Morgunblaðið - 31.10.1968, Page 27
MORGUNÐLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 19S8
27
SÞ setji reglur um hagnýtingu
auðinda á hafsbotni
Hannes Kjartansson sendiherra:
— Bií^eiðaeftirlit
Framh^d af bls. 28
skráS-'fyrsta sinni, svo og um
ííverja umskráningu, enda ákveð
ur eftirlitsmaður, hvort ökutæk-
ið fullnægi kröfum laga og reglu
gerða. Árlega fer svo fram endur
skoðun allra bifreiða og bifhjóla.
Auk þessa eru bifreiðaeftirlits-
menn prófdómarar við bifreiða-
stjórapróf og á vegum bifreiða-
eftirlitsins eru haldin námskeið
fyrir atvinnubifreiðastjóraefni,
meiraprófsnámskeið. Einnig fara
fram á vegum bifreiðaeftirlits-
ins próf fyrir ökumenn fólksbif-
reiða, sem flytja mega fleiri en
16 farþega, svo og próf fyrir
ökukennara. Hjá bifreiðaeftirlit-
inu í Reykjavík er haldin alls-
herjar spjaldskrá yfir allar bif-
reiaðr í landinu, auk þess sem
spjaldskrá er haldin í hverju um
dæmi. Skráðar bifreiðar og bif-
hjól voru í byrjun þessa árs
alls 72.394.
Ráðherra gat þess, að nýlega
hefði húsnæðisaðstaða bifreiðaeft
irlitsins á Selfossi og Keflavík ver
ið bætt stórlega og á Akureyri
hefði bifreiðaeftirlitið nýverið
flutt í nýtt eigið húsnæði í hinni
nýju lögreglustöðvarbyggingu.
Vék hann síðan að starfsemi bif-
reiðaeftirlitsins í Reykjavík og
sagði m.a.:
Bifreiðaeftirlitið fluttist í nú-
verandi húsnæði í Borgartúni 7
árið 1947, og húsnæðinu fylgdi
þá auð lóð í næsta nágrenni,
1750 ferm. að stærð. Er húsnæði
þetta og athafnasvæði ennþá not
að fyrir bifreiðaeftirlitið óbreytt
að stærð og aðstöðu, en er nú
orðið alls ófullnægjandi. Kem-
ur greinilegast fram, hversu nauð
synlegt er að bæta starfsaðstöðu
bifreiðaeftirlitsins, þegar aðal-
skoðun bifreiða fer fram, en hún
stendur nú yfir í nær 7 mánuði
á ári hverju. Hinn mikli hús-
næðisskortur og takmarkað at-
hafnasvæði stofnunarinnar úti-
lokar að unnt sé að auka starfs-
lið við bifreiðaskoðunina eða
beita nauðsynlegum nútímatækja
búnaði við hana. Veldur þetta
eðlilega mikilli óánægju hjá borg
urunum og berast forráðamönn-
um bifreiðaeftirlitsins stöðugar
kvartanir í tilefni þessa. Af þeim
ástæðum og eigi síður vegna hins
almenna umferðaröryggis í land
inu er greinilegt, að við svo bú
ið má ekki standa öllu lengur
og mjög brýn nauðsyn er því til
þess, að nú þegar verði hafinn
undirbúningur að byggingu skoð
unar-afgreiðsluhúss fyrir Bif-
reiðaeftirlitið í Reykjavík, þann-
ig að unnt verði að gera róttækar
breytingar á 3tarfsháttum eftir-
litsins.
Ráðherra sagði, að á árinu
1947, er bifreiðaeftirlitið hóf
starfsemi sína, voru bifreiðar
skráðar í umdæminu alls 5.514,
en í byrjun yfirstandandi árs
voru þær 18.220. Á skoðunarár-
inu 1967 voru samtals 31.330 bif-
reiðar skoðaðar í Reykjavík, þar
af 6.765 bifreiðar utan af landi.
Á sama tíma var lokið í umdæm
inu samtals 2.334 fræðilegum
prófum. í>ar að auki voru haldin
þrjú 6 vikna námskeið fyrir at-
vinnubifreiðastjóraefni. Enn-
fremur voru haldin próf fyrir
þá. sem sækja um réttindi til
að taka bifreið fyrir 16 farþega
eða fleiri, og loks próf fyrir öku
kennaraefni. Auk þessa voru af-
greiddar á árinu nokkur þús. ný
skráningar ökutækja og umskrán
ingar vegna færslu milli um-
dæma eða eigendaskipti.
Ráðherra sagði, að af þessu
væri Ijóst að húsakynni og at-
hafnasvæði, sem voru við hæfi
1947 væru alls ófullnægjandi nú.
Þá væri staðsetning bifreiðaeft-
irlitsins við Borgartún 7 einnig
orðin mjög óheppileg. Leitað
hefði verið eftir auknu athafna-
svæði fyrir starfsemi eftirlitsins
til bráðabirgða á lóð, sem er við
hliðina á núverandi athafna-
svæði þess. Þeirri beiðni hefði
verið synjað, enda full not lóð-
arinnar fyrir aðra þá starfsemi
sem er í húsinu.
Þá sagði dómsmálaráðherra að
bygging skoðunarskála og af-
igreiðslu fyrir Bifreiðaeftirlitið
að erlendri fyrirmynd, mundi
gerbreyta möguleikum til raun-
hæfs ökutækjaeftirlits hér í borg
inni og nágrannaumdæmunum.
Við nýjar aðstæður mætti gera
þeim allt önnur og betri skil,
en nú er unnt, ef skoðun væri
framkvæmd innanhúss, mætti
dreifa henni fyrir meginhluta
ársins. Er þá unnt að kveðja
bifreiðar til skoðunar eftir allt
öðrum reglum og sjónarmiðum
en nú er gert. Dreifing skoðunar
tímabilsins mundi einnig verða
til þess að vinna á bifreiðaverk-
stæðum dreifði3t meira og minna
jafnt allt árið.
Húsnæði það, sem Bifreiðaeft-
irlit ríkisins þarfnast skiptist í
skrifstofuhúsnæði og skoðunar-
skála. Áætlanir hafa verið um
þetta gerðar. Skoðunarhúsið
sjálft mætti vera stálgrindabygg
ing eða annað ámóta húsnæði og
samkvæmt athugun, sem gerð hef
ur verið um húsnæðisþörf Bif-
reiðaeftirlitsins, mun láta nærri,
að stærð bifreiðahúsnæðis þurfi
að vera rúmlega 300 ferm. Eru
þá meðtaldar kennslustofur, en
ótalið rými fyrir snyrtiherbergi
og ganga. Skoðunarskálinn þarf
að vera a.m.k. 450—500 ferm. að
því er álitið er með þremur skoð
unarrásum. Eðlileg afköst skoð-
unarstöðvar af framangreindri
stærð með nýtízkuútbúnaði mun
talin um 150 bifreiðar á dag. Má
naumast reikna með minni af-
kastaþörf á skoðunarsvæði
Reykjavíkur. Búnaður sá, sem
notaður er í skoðunarstöðvum
er hemlamælir, stýrismælingavél
ar, Ijósmælingavélar og lyftitæki
eða gryfjur í gólfi, sem gera
sljoðunarmanni kleift að athuga
undirvagn ökutækis eftir þörf-
um. Öll þessi tæki stuðla að því
að gera skoðunina fullkomnari
frá öryggissjónarmiði, en auka
jafnframt afkastagetu og leiða
til sparnaðar í starfsmannahaldi.
Ráðherra gat þess að borgar-
yfirvöldin hefðu gefið fyrirheit
um lóð fyrir Bifreiðaeftirlitið,
sem bæði væri hæfilega stór og
hagkvæm hvað staðsetningu
snerti. Væri lóð þessi í Ártúns-
höfða og væri 1.4 hektarar að
stærð. Hann sagði að gerðar
hefðu verið tillöguuppdrættir að
skoðunarstöð hjá skrifstofu húsa
meistara ríkisins, og hefði verið
talið að hún mundi kosta 13,6-
14,6 millj. kr. að meðtöldu gatna
gerðargjaldi og kostnaði við frá
gang lóðar.
Værí því um allmikla fjárupp-
hæð að ræða og hefði af þess-
um sökum varið kannað í fyrra
hvort unnt væri að festa kaup á
fasteign ásamt lóðarréttindum til
afnota fyrir Birfeiðaeftirlitið, án
þess að um verulegar beinar f jár-
greiðslur yrði að ræða. Að at-
huguðu máli hefði síðan verið
fallið frá þessum áformum.
Að lokum sagði ráðherra að
til þess að tryggja fjárhagsleg-
an grundvöll fyrir byggingu
skoðunarstöðvar hefði verið um
það rætt að hækka skoðunar-
gjald bifreiða en það er nú 140
kr. á bifreið. En ég vil taka það
fram, sagði ráðherra, að f yrir
nokkrum árum voru skoðunar-
gjöld bifreiða hækkuð, og það
vakti fyrir með þeim hækkunum
að tekjurnar af því gengju til
að byggja nýja stöð fyrir bif-
reiðaeftirlitið. En hins vegar hef
ur í framkvæmdinni orðið sá
háttur á, að þetta hafa eins og
aðrar tekjur runnið í gegnum
ríkissjóðinn, sem svo einnig ber
kostnaðinn af bifreiðaeftirlitinu,
en ekki komið til beins hagræð-
is sem fjárfestingarfé og mundi
sennilegast tæpast gera það, þó
að horfið yrði að svona ráði,
nema öðruvísi væri um hnútana
búið og ef til vill þyrfti að setja
um það sérstaka löggjöf. Tekjur
af skoðanagjaldinu á árinu 1967
námu 5 millj. 376 þús. kr., og
auk þess námu prófgjöld 960 þús
kr., og skráningargjöld 4 millj.
979 þús. kr., þannig að tekjur af
þessum liðum, sem nátengdir eru
starfsemi bifreiðaeftirlitsins
námu alls 11 millj. 316 þús. kr.,
en rekstrargjöld eftirlitsins
námu á sama ári 9 millj. 803 þús.
♦
Sameinuðu þjóðunum, 29. októ
ber.
Einkaskeyti til Morgunblaðs-
ins frá AP.
Hannes Kjartansson, sendi-
herra íslands hjá Sameinuðu
þjóðunum, fór fram á í stjórn-
málanefnd Allsherjarþingsins í
dag að Sameinuðu þjóðirnar
settu reglur um hagnýtingu auð-
- RTJMENAR
Framhald af bls. 1
æfingar yrðu haldnar á rúm-
ensku yfirráðasvæði. Síðustu her
æfingarnar sem Rúmenar tóku
þátt í voru haldnar í ágúst 1967.
Þá höfðu Rúmenar hundsað allar
sameiginlegar heræfingar um
tveggja ára skeið.
Þótt Rúmenar fordæmdu inn-
rásina í Tékkóslóvakíu harðlega
og kæmu á fót sveitum sjálf-
boðaliða til þess að efla vamir
landsins, hefur dregið úr gagn-
rýni þeirra í garð Rússa að und-
anförnu. Nicolae Ceausescu for-
seti hefur ítrekað hollustu Rúm-
ena við Varsjárbandalagið og lof
að að standa við allar skuldbind-
ingar sem a'ðildin að bandalag-
inu leggur Rúmenum á herðar.
NÖBELSVERÐLAUN
Framhald af bls. 1
fræði og skyldum vísindagrein-
um, einkum líffræði.
Prófessor Luis W. Alvares, sem
er 57 ára a'ð aldri, hlaut Nóbels-
verðlaun fyrir mikilvægt fram-
lag sitt varðandi frumagnaeðlis-
fræði, einkum þó varðandi upp-
götvanir * á mörgum orkustigum
hjá frumefnum, er fundizt hafa
með tækni og sjálfvirkum úr-
vinnslutækjum, sem hann hefur
þróað og gert brautir atómagna
sýnilegar.
Alvares, sem er fæddur í San
Francisco, hefur verið kennari
lengst af við Kaliforníuháskóla,
frá því að hann lauk doktors-
prófi við háskólann í Chicago
1936. Hann varð prófessor 1945.
f síðari heimsstyrjöldinni starf
aði Alvares í mikillli rannsókn-
arstöð á sviði ratsjár og aifnarrar
rafeindatækni í Boston og sfðan
vann hann í nokkur ár við kjarn
orkurannsóknarstöð í Los Ala-
mos.. Árið 1959 tók hann við
stöðu yfirmanns Lawrence Radi
ation Laboratory, eftir að Nóbels
verðlaunahafinn Lawrence lézt
það ár.
Það var árið 1960, að Alwares
og samstarfsmenn hann breyttu
með því að uppgötva nýja frum
ögn, þeirri mynd, sem vísinda-
menn höfðu gert sér á áratugn-
um á undan uppbyggingu efnis-
ins með frumögnum, sem til-
raunalega og fræðilega var skipt
í fjóra höfu'ðflokka.
Prófessor Alvares lýsti því yf-
ir í dag, að hann myndi koma
til Stokkhólms í desember til
þess að taka á móti verðlaun-
unum. Með honum í förinni
verða kona hans, sonur hans, sem
er 28 ára, og dóttir, sem er 23
ára.
Alvares sagði ennfremur, að
hann myndi senn yfirgefa það
rannsóknarsvið, sem aflað hefði
honum Nóbelsvarðlaunanna. —
Við förum nú úr rannsóknar-
stofunni og upp í himingeiminn.
Yfir gufuhvolfinu eru til frum-
agnir, sem hafa meira orkumagn
en þær frumagnir, sem okkur hef
ur tekizt að uppgötva. Með loft
belgjum og gervihnöttum von-
umst við til þess að geta rutt
okkur braut enn lengra inn í efn
ið og lyfta þar kannski hulunni
af nýjum leyndarmálum, sagði
Alvarez.
linda á hafsbotni í því skyni að
vernda fiskveiðar. Skýrði hann
frá því, að Island myndi leggja
fram drög á ályktun, sem myndi
Þingsólyktunar-
tillago um
þjóðaratkvæði
Ólafur Jóhannesson (F) mælti
í gær fyrir þingsályktunartil
lögu er hann flytur ásamt Páli
Þorsteinssyni og Ingvari Gísla-
syni um undirbúning löggjafar
um þjóðaratkvæði.
Er tillaga þingmannanna svo-
hljóðandi: Alþingi ályktar að
kjósa fimm manna nefnd til að
rannsaka, hvort ekki sé rétt að
setja löggjöf um þjóðaratkvæðií
mikilvægum löggjafarmálefnum,
svo og hvort ekki sé rétt að
setja grundvallarreglur þar um
í stjórnarskrána. Skal nefndin,
ef hún telur ástæðu til, semja
lagafrumvörp um það efni.
Nefndin skal kynna sér sem
rækilegast öll atriði varðandi
þjóðaratkvæðagreiðslu, þar á
meðal reynslu annarra þjóða í
þeim efnum, en einkum ber nefnd
inni að athuga eftirtalin atriði:
a. hvort í ákveðnum tilvikum
eigi að vera skylda eða aðeins
heimild til þjóðaratkvæða-
greiðslu.
b. hvaða aðilar eigi að fá rétt til
að krefjast þjóðaratkvæða
greiðslu, t.d. hvort þann rétt
eigi að veita tiltekinni tölu þing
manna eða ákveðnum fjölda
kjósenda, og c. hvort úrslit þjóð-
aratkvæðagreiðslu eigi að vera
bindandi eða aðeins til ráðgjaf-
ar.
í framsöguræðu sinni rakti
þingmaðurinn nokkuð þessi mál-
efni, og hvernig þeim er háttað
hérlendis, en að ræðu hans lok-
inni var tillögunni vísað til síð-
ari umræðu og allsherjarnefnd-
ar.
- GEIMFERÐ
Framhald af bls. 1
kvæmdi fyrs'tu geimgönguna.
Tenging í geimnum er talin
Ómissandi þáttur í áætlunum
Rússa um að senda mann til
tunglsins, þar sem sovézkir geim
vísindamenn hafa gefið í skyn,
að þeir hyggist nota geimstöð
til þess áð korna manni til tungls
ins. Þetta kom meðal annars
fram í grein eftir sovézkan vis-
indamann í Pravda í dag.
í grein vísindamannsins sagði,
að tilgangurinn með ferð Bere-
govoys hafi verið að undirbúa
tengingar í geimnum. Rússar
hafa tvisvar tengt og aðskilið ó-
mönnuð geimför í geimnum, en
aldrei tengt mannað geimfar
öðru geimfari, mönnuðu eða ó-
mönnuðu.
Sir Bernard Lovell, forstöðu-
maður stjörnuathugunarstöðvar-
innar í Jodrell Bank í Englandi,
sagði í dag, að ef Rússar væru
ánægðir með ferð Begerovoys
mætti búast við því að þeir hröð
uðu smíði stórrar geimstöðvar,
sem send yrði á braut umhverfis
jörðu og sendu mann umhverfis
tunglið. Hann sagði, að tilraunin
me‘ð Soyuz 3 virtist hafa verið
nauðsynleg prófun á geimfarinu
vegna dauða Komarovs í fyrsta
Soyuz-geimfarinu.
Geimfar Beregovoys lenti í
Síberíu og var 12 stiga frost á
lendingarstaðnum, hvasst og
snjókoma. Fallhlíf dró úr hraða
geimfarsins í lendingunni. Bere-
govoy er sagður við góða heilsu
og hann hafði spaugsyrði á
takteinum eftir lendinguna.
taka til „mengunar sjávarins og
annarra skaðvænlegra áhrifa af
olíuborun á hafsbotni, af spreng
ingum þar svo og af g-eislavirku
úrgangsefni, sem komið vrði þar
fyrir“. Hannes Kjartansson
sagði enn fremur. að það væri
fyrir hendi „greinileg hætta á
mengun sjávarins" fyrir fisk á
sama tíma „en skorturinn á ó-
dýru eggjahvítuefni, sem væri
að finna í fiski, væri eitt mikil-
vægasta matvælavandamálið,
sem he'imurinn ætti nú við að
etja“.
Hannes Kjartansson
Malta varaði við því í dag, að
stóru olíufélögin hefðu viðhorf-
ið ,,að koma og taka“ að því er
snerti „hinar mikhi oliubirgðir"
á hafsbotni og af hálfu Möltu
var sagt, að Sameinuðu þjóðirn-
ar yrðu að hafa hraðann á og
setja reglur um þetta efni. Full-
trúi Möltu í stjórnmálanefndinni
Victor J. Gauci, skýrði nefndinni
enn fremur frá því, að nú væri
unnt að letia að olíu á mörg
þúsund metra dýpi og dæla
mætti olíu upp á mörg hundruð
metra dýpi og færi dýpið stöð-
ugt vaxandi.
Malta hefur borið fram álykt-
un um, að Sameinuðu þjóðirnar
verði látnar hafa á hendi vald
jrfir hafsbotninum sem „sameig-
inlegri arfleifð mannkynsins".
Sagði Gauci, „að aðeins mjög fá
ríki hefðu fjárhagsíegt bolmagn
til þess að hagnýta sér“ auðæfi
hafsbotnsins. Minni riki og þau,
sem ekki ættu aðgang að sjó
yrðu þar útilokuð.
Onassis og
frú í Afyenu
Aþenu, 30. október. AP-NTB.
Gríski milljónamæringurinn
Arlstóteles Onassis kom í dag til
Aþenu í viðskiptaerindum og
ræddi meðal annars við fulltrúa
grisku stjórnarinnar. Kona hans
Jacqueline, kom einnig til
Aþenu í dag frá eynni Scorpion,
og er orðrómur á kreiki um að
hjónin séu á förum til Jóhannes-
arborgar, þar sem þau verði við
stödd brúðkaup sonar suður-af-
ríska demantakóngsins Harry
Oppenheimers.
Hins vegar sagði frú Onassis
blaðamönnum, að þau hefðu eng-
in framtíðaráform og yrðu um
kyrrt í Grikklandi meðan veðr-
ið væri gott. Grísk blöð segja
aftur á móti, að þau fari á morg-
un til New York, sem verði
fyrsti viðkomustaður í ferð um-
hverfis jörðina. Bíöðin segja, að
Onassis hafi ákveðið að skíra
næsta skip sem hann eignist,
„Jacqueline A. Onassis“. Hér er
um að ræða 250.000 lesta olíu-
skip sem skrásett verður í
Bandaríkjunum og á að verða
flaggskipið í flota Onassis. Skip
ið er enn í smíðum.