Morgunblaðið - 29.03.1969, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ 1969
Skákþing íslands
hefst í dag
Friðrik Olafsson stórmeistari
tekur þátt í landsliðsflokki
SKÁKÞING íslands 1969 hefst
í dag. Meðal þátttakenda í
landsliðsfl'Qkki er stórmeistarinn
^ Friðrik ólafsson, en sjö ár eru
nú liðin síðan hann hefur teflt
um titilinn skékmeistari fslands.
Friðriik ssetur án efa mikinn svip
á mótð í ár. Auk Friðriks keppa
í landsliðsflokki þeir Arinbjörn
Guðmundsson, Kópavogi, Björn
Sigurjónsson, Kópavogi, Björn
Þorsteinsson, Reykjavik, Frey-
srteinn Þorbergsson Siglufirði,
Guömundur Sigurjónsson, Garða
'kauptúni, Halldór Jónsson, Ak-
nreyri, Haukur Angarrtýsson,
Reykjavík, Jóiiann Þórir Jóns-
son, Reykjavík, Jóhann Örn
Sigurjónsson, Reykjavík, Jón
'Hálfdánarson, Reykjavík og Jón
Kristinsson, Reykjavík.
Þetta er allharðsnúið lið skák-
5 þúsund súu
Sölku Völku
HÁSKÓLABÍÓ hefur í samvinnu
við Edda-film að undanförnu
sýnt kvikmyndina Sölku Völku,
sem gerð var eftir samnefndri
skáldsögu Halldórs Laxness af
saensku kvikmyndafélagi. Mjög
góð aðsókn var að myndinni og
mun láta nærri að um 5 þúsund
sýningargestir hafi séð hana.
Nlna hefur kvikmyndahúsið
byrjað sýningar á „79 af stöð-
inni“ sem gerð var af Edda-film
fyrir nokkrum árum með íslenzk
um leikurum í aðalhlutverkum.
'Þegar þeim sýningum er lokið
er ráðgert að sýna Rauðu skikkj
una, sem tekin var hérlendis fyr-
ir fáeinum árum.
Tveir loðnubútur
til Eskiíjurður
Eskifirði.
TVEIR loðnubátar komu hingað
í kvöld með loðnu, Reykjaborg-
in með 320 tonn og Fífilil með
330 tonn. Von er á þriðja bátn-
um í nótt.
manna og hættulegustu keppi-
nautar Friðriks verða ef að l'ík-
um lætur, fslandsmeistarinn
1968, Guðimundur Sigurjóinsson,
Hauikur Anganfýsson, sem var
annar í fyrra, aðeins hálfum
vinningi á eftir Guðmundi og
skákmeistari Reykjávikur Jóíi
Kristinsson.
Fyrsta Umferð verðuir tefid í
samkomuhúsinu Lídó við Skafta
hlíð og hefst keppn.in kl. 14.
önnur umferð verður tefiki á
morgun kl. 14 í húsakynnum
Dansskóla Hermanns Ragnars
við Háaleitisbrauit. Þar verður
teflt öll kvöld næs-tu viku og
hefjast skákinnar þá kl. 20.
Harkaleg árás kommúnista
á verzlunarstéttina :
— Heimta eignakönnun, „sfóreignaskatts" og „gróðaskatfs“
f UMRÆÐUM á Aíþingi í
fyrradag réðst einn af tals-
mönnum kommúnista, Jónas
Árnason, harkalega á verzl-
unarstéttina í landinu og
krafðist þess að frám faeri
eignakönnun í landinu og á-
Lagning „stóreignaskatts" og
„gróðaskatt“. Komm.úniista-
þingmaðurinn sagði að verzl-
unar „hallir" þær, sem risið
hefðu á undanförnum árum
væru ekki annað en „ráns-
fengur“, sem „gróðaöálin“
hefðu tekið af alþýðu rnaima
í skjóli ranglátrar stjórnar-
stefnu. Benda mætti á 5 eða
10 verzlunar „hallir“ í eigu
einstaklinga og fyrirtækja
sem mundu að verðmæti
samsvara þeim 300 milljón-
um krótia, sem aetlaðar væru
til atvinnuaukningar. Hins
vegar sagði komimúnistinn,
að ekki væri svo vel, að þess-
ar 300 milljónir yrðu „tekn-
ar til baka af ránsfeng gróða-
aflanna" en það ætti að gera
með eignakönnun og skatt-
lagningu í samræmi við hana,
stóreignaskatt og gróðaskatt.
Bjarni Benediktsson, for-
sætisráðherra, svaraði þess-
um árásum kommúnista á
Fiskvinnsla komin í stað
atvinnuleysis
Atvinnuástand víða með betra móti
á Norður- og Austurlandi
ATVINNUÁSTAND er nú með
betra móti miðað við árstima á
mörgum þeim stöðum þar sem
atvinnuleysi var hvað mest fyr-
ir nokkrum viknm og er víða
næg vinna við vinnslu sjávar
afla.
Mbl. hafði í gær samband við
fréttaritara sína í nokkrnm sjáv
arplássum .aðallega norðanlands
og austan og spurði þá fregna
af atvinnuástandinu.
HELLISS ANDUR:
Atvinna hefur verið ágæt síð-
an verkfalli lauk og er næg at-
vinna við fiskvinnslu. Til þessa
hafa bátarnir yfirleitt stundað
línuveiðar, en línuafli er að
bregðast og bátar að skipta yfir
á net.
HÓLMAVÍK:
Atvinnuástand er betra en
Norski línuveiðarinn Hareiding liggur hér í höfninni um þess-
ar mundir. Þetta er fyrrverandi hvalfangari sem breytt hefur
verið til línuveiða. Kom hann hingað með um 350 tonn af
saltfiski af A-Grænlandsmiðum til að sækja salt, þar sem hann
ætlar a3 vera mánuð til viðbótar útL Skip þetta er tveggja
þilfara og um 500 tonn að stærð. (Ljósm.: Ól.K. M.).
verið hefur oft áður, en þó er
litið að gera hjá iðnaðarmönn-
um. Verkafólk hefur yfirleitt
næga vinnu, en hún er nær ein-
göngu í sambandi við rækjuveið
ina. Héðan stunda 6 bátar rækju
veiðar og hafa um 80 af 390 íbú-
um hér vinnu við rækjuvinnilu.
Á Ðrangsnesi eru þrír bátar á
rækjuveiðum og næg atvinna
hjá verkafólki þar.
SAUÐÁRKRÓKUR:
Hingað hefur borizt mikill
fiskur á land síðustU tvær vik-
ur og þar með hefur atvinnu-
ástand batnað mjög. Allmargt
fólk er þó atvinnulaust ennþá og
voru 90 á skrá fyrir viku. Þrír
bátar hafa lagt hér upp og eini
heimabáturinn Drangey, kom í
nótt með 116 tonn.
ÓLAFSFJÖRÐUR:
Hér er næg atvinna eins og
stendur og unnið alla daga í
báðum frystihúsunum. Afli hjá
togbátunum 6 er dágóður, en
heldur tregur hjá netabátum.
Rauðmagaveiði er farin að glæð
ast hér.
AKUREYRI:
Togararnir hafa lagt vel upp
og hefur verið mikil vinna við
verkun þess afla. Tunnuverk-
smiðjan er farin í gang og fengu
þar 40—50 manns vinnu. Að
öðru leyti hafa litlar breytingar
orðið á atvinnuástandi.
HÚSAVÍK:
Atvinnuástand er gott miðað
við árstíma. Bolfiskafli hefur
veiið sæmilegur undanfarna
dága, rauðmagaveiði er nokkur
og menn eru að byrja að leggja
næíur fyrir grásleppuna.
RAUFARHÖFN:
Lítið líefur rætzt úr atvinnu-
leysi hér, en grásleppuveiðar eru
rétt að byrja. Uppbyggingu
fry.-tihússins er haldið áfram og
er gert ráð fyrir að það verði
tilbúið seint í maí. Er verið að
undirbúa að fá stærri bát, en
þá sem fyrir eru, til þess að afla
fyrir frystihúsið, þegar það fer
af stað að nýju.
VOPNAFJÖRÐUR:
Atvinnuástand hér hefur lag-
azt til mikilla muna. Síðustu
viku hefur Brettingur, sem er á
trolli, landað 160 tonnum og má
heita að hér hafi flestir verkfær-
ir menn verið í vinnu á aðra
viku. Fiskimjölsverksmiðjan,
sem er eign hrepp>sins, er óstarf-
hæf, þar sem rafmagnið var teK-
ið af vegna skuldar. Er því ekki
um að ræða að reyna að fá loðna
og ekki er hægt að mála beinin
úr frystihúsinu.
SEYÐISFJÖRÐUR:
Hér er algert atvinnuleysi.
Engin loðna hefur borizt hingað
og enginn bolfiskur og eru allir
vinnufærir menn, sem komast
að heiman farnir burt í atvinnu-
leit.
NESK AUPSTAÐUR:
Góð vinna hefur verið síðustu
tvær vikurnar og hefur yfirleitt
verið unnið til kl. 11 á kvöldin
í frystihúsunum, aðallega þó
öðru þeirra.
Talsvert hefur borizt af loðnu
og í kvöld voru þeir loðnubát-
ar, sem ekki eru hættir á loðnu-
verzlunarstéttina og sagði, að
það væri sanni nær, að geng-
isbreytingarnar og aðrar ráð-
stafanir [ sambandi við þær
hefðu komið mjög harkalega
niður á verzlunarstéttinni.
Lýsti forsætisráðherra þeirri
skoðun sinni að kanna þyrfti
nauðsyn á ráðstöfunum til
að hagræða eða breyta
lausaskuldum verzlunarinnar
v e g n a gervgisbreytinganna
tveggja á hliðstæðan hátt og
gert heiur verið fyrir aðrar
höfuðatvinnugreinar þjóðar-
innar.
veiðum að streyma inn með full-
fermi.
ESKIFJÖRÐUR:
Atvinnuástand hér er all
sæmilegt. Búið er að leggja upp
mikið af loðnu og hafa margir
fengið atvinnu við bræðsluna.
Héðan róa tveir bátar með net
og einn með troll og er þriðji
netabáturinn að bætast við. Afli
hefur verið misjafn, en togbát-
urinn Jón Kjartansson hefur afl-
að ágætlega.
STÖÐVARFJÖRDUR:
Þrír bátar róa ihéðan, en afli
hefur verið heldur tregur. Næg
vinna hefur þó verið við vinnslu
aflans. Gísli Árni er búinn að
koma tvisvar með loðnu, alls um
670 tonn.
HÖFN í HORNAFIRÐI
Afli hefur verið heldur lítill
hjá netabátunum, sem eru 10 og
trollbátunum tveimur. Atvinna
er þó næg við frystingu og sölt-
un aflans. Páskavikan ihefur allt-
af verið talin drjúg, svo að mað-
ur er að vonast eftir að veiðin
fari að glæðast.
Meiriaflienífyrra
— þrátt fyrir verkfallið
SAMKVÆMT upplýsingum Fiski
félagsins var heildarbolfiskafl-
inn í Reykjavík hinn 15. þ.m. orð
inn 1369 tonn frá upphafi vertíð
ar. f fyrra var heildarfalinn yfir
sama tímabil orðinn 966 tonn.
Afláhæsta verstöðin á svæðinu
frá Hornafirði til Stykkishólms
er Grindavík, en þar hafði verið
landað hinn 15. marz 6665 tonn-
um frá byrjun, en á sama tíma í
fyrra 5880 tonnum. f Vestmanna
eyjum hefur nú verið landað
6097 tonnum, en á sama tíma í
fyrra 5225 lestum. í Sandgerði
ihafði hinn 15. þ.m. verið landað
3978 tonnum frá byrjun vertíð-
ar, en 3185 á sama tímábili í
fyrra.
Verða þetta að teljast mjög góð
aflabrögð, þar sem veiðar hófust
nú um mánuði síðar en venja
er af völdum verkfalilsins.
4. fundur
Kennslutækni
í dug
FJÓRÐI fundur samtakanna
Kennslutækni um skólamál verð
ur í dag kl. 14.30. Á dagskrá er
málaflokkurinn Hagur og hag-
vöxtur, og er Torfi Ásgeirsson,
hagfræðingur, frummælandi.
VIÐTALSTIMI
BORGARFULLTRÚA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Laugardagur 29. marz.
í viðtalstíma borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
laugardaginn 29. marz taka á móti að þessu sinni
Gunnar Helgason og Glfar Þórðarson. Viðtals-
tíminn er milli kl. 2—4 í Valhöll v/ Suðurgötu
og er þar tekið á móti hverskyns ábendingum og
fyrirspurnum er snerta málefni Reykjavíkur-
borgar.