Morgunblaðið - 22.03.1969, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ lð'6®
k
I»Að ER ekki að venju hér í
blaðinu að ræða um tvítugs af-
mæli, en hér gegnir nokkru
öðru en ef um einstakling væri að
ræða, því það eru bæjarréttindi
Keflavíkur sem eiga 20 ára af-
mæli.
Lögin um kaupstaðarréttindi
Keflavíkur voru staðfest af for-
seta fslands 22. marz 1949. og
öðluðust þá þegar gildi. 22 marz
er því óvefengjanlegar afmælis-
dagur Keflavíkurbæjar.
Tillöguna um kaupstaðarrétt-
indi fyrir Keflavík flutti á Al-
þingi þingmaður kjördæmisins,
Ólafur Thors, og meðflutnings-
maður hans var Emil Jónsson,
þáverandi þingmaður Hafnfirð-
inga.
Síðasta hreppsnefndin, skip-
uð 7 mönnum, fór með völd bæj-
arstjórnar fram að fyrstu reglu-
í
Raðhúsahverfi í Keflavik og aðrar byggingar.
KEFLAVÍKURSÆR 20 ÁRA
— efiir Helga S. Jónsson
legum bæjarstjórnarkosningum
sem fóru fram 29. janúar 1950,
en þá var fyrsta bæjarstjórnin
kosin, skipuð 7 mönnum, en nú
eru þar 9.
Fyrsti fundir hinnar nýkjömu
bæjarstjómar var haldinn 12.
febrúar 1950. Á þeim fundi var
Ragnar Guðleifsson, fyrrverandi
oddviti ráðinn bæjarstjóri. Meiri
hlutasamvinna var þá á milli Al-
þýðuflokksins og Framsóknar,
eins og áður hafði verið í hrepps-
nefndinni. Síðan kom samvinna
S’álfstæðisflokks og Framsóknar
þá meirihluti Sjálfstæðisflokksins
og nú er ráðandi samvinna Sjálf
stæðisflokks og Alþýðuflokks, og
bæiarstjóri er Sveinn Jónsson.
20 ár er ekki langur tími í
æfi bæjar, sem á allar aldir í
framtíð sinni. Keflavík stendur
föstum fótum í fortíðinni, sem
oft hefur verið rysjótt, mörkuð
fátækt og þrotlausri baráttu
fólksins, sem vissi að það er
ekki hægt að gefast upp.
Keflavík verður fyrst til í
kringum dönsku einokunina og
vex hægt undir hrammi hennar.
Fólkið í Keflavík forfeður bæj-
arbúa i dag, voru harðir og
hraustir, bognuðu en brotnuðu
ekki. Þeir héldu vöku sinni og
voru viðbúnir að taka undir og
þrýsta á, þegar einokunarfjötr
arnir fóru að rakna.
Þegar Duus-veldið skilur við
færist fjör í Keflavík. Þó að
sporin séu ekki stór í fyrstu,
miða þau öll framávið. Kefla-
vík er ekki síðust svipaðra staða
á landinu og greini’lega tekur
hún forustu byggðanna á Suð-
urnesjum og hefur haldið henni
síðan.
Allur þroski og þróun Kefla-
víkur hefur verið og er sjónum
háð, útgerð og fiskveiðum. Svo
vænlega hefur Keflavík vaxið
úr reifum um að nú er hún þriðji
stærsti útgerðarbær á landinu
og leggur sinn ríflega skerf í
þjóðarbúið, auk þess sem fólkið
hefur búið við batnandi kjör.
Bátarnir hafa stækkað svo að
segja með ári hverju, og einnig
fjölgað svo nú er heimaflotinn
mikill og myndarlegur.
Aðstaðan til vinnslu og verk-
unar aflans hefur fylgt fast eft-
ir og stundum farið framúr, svo
að verkefni hafa ekki alltaf ver-
ið fyrir hin 6 frystihús og aðrar
verkunarstöðvar. Alveg hiklaust
og á réttum tíma var horfið frá
þeirri einhæfu verkunaraðferð að
sólburrka saltfisk eingöngu, sem
var nær einráð verkunaraðferð.
Upn var tekin hraðfrysting, hús
þurkkun og herzla og á þessum
sviðum ávallt notað bað nýjasta
og bezta. Hraðfrystihúsin hafa
stöðugt aukið afköst sín, með
stækkun húsanna og nýrri tækni
sem hefur skapað aufcna vöru-
vöndun, sem er eitt bitrasta vopn
ið í baráttunni um markaðina.
Að siálfsögðu verður stefnt að
því að fullvinna allar sjávaraf-
urðir. Þar verður Keflavík ekki
eftirbátur frekar en á öðrum svið
um.
Þeir, sem stjórna þessum mál-
um og bera hita og þunga dags-
ins, eru starfi sínu vaxnir. Þeir
eru knúðir þrennskonar aflgjafa
Það er þjóðarbúið, bærinn okk
ar og menning fólksins.
Á meðan eftir þessum sjónar-
miðum er unnið, heldur Kefla-
vík áfram að vera vaxandi bær
þar sem framleiðsla, vinna og
menning haildast í hendur. Því
það er hugur og hönd sem skapa
bæinn.
Þar sem eitt harðbalakot var
áður, ris nú bærinn við hafið
með 5700 íbúum. Störfin eru
mörg og öll mikilvæg, hvert á
sína vísu. Það er ekki einhlítt
að sækja fiskinn í sjóinn. — Til
þess að lifa mannsæmandi lífi,
krefst nútíminn margháttaðrar
þjónustu. Sumt af því sem á
Sveinn Jónsson bæjarstjóri
landi er unnið, er ekki fyrir-
ferðarmikið og finnst ef til vill
ekki fyrr en það vantar. Til
þess að annast öll þau störf,
sem menning nútímans krefur,
höfum við með okkur þjóðfélag
og bæjarfélag, og gjöldum hvoru
tveggja skatt, hluta þess er við
öflum.
Liðin eru nú 20 ár síðan við
ákváðum og fengum lagaheimild
til að breyta okkar sambýlis-
formi úr hreppsfélagi, sem stofn
að var 1908, í bæjarfélag, með
Fiskibátar í Keflavíkurhöfn
þeim skyldum og réttindum, sem
því fylgja.
KEFLAVfK f DAG
Það hefur margt breytzt í okk
ar þjóðfélagi á síðustu 20 árum
og einnig í tiltölulega ungum bæ.
Þegar bæjarréttindi voru feng-
in, var íbúafjöldinn 2.283, en
nú á 20 ára afmælinu eru íbú-
arnir 5.700. Sem að 'líkum læt-
ur býr fólkið í húsum, og hefur
því átak í byggingarmálum ver-
ið talsvert mikið og einnig á öðr-
um sviðum.
BYGGNGAR
Á þessum 20 bæjarárum hefur
Keflavík vaxið og þroskast hröð
um skrefum og er talið af þeim,
sem til þekkja, að Keflavík hafi
þróast á æskilegasta hátt miðað
við önnur byggðalög. Á þessu
tímabili hafa verið reist 350 hús,
af ýmsum stærðum með um 925
íbúðum, malbikaðir og malarlagð
ir 8.1 kílómetrar af samanlagðri
allri gatnalengd í bænum, sem
er 21.7 km. Nú eru í byggingu
127 íbúðir. Lokið er viðbygging
ingu við barnaskólann og mikil
viðbygging við Gagnfræðaskól-
ann er nú í smíðum. Nokkur
verksmiðju- og verkstæðahús eru
ýmist fullbúin eða eru í smíðum,
einnig nýtízku verslunarhús, sem
ýmist er lokið eða áformuð. Það
verður vart allt talið fram, sem
er að gerast í vaxandi bæ og
verður því sérhver að geta í eyð
urnar.
SKÓLAR OG ÍÞRÓTIR
Með vaxandi íbúafjölda hefur
skólaþörfin aukizt mjög mikið.
Við upphaf bæjarréttinda voru í
barnaskóla 273 nemendur, en
eru nú rúmlega 900. — í Gagn-
fræðaskólanum voru 60 nemend-
ur en eru nú yfir 400. Iðnskól-
inn er með 130 nemendur. Þá
starfar hér Tónlistarskóli með um
150 nemendum, námsflokkar og
allskonar námskeið, bæði á veg-
um hins opinbera og félagasam-
taka.
Aðstaða íþróttamanna hefur
tekið miklum framförum. All-
mikið og gott íþróttahverfi er
nú í hjarta bæjarins, þar er
gamli malarvöllurinn, endurbætt
ur og gerður svo vel, að hann
er talinn einn besti málarvöllur
á landinu. Nýr grasvöllur af ful'l
komnustu gerð hefur verið gerð
tr, þó að umhverfi hans og mörgu
öðru sé enn ekki að fullu lokið,
en miðar vel áfram. Búnings-
hús og aðrar nauðsynlegar bygg
ingar hafa verið reistar. Leikvell
ir barna, sparkvellir og dag-
heimili eru í fullum gangi og
gefast vel.
IÐNAÐUR OG ATVINNA
Atvinnuhættir Keflavíkur eru
enn sem komið er ti'itölulega fá-
brotnir, vantar margskonar iðn-
að, þó að margt sé þegar komið
og ýmislegt fyrirhugað, sem nú
verandi bæjarstjórn styður með
ráðum og dáð.
Það væri margt hægt að rekja
af framkvæmdum þessa 20 ára
tímabils, en þessari afmælis-
kveðju er ekki ætlað það hlut-
verk, heldur að minna á hvern-
ig eitt harðbalakot getur risið til
vegs og virðingar undir for-
ustu góðra manna og fýrir dugn-
að þeirra, sem bæinn byggja.
Á hveýju ári kemur eitthvað
nýtt framá sviðið, sumu er mis-
jafnlega tekið og ekki veittur
fullur skilningur fyrr en siðar,.
Það er svo, og hefur llltaf ver-
ið, að vindar blása um tinda —
og bæjarstjórn hvers tíma er
meira vanþakkað en þakkað fyr-
ir það góða, sem hún gerir með
tilstyrk borgara sinna.
Þegar þessar línur eru skrif-
aðar veit ég ekki hvort bæjar-
stjórnin ætlar að halda hátíða-
i fund og auðkenna þetta 20 ára
skref með nokkru sérstöku, en
vel væri til fallið að samþykkja
þar að hefja undirbúning að
byggingu ráðhúss við Tjarnar-
götuna, sem einnig rúmaði byggða
safnið, listasafnið og bókasafn-
ið. Slík bygging væri verðugt
minnismerki um 20 ára gæfuríkt
starf og góð afmælisgjöf til fram
tíðarinnar.
Það er aldrei of mikið af bjart
sýni og hugsun framí tímann.
Svo vitum við öll að Kefla-
vík „liggur suður með sjó“ og
heldur áfram að vera um víða
veröld þekktasti staður á fslandi
fyrir tilkomu hins volduga flug-
vallar í heiðinni fyrir ofan, sem
er í dag bitbein margra, en renn
ur með tímanum inní órofa heild
og heldur nafni Keflavíkur uppi
um langa framtið.
PILTAR, ef fjií Plqlt unnusturu /f// .p’a i éq kringana. //f/''////) Aýarfa/i fomaniteficnA Póstscndum/'^*"^
BnsHBHn
i SAMKOMUR 1
HEIMATRÚBOÐIÐ
Almenn samkoma annað kvöld
kl. 20.30. Sunnudagaskóli á
morgun kl. 10.30. Verið vel-
komin.
Bænastaðurinn Fálkagötu 10
Kristilegar samkomur sunnu-
daginn 23/3: Sunnudagaskóli kl.
11 f. h., almenn samkoma kl. 4
Bænastund alla virka daga kl. 7
e. m. Allir velkomnir.
Samkomur
í Færeyska sjómannaheimilinu
sunnud. kl. 5. Allir velkomnir.