Morgunblaðið - 29.03.1969, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.03.1969, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ 1909 BlLALEIGAN FfUUR hf car rental • service © Hverfispötu 103. Sími eftir lokun 31160. MAGMUSAR ikiPHoui2] swa«2I]90 »ftirlokur >imi 40381_ LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 13. Símí 14970 BÍLALEIGAN AEBBAQT Mjög hagstætt leigugjald. SÍMI 8-23-47 í> Ferdafélag Islands Páskaferðir: Þórsmörk, 5 dagar. Þórsmörk 2\ dagur. Hagavatn 5 dagar. Sunnudagsferð: Reykjanesviti — Háleyjarbunga. Lagt af stað kl. 9,30 í fyrra- málið frá bílastæðinu við Ar.i- arhól. Ferðafélag Islands. I* JOiS - MAMVILLE glenillareinangninin Fleiri og fleiri nota Johns- Manville glerullareinangrunina rr.t>3 álnappírnum, enda ertt bezta einangrunarefnið og jafn- framt það langódýrasta. Þér greiðið álíka fyrir 4" J-M gierull og 2\" frauðplasteinangr- un og fáíð auk þess álpappir með! Jafnvel flugfragt borgar sig. Sendum um land allt — Jón Loftssan hf. Hringbraut 121. — Sími 10600. 0 Mestu hagsmunamál hvers heimilis Björg Stefánsdóttir, skrifar: Reykjavík 25. marz 1969. Eeiðraði Velvakandi. Ég er konan sem talaði á fundi Heimdallar um mjólkursölu mál 26. febr. Mjólkursölumál eru að ég held mesta hagsmunamál hvers heimilis í landinu. Það er víðar en á höfuðborgarsvæðinu, sem fólk er óánsegt með mjólkur- dreifingu. Mjólk og mjólkurafurð ir er sú fæðutegund sem fáir eða engir geta verið án, þar sem við verzlum svo mikið við M.S. >á viljum við góða vöru og góða þjónustu. Húsmæðrafélag Reykja víkur hefur staðið í áratuga bar- áttu við M.S. en því miður orðið lítið ágengt. Borgarafrmdur um mjólkursölu mál var þv£ nauðsyn, og ekki nema sjálfsagt og eðlílegt að ung ir sjálfstæðismenn ættu frumkvæði að slíkum fundi. Fundarsókn á þessam fundi var slik að allir hljóta að sjá hversu hugleikið þetta mál er borgarbúum, á þess um fundi voru frjálsar umræður, svo það ætti að vera óþarfi að vera að „Skyrpa skít úr klaufum" í dálkum Velvakanda. Mig langar að biðja þig Velvakandi góður að birta þetta bréf fyrir mig, ég vil taka það íram að frá minnihálfu eru þetta lokaorð að sinni, en vel gæti ég hugsað mér að standa augliti til aug- litis við „Samsölukerlingu" og ræða málin. Maður líttu þér nær vil ég segja er Samsöhrkerling talar um að Skyrpa skít úr klaufum. Það er gott að fela sig bak við sam- nefnara á þeim er fyrir innan diskin dvelja f verzlunum M.S. Þessi Samsölukerling er ef til vill sú sama og vatt sér að mér í Sigtúni 26. febr., sem ekki þorir að láta riafrLs síns getið. 0 Ekki bara á sunnu- dögum Ekki er nú málstaðurinn mjög góður, þegar fólk vill ekki láta bendla sig við hann nema undir samnefnara. Um atvinnuróg vil ég segja þetta. Mín orð voru þessi „Og held ég að flestar þessar verzl anir (það er matvöruverzlanir) standist fyllilega samanburð við er rótt h ciiid ciii viö iiorniö Þama er hann. í búðinni. Þarna er Henri í vmdlahdLllunni. Henri ■Wintermans. Hollenzkur a15 ætt og uppruna, en eins alþjðSlcgur og hægt er. I löndum svo fjarri hvort ötíru sem Bretland og Astralxa, selst Henri Wintermans miklu meira en nokkur annar vindill, einfaldlega af þvi at> hann hefur hit5 gðtSa og milda bragtJ og svo fallega nýtízku lögun, sem er svo vinsælt um allan heim. Kynnið ykkur fyrir Henri og þið eignizt lífstíðar vin. Kynnizt Henri Wintermans Short Panatella Rétta stærðin fyrtr alla. Hæfllega langur. Hæfilega gildur. Hæfilega bragðmikill. Hæfilega mildur. Seldur í 5 stykkja pökkum. Kynnizt Henri Wintermans Cigarillos (Við kölluðum þá áður Senoritas) A stærð við “King-Size” vindling, en gildari. Ekta hollenzkur smávindill, með hinu milda og góða Henri Wintermans hragði. Seldur f 10 stykkja pökkum. HENRI WINTERMANS HIÍSnST ALÞJÖÐLBGI HOLLEHDHSTGHIl Umboðsmenn: GLOBUS H/F. mjólkurbúðiir hvað hreinlæti snért ir svo ekki sé talað um almennar kurteisisvenjur“. Ég ætlaði ekki að græta starfsfólk M.S. en ég er ekki óánægð með að orð mín hafi komið við Samsölukerlingu. Það eina sem gæti talizt atvinnu- rógur af því er ég sagði á um- ræddum fundi, er að ég taldi og tel enn að það mætti loka all- flestum mjólkurbúðunum ekki bara á suninudögum heldur alveg og fela matvörukaupmönnum mjólkursöluna eða var það ef til vill atvinnurógur er ég fór fram á að íslenzkar umbúðir yrðu not aðar, það getur varla verið því enginn íslenzkur aðili tekur um- boðslaun frá Tetrapak. Sjúkdóm- ur sá er Samsölukerling talar um hlýtur að hafa gagntekið borgar búa því að þeir eru sára fáir er bera lof á M.S. Ég tel það misskilning hjá Samsölukeirlingú er hún segir: „hlytu viðurkenn- ingu ef þær hyrfu", það er hyrn- urnar, en ég viðurkenni að af tvennu illu eru hyrnur betri en flöskur, sem voru næstum undan- tekningalaust brotnar eða sprunign ar og þá oftast um stútinn. Ég tek ekki orð mín aftur með að 1 af hverjum 4 hyrnum leki. þó á ég ekki sex ára barn til að hossa mjólkinni eða draga hana á eftir sér. Fernur eru seldar úr- vali af neytendum í þeirri búð er mér ber að verzla í. @ Eitthvað útþynnt glundur Skyrið I nýju umbúðunum er sú vara sem starfsfólk M.S. ætti ekki að minnast á. Eins og ég sagði á umræddum fundi, þá komu þessar langþráðu skyrumbúðir en í þeim var ekki skyr, heldur eitthvað útþynnt glundur að vísu er það hvítt eins og skyr en að öðru leyti er það ekki líkt skyri. Síðan minnist Samsölukerling á gallaðan rjóma ekki hefur mér dottið í hug að hægt væri að skila rjóma aftur en ég fór fram á að fá að skila súrmjólk sem var svo þunn að ekki var hægt að borða hana með skeið. Svarið sem ég fékk var á þessa leið „Súrmjólk- in er bara of ný hún þykknar ef þú geymir hana.“ Að lokum þetta. Það var von mín að fund urinn í Sigtúni 26. febr.myndi vekja forráðamenn M.S. af sín- um væra blundi og að þeir sæju að kröfur neytenda eru mjög hóg vægar og ættu að vera sjálfsagðar. Samsölukerlingu þakka ég að hafa lagt eyru að orðum mínum sem að hennar dómi voru rógur og illmæigi. Björg Stefánsdóttir, Hverfisgötu 40, Reykjavík 0 Vikufréttir í Sjónvarp- inu Kæri Velvakandi. Tillagan í dálkum þínum ný- lega um vlkufréttir í Sjónvarp- inu var mjög athyglisverð. Vil ég leyfa mér að taka undir þá ósk, að slíkur þáttur verði upp tekinn í okkar elskaða og um- deilda televisjóni. Þeir eru nefni lega fleiri en margan girunar, sem hafa ekki aðstöðu til að fylgjast með kvöldfréttunum nema endr- um og eins. Vikulegur fréttaþátt ur með helztu atburðum liðinnar viku, fluttur seint að kvöldi, kæmi því rétt eins og himnesk sending til okkar, sem enn erum önn.um kafnir, þegar flestir aðrir hafa lokið störfum. Endurtekna efnið á laugardögum hefur mælzt vel fyrir, og því skyldu þá endur- teknar fréttir, eitt kvöld í viku, ekki einnig verða vinsælar? Ég er viss um, að sú verður raun- in. Þá vil ég nota tækifærið og þakka þeim Asgeiri Ingólfssyni og Markúsi Erni Antonssyni fyr- ir Erlend málefni. Þættirnir eru afbragðsgóðir, oft og tíðum, og mundu þeir að sjálfsögðu gegna áfraim sínu sérstaka hlutverki, þótt vikufréttir yrðu upp teknar. Með fyrirfram þökk fyrir góð- ar undirtektir, Kópur í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.