Morgunblaðið - 22.03.1969, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.03.1969, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1909 Ólafur Sigurðsson skipstjóri F. 14. okt. 1915 I). 16. marz 1969. AÐ kvöldi sunnudagsins 16. marz sl. varð Ólafur Sigurðsson skip- stjóri frá Skuld í Vestmannaeyj- um, bráðkvaddur að heimili sínu. Er það næsta ótrúleg stað- reynd, að þessi síkviki, athafna- sami maður skuli nú skyndilega ekki vera lengur á meðal vor. Hann var maður sem setti svip á bæinn og var þrátt fyrir stöðug veikindi sín síðustu árin, ávallt störfum hlaðinn. Ólafur Sigurðsson var fæddur að Skuld í Vestmannaeyjum 14. október 1915, en alla ævi var hann kendur við bernskuheimili sitt og þekktur meðal Vest- mannaeyinga og fleiri sem Óli í Skuld. ðlet hann þar upp í hópi tápmikilla barna hjónanna Sig- urðar Oddssonar og Ingunnar Jónasdóttur ^em voru kunn sæmdarhjón í Vestmannaeyjum. Er ættbogi þeirra hjóna í senn stór og gjörvilegur, en þau eign- uðust 11 börn, sem öll komust til manns og fellur Ólafur fyrstur frá þeirra systkina. Þegar á unga aldri hneigðist hugur Ólafs að sjónum og hóf hann sjómennsku 16 ára gamall. Um tvítugs aldur varð Ólafur formaður og síðan fiskilóðs á fær eyskum skútum, en nokkru síðar eða árið 1941 lauk hann hinu meira fiskimannaprófi frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík. 1 skipstjórnarstarfi sínu varð Ólaf ur sérstaklega farsæll og mikils metinn sjómaður, og var alla tíð i fremtu röð stéttar sinnar í Vest mannaeyjum. Má telja Ólaf frá Skuld meðal beztu sjósóknara, sem verið hafa í Eyjum, en marg ir vaskir sjómenn hafa ýtt það- t Eiginkona mín, Kristjana Júlía Örnólfsdóttir, andaðist að heimili sínu, Grettisgötu 6, þann 21. marz. Fyrir hönd vandamanna. Þorlákur Jónsson. t Systir okkar Sigurlína Sigtryggsdóttir andaðist að Hrafnistu 21. þ. m. Systur hinnar látnu. t Eiginmaður minn og bróðir okkar Ásmundur Pálsson frá Garði, Lundgarði, Glcrárhverfi, sem andaðist í Landspítalan- um 12. marz síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Akur- eyrarkirkju mánudaginn 24. marz n. k. kl. 13.30. Margrét Hallgrímsdóttir Ásrún Pálsdóttir Garðar B. Pálsson Jón G. Pálsson frá Skuld an úr vör frá fyrstu tíð. Á stríðsárunum var hann í Englandssiglingum á m.s. Helga og e.s, Sæfelli, en skömmu eftir stríðið gerðist hann meðeigandi og skipstjóri mb. Ófaigs II (eldra), 30 tonna báts. Blómgað- ist útgerðin með ágætum, enda var Ólafur aflasæll og með afla- hæstu formönnum hverja vertíð. Sótti hann sjóinn af sama kappi og áhuga, sem einkenndi hann alla tíð. Með Ólafi og sameign- arfólki hans, hjónunum Þorsteini Sigurðssyni og Önnu Jónsdóttur á Blátindi ríkti ávallt mikil sam heldni og eining. Keypti útgerð- in nýjan stálbát, Ófeig HI frá Hollandi árið 1955. Kom þá sem svo oft áður í ljós framsýni Ólafs, en Ófeigur III var einn fyrsti stálfiskibátur íslendinga. Aflaði Ólafur afburðavel á þennan bát, bæði á þorsk- og síidveiðum. Efldist nú enn Ófeigsútgerðin, og árið 1959 keyptu þeir nýjan 100 tonna stálbát frá Austur-Þýzka- landi, Ófeig II, sem nú er. Varð Ólafur aflakóngur Vest- mannaeyja .vetrarvertíðina 1964 á þessum báti, með miklum glæsibrag. Þessa vertíð sló hann öll sin fyrri aflamet. Skilaði Ólaf ur og skipshöfn hans á Ófeigi II tæpum 2.300 tonnum á land frá byrjun janúar til 9. maí, eða 30 fullfermum Ófeigs II. Var með- alafli á 129 úthaldsdaga Ófeigs II þessa vertíð 21,5 tonn. Af þessum afla voru 1283 tonn bolfiskafli í 49 sjóferðum, en annar afli var síld (1030 tonn) og loðna (470 tonn). Var meðalafli af bolfiski 26 lestir í róðrL Þessa vertíð kom Ólafur með mesta þorskafla, sem til þess tíma hafði borizt á land í Vestmannaeyjum úr ein- um róðri, eða 94 tonn af stóx'- þorski. Ée get þessa í minningargrein um Ólaf til að sýna og sanna, að það, sem hér er ritað er um afreksmann á sínu sviði og ekki oflof. Veit ég enda, að slíkt hefði verið Ólafi lítt að skapL Hann var maður hreinn og beinn, sem kom til dyranna eins og hann var klæddur og vildi standa fyrir sínu. Vorið 1965 hætti Ólafur sjó- mennsku vegna heilsubrests og lauk þar með 30 ára farsælu for- mannsstarfL Er ekki ofmælt, að hann var alla sína tíð mikill t Jarðarför Ólafs Sigurðssonar frá Skuld, V estmannaey jum, fer fram frá Landakirkju laugardaginn 22. þ.m. kl. 2 e. h. Ásta Bjartmars og aðstandendur. t Útför eiginmanns míns Þórðar Hjaltasonar Safamýri 59, sem andaðist 15. þ.m., fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 24. marz kl. 3 e.h. Þeim, sem vildu minn- ast hins látna er vinsamlega bent á Krabbameinsfélagið og Styrktarfélag vangefinna. Fyrir hönd dætra, tengda- sonar og systkina hins látna. Kristín Guðmundsdóttir. heppnisformaður og m.a. átti hann beinan þátt í björgun 3ja ;kipshafna við Vestmannaeyjar. Á yngri árum var Ólafur lipur fjallamaður e:ns og hann átti ætt til, ennfremúr var hann ágætur knattsppyrnumaður og var alia tíð mjög virkur félagi í íþrótta- félaginu Þór og styrk stoð þess félags. Var Ólafur féiagslyndur og starfaði lengi vel mikið innan vébanda skipstjóra- og stýri- mannafélagsins Verðanda og sat þar í stjórn í nokkur ár. Hin síð- ari ár, lét hann að sér kveða í félagi útvegsmanna í Vestmanna eyjum. í félaginu Akóges var hann mjög góður og heill félagi, :em við Akógesar tregum. Sína skipstjórnartíð var Ólaf- ur mjög mannsæll, enda hinn bezti drengur og yei til forystu fallinn. Var hann sérstaklega hugsunarsamur og góður við unglinga, sem til hans réðúst. Ég sem þessar linur rita, sendi Óiafi við gröf hans kærar þakkir fyrir hvað hann var mér sem 16 ára unglingi, er ég fetaði fyrstu spor- in á sjónum. Alla tíð finnst mér ég standa í þakkarskuid við Ólaf fyrir þau 3 sumur, sem ég var með honum unglingur. Og er ég kom í strangari skóla lífsins, fannst mér ég alltaf búa að þeirri undirstöðu, sem Ólafur lagði í þessu sambandi er það enda at- hyglisvert, að margir beztu afla- manna og sjósóknara í seinni tíð í Vestmannaeyjum, voru lengi með Ólafi sem hásetar og stýri- ænn. Síðan Ólafur hætti á sjónum, ar hann prófdómari í faginu erkleg og bókleg sjómennska ið Stýrimannaskólann í Vest- lanneyjum. í þessu starfi fann g jafnan þennan -sanna og mikla (íuga hans fyrir nemendum. akmark hans var alltaf að gera á sem hæfasta og bezta yfir- íenn í sínu starfi. Höfum við formað viðræðufund þar, sem ann ætlaði að miðla nemendum rekar af reynslu sinni; en margt ;r öðru vísi en ætlað er, þegar Öllum þeim, sem auðsýnt hafa okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför Aðalsteins Kristinssonar, húsasmiðameistara, þökkum við innilega. Guðbjörg Vigfúsdóttir Vigfús Aðalsteinsson Laufey Aðalsteinsdóttir Kristinn Aðalsteinsson Egill Aðalsteinsson Svala Arnadóttir Laufey Jónsdóttir og systkin hins látna. dauðinn kveður jafn skyndilega dyra og hér varð raun á. Sem lý;t 'nefur verið, var Ólaf- ur óvenjumikill athafna- og starfsmaður ,og má segja, að hug urinn væri alltaf svo mikill, að hann ætlaði sér aldrei af. Var hann af lífi og sál við útgerð tveggja báta sxnna eftir að hann hætti sjómennsku. Auk þess hafði hann ýmhlegt á prjónun- um, því að hann var hugmynda- ríkur og útsjónarsamur. Gerðist hann merkilegur brautryðjandi harðfiskverkunar í Eyjum og hafði eftir miklar tiiraunir náð ágæíís árangri í þeirri verkun. Þá hafði Ólafur gert gagnmerkar tiiraunir með gmvibeitu og hafði Framhald á bls. 19 Jakob Frímann Kristinsson — Minning AÐFARANÓTT miðvikudags, 12. marz sl., andaðist að Hrafn- istu, dvalarheimili aldraðra sjó- manna, Jakob Kristinsson, fyrr- verandi útgerðarmaður i Hrisey. Hann var fæddur að Stóra- Eyrarlandi á Akureyri 2. októ- ber 1890. Foreldrar. hans voru hjónin Kristinn Jónsson, vega- verkstjóri og Ingibjörg Helga- dóttir frá Kristnesi í Eyjafirði. Þau hjón áttu sjö börn. Nokkur barnanna fluttu til Ameríku. Jakob átti auk þess hálfbróður samfeðra, Þorstein Jörundsson, er var kjörsonur Jörundar Jóns- sonar í Hrísey. Jakob fiutti tij Hríseyjar á fermingaraldri og var hjá Þor- steini hálfbróður sínum. Þorsteinn stundaði bæði land- búnað og útgerð, átti vélbát, er Stígandi hét. í fyrstu var Jakob smali hjá bróður sínum, en 16 óra gjör'ðist hann háseti á Stíg- anda. Á 19. ári varð hann for- maður á bátnum. Jakob dáði mjög þennan hálf- bróður sinn. Kvaðst hann af eng- um öðrum hafa meira lært. En dvöl sín með honum hafi alla tíð reynzt sér sem bezti skóli, enda kom Þorsteinn ölium til nokkurs þroska, er hlíta vildu hans leiðsögn. Jakob kunni því snemma jafn vel til verka, hvort sem um var að velja landbúnað eða fiskveið- ar, enda var hann frábær verk- maður. Sjálfur kvaðst hann fremur hafa kosið a‘ð verða bóndi en sjómaður, þó hið síðarnefnda yrði hlutskipti hans. Hann var harðduglegur sjómaður og afla- sæll. A sjötugsafmælinu sagði hann í viðtali, að hann teldi sig ekki hafa tapað á útgerð, sem nokkru næmi. En innst í hugskoti brauzt bóndinn um og heimtaði sinn sess, enda gat Jakob aldrei við kindur skilið. Og einstakt má það sjálfsagt teljast, a'ð útgerð- armaður, sem flytur í verið að vori frá Akureyri til Hríseyjar, hafi þilfarið þéttskipað jarm- andi kindum, meðal línustampa, belgja, bauja, fjölskyldu og ver- manna. Slík var köllun bónd- ans. Hann gat ekki skilið eftir þessa ferfætlinga sína. Þeir áttu að ganga í sumarhögum sem næst honum. Hann sagði sjálfur, að sín ánægjulegasta dægradvöl í ellinni hefði verið að hirða kindurnar sínar. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Rannveigar Þórðardóttur frá Eilífsdal. Systkin hinnar látnu. t Þökkum auðsýnda hluttekningu vtð útför föður okkar og tengdaföður KRISTJANS GUÐMUNDSSONAR Þóra Kristjánsdóttir, Ásgeir Sandhoft, Hulda Kristjánsdóttir, Björn Bjömsson, SigriOur Kristjánsdóttir, Gunnlaugur Finnbogason. Jakob kvæntist árið 1914 Filippíu Gúðrúnu Valdimars- dóttur, frábærri myndarkonu, sem reyndist honum bezt, þegar hann þurfti á mestri hjálp að halda. Fyrstu árin bjuggu þau í Hrísey. Árið 1926 fiuttu þau til Akureyrar, bjuggu þau í Lækj- argötu 4. Þar stóð heimilið alia tíð, þar til síðastliðið haust. að þau fengu vist að Hrafnistu. Þe:m hjónum var sex barna auð- ið, harðduglegt myndarfólk: Þórdís, gift Kiartani Ólafs- syni, fyrrv. póstmanni, Akureyri. Viktor, sölumaður hjá B.P, kvæntur Unni Jensdóttur frá Akureyri. Kristinn. útgerðarm. í Hrísey, kvæntur Elínu Árnadótt- ur frá Hrísey. Haraldur, kaup- maður á Akureyri, látinn. Hann var kvæntur Ragnhei'ði Val- garðsdóttur frá Akureyri. Valdi- mar, skriístofustjóri hjá B.P., kvæntur Ásgerði Biarnadóttur frá ísafirði. Jakob hóf sjálfstæða útgerð árið 1924, var það félagsútgerð við Helga Pálsson. verzlunar- mann hjá Höepfner á Akureyri. Þeir keyptu bát frá Dalvík er Svanur hét. Jakob var sjáifur formaður. Nokkru seinna byggðu þeir félagar annan Svan. Árið 1932 keypti Jakob hlut meðeig- anda síns og gerði út einn. Þá voru þeir synir hans. Viktor og Kristinn, komnir á legg. Þeir tóku því brátt vlð formennsku, en Jakob var landmaður vi'ð út- gerðina. Sem fyrr getur, var heimilið á Akureyri. Hann flutti sig því í verið t:l Hríseyjar er vora tók með búslóð, böm og fénað. Koma hans minnti á far- fuglana, enda var hann aufúsu- gestur öllum eyjar.'keggjum. Jakob var söngvinn maður, Hann hafði undurfagra rödd og naut þess af heilum hug, að taka lagið á góðra vina fund- um. Á yngri árum söng hann lengi með karlakór í Hrisey. Með aldrinum naut hann bezt að heyra gömlu, góðu lögin sin. Oft tók hann lagi'ð í ljúfum byr á leið á fiskimiðin, aleinn í stýrishúsi. Skömmu áður en hann lokaði augum hér í hinzta sinn, þá raul- aði hann undur milt: „Heyrið morgunsöng á sænum“. Hver gaf honum tóninn? Skynjaði hann ef til vill hljóm frá horfn- um kórfélögum, sem biðu, til þess að bjóða hann velkominn á ný. Hann er jarðsunginn í dag frá Akureyrarkirkju. E. M. Þ. VELJUM ÍSLENZKT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.