Morgunblaðið - 29.03.1969, Page 1
28 síður og aukablað um Eiscnhower
74. tbl. 56. árg.
LAUGARDAGUR 29. MARZ 1969
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kínveijtu
víggiiða
londamæii
A morgun eru liðin 20 ár síðan samþykkt var á Alþingi að ísland skyldi gerast stofnaðili að Atlantshafsbandalaginu. Efndu
þá kommúnistar til mikilla óeirða við Alþingishúsið og reyndu með ofbeldi að hindra að meiri hluti Alþingis gæti tekið sínar
ákvarðanir. Er um þessa atburði fjallað í grein sem birtist í Mbl. í dag og á morgun. Mynd þessa tók Ól. K. M. er lögreglan
varð að nota táragas til að ryðja Austurvöll.
EISENHOWER ER LATINN
— Verður jarðsettur í fjölskyldugraf-
reit í Kansas — De Gaulle við útförina
□-------------------□
Aukablað um Eisenhower
fylgir blaðinu í dag.
D-------------------□
Washington, 28. marz.
(AP-NTB)
* DWIGTH D. Eisenhower,
34. Randaríkjaforseti, og yf-
irmaður hinna sameinuðu
herja Bandamanna, sem
gerðu innrásina í Normandí
í heimsstyrjöldinni síðari,
lézt í Walter Reed sjúkrahús-
inu í Bethesda, kl. 17,25 í dag
að ísl. tíma. Hann varð 78 ára
gamall. Yfirmaður sjúkra-
hússins las upp tilkynningu
um andlátið og sagði þar að
Eisenhower hefði fengið
hægt og rólegt andlát eftir
langa og hetjulega sjúkdóms
baráttu. Eiginkona hans,
Mamie og nokkrir aðrir nán-
ir ættingjar hans voru við
dánarbeðið.
Nixon forseti, sem var
varaforseti í stjórnartíð Eis-
cnhowers, árin 1952—1961,
ók tafarlaust frá Hvíta hús-
inu til sjúkrahússins þegar
honum barst fregnin um lát-
ið. Þess er vænzt að hann
lýsi yfir þrjátíu daga þjóð-
arsorg vegna fráfalls Eisen-
howers.
Þjóðhöfðingjai' og stjórnmála-
menn um al]an heim hafa lýst
hryggð og samúð vegna fráfalls
Eisenhowers, þ.á.m. eru þeir
Wilson, forsætisráðherra Breta,
Saragat Italíuforseti, U Thant
framkvæmdastjjóri S.Þ. og fjöldi
annarra. Lyndon Johnson, fyrr-
verandi forseti sagði er honum
barst fregnin, að Eisenhower
hefði byrjað þjónustu sina sem
hermaður í stríði og hann hefði
lokið lífi sínu sem krossberi
friðarins. Hans yrði minnzt af
hrjáðum en vonglöðum heimi,
heimi sem hefði dáð hann og
virt. „Bandarikin eru snauðari
eftir, en Bandaríkjamenn verða
betri þjóð, sterkari og öruggari
og gera sér ljósari grein fyrir
arfleifð sinni, vegna þess að Ike
var með okkur, þegar við þörfn-
uðumst hans,“ sagði Johnson.
Nixon forseti hyllti Eisenhow-
er í sérstakri yfirlýsingu. Þar
segir að hann hafi verið mikil-
hæfur leiðtogi og skipi einstæð-
Framhald á bls. 27
Moskvu, 28. marz (AP)
SOVÉZKUR ofursti, Sergei
Borzenko, segir í frétt til
Moskvublaðsins „Pravda“ i dag,
að Kínverjar vinni nú af kappi
að því að koma fyrir víggirð-
ingum á Jandamærum Sovét-
ríkjanna hjá Ussuri-fljóti. Hann
skýrir einnig svo frá, að Kín-
verjar varpi öðru hverju sprengj
um á Damansky-eyju, þar sem
sovézkir og kínverskir hermenn
áttu tvívegis í blóðugum bar-
dögum fyrr í mánuðinum. Hann
gat þess ekki hvort slegið hefði
í bardaga síðan.
Borzenko ofursti sagði, að vor
flóð í Ussuri-fljóti mundu bráð-
lega færa Damansky-eyju í kaf.
Fréttaskeyti hans gefur til
kynna, a'ð hvorki sovézkir né
kínverskir hermenn séu á eynni,
sem er óbyggð. Hann sagði, að
um nætur mætti heyra að Kín-
verjar væru önnum kafnir við
að grafa skotgrafir og lengra í
burtu heyrðust sprengingar.
Hann sagði, að Kínverjar væru
að sprengja fyrir varðstöðvum
og fjarskiptakerfi.
„Pravda“ lét í ljós þá skoð-
un í annarri grein að gera
mætti út um margháttaðan
ágreining kommúnistaflokka
fyrir hina fyrirhuguðu rá'ð-
stefnu kommúnistaflokka í
Moskvu í júní. En blaðið bætti
þvi við, að því væri ekki að
leyna að heimshreyfingin ætti
við erfiðleika að stríða um þess-
ar mundir. Hins vegar færi þrá
kommúnista eftir einingu vax-
andi og heimsráðstefnan mundi
efla þessa þrá.
Tyrkland:
Manntjón
í jarðskjálftum
— Að minnsta kosti 43 biðu bana
ISTANBUL 28. marz (AP).
Skömtmu fyrir Isólarupprás í
rnorgun urðu miklir jarðskjálft-
ar í Tyrklandi og vitað er, að 43
létu lífið og hundruð slösuðust.
Óttazt er að mun fleiri hafi far-
Wilson ræðir
við Gowon
14 borgarar bíða bana í loftárásum
LAGOS 28. m-arz (AP).
Harold Wilsion forsætisráðherra
íhóf j dag viðræður isínar við
Yakubu Gowon hershöfðingja,
forsætisráð'herra Nígeriu, en að
því er áreiðanlegar Iheilnildir
herma boðaði Wilson engar
breytingar á afstöðu brezku
stjórnarinnar til borgarastyrj-
aldarinnar. Að viðræðunum
loknum hélt Wilson flugteiðis til
Enugu, fyrrverandi höfuðborgar
aðskilnaðarstjórnarinnar í Bi-
afra, sem sambandshensvertir
náðu á sitt vald i október í
fyrra. Hann ræðir aftur við
Gowon á sunnudajginn.
í viðræðunum, sem sagt er að
hafi verið mjög vinsamlegar,
®agði Gowon aðspurður að
flugmenn sambandsstjórnarinn-
ar hefðu ströng fyrirmæli um
að ráðast ekkd á borgaraleg
skotmörk. Qowon sagði þó, að
slys gætu komið fyrir og lýsti
því yfir að tjón af völd'um lotft-
árása yrði otft meira en ella
þar eð ósjaidian kæmi fyrir að
sprengjur féliu á faldiar vopna-
geymslur Biaframanna.
FUNDUR MEÐ OJUKWU?
Að því er góðar heimdldir
herma er ekki loku fyrir það
skotið að Wilson hitti Odumeg-
wu Ojukwu ofursta, leiðtoga
Biaframanna, að máli, en þó er
taildð mjög ósenniilegt að af slík-
•um fundi geti örðið þar sem
Wilson vill ekki fara til Biafra
Frambald á bls. 27
izt, þar sem fjöldi þnrpto hefur
aljgerlega einangrazt. Upptök
jarðskjálftanna voru talin í 130
km fjarlægð frá borginni Izmir
við Eyjahaf. Harðasti kippurinn
mældist 6,2 stig á Richter-
kvarða. Mörg þúsund hehnili
eru í rústum. Tyrkneska stjórn-
in hefur lýtst yfir neyðarástandi
á jarðskjálftasvæðunum og gerð
ar voru tafarlausar ráðistafanir
Framhald á bls. 27
Fjöldagiöf
hjn Hue
Da Nang, Víetnam, 28. marz
(AP)
BANDARtSKIR embættismenn
skýrðu frá því í dag, að fundizt
hefðu í nágrenni Hué, gömlu
keisaraborgarinnar, fjöldagrafir
óbreyttra borgara, sem rænt var
frá borginni í nýárssókn komm-
únista í fyrra.
Til þessa hafa fundizt 57 lik,
en ekki eru öll kurl komin til
grafar. Hendur sumra fanganna
voru bundnar fyrir aftan bak áð
ur en þeir voru teknir af lífi.
Um 3.000 óbreyttir borgarar biðu
bana eða týndust í viðureigninni
um Hué í fyrra.
m