Morgunblaðið - 29.03.1969, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 29.03.1969, Blaðsíða 15
AUKABLAÐ l Æviágrip Eisenhowers Bwight David Eisenhower DWIGHT DAVID Eisenhower lætur eftir sig glæsilegan og margbreytilegan feril. Frá upp hafi seinni heimsstyrjaldarinnar og fram til ársloka 1960, þegar hann lét af embætti Bandaríkja forseta, var hann að heita má stöðugt í sviðsljósi alþjóðlegra stórviðburða. Hann vatr æðsti maður herafla Bandamanna, sem vann sigur á möndluveld- unurn í Evrópu, fyrst við Mið- járðarhaf, síðan í Vestur- og Norður-Evrópu. Eftir stríðslok varð hann rektor eins kunn- asta háskóla í Bandaríkjunum. Siðan varð hann yfirmaður her- afla Atlantshafsbandalagsins og loks tók hann við embætti Bandaríkjaforseta I ársbyrjun 1953. Hann gegndi þessum ó- liku embættuim með misjöfnum árangri, eims og gengur, en vamn sér hylli flestra sem kynntust honum, jafnt austan hafs og vestan, með látlausri framkomu og prúðmennsku í öllu dagfari. Eisenhower fæddist í Deni- son í Texas 14. okt. 1890 og var sá þriðji í röðinni sjö bræðra. Foreldrar hans voru David og Ida Elizabeth Eisenhower, af svissneskum og þýzkum ættum. Fjölskyldan átti heldur erfitt uppdráttar og fluttist til smá- bæjarins Abilene í Kansas þeg ar Dwight var tveggja ára. Hann fór ungur að vinna fyrir sér, stundaði fjárrekstra og síð ar verzlunarstörf og lauk jafn- framt gagnfræðaskólanámL Hann var knár íþróttamaður og stóð sig í góðu meðallagi í skól- anum. Árið 1911 féll honium í skaut sá eftirsótti heiður að fá inn- göngu í herskólann í West Po- int. Þaðan lauk hann prófi fjór um árum síðar með ágætum vitnisburði og varð undirfor- ingi í fótgönguliðssveit í San Antonio í Texas. Þar kynntist hann Mamie Geneva Doud, át- jón óra dóttur auðugs kaup- sýslumanns frá Colorádo. Þau gengu í hjónaband 1. júlí 1916, daginn sem hann varð sveitar- foringi. „Mesta gæfa mín á lífs- leiðinni var að kvænast þess- ari stúiku", sagði hann eitt sinn. Þeim fæddust tveir synir, Doud Dwight, sem lézt úr skar- latssótt á fjórða árL og John Sheldon Doud, sem gekk í her- skólann í West Point eins og faðir hans, og nú er nýskipað- ur sendiherra í Briissel. í fyrri heimsstyrjöldinni var Eisenhower yfirmaður fyrstu skriðdrekadeildarinnar, sem Bandaríkjamenn sendu til Vest urvígstöðvanna árið 1917 og ári síðar varð hann yngsti majór í bandaríska hernum. Fyrir fram göngu sína í strfðinu hlaut hann margháttaða viðurkenn- ingu. Metorðagirnd Eisenhowers beindist nú einkum að því að verða ofursti áður en hann hætti herþjónustu. Það rættist þó ekki fyrr en í heimsstyrj- öldinni síðari, enda erfitt að framast í her á friðartímum. Hann gegndi herþjóniustu á Panamasvæðinu frá 1922 til 1924 og síðan víða um Banda- rikin. Þar gat hann sér góðan orðstír og varð siðan efstur á prófi frá skóla herforingjaráðs ins árið 1926. Eftir það var Eisenhower eitt ár í Frakklandi við undir- búning skýrslu um herstöðvar Bandaríkjamanna og starfaði siðan í Washington við skipu- lagningu iðnaðarins í þágu hers ins. Siðla árs 1935 fó<r hann til Filipseyja sem hermálaráðgjafi Douglas MacArthurs hershöfð- ingja. Þegar Þjóðverjar réðust inn í Pólland sneri Eisenhower aft- ur til Bandaríkjanna og hækk aði óðfluga í tign. Hann var settur yfir skipulagningardeild hermálaráðuneytisins í Wash ington og þar kom George Marshall, yfirmaður herfor ingjaráðsins, auga á hæfileika hans. Innan viku eftir árás Ja- pana á Pearl Harbour kvaddi Marshall hann í þjónustu sina. Hann tók þátt í undirbúningi innrásarinnar í Evrópu og ræddi við brezka hershöfðingja í maí og júní 1942. í nóvember sama ár var Eisenhower skip- aður yfirmaður bandaríska inn rásarliðsins x Norður-Afríku og síðan stjórnaði hann innrás Bandaríkjamanna í ftalíu. í nóvember 1943 varð hann yfir- maður innrásarhers Banda manna í Vestur-Evrópu og stjórnaði þannig innrásinni í Normandí 6. júlí 1944. f desem- bermánuði sama ár einbeittu Þjóðverjar síðustu kröftum sín um að stórfelldri gagnárás, en Eisenhower snerist af alefli gegn þeim í febrúar 1945 og létti ekki fyrr en Þýzkaland var gersigrað. Þjóðverjar gáf- ust upp 7. maí 1945, enda var þá allt landið hersetið, af herj- um Bandamanna að vestan- verðu en Rauða hernum að austanverðu. Það hefur verið sagt um Eis- enhower, að hann hafi ekki ver ið annað en „glæsilegur auglýs- ingamaður og sáttasemjari" sem hafi lagt meiri áherzlu á pólitískar en herfræðilegar hliðar herstjórnarinnar. Vissu- lega munu fáir halda því fram, að hann hafi jafnazt á við hers- höfðingja eins og Lee, Grant eða jafnvel MacArthur í her- stjórnarlist. Og þó að honum tækist með einstakri lagni að fá erfiða undirmenn eins og Mon'gomery og Patton hers- höfðingja til að vinna saman, reyndist honum um megn að beita valdi sínu, þegar taka þurfti torveldar og tvísýnar á- kvarðanir. Hins vegar ber að gæta að því, að meginhlutverk yfirhers höfðingjans var að skilningi Eisenhowers einmitt fólgið í því, að koma í veg fyrir að pólitískur ágreiningur ríkis- stjórna Bandamanna hefði á- hrif á gang mála á vígvellinum. Virðingin sem Sir Winston Churchill bar jafnan fyrir hon- um, er til marks um ótvíræða hæfileika hans á þessum vefct- vangi, því að Eisenhower hers höfðingi var andvígur Church- ill í mörgum veigamiklum atr- iðum. Eftir seinni heimsstyrjöldina varð Eisenhower yfirmaður her- foringjaráðs Bandaríkjanna og gengdi því starfi fram til 1948. Þá vann hann m.a. að því að uppræta síðustu leifar kyn- þáttamisréttis í hernum. Árið 1948 tókst hann á hendur em- bætti rektors Columbia-háskól- ans i New York, þó að honum stæði raunar til boða framboð fyrir hvorn flokkinn sem var í forsetakosningunum, sem fóru fram þá um haustið. Ekki þótti hann heppilegur rektor, enda menntun hans ekki miðu'ð við slík embætti. Meðan Eisenhower var við Columbia-háskólann gaf hann út bók sína um heimsstyrjöld- ina, „Crusade in Europe“. Þessi frásögn af reynslu hans í stríðinu varð svo vinsæl, að af henni seldist meira en mill- jón eintök. Árið 1950 var Eisenhower skipaður yfirmaður alls herafla hins nýstofnaða Atlantshafs- bandalags og settist að í París. Því embætti gengdi hann unz hann var talinn á að vera í framboði fyrir Repúblíkana við forsetakosningarnar árið 1952. Af öllum störfum Eisenhowers var þjónusta hans við Atlants- hafsbandalagið kannski mikil- vægust, þegar á allt er litið. Með einbeitni og stöku jafn- aðargeði neitaði hann að hlusta á lítilvægar umkvartanir, hvort sem þær voru frá aðildarrikj um í Evrópu eða Ameríku, er lagði áherzlu á meginatriði. Hann átti sennilega meiri þátt í því en nokkur annar einstakl- ingur, að vekja bjartsýni og baráttuvilja Evrópumanna gagnvart ógnunum Sovétrikj- anna og koma fótunum undir hinn sameiginlega horafla, sem hefta skyldi frekari útþenslu Rússa í Evrópu. Hann var stöð ugt á verði gegn ágangi komm- únista. Þegar hann var orðinn forseti, skoraði hann á þjóð sína að gera sér grein fyrir þ'eim voða, sem kommúnisminn býr frjálsúm mönnum. „Til þess að ná því opinbcj-a markmiði sínu að ráða yfir heiminum beita þeir öllurh ráðum og skeyta ekkert um siðgæði. Kommúnistar nota smjaður og hótanir, mútur og ofbeldi til þess að koma fram vilja sínum. Og þegar það þykir henta, grípa þeir til falsana, rangra sakargifta og launmarða." Pólitískar viðsjár í Banda- ríkjunum voru orðnar meiri ár- ið 1952 en þær höfðu verið um árabil og margir Bandaríkja- menn töldu að fósturjörðin ætti ekki síður heimtingu á þjón ustu Eisenhowers en Evrópa. Þegar Eisenhower lét það upp- skátt veturinn 1951-1952 að hann væri repúblikani, var lagt hart að honum að vera í framboði við forsetakosning ainar. Fyrir því stóðu einikium þau öfl í flokknum, sem vildu forða honum frá sundrungu í baráttunni milli einangrunar- sinna og alþjóðasinna. Eisenhower lét tilleiðast og í nóvember 1952 vann hann mik- inn sigur í kosningunum. Hann hlaut 33,9 millj. atkvæða, en keppinautur hans, Adlai Stev- enson, hlaut 27,3 millj. at. kvæða. Sennilega hefur engirm mað- ur sezt i forsetastól Bandaríkj- anna umvafinn slíkri aðdáun og dýrðarljóma sem Eisenhow- er. f augum milljóna Bainda- rikjamanna var hann boð- beri nýrrar gullaldar. Harxn mundi útkljá stríðið í Kóreu, spillingtma og hinar pólitísku viðsjár heima fyrir, óttan og ör yggisleysið. Hann mundi skapa nýtt frelsi þar sem efnahagslíf ið blómgaðist og Washing- ton yrði bústaður landsföður, sem byggi yfir vonum og hug- sjónum þjóðarinnar og létti af herrni þeirri nauðsyn að taka erfiðar og hætfculegar ákvarð anir. Að sjálfsögðu var allt þ-tta óhugsandi og margir sáu það, en einhvem vegin-n virt- ist það óviðeigandi að bera brigður á ofurmannlega hæfi- leika þessarar dáðu stríðshetju. Bandaríska þjóðin áleit Eis- enhower hafinn yfir flokkaríg og deilur stjórnmálamanna, Roosevelt og Truman höfðu ver ið atkvæðamiklir forsetar og miklir baráttumenn á tímum mikilla breytinga og aðsteðjandi vandamála. Eissnhower átti að koma á kyrrð eftir þá umbrota- tíma, sem staðið höfðu í tvo ára tugi, almenningur hoimtaði það af hetjunni sinni. Forverar: Eisenhowers í for- setaembætti voru miklir stjórn málamenn. Roosevelt hikaði ekki við að beita brögðum til að fá málum sínum framgengt. ýmsar þær aðferðir, sem hann notaði í þjónustu ríkisins, telj ast varla heiðvirðar. Svo fór að lokum, að hann bakaði sér ó- slökkvandi hafcur andstæðinga sinna. En harun gerbreytti svip móti Bandaríkjanna. Truman var ekki eins slótt- ugur, en hann var ekki síður einbeittur. Hann tók margar ör lagaríkar ákvarðanir, sem gerðu Bandarikjamenn orð- lausa — um kjarnorkusprengj- una, um íhlufcun Bandaríkja- manna í Grikklandi og Tyrk- landi, um Atlantshafsbandalag- ið og Kóreustríðið. Og hann gerði vilja sinn að vilja þjóð- arinnar. Að áliti þessara tveggja manna var forsetaembættið sí- fellt skapandi starf, samfelld ábyrgð, uppspretta valds og hugmynda, sem voru mátt arstoðir lýðræðis í landinu. For setinn átti að beina öllum stofn unum ríkisins í þá átt sem þjóð in vildi. Þessir forsetar voru eldlegir erindrekar þjóðarinn- augum á hlutverk forsatans. Skilningur hans var óhefðbund inn og dálitið fjarri veruleik- anum. Hann he^ðaði séir svipað samvizkusömum konungi í þing ræðisríki og fyrir bragðið var öll stjórn hans hægfara. Hann neitaði að taka þátt í stjórn- málaþrasinu og átt því oft í miklum bröeum við þingið. Bandaríkjaþing sr vettvangur mjög sundurleitra skoðana í flóknu sambandsríki, en sam- vinna þingsjns og forsetans get- ur af sér stjórnarstefnuna á hverjum tíma og veltur þá mik- ið á einbeitni forsetans. Framhald á bls. 4. ar. Eisenhower leit allt öðrum Ike fagnar útnefningu sem forsetaefni 1952. Me» honum á myndinni eru kona hans, Richard Nixon, þáverandi varaforseta efni, og fxú Pat Nixon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.