðuryl þinn,
hve mjúkar voru þær mundir
er milt þerrðu tárin af kinn.
Móðir þín kveður með klökkva
kæra ástvininn sinn,
henni í heimi finnst rökkva
við hérvistarskilnaðinn.
Systkini og vinir þig syrgja
svo sárt, þú ert horfin á braut.
Sorgarský sólina byrgja,
en sál þín er losnuð frá þraut,
losnuð úr líkamans böndum
er lét hana fangna um stund,
að sumarsins sólgullnu ströndum
nú svífur á ástvinarfund.
Ragna S. Gunnarsdóttir.
öllum þeim sem sýndu okk-
ur vinsemd og virðingu á
gullbrúðkaupsdegi okkar
sendum við beztu þakkir.
Rannveig og
Sigurjón Einarsson.
Ég þakka innilega vinum
mínum, skyldum og vanda-
lausum, fyrir góðar gjafir og
hlýjar óskir á sextugsafmæli
mínu 18. okt. sl.
Davíð Ásmundsson.
STANLEY
HANDVERKFÆRI í úrvali
HEFLAR, margar gerðir
HALLAMÁL, fl. stærðir
STÁLHAMAR
HJÓLSVEIFAR
MÁLBÖND
SPÓNHNÍFAR
SPÓNSAGIR
SVÆHNÍFAR
SPORJÁRN
BAKKASAGIR
BRJÓSTBORAR
TAPPABORAR
TRÉBORAR
ÚRSN.BORAR
VINKLAR, AXIR o. fl.
Allt á gamla verðinu.
LUDVIG
STORR
Laugavegi 15. —• Sámi 1-3333.