Morgunblaðið - 19.11.1968, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.11.1968, Qupperneq 12
12 MORGUNRLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1968 Þá skall hurö nærri hælum — rœtt við Viktor Aðalsteinsson, flugstjóra um Biatraflug „JÁ, ÉG veit, að þeir era margir, sem segja, að við höf- um orðið hræddir, þegar árás in var gerð á flugvéi Ka- þólsku kirkjunnar, og þá flýtt okkur heim með fyrstu ferð“, segir Viktor Aðalsteinsson, flugstjóri, þegar við heimsækj um hann til að spjalla um Biafraflug íslendinga, en Vikt or var „þarna suður frá í hálf an mánuð og fór sex ferðir yf ir í óshóimann", eins og hann sjálfur kemst að orði. „Sann- leikurinn er hins vegar sá“, heldur Viktor áfram, „að með árásinni féll samningur okkar við hollenzka flugfélagið Transavía úr giidi og þar sem vafi lék á um framhald flugs ins og okkur fannst það ekki lengur ná tilgangi sinum vegna þjófnaða Biafraher- manna, þá ákváðum við allir að snúa heim aftur“. — Hvers vegna fórstu þarna suður eftir, Viktor? — Ætli það hafi ekki mest verið af ævintýraþrá, segir Viktor og hlser við. Mig lang aði til að reyna eitthvað nýtt og þar sem ég hafði áður flog ið til Grænlands í 40 stiga frost, fannst mér tilvalið að fara þarna suður eftir og reyna fhxgið í 30—40 stiga hita. — En peningarnir? — Já, ég hef heyrt sögur um ævintýralegt kaup okkar, en því miður eru þær fjarri sanni. Við gerðum ákveðinn samning við Transavía, sem hljóðaði upp á venjulegt flug samkvæmt hollenzkum flug- umferðarlögum og kaup okk- ar samkvæmt þessum samn- ingi var að sjálfsögðu meira, en það, sem við fáum hér heima því þessu fylgdu ýms útgjöld, er við greiddum sjálf ir. Það var alls ekki um neina ofsalega áhættuþóknun að ræða, eins og ég hef heyrt fleygt hér. Hins vegar greiddi kirkjan flugmönnum sínum geysihátt kaup; svo hátt að ég þori bara ekki að nefna upp hæðina, en þeir flugu líka al- veg á eigin ábyrgð. Þegar árásin hafði verið gerð kom einn af yfirmönnum Transavía þarna suður eftir og tilkynnti okkur, að samn- ingur okkar væri raunveru- lega fallinn úr gildi, þar sem félagið gæti ekki ábyrgzt ör- yggi okkar lengur. Hins vegar mættum við vera lengur, ef við vildum en félagið gæti ekki greitt neina áhættuþókn- un. Við höfðum eðlilega enga löngun til að láta skjóta okk ur yfir í eilífðina og þegar svo hitt bættist við, að um framhald flugsins var allt á huldu og við töldum þjófnaði Biafra-hermanna á nauðsynj- um, sem við þóttumst vera að flytja sveltandi konum og börnum, hafa rænt flug þetta tilgangi sínum, þá ákváðum við að snúa heim aftur. — Voru Biafra-hermennirn- ir svona stórtækir. — Já, þeir voru farnir að hirða töluverðan hluta farm- anna og síðasta fluginu, sem ég átti að fara í; það var kvöld ið áður en árásin var gerð, af lýsti kirkjan á þeim forsend- um, að tilgangurinn með flug inu væri ekki að ala Biafra- hermenn, heldur hjálpa bág- stöddum konum og börnum. Um framhald Biafra-flugsins, eftir að við fórum fyrri föstu dag, hef ég ekkert heyrt og veit því ekki, hvernig málin standa þarna suður frá nú. — Hvers konar árás var þarna eiginlega um að ræða? — Þarna var ekki um sprengivörpuárás að ræða, eins og fyrst var álitið, held ur loftárás með eldflaugum, hlöðnum stálflisum. — Lentir þú ekki í neinu sögulegu í flugferðum þínum? — Ég varð aldrei fyrir neins konar árás, ef það er það, sem þú átt við. En í einu fluginu fannst mér hurð skeila nærri hælum. — Nú? — Þannig var, að venjulega voru farnar tvær ferðir á nóttu hverri og máttum við ekki fara seinna í loftið frá flugvellinum í Biafra í seinni ferðinni en klukkan fjögur, ef við áttum að hafa skjól af myrkrinu nógu langt út fyrir ströndina til að sleppa við her skipin, sem þar voru. Ég tók þátt í seinna fluginu eina nótt og gekk seint að afferma flug- vélina; það vakti annars furðu mína, hvað fólkið virtist hafa lítinn áhuga á að láta afferm inguna ganga fljótt fyrir sig. Jæja, þessa nótt fannst mér allt ganga á afturfótunum og þrátt fyrir stöðugan eftirrekst ur minn var affermingu ekki lokið fyrr en rúmlega hálf fjögur. Við vildum auðvitað komast sem fyrst í burtu, en þegar við erum að fara yfir vélina fyrir flugtakið; aðstoð arflugmaðuT minn í þessari ferð var hollenzkur, heyrum við þessar líka litlu drunur og finnum vélina kippast tiL Við héldum, að nú væri verið að gera árás á flugtvöllinn, en við nánari athugun kom í Ijós, að starfsmenn flugvallarins höfðu ekið ræsihreyflinum beint á einn hreyfil flugvélarinnar og brotið í honum öll skrúfublöð Okkur leizt hreiint ekki a blilkuna. Við viss/um, að ef vélin stæði áfraim á velllmum yrði hún eyðilögð í árás strax og bjatrt var orðið, en slífct hafði komið fyrir áðuir. Hins vegar voru engar aðstæður þarna til að 'kanmia skemmd- irnar nægilega. Eftir nokkra athugun ákváðum við samit að fatra og kölluðuim í flugturn- inn og báðum um ljós á völl- inn. Fl'ugturnimn er í þriggja mílna fjarlægð frá veilliinum og vi'ta mennimir þar ekkert, hvað á sér stað á vellimiutm sj-áifum, auk þesis sem erfiitt er að ná saimba-ndi við þá þeg- ar vélin er á jörðu niðri. Nú tókst svo til, að við náðum engu sambain-di við fLugtur-n- inn og fengum því emgin ljós á völilinm, en kiukkan tifaði og tifaði. Við kölluðum stanz- laust í flugtuiminin og loks á slaginu fjögur 'kveiktu þeir valiia-riljósin. Við urðum að sj álf sögðu harl-a fegnir og -Skel'itum ofckur af stað, en ekki mátti það itæpaira stainda, því þagair við flug-um yfir ströndi-na vair orðið hálfbj-art svo við gátum greinilega séð h-erskipi-n. En ftuigið gekk áfall-ailaust og lentum við á Sao Tomé heilir á húfl — Fraikkar senda Biafra- mön-nuim vopn? — Já. Mér firnnst þetta hálfgerður hr-áskinnsleikur hjá sitórveldunum. Bretar og Rússar fóðra Níg-eríumen-n á vopnum og F-raikkar Biatfra- menn. Frönsku véLarnair flu-g-u Viktor Aðalsteinsson og kona hans, Auður Hallgrímsdóttir. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.) auðvitað aðeins á nóttunni eins og við, og aiiLtaf urðuim við að bíða, þar til þær höfðu lökið sér af, þó halda mætti, a-ð sá vajrninigur sem við fhutt- um, væri ekki -síður nia-uðayn- legur en vopniin. En svona var þa-ð -n-ú samit. O-g fólikið virtist bafa smöggtum meiri -áhuga á að afferma vopna- flutninigavél-arnar heliduir en þær fl-ugvéiar, sem fLulttu þeim maitvæld og -lyf. — En reyrudu þeir óbreyttu ekkert að næla fitngruinuim í varmingimn? — Jú, biddiu fyrir þér. Þeir voru stórþjófóttir Lítoa, þó þeiir væru etoki eins stórtiækir og hermemmimir. Þek óbreyttu tróðu a-ll's 'kyms vörum i-nm á sig og það va-r breiin furða, hvað þeir „fitnuðu" þanm tíma, sem þeir ummu við aif- fermingumia. Og þeir voru gr-áðugir í benzínið. Það va-r seilit á svört- um markaði fyrir svimiamdi h-áair upphæðir. — Hvemig urðu þeir sér úti um það? — Þeir báðu aLLtaf um ben- sín á flugvaiiartækin. Ég hafði þá venju, að láta að- stoðarfiugmanninn fylgjast með því, að þeir settu bensín- ið á tækin, en einu sinni fórsf það fyrir og stuttu síðar vom þeir orðnir bensíniausir; höfðu þá stolið bensíninu, sem við létum þá fá. Þannig mátti ekki líta af þessum mönnum. — Hvermig var áðbúnaður- inn á Sao Tomé? — Hann var svona og svona. Ég bjó nú ekki á þessu eina gistihúsi, sem þarn-a er, held- ur á einkaheimili og hafði þar mitt rúm og minn stól, en það var lítið annað. — En maturinn? — Hann var alveg óætur. Ég léttist um þrjú kíló þenn- an hálfa mánuð. Hins vegar v-ar bjórinn þeirra ágætur. Það eina, sem hægt var að borða þarna var hænsnakjöt- ið, sem þeir báru fram, og morgunverðurinn var jú yf- irleitt ágætur. En aðalmátíð- ir dagsins! Þær voru ekki beysnar. Um leið og ljósmyndarinn smellir mynd af þeirn hjón- um, spyrjum við fr-ú Auði, hvernig henni hafi litizt á þetta flug bóndans suður frá. „Mér var hreint ekkert um þáð gefið“, segir hún. Röskur sendisveinn óskast hálfan eða all-an daginn. GUNNAR ÁSGEIRSSON HF., Suðurlandsbraut 16, sími 35200. BLAÐBURÐÁRFOUI > OSKAST í eftirtalin hverfi: Sjafnargötu Talið við afgreiðsluna i sima 10100 Dagsbrún segir upp samningum MBL. hefur borizt fréttatiikynn- ing frá Verkamannafélaginu Dagsbrún þar sem skýrt er frá því að félagsfundur í Dagsbrún, sem haldinn var sl. sunnudag hafi samþykkt einróma að segja upp samningum við atvinnurek- endur frá 1. des. nk. Jafnframt var samþykkt ályktun þar sem mótmælt er gengisbreytingunni. 1 ályktuninni segir m. a.: Fundurinn bendir á, að lífs- kjaraskerðing gengisfellingarinn- ar kemur til viðbótar stórskert- um tekjum verkafóiks sök-um minnkandi atvinnu og atvinnu- leysis. Nú eru skráðir nokkuð á þriðja hundrað atvinnuleysingja í Reykjavík, þar af 160 verka- menn. og yítað að þeim fjölgar mikið á næstu vikum, ef ekkert verður að gert. Fundurinn lýsir ábyrgð á hendur valdhafanna fyrir aðgerðarleysi í þessum efn- um og skorar á ríkisstjórn og borgarstjórn Reykjavíkur að gera tafarlaust ráðstafanir til, að hér verði' full vinna og að bægt verði frá vofu atvinn-uleysisins. Fundurinn telur nauðsynlegt, að verkalýðshreyfingin beiti samstilltu átaki til að hindra þá stórfelldu kjaraskerðingu, er n-ú blasir við og til að knýja fram stjórnarstefnu, gem tryggi batn- andi lífskjör, fulla atvinnu og fjárhagslegt öryggi þjóðarinnar.“ Tónleikai í Kristskirkju HAUKUR Guðlaugsson, organ- leikari á Akranesi, heldur tón- leika í Kristskirkju á miðviku- dagskvöld kl. 21. Á efnisskrá verða; Toccata og fúga (Doriska) eftir J. S. Bach, 10 sálmaforleikir eftir Bach og Choral í E-dúr eftir César Frank. Umræður um Yvonneí Iðnó ÁKVEÐIÐ hefur verið, að eftir sýningu á leikrUum Yvonne á miðvikudagskvöld verði umræður um leikinn. Munu leikstjóri og leikarar svara spurningum, sem fram kunna að koma frá áhorfendum. Leikfélag Reykjavíkur hefur áður efnt til slíkra umræðna, þegar skiptar skoðanir hafa ver- ið um leikrit þess, og hefur það tekizt veL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.