Morgunblaðið - 06.12.1968, Page 28

Morgunblaðið - 06.12.1968, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. DBS. 1968 Moers hafði ekki farið fyrr en klukkan níu, þegar orðið var aldimmt. — Ertu viss um, að þú vitir, hvaS þú átt að gera? — Já, alveg viss. Hann tók með sér ljósmynd- ara og mikið af allskonar tækj- um. Það var ekki fullkomlega löglegt, en úr því að það hafði sýnt sig, að Guillaume Serre hafði tvisvar keypt rúðu, þá gerði það ekki svo mjög til. — Náið í Amsterdam fyrir mig. Þegar svarað var skildist, i fwmERlJUF|,R waulJDRVKKUR honum á bablinu í stúlkunni, að frúin væri ekki komin heim enn. Svo hringdi hann til konunn- ar sinnar. — Þú kærir þig víst ekki um að koma og fá eitt glas með mér í Dauphine-kránni. Ég þarf líklega að drepa einn klukku- tíma þar enn. Taktu bíl. Þetta varð ekki sem verst kvöld. Það fór eins vel um þau þarna og á gangstéttarkaffihúsi við breiðgöturnar, nema hvað útsýnið var ekki eins gott þarna. Þeir hlutu að vera farnir að hefjast handa í Bæjargötu, þeg ar hér var komið. Maigret hafði sagt þeim að hreyfa sig ekkert fyrr en Serre-mæðginin væru gengin til náða.. Torrence átti að standa vörð í götunni með- an hinir brytust inn í bílskúr- inn, og athuguðu bílinn ná- kvæmlega. En það áttu Moers og ljósmyndarinn að sjá um. Allt átti að athuga: fingraför 25 ryksýnishorn til rannsóknar: yfirleitt allt, sem máli skipti. — Þú virðist ánægður með sjálfan þig. — Já, ég hef yfir engu að kvarta. Hann ætlaði ekkert að fara að minnast á, að fyrir fáum klukkustundum var hann hreint ekki í svona góðu skapi og nú fór hann að fá sér eitt- hvað, sem bragð var að meðan frúin drakk ekki annað en sódavatn. Hann fór tvisvar frá henni, til þess að hringja til Amster- dam úr skrifstofunni. Klukkan var orðin hálfellefu, er hann loksins heyrði í rödd, sem var ekki vinnukonunnar, og svaraði honum á frönsku. — Ég heyri hálfilla til yðar. — Ég hringi frá París. — Nú? Frá París? — Hún talaði með miklum hreim, sem annars var ekkert óviðkunnanlegur. — Aðalstöð lögreglunnar. — Nú, lögreglan? — Já, Ég hringi til yðar í HÚSMÆÐUR ||f Jólaþvottur Odýrasta húshjálpin ODYRT STYKKJAÞVOTTUR: BLAUTÞVOTTUR: Sendið ennfremur: 30 stk. slétt-blandað tau, sem má sjóða saman. Aðeins á kr. 2Í74.00 með söluskattí. minnst 8 kg. tau sem má sjóða saman. Aðeins á kr. 120.00 með söluskatti. Þurrkaður, hristur upp og tilbúinn til strauningar aðeins á kr. 160.00 með söluskatti. Hvert kg. sem fram yfir er á kr. 18.00 með sölu- skatti. Borðdúka: kosta kr. 23.00 pr. meter með sö'uskatti. Skyrtur: fullkominn frágangur á kr. 25.00 með söluskatti. ÞVOUM EINNIG ALLAN ANNAN ÞVOTT FYRIR EINSTAKLINGA OG AÐRA Sótt og sent um alla borgina á kr. 60.00 báðar ferðir. FÉLAG ÞVOTTAHÚSAEIGENDA í REYKJAVÍK Tryggið yður rétt verð, beztu og öruggustu þjónustuna Þvottahúsið Þvottahúsið H. Smith Drifa Þvottahús Vesturhæjar Bergstaðastræti 52. Baldursgötu 7. Ægisgötu 10. Sími 17140. Sími 12337. Simi 15122. Fannhvítt frá Þvottahúsið Þvottahúsið Skyrtur og sloppar Grýta (Lín) Laufásvegi 9. (Þ vottaþ j ónustan) Ármúla 20. Sími 13397. Langholtsvegi 113. Sími 34442. Sími 82220 — 82221 sambandi við hana Maríu vin- konu yðar. Þér þekkið Maríu Serre, fædda Aerts, er ekki svo? • — Hvar er hún? — Það Veit ég ekki. Þess- vegna er ég einmitt að hringja til yðar. Hún skrifaði yður oft, var ekki svo? — Jú, oft. Ég átti að hitta ihana á járnbrautarstöðinni á miðvikudagsmorguninn var. — Og hittuð þér hana? — Nei. — Kom hún nokkurntíma? — Nei. — Hafði hún nokkuð símað eða hringt, að hún kæmi ekki eins og um var talað? — Nei. Og ég hef áhyggjur af því. — Vinkona yðar er horfin. — Hvað eigið þér við? — Hvað sagði hún yður í bréfunum sínum? — Það var nú sitt af hverju. Síðan talaði hún við einhvern á sínu máli, líklega manninn sinn, sem virtist vera þarna við hliðina á henni. — Haldið þér að María sé dá- in? — Það gæti hugsazt. Skrifaði hún yður nokkurntíma, að hún væri óhamingjusöm? — Hún var áhyggjufull. — Hversvegna? — Hún kunni ekki við gömlu konuna. — Tengdamóður sína? — Já. — En hvað um manninn henn- ar? — Hún var vön að segja, áð hann hafi alls ekki verið karl- maður heldur yfir sig vaxinn skólakrakki. — Hvað er langt síðan hún skrifaði yður þetta? — Skömmu eftir að hún var orðin gift. Fáienum vikum seinna. — Var hún þá strax farin að tala um að yfirgefa hann? — Ekki þá strax. En eftir svo sem eitt ár. — En núna nýlega? — Þá var hún búin að ákveða sig. Hún bað mig að útvega sér íbúð í Amsterdam, einhversstað- ar nærri mér. — Og gátuð þér útvegað hana? — Já og meira að segja stúlku líka. — Svo að þetta var þá allt ákveðið? — Já. Ég fór sjálf á stöðina. — Er yður það nokkuð á móti skapi að senda mér eintök af 6. NÓVEMBER Hrúturinn 21 marz — 19. apríl Þú átt eriitt með að taka upp þráðinn á ný, því að aðstæður hafa breyzt. Þótt þú verðir fyrir óþægindum, skaltu endilega stilla bia. Nautið 20. aprll — 20. maí Röskun á daglegum störfum skapar þér vanda. Settu þig inn í málið Revndu að gera svolítið hreint. Tvíburarnir 21. inaí — 20. júní Farðu þér hægt í fjármálum og láttu ekki glysginning ráða. Krabbinn 21. júni — 22 júií Vera kann, að aðrir raski áformum þínum. Sittu við þinn keip og vprfu þoiinmóður. Ljónið 2S. júií — 22. ágúst Einhver órói er í kringum þig. Forðaztu illindi. Gættu heils- unnar Fi -..ver sem hefur hingað til þagað, opnar munninn, og það lendir á þér að koma fyrir hann vitinu. Heimsæktu sjúkling. Meyjan 23. ágúst • - 22. september Eittrvert atvik raskar samskiptum þínum og vinanna. Skoð- aðu allt niður í kjölinn því að ekki er allt sem sýnist. Vogin 23. september — 22" októben- Þeir sem ráða þekkja. að því er virðizt ekki sín eigin tak- nörk Ver,u hógvær í viðskiptum og lagalegum ráðstöfunum. Gerðu nkk, ráð fyrir neinu. Sporðdrekinn 23 október — 21. nóvember Þú hefur farið þínu fram, þótt allir hafi ekki haft gott þar af, en þagað f ó! Nú er eins liklegt, að þeir geri þér skráveifu, nema þú látir til skarar skriða og réttir hlut þeirra. Hugsaðu máiið vandiega. i Bogmaði-rinn 22. nóvember — 21. desember öll viðskipti /erða flókin, einkum ef vinir þínir eiga I hlut. Leiddu ófu lgerða samnmga hjá þér. Taktu þér fri I dag, ef þú getur. Steingeitfn 22 desember — 19. janúar Reyndu að vinna einn, ef hægt er. Óróinn er svo mikill að óhægt er að beina huganum að neinu. Það verður e.t.v. kallað á þig tii aðstoðar Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar Þú verð verk þitt bezt með því að sinna ekki gagnrýninni. Haltu áfram. að uppteknum hætti. Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz. Eyddu el ki um efni fram. Gættu þess að fleipra ekki. Reyndu að vinn-i /el, og reyndu að vinna upp, það sem farið hefur miður. \ I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.