Morgunblaðið - 31.10.1968, Side 26
26
MORGUNRLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1963
Aukaleikur um Reykja
víkurmeistaratitilinn
— óvæntur sigur Vals i gærkvöldi gegn Fram 8:5
AUKALEIK þarf tll að skera úr
hvaða félag hlýtur Reykjavíkur-
meistaratitilinn í handknattleik
í ár. Valur sigraði Fram í gær-
kvöld með 8-5 og hafa þessi tvö
félög því jafn mörg stig að mót
inu loknu, þar sem Valur hafði
áður tapað fyrir Viking. Kom
sigur Vais í gærkvöldi mjög á
óvart, en hann var öruggur og
verðskuidaður. Reyndar voru
Arsenal
vann 5:1
ARSENAL sigraði Blackpool í
5. umferð í bikarkeppni deild-
arfélaga í fyrrakvöld með fimm
mörkum gegn einu. Arser^l sótti
strax í byrjun og áttu útherj-
arnir Radford og Armstrong sér
lega góðan leik. Þeir skoruðu
tvö fyrstu mörkin með hjálp
hvors annars. Síðar bætti Arm-
strong við þriðja markinu, Simp-
son skoraði það fjórða og Gould
fimmta markið. Green skoraði
eina mark Blackpools, sem hefur
nú fallið út úr keppninni. Black-
pool leikur í 2. deild.
Aðrir leikir í 5. umferð bikar-
keppni deildarfélaga í Englandi
var leikin í gærkvöldi og urðu
úrslit þessi:
Bumley — Crystal Palace 2—0
Derby Co.—Swindon Town 1—1
Tottenham — Soutihampton 1—0
Sigurvegarar komast í undan-
úrslit og verður þá leikið heima
og heiman, eða tvöföld umferð.
Sigurvegararnir í undanúrslitum
leika svo til úrslita á Wembley-
leikvanginum í marz 1969.
Valsmenn heppnir í byrjun leiks
ins, en þá áttu Framarar f jögur
stangarskot.
Valsmenn voru greinlega mjög
ákveðnir í leiknum í gær, og
sýndu sinn bezta leik um langan
tíma. Langbesti maður liðsins
var Ólafur Jónsson, en einnig
átti Jón Karlsson ágætan leik.
Liðið er nokkuð breytt frá því í
fyrra og virðist þær síður en svo
hafa verið til þess verra. Valur
á vissuleiga góða möguleika á fs-
landsmótinu í vetur. Framarar
áttu heldur slakan dag í gær, og
er mér nær að halda að þeir hafi
verið einum of sigurvissir. Ing-
ólfur var bezti mað-ur liðsins, en
einnig áttu þer Björgvin og Sig-
urður Einarsson all sæmilegan
leik, en athyglisvert var að af
5 mörkum liðsins voru 4 skoruð
af línu, en eitt úr vítakasti. Lít-
ið bar því á stórskyítum Frany
ara í þessum leik. Mörkin skor-
uðu: Valur Ólafur Jónsson 3,
Jón Karlsson 2, Hermann 2, Jón
Ágústsson 1. Fram: Björgvin 3,
Sigurður 7, Ingólfur 1.
Víkingur—KR 17—10.
Víkingar höfðu nokkra yfir-
burði í þessum leik, og hefur
liðinu farið mjög fram að und-
anfömu. Áberandi er hvað fleiri
menn liðsins eru nú virkir og
hættulegir sónkarmenn en í
fyrra. Leitt er að Vrkingur skuli
leika í 2. deild í vetur. Beztu
menn í liði Víkings voru þeir
Þórarinn og Einar, en í KR-lið-
inu átti Karl Jóhannsson beztan
leik og virðist hann sjaldan hafa
verið í eins góðu formi og nú.
Mörkin skoruðu: Víkingur: Páll
4, Jón 3, Ólafur 3, Þórarinn 3,
Einar 2, Sigfús 1, Rósmundur 1.
KR: Karl 6, Geir 2, Gunnar 1.
Ármann — hróttur 16—13.
Ármenningar voru frískir í
þessum leik, og má segja hið
Vcalur Reykia-
víkurmeistari
SÍÐASTI leikur Reykjavíkur- I stúlkurnar með miklum yfirburð
meistaramótsins í kvennaflokki um 11-3, og eru því Reykjavíkur
fór fram í gærkvöld. Kepptu Val meistaTar 1968. Staða í hálfleik
ur og Ármann og sigruðu Vals- I var 3-0.
sama um þá og Víking, liðinu er
að fara stórlega fram. Bezti mað
ur liðsins er Ragnar, en einnig
er Vilberg mjög efnilegur leik-
maður. Halldór Bragason var
beztur Þróttara í þessum leik, en
Guðmundur Gústafsson áfti einn
ig góðan leik í markinu, og varði
t.d. þrjú vítaköst. Mörkin skor-
uðu: Ármann: Ástþór 5, Ragn-
ar 4, Vilberg 3, Hreinn 2, Ol-
fert 2. Þróttur: Halldór Braga-
son 7, Haukur 2, Kjartan 2, Hall
dór Halldórsson 1 og Gunnar 1.
stjl.
Firmakeppni
HINN 29. sept. lauk firmakeppni
Golfklúbbs Suðurnesja á Hólms
velli í Leiru. Alls tóku 64 fyrir-
tæki þátt í keppninni. Keppnin
var holukeppni með forgjöf. Til
úrslita léku Fitjanesti og Járn-
smíðaverkstæði Sverre Stein-
grimsen og sigraði Fitjanesti, en
fyrir það lék Jóhann Benedikts-
son, en fyrir Sverre Stengrim-
sen lék Sigurður Jónsson.
Það getur ráðið úrslitum í leik FH og Fram í kvöld, hversu oft
Sigurði Einarssyni tekst að leika sig lausan á línunni. Hann hef-
ur oft reynzt FH hættulegur. Hér eru þeir Örn Hallsteinsson og
Jón Gestur Vigggósson í baráttu við hann — en Sigurður er
sloppinn í gegn.
Leikur FH og Fram á Seltjarnarnesi:
Taugastríð tveggja liða
— og hundruða aðdáenda
Ceir segir allt geta gerzt, en Cunnlaugur
er viss um sigur Fram
ÞAÐ er í kvöld sem FH og Fram
heiðra íþróttafréttamenn með
því að kanna styrkleika þessa
tveggja forystufélaga í hand-
knattleik hér á landi um mörg
undanfarin ár. Leikurinn verður
í nýbyggðu íþróttahúsi á Sel-
tjamarnes og hefst kl. 20,30. For
sala miða, sem eru af mjög
skornum skammti, hófst í gær í
búðum Lárusar Blöndaln, en
verði eitthvað eftir, hefst sala
við innganginn kl. 19,30.
Heimsmeistararnir koma
Landslið Tékka í handknattleik leikur
tvo landsleiki hér í janúar
TÉKKNESKU heimsmeistar-
arnir í handknattleik koma
hingað í janúar n.k. og leika
tvo landsleiki við íslendinga,
og fara leikimir fram 13. og
15. janúar. Tékknesku heims-
meistararnir vom hér síðast á
ferð í desember s.l. og unnu
þá okkar landslið með litlum
mun. Það er sjaldgæft að
heimsmeistarar leiki á ís-
landi og óþekkt að þeir komi
hingað árlega ef svo má segja
— en handknattleikurinn get-
ur ein íþróttagreina á íslandi
átt kappleiki við slíka.
Samningar um hingaðkomu
Tékka hafa staðið alllengi
og hófust er Axel Einarsson
form. OSÍ sat fund alþjóða
handknattleikssamtoandsins í
haust. Á því þingi riðluðust
öil áform um landsleiki vetr-
arins í Evrópu, þar sem hætt
var við :HM undankeppnina
í vetur og ýmsa landsleiki
vegna innrásar Rússa og
leppríkja þeirra í Tékkósló-
vakíu.
Úr því öngþveiti er þá
skapaðist hefur áunnizt að
Tékkar leika landsleiki
við Svia 8. og 10. janúar og
koma síðan til íslands 12.
janúar og leika hér tvo
landsleiki. Þetta er fagn-
aðarefni öllum unnendum
handknattleiks hérlendis.
„Vertíðin“ hjá handknatit-
leiksmönnum í vetur verður
mjög stíf. 16. og 17. nóv. n.k.
leika V-Þjóðverjar — eitt af
toeztu landsliðum heims —
hér tvo leiki.
Spánverjar koma hingað
- síðast í janúar eða í marz og
er ekki endanlega um það sam
ið.
Fyrri hluta febrúar fer ísl.
landsliðið utan til landsleiks
við Dani og Svía og í sömu
ferð leikur úrvalslið Reykja-
víkur við úrvalslið Kaup-
mannahafnar.
Síðari hluta febrúar kemur
svo danska liðið MK 31 í heim
sókn til Valsmanna og leikur
hér nokkra leiki.
í hálfleik munu íþróttafrétta-
menn takast á við úrvalslið
kvenna um meistaraflokkum
handknattleiksfélaganna í reip-
togi. Það er vitað að dömurnar
hafa krafta í fagurgerðum vöðv-
um, en óráðin gáta er hvað í
íþróttafréttamönnum býr.
• Álit Geirs.
í tilefni af leik FH og Fram
í kvöld, sneri íþróttasíðan sér til
tveggja leikmanna, Geirs Hall-
steinssonar, FH, og Gunnlaugs
Hjálmarssonar, Fram, og spurði
þá, hvort þeir byggjust við tví-
sýnum leik
„Jú, ég býst ekki aðeins við
tvísýnum leik, heldur einnig góð
um leik“ sagði Geir. Hann bætti
við: „Reynslan hefur sýnt, að
aukaleikirnir milli FH og Fram
eru mun betur leiknir en leik-
irnir í íslandsmótinu. Þegar lið-
in leika í mótinu eru þau oft
þvingaðri og þora ekki að hætta
á of mikið. Þessu er öðru vísi
varið í aukaleikjunum. Þá er
engin þrúgandi taugaspenna og
liðin hafa meiri möguleika á að
sýna beztu hliðar sínar. Um úr-
slitin í kvöld vil ég engu spá.
Það getur allt gerzt.
• Gunnlaugur stórorður.
Gunnlaugur Hjálmarsson bjóst
ekki síður við spennandi leik.
Hann sagði: „Ég veit, að FH
hefur fullan hug á að sigra okk-
ur. Við erum búnir að reita
flestar skrautfjaðrirnar af FH-
ingum. Sú eina, sem er eftir er
sigur þeirra í útihandknattleiks-
mótinu, en það er mót ,sem eng-
inn leggur sérstaka áherzlu á að
taka þátt í. Við skulum sjá, hvað
gerist í kvöld. En óliklegt þyk-
ir mér þó, að FH-ingum takist
að sigra okkur innanhúss.“
Forsala aðgöngumiða er í bóka
verzl. Lárusar Blöndalg í dag, en
sala aðgöngumiða í íþróttahús-
inu hefst kl. 19.30. Verð aðgöngu
miða er stillt í hóf. Fyrir full-
orðna kostar 75 krónur og 25 kr.
fyrir börn.
Sir Aif velur landslið
SIR Alf Ramsey, einvaldurinn í
enska landsliðinu í knattspyrnu,
hefur valið 16 leikmenn til að
leika fyrir England gegn Rúmen-
íu í Búkarest n.k. miðvikudag 6.
nóv. Það hefur vakið athygli að
Sir Alf gengur fram hjá innherj-
anum Jimmy Greaves og fram-
verðinum Nobby Stiles.
Landsliðið gegn Rúmenum
verður sennilega ekki endanlega
valið fyrr en á miðvikudagsmorg
un, en hinir 16 leikmenn eru:
Markverðir: Banks (Sitoke
City) og West (Everton).
Bakverðir: McNato (Arsenal),
Nwton (Blackburn Rovers) og
Wright (Everton).
Framverðir: Hunter (Leeds
Utd.), Labone (Everton), Moore
(Wesit 'Ham) og Mullery (Totten
ham).
Framherjar: Ball (Everton),
Bell (Manéhester City), Charl-
ton (Manchester Utd.), Hunt
(Liverpool), Hurst (Weat Ham),
Peters (West Ham) og T'hompson
(Liverpool).