Morgunblaðið - 06.12.1968, Blaðsíða 32
fiSKUR
Suðurlandsbraut 14 — Sími 38550
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1968
Húsgögnm
faio
þér hjá
VALBJÖRK
Viðræður við EFTA hefj
ast um miðjan janúar
— Viðskiptamálaráðherra boðið tiI Genf
EFTA-ráðið ákvað í gær að
bjóða viðskiptamálaráðherra ís-
lands til viðræðna um umsókn ts
lands að EFTA um miðjan jan-
úar næstkomandi. Ríkisstjórn-
inni hefur ekki borizt formleg
tilkynning um boðið, en búizt
LÍÚ-fundurinn
AÐALFUNDUR LÍÚ var fram
háldið í gær og voru tekin fyrir
nefndaálit. í dag mun sjávarút-
vegsmálaráðherra, Eggert G.
Þorsteinsson, ávarpa fundinn.
er við að Gylfi Þ. Gíslason fari
utan til Genf.
Ráðið mun bera fram ósk um,
að því er segir í NTB-frétt, að
ráðherrann komi til Sviss og
flytji ræðu um umsóknina áður
en hann svari nokkrum spurn-
ingum, sem fjallað verður um
við umræðumar.
Þar til viðræðurnar hef jast um
miðjan janúar mun skrifstofa
EFTA í Genf vinna að undirbún
ingi þeirra og gera yfirlit um
helztu atriði, sem búast má við
að til umræðu komi.
Hrintu börnunum
ÞREMUR drengjum á aldrin-
um 5 til 7 ára var í gær varp
að í höfnina í Keflavík. Sam
kvæmt frásögn barnanna, sem
að nokkru er óljós munu hér
hafa verið að verki þrír ungl-
ingar — eða stálpaðir drengir
og hafi einn einkum haft sig
í frammi við þetta athæfi.
Lögreglan í Keflavík tjáði
Mbl. í gærkvöldi að maður
hefði, samkvæmt frásögn
drengjanna, komið og kastað
til þeirra spotta og dregið þá
í land. Þennan mann hefur
e'kki tekizt að finna, en lög-
reglan biður hann um að gefa
sig fram hið fyrsta.
í sjóinn
Drengirnir þrír munu hafa
verið allhraktir, er þeir komu
heim til sín, og voru þeir
drifnir í rúmið. Piltarniir þrír,
sem valdir eru að þessum
vítaverða verknaði, ættu og
sjáMviljugir að gefa sig fram.
Það er þeim sjálfum fyrir
beztu.
Hitinn í Reykjanes-
holunni 286 gráður
Verið er að kanna, hvort saltmagnið
eykst er holan dýpkar
Oryggisbúnaður hefir ver-
ið aukinn í Straumsvík —
Báðir þeir sem létust
FRÉTTAMENN Mbl. brugðu
sér suður í Straumsvík í gær
og voru þeim sýndir staðir
voru einir að vinna
þeir, þar sem banaslysin tvö
urðu nú fyrir skemmstu.
Hið fyrra var í hinum stóra
: •'
'Wmími.
Wm-j ■ .JJÞ & Æm
h 1
Myndin er tekin við annan enda „Kerhússins“, en inni í því
miðju var málarinn að vinna er hann féll úr 17 metra hæð.
kerskála, en þar vax Svisslend-
ingurinn Max Stamm, sem var
málari, að vinna í 17 metra hæð
upp undir mæni hússins. Hainn
stóð þar á 80 cm breiðri brúin
við að mála. Hafði hann ekki ör-
yggisbelti, þótt svo ætti að vera
á þeim stað. Max Stamm var
tvítugur að aldri. Þeir starfis-
menn, sem eru vanir að vinna í
þessari hæð telja sig velfléstir
ekki þurfia að hafa öryggisbelti,
en þama mun hafa verið erfitt
að koma því vi'ð. Málarinn var
þarna einn að verki og sá því
enginn hvemig slysið bar að
höndum, en aðrir starfsmenn
unnu talsvert frá. Nú hefir ver-
ið þannig gengið frá þessum
Framhald á bls. 19
iJarð- ]
skjálfti
MIKLAR jarðhræringar urðu
á Suðvesturlandi í gærmorg-
un kl. 09.44. Kippimir héldu
svo áfram fram eftir degi og
voru alls orðnir á annað
hundrað um kl. 17 í gærdag.
Snarpasti kippurinn — hinn
fyrsti — mældist 5 til 6 stig á
Richterskala, sem mun vera
snarpasti jarðskjálfti í höfuð-
borginni síðan 1929. Veikari
kippir en þessi, er skók
Reykjavík í gær, hafa oft
sett borgir erlendis í rúst.
Sjá frétt og viðtöl á bls. 10.
SÍÐASTA djúpa holan á Reykja
nessvitasvæðinu er nú orðin 1160
metrar að dýpt. Við botn henn-
ar mælist 286 gráðu hiti og mun
það mestur hiti, sem mælzt hef-
ur í borholu á íslandi, en verið
getur þó að Námaskarðsholan
sé eins heit, en ekki hefur tekizt
að mæla hana.
Mbl. átti í gær tal við Jón
Jónsson, jarðfræðing, og sagði
hann þá að verið væri að koma
fyrir mælitækjum við holuna og
yrðj hún mæld eftir helgi, er
hún yrði opnuð. Hins vegar sagði
Jón, að verið væri að byrja á
nýrri holu og þar sem hitinn
hefði fiarið svö ört vaxandi síð-
ustu metrana í holunni sem ný-
búið er að bora, hefðu jarðfræð-
ingar hug á að reyna að fara
heldur dýpra við þessa borun.
Jón kvaðst viss um, að jarð-
myndanir undir Reykjanesskaga
væru allar til orðnar undir sjó,
sem raunar skaginn allur og neð
ansjávarhryggurinn, sem liggur
í haf út. Þegar borað er niður í
jarðlögin kemur í ljós, að þar
er um 700 metra þykkt lag af
túffi (þ.e. samanbökuð eldfjalia-
aska). Þetta set hlýtur að inni-
haldia eins mikinn sjó og rúm-
aðist í því í upphafi. Saltinnibald
ið hefur svo hneinsazt við upp-
gufun af svæðinu og séu þessar
gosmyndanir þama eru líkur á
að þar sé svo mikill forði að nægi
til nokkurra áratuga a.m.k. Það
ætti því ekki að skipta mjög
miklu máli, hvort sjór rennur
inn að staðaldri, eða hvort undir
séu gosmyndanir ríkar af salt-
innihaldi.
Jarðlögin eru ekki ýkja hörð
í þessum slóðum og er borhrað-
inn allt frá 2 metrum á klukku-
stund og upp í 8 til 10 metra og
getur jafnvel verið meiri. Spum
ingin er nú, hvort saltmagnið
eykst þeim mun dýpri sem hol-
an verður.
Kaþólski blskuplnn
vígður á sunnudag
SÉRA Hinrik Frehen af reglu
Monfortpresta, sem skipaður hef-
ur verið biskup kaþólskra á ís-
landi, verður vígður til embætt-
isin« í litlu þorpi, Waubach í
Hollandi á sunnudaginn kemur.
Fer athöfnin fram í kirkjunni
sem séra Ilinrik var skírður í
sem barn.
Erkibislcupinn, hans herradóm-
ur J. B. Theunissen, er hvarf
héðan af landi brott 15. nóv-
ember síðastliðinn, mun vígja
biskupinn, en einnig mun verða
viðstaddur Jóhannes Gunnars-
son fyrrum biskup. Athöfnin fer
fram á Maríumessu.
Þess má geta að séra Frehen
verður fyrsti kaþólskf biskupinn
á íslandi frá dögum Jóns Ara-
sonar, en þeir sem verið hafa
í milli, hafa aðeins verið bisk-up-
ar að tign, en ekki með sérstafct
biskupsdæmi undir sér. Páfa-
stóllinn ákvað nýlega að gera
fsland að biskupsdæmi.
Séra Hinrik Frehen mun vænt-
anlegur til íslands skömmu fyrir
jól.