Morgunblaðið - 22.03.1969, Side 20

Morgunblaðið - 22.03.1969, Side 20
20 MORGUNB'LAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1909 Þjóðdansafélag Reykjavíkur til sýninga um helgina „Þetta er allt þess virði, það er svo skemmtilegt" efnir Tifandi faetur svifu spor- létt yfir sviðið í Háskólabíói s.l. sunnudagsmorgun, en þá voru dansarar Þjóðdansafé- lags Reykjavíkur að æfa þar af fullum krafti fyrir áriega sýningu félagsins, sem verð- skozk pils á karlmennina. Búningavörður félagsins er Ingveldur Markúsdóttir. Stjórnandi hljómsveitarinn ar, sem leikur fyrir dansin- um er Elisha Davíðsson og honum til aðstoðar eru: r W Ungar stúlkur dansa hópdansa. ur í Háskólabíói í dag kl. 3 e.h. og á morgun kl. 2 e.h. Sýndir verða dansar frá 12 iöndum og hafa dansarn- ir verið æfðir hjá Þjóðdansa félaginu í allan vetur. Æfing ar eru að jafnaði þrjú kvöld í viku. Um 70 manns taka þátt í danssýningunni. í vetur hafa hátt á þriðja hundrað manns æft þjóð- dansa hjá félaginu. Það er ugglaust fremur sjaldgæft að menn og konur hérlendis dansi af fullum krafti á sunnudagsmorgnum, því að þá eru flestir dansarar frá laugardagskvöldum komn ir í ból. En það var líf og fjör á æfingu Þjóðdansafé- lagsins og tónbrigði ýmissa landa réðu sporum og hreyf- ingum á sviðinu. Hljómsveitin sem lék fyrir dansinum magnaði upp dans- inn og fiðlan varð æ tryllt- ari og trylltari þar til augu dansaranna loguðu og fiðlan grét af kæti. Stórkostlegt litaskrúð er í búningum dansaranna, en þeir sýna dansa frá íslandi, Kanada, Skotlandi, Þýzka- landi, ítalíu, Danmörku, Pan- ama, Japan, Mexícó, Perú og Argentínu. Stjómandi sýn- ingarinnar er Svavar Guð- mundsson og hann ásamt Helgu Þórarinsdóttur hefur æft dansana. Einnig hafa brezku sendi- herrahjónin ásamt syni þeirra æft skozku dansana, jafnframt því sem frúin hef- ur séð um að útbúa „kinsanó" búningana fyrir japönsku geisumar í japanska dansin- um. Brezku sendiherrahjón- in gáfu Þjóðdansafélaginu 4 Guðni Þ. Guðmundsson, Gunnar R. Jónsson, Harold Wright. Helgi Kristjánsson og Sverrir Kjartansson. Þjóðdansafélagið er búið að starfa í 17 ár og hefur starfsemi þess eflzt með ári hverju og æ fleiri sjálbfoða- liðar lagt hönd á plóginn í starfi félagsins en það er að langmestu leyti sjáilfboða- starf. Mjög margir félagar í Þjóðdansafélaginu eru kenn- arar, en einnig er þar fólk úr öllum starfsgreinum. Á stefnuskrá Þjóðdansafélags- ins er það fyrst og fremst á stefniuskrá að efla og endur- vekja áhuga fólks fyrir gömlu íálenzku búningunum og gömlum dönsum innlend- um og erlendum. Félagið hef ur komið sér upp mjög vönd- uðu búningasafni og þar í er sérstakt safn íslenzkra bún- inga, sem unnir eru eftir fyr- irmyndum í Þjóðminjasafn- inu. í þá búninga t.d. var lát- ið vefa sérstaklega efni hjá Álafoss verksmiðjunni til þess að búningarnir yrðu sem líkastir. Ýmisskonar námskeið eru haldin innan Þjóðdansafélags ins og á vegum þess og t.d. var í vetur haldið námskeið í baldýringu og spjaldvefn- aði í samvinnu við Þjóðminja safnið. Til þess að kynna þjóð- dansa utan Reykjavíkur hef- ur félagið efnt ti'l sýningar- ferða út áland og hefur það borið þann árangur að farið er að æfa þjóðdansa á nokkr um stöðum úti á landi. Mörg félagssamtök, inn- lend og erlend, hafa sótzt eftir samvinnu við Þjóðdansa félagið og beðið það að sýna á skemmtunum sérstaka dansa. Það er t.d. orðin hefð að fara með árlega sýningu Þjóð dansafélagsins í heimsókn á Keflavíkurflugvöll og sýna þar. í athugun er að fara bráðlega með sýninguna til Akureyrar. Þjóðdansafélagið hefur lagt á það áherzlu að kynna ís- lenzka búninga og dansa er- Mjaömadansar Suðurhafseyja hafa alltaf verið vinsælir. lendis og í því tilefni efnt til sýningarferða til annarra landa. Þá hefur Þjóðdansafé- lagið boðið nokkrum sirmum erlendum dansflokkum til ís- lands. Félagar í Þjóðdanasafélag- inu halda hópinn vel og það er frisklegur blær á æfing- um félagsins, eins og sýndi sig á þessari æfingu, sem við fylgdumst með, en þá var verið að æfa sýninguna sem verður í Háskólabíói um helg ina. Sá sem stjómar sýning- unni nú er Svavar Guðmunds- son, en hann er enin af aðal- kennurum félagsins og hefur oftast stjórnað sýningum þess. Svavar sagði að eigin- lega væru þeir að ala upp sína dansara sjálfir og hefðu alið þá upp og einmitt þetta hefði styrkt starf félagsins til muna. Helga Þórarinsdótt ir hefur einnig æft hluta af þessari sýningu, en hún er ein af aðalkennurum félags- ins. Þess má geta að Þjóðdansa félagið 'lánar út búninga sína og t.d. hefur Þjóðdansafélag ið styrkt þá aðila sem hafa æft upp þjóðdansa með því að lána þeim búninga. Framhald á bls. 24 Dansarar Þjóðdansafélagsins sem taka þátt í sýnlngunum um helgina. Ljósmynd Mbl. Á. Johnsen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.