Morgunblaðið - 22.03.1969, Page 32
AUGLYSINGAR
SÍMI SS*4*8D
JHtu?0Viní»Iíií«íS>
LAUGARDAGUR 22. MARZ 1969
Fatadeila flugmanna
Flugfélögin telja sig ekki eiga að leysa
deilu flugmanna við skattyfirvöld
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í
gær til Kristjáns Guðlaugssonar,
stjórnarformanns Loftleiða h.f.,
og Arnar Johnson, framkvæmda-
stjóra Flugfélags íslands, og
spurði þá, hvort stjórnir félag-
anna hefðu tekið afstöðu til
beiðni Félags atvinnuflugmanna
um, að flugfélögin leysi fyrir
flugmenn sína deilu, sem upp
er komin vegna skattlagningar
einkennisfatnað flugmanna og
dagpeningauppbót þeirra. Báð-
ir svöruðu því til, að þarna væri
um mál milli flugmanna og
skattayfirvalda að ræða, sem
flugfélögin teldu sig ekki eiga
að grípa inn í.
Ævar ísberg, vararíkisskatt-
Brok með
nofninu Dngný
LÚGUKARMUR, sem í er
| sfcorið naifnið Dagný, fannst
á Eyrarbakkafjöru'm í gær-
morgun. Fulltrúi frá Slysa-
I varnafélagi íslands átti að
| fara austur í dag til að kanna,
hvort þarna er uim að ræða
J brak úr Dagnýju SF-61, sem
1 fórst með allri áhöfn fyrr í
I þessum mánuði.
Féll 4 hæðir
ÞRJÁTÍU og níu ára kona, Ásta
Sigurðardóttir, Nesvegi 12, féll í
gær fram af svölum á fjórðu
hæð. Hún var flutt í Slysavarð-
stofuna og þaðan í bandlaekn-
ingadeiQd Borgarsjúfcrahúasins.
Læknisrannsókn var enn ólofcið,
þegar Monguniblaðið fór í prent-
un í gærkvöldi.
stjóri, Skýrði Morgunblaðinu frá
því, að einkennisfatnaður allra
starfsmanna, sem af er krafizt
að gegni störfum sínum einkenn-
isklæddir, er talinn viss hlunn-
indi, sem samkvæmt árlegu mati
ríkisskattanefndar eru talin til
skattskyldra tekna.
Um dagpeninga sagði Ævar,
að lögum samkvæmt ættu allir
aðrir en opinberir starfsmenn að
gefa þá upp og métur ríkisskatta
nefnd hverju sinni, hvort gefa
skuli á þeim frádrátt eða ekki.
Mat á dagpeningum flugmanna
hefur til þessa ekki gefið ástæðu
til að láta flugmenn greiða aá
þeim skatt. — Um dagpeninga-
uppbót gegnir hins vegar öðru
máli.
Ævar sagði, að dagpeninga-
greiðslur og dagpeningauppbót
væru hvort tveggja liðir í kjara
samningi flugmanna við flugfé-
lögin.
Kassarnir hífðir upp úr lesti nni á Þorgeiri i gær, Allur aflin n var í fyrsta flokks ástandi.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
Isaður fiskur í kössum er frábært hráefni
Vb. Þorgeir frá Sandgerði reynir sérstaka plastkassa — norskur sérfrœðingur
um borð — „Þetta er það sem koma skal" segja Sandgerðingar
Loðno til
Bolungorvíkur
Bolungarvík, 21. marz.
ALLS hafa nú rúmar 1000 lestir
af loðnu borizt hingað til Bol-
ungarvíkur.
Mestan hluta þessa magns hef-
ur Hafrún lagt á land en auk
hennar hafa Ögri og Reykjar-
borg landað hér um 450 tonnum.
— Fréttaritari.
SKIPVERJAR á vb. Þorgeiri
frá Sandgerði hafa að undan
förnu gert tilraunir með að
isa aflann í kassa til að fisk-
hirinn hljóti betri meðferð um
'borð. Kaissarnir eru fluttir
tnn frá Noregi, og eru þeir
úr plasti. Báturinn hefur far-
ið nokkra róðra með kassa
■þessa, og nú síðast var norsk-
lir sérfræðingur með í ferð-
■inni til að kenna skipverjum
á Þorgeiri meðferð kassanna.
Þessi nýjung hefur vakið
talsverða athygli í röðum
þeirra, sem við útveg vinna,
enda mikið í húfi, þegar sýnt
er, að þjóðhagsleg nauðsyn
er að fá betra hráefni úr
aflanum. Því voru nokkrir
af forsvarsmönnum Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna á
bryggju í Sandgerði, þegar
Þorgeir lagðist þar að í gær,
til að kynna sér þessa nýjung
nánar.
Morgunblaðið notaði tæki-
færið, þegar löndun var að
hefjast, og ræddi við Hauk
Kristjánsson, skipstjóra. —
Skýrði hann frá reynslu skip-
verja á Þorgeiri af þessari
meðferð á aflanum.
Haukur tjáði Mbl., að bát-
urinn hefði farið út með um
300 kassa, og væri fiskur í
þeim öllum, ýsa og þorskur.
Hver kassi tekur um 50—60
kg. Að aukj væri báturinn
með 3 tonn af karfa.
— Við höfum reynt þess-a
kassa alveg frá því að við
hófum vertíðina. í byrjun
vorum við með 100 kassa, en
nú eru þeir orðnir 300, eins
og fyr.r segir.
— Hver átti frumkvæðið
að þessari nýjung?
— Við hér á bátnum byrj-
uðum eiginlega að þreifa
okkur áfram með þetta sjálf-
iir. Ég hafði kynnzt slíkum
kössfum í Þýzkalandi, en þar
eru togararnir fyrir löngu
farnir að nota þá.
— Svo var það, að ég rakst
á kassa hér hjá Miðnesi (sem
gerir Þorgeir út), sem vb.
Elliði hafði notað á síldveið-
um í Norðursjó og þá datt
mér í hug að gera tilraun
með þá.
Haukur Kristjánsson,
skipstjóri á Þorgeiri.
— Og ég held segja megi,
að þessar tilraunir hafi tekizt
bærilega, s-érstaklega þó eftir
að Norðmaðurinn, sem SH
lagði okkur til, fór út með
okkur tiil að kenna okkur
vinnubrögðin í meðferð kass-
anna, en Norðmenn hafa
mikla reynslu á þessu sviði.
Þessi meðhöndlun fisksins
kostar okkur að visu tals-
verða vinnu, en með því að
bæta aðstæður og útbúnað
hér um borð, teljum við
þetta svara fyllilega kostnaði.
— Hverjir eru höfuðkost-
irnir við þessa aðferð?
— Aðalkosturinn er fyrst
og fremst sá, að með því að
Setja fiskinn í kassa, losnar
hann við alla pres.su eða
þrýsting. Þegar fiskurinn er
ísaður í venjulegri lest í stíu,
þá eru það aðeins 3—4 efstu
lögin, sem ekki eru undir
miklum þrýsting, neðstu lög-
in eru yfirleitt mjög ilia far-
in. Vatn og safi pressast úr
fiskinum, en með því að láta
hann í kassa, er komið í veg
Framhald á bls. 31
Framkvæmdir við Árbæjar- og
Hvassaleitisskóla
— boðnar út á nœstunni
— Bygging íbúða fyrir aldraða hafin í ár
— sagði Ceir Hallgrímsson, borgarstjóri
á fundi borgarstjórnar
A fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur sl. fimmtudag
skýrði Geir Hallgrímsson
borgarstjóri frá því, að fram
kvæmdir við nýjan áfanga
Hvassaleitisskóla yrðu vænt-
anlega boðnar út nú alveg
næstu daga. Ennfremur mætti
gera ráð fyrir, að framkvæmd
ir við annan áfanga Arbæjar
skóla yrðu boðnar út fljót-
lega upp úr næstu mánaða-
mótum.
Þá skýrði borgarstjóri frá
því, að vonast væri til, að út-
boðsgögn vegna íbúða fyrir
aldraða, sem byggja á við
Norðurbrún verði tilbúin um
mánaðamótin og má því gera
ráð fyrir, að unnið verði við
þessar þrjár framkvæmdir nú
í vor og sumar. Jafnframt
gerði Geir Hallgrímsson grein
fyrir undirbúningi að bygg-
ingu hjúkrunarheimilis fyrir
aldraða á svæði vestan Grens
ásvegar og sunnar Skálagerð-
is.
Þessar upplýsingar borgar-
stjóra komu fram í svari við
fyrirspurn frá borgarfulltrúum
Alþýðubandalagsins. Geir Hall-
grimsson skýrði frá því, að teikn
ingar af nýjum áfanga við
Hvassaleitisskóla hefðu verið til-
búnar til útboðs um mánaðamót-
in janúar-febrúar, en þá hefði
skipulagsnefnd farið fram á að
kennslustofuálman yrði færð til
á lóðinni. Þetta
hefði verið
gert en útboð
nokkuð tafist
af þeim sökum.
Ennfremur
hefði útboð
annars áfanga
Árbæjarskóla
nokkuð tafizt
vegna athugasemda frá mennta-
málaráðuneytinu um stærðir
nokkurra eininga skólans og
hefði undirbúningsvinna dregizt
þess vegna og orðið tímafrek,
enda hefðu verið gerðir þrennir
uppdrættir að öðrum áfanga skól
ans. Nú er unnið að séruppdrátt-
um af fullu kappi og er þar um
mikið verk að ræða, skólastjórn-
arhús með handavinnustofum og
heilsuhæii, anddyri með aðstöðu
Framhald i bls. 2
Fótbrotnuði
um borð
TOGARARNIR Marz og Neptún-
us komust í höfn i Aberdeen á
miðvikudagskvöld eftir að hafa
þurft að andæfa þar fyrir utan
frá sunnudegi. Um borð í Marz
varð það óhapp, að einn skip-
verja fótbrotnaði og var hann
fluttur í sjúkrahús strax og tog-
arinn komst að bryggju.
í fyrradag seldi svo Marz tæp
140 tonn fyrir 7.388 pund og í
gærmorgun seldi Neptúnus rúm
100 tonn fyrir 4.954 pund en síð
ari hluta aflans selur Neptúnus
á mánudagsmorgun.